Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 43
Tommi og Jenni
Smáfólk
Mamma vill ekki láta mig fá Hvernig stendur á því að
hund... mamma þín leyfir þér að
hafa liund? Ég veit það
ekki
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Skólaslit í barna-
skóla Akrahrepps
í Skagafírði
Frá Jóhönnu Sigr. Sigurðardóttur:
HINN 23. maí sl. var barnaskóla
Akrahrepps í Skagafirði slitið.
Helga Bjarnadóttir skólastjóri sleit
skólanum í síðasta sinn, en hún
hefur starfað við skólann í 38 ár.
Viðstaddir athöfnina voru nem-
endur og foreldrar þeirra, kennar-
ar skólans, formaður skólanefndar,
oddviti hreppsins, sóknarprestur-
inn á Miklabæ, undirrituð fyrrver-
andi skólastjóri o.fl. Margir tóku til
máls á þessu fagra vorkvöldi og
voru Helgu færðar þakkir fyrir vel
unnin störf og munu hreppsbúar
og ekki síst börnin í hreppnum
sakna Helgu, þvf að auk þess að
vera kennari af Guðs náð er hún
jafnframt hlý og góð manneskja.
Voru Helgu færðar góðar gjafir.
Einnig færði Helga samkennurum
sínum blóm og hún og fjölskylda
hennar gáfu skólanum veglega
gjöf. Það var í raun stórkostlegt
að vera í Akraskóla þetta kvöld.
Björt vorsólin skein um allan
fjörðinn og varpaði geislum sínum
inn í þetta einstaklega bjarta og
fallega skólahús. Fyrir nokkrum
árum var byggt í annað sinn við
skólahúsið og hef ég sjaldan séð
betur heppnaða viðbyggingu, bæði
þá fyrri og þá síðari. Tekist hefur
að gera húsið þannig úr garði að
það þjóni tveimur hlutverkum þ.e.
að vera samkomuhús og skólahús
með prýði. Arkitektinn á hrós skil-
ið og hreppsyfirvöld fyrir hversu
vel er staðið að málum þessa litla
skóla.
Skólastjórnin skýrði frá skóla-
starfi vetrarins, m.a. að dans- og
tónlistarkennsla hefði verið í skól-
anum, að út hafi komið skólablað,
að skólanum hefðu borist góðar
gjafir og gat þess hversu mikil-
vægt er að börnin fá morgun-
hressingu og hádegismat í skólan-
um og matmóðir skólans, María
Helgadóttir, var sérstaklega
heiðruð. Nú á tímum hraða og
upplausnar er það gott veganesti
að sitja saman til borðs og neyta
HELGA Bjarnadóttir útskrifar
einn nemanda sinn í Barnaskóla
Akrahrepps.
matar. Má nærri geta hversu náið
samband milli skólastjóra, kenn-
ara og nemenda myndast í svo fá- **
mennum skóla.
Á þessu fallega kvöldi var þó
skuggi yfir og hann var sá að einn
af kennurunum skólans frá fyrri
tíð, hún Anna Jónsdóttir á Stóru-
Ökrum, gat ekki verið viðstödd
skólaslitin því hún var stödd suður
á landi vegna veikinda. Anna
kenndi yngri börnum og ennfrem-
ur hannyrðir og hússtjómarfræði.
Það gátu ótrúlegir hlutir gerst í
höndunum á henni Önnu þrátt fyr-
ir erfíðar aðstæður til verkmennta-
kennslu á árum áður. Margir hlutir
sem Anna bjó til með bömunum
eru enn notaðir á samkomum skól-
ans eins og t.d. litlu jólunum.
Athöfninni lauk með kaffisam-
sæti sem foreldrafélag skólans sá
um af mikilli rausn.
Ég óska nýja skólastjóranum til
hamingju með stai-fið og veit að
hún mun halda vel utan um skólann
og bömin sem í honum verða. Það
eru meiri forréttindi en margan
getur grunað að vera nemandi í
jafn frábæmm skóla og Akraskóli
er.
JÓHANNA SIGR.
SIGURÐARDÓTTIR,
Haukanesi 9, Garðabæ.
Fagnar
sameiningunni
Frá Erlingi Viggóssyni:
DRAUMURINN um sameiningu
vinstrimanna er ekki nýr af nál-
inni. Mikið hefur verið talað um að
þetta mál í áratugi en það var ekki
fyrr á aukalandsfundi Alþýðu-
bandalagsins nýliðna helgi sem
loks var staðfest að samfylking
vinstrimanna er framundan.
Ég fagna niðurstöðu aukalands-
fundarins og því hvernig Margrét
Frímannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, hefur leitt þetta mál.
Vinstrimenn era sterkari samein-
aðir en sundraðir hvort sem það er
innan verkalýðshrevfingarinnar
eða stjórnmálanna.
ERLINGUR VIGGÓSSON,
fv. form. Verkalýðsfélags Stykkis-
hólms, fv. form. Alþýðubandalags-
félags Reykjavíkur og fv. stjórnar
maður í Sjómannasambandi Islands.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort .
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni *
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Hvar fékkst þú mömmu
þína?