Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Um alla heima og geima
Draumurinn um að ferðast til annarra
stjarna er eflaust jafngamall manninum.
Ottinn við vágesti utan úr öðru sólkerfi
virðist á hinn bóginn einvörðungu bundinn
við nútímamenn. Slíkar innrásir eru annað
helsta yrkisefni geimmynda en þær hafa
verið gerðar frá upphafí kvikmyndasög-
unnar. Þessar myndir segja einnig frá
ferðalögum jarðarbúa til fjarlægra
reikistjarna. Jónas Knútsson kynnti
sér geimmyndasöguna.
ELSTA geimmyndin, sem
menn þekkja til, er Ferðin
til tunglsins (Le Voyage
dans la lune) eftir Georges
Méli'es frá árinu 1902. Franski
leikstjórinn Frangois Truffaut sagði
að kvikmyndasagan hefði í önd-
verðu kvíslast í tvær áttir; annars
vegar raunsæismyndir sem rekja
mætti til Lumi'erebræðra og hins
vegar myndir þar sem ímyndunar-
aflið fær lausan tauminn en frum-
glæðir slíkra mynda væri George
Méli'es. Geimmyndir flokkast und-
ir þessa tegund mynda en hryllings-
, ævintýra- og framtíðarmyndum er
gjarnan stungið undir sama hatt
auk mynda um fyrirbæri sem eng-
um rökum lúta. Geimmyndir á neð-
anverðri öldinni drógu dám af bjart-
sýni 19du aldar manna og tröllatrú
. þeirra á framförum á sviði tækni og
vísinda. Hörmungar fyrri heim-
styrjaldar settu undireins svip á vís-
indaskáldsögur. Geimmyndir drógu
síðan dám af bölsýni eftirstríðsár-
anna. Togstreitan milli blindrar trú-
ar á tækniframfarir og hræðslunnar
við slíkar nýjungar speglast í þess-
um myndum.
Veröld ný og góð
Ofangreind tvíræðni kemur fram
ef borin eru saman verk einna
tveggja ástsælustu rithöfunda ald-
arinnar, Jules Verne og H.G.Wells.
Sá síðarnefndi virðist hafa tekið
tækniframförum með æmum fyrir-
vara og spáir því að gervöll heims-
byggðin berjist nánast til síðasta
blóðdropa í bókum á borð við Tíma-
vélina (The Time Maehine), Veröld í
vændum (The Shape of Things to
Come) og Stríð heimanna (The War
of the Worlds). H.G. Wells reit auk
þess skáldsöguna Fyrstu mennirnir
á tunglinu. Frakkinn Jules Verne
einblíndi aftur á móti á kosti tækn-
innar og samdi ævintýr þar sem
tækninýjungar voru oftar en ekki í
öndvegi (Ferðin til tunglsins, Um-
hverfis jörðina á áttatíu dögum).
Þess ber að geta að Verne lést upp
úr aldamótum en Wells lifði fram á
miðja þessa öld svo að báðir eru
þeir böm síns tíma.
Geimmyndir em, sem fyn- segir,
náfrænkur framtíðarmynda og fela
oftar en ekki í sér einhverja fram-
tíðarsýn. Margur spámaður forðum
sá fyrir sér miklar geimferðir þegar
fram liðu stundir. Oftar en ekki eru
þessir tveir flokkar kvikmynda,
geimmmyndir og framtíðarmyndir,
samofnir eins og í myndinni 2001
eftir snillinginn Stanley Kubrick.
Skáldsögur á borð við 1984 eftir Ge-
orge Orwell og Veröld ný og góð
eftir Aldous Huxley hafa varað við
kúgun mannsandans í náinni fram-
tíð. Myndin Metropolis eftir þýska
leikstjórann Fritz Lang var
ógleymanleg hrakspá um vélrænt
samfélag þar sem einstaklingurinn
má sín einskis. Charles Chaplin
gerði þessu stefí frábær skil í Nú-
CHA*CH*
.'HAHÁ jfcCHA |
Cfí/
C
UTSALAN
FERÁ
’A!
FRAMTÍÐARSÝN Fritz Langs í Metropolis var ekki björt. Maðurinn
er orðinn þræll tækninnar. Reyndist Lang sannspár?
STANLEY Kubrick leikstýrir myndinni 2001.
tímanum (Modern Times) þar sem
flækingurinn festist í vél í verk-
smiðju og verður eins konar tákn-
mynd nútímamannsins þar sem
hann velkist um í tannhjólunum og
fær sig hvergi hrært.
I skugga kalda stríðsins
Þótt faðir geimmynda hafi verið
Fransmaður hafa Bandaríkjamenn
verið nánast einir um hituna. Geim-
myndum óx fískur um hrygg þar í
landi á sjötta áratugnum. Innrás-
armaðurinn utan úr geimnum hét
oftast Igor eða öðru slavnesku nafni
og lenti iðulega í Bandaríkjunum.
Igor eða Zandor stefndi einatt að
heimsyfirráðum. Oft sneru kvik-
myndamenn þessu við og geimver-
umar urðu fyrir árás af hendi
heimamanna áður en þeir gátu
komið friðarboðskap sínum til skila.
Má þarna greina viðhorfsmun á
dögum kalda stríðsins þótt varast
beri að túlka um of.
Vísindaskáldsögur, hvort heldur
á bókfelli eða filmu, þóttu lengi vel
ekki góð latína og hafa verið horn-
reka í heimi bókmennta og kvik-
mynda. Höfðað var til yngri áhorf-
VÉLMENNIÐ Robbi í Forboðnu
plánetunni (The Forbidden Pla-
net). Niðji hans fer nú með stórt
hlutverk í myndinni Týnd í
geiminum.
enda og geimmyndir oft gerðar af
vanefnum. Risarnir í Hollywood
létu lengi vel minni spámönnum
eftir að gera slíkar myndir. Oftar
en ekki rata margar geimmyndir á
lista yfir verstu myndir kvik-
myndasögunnar þótt flestar þess-
ara mynda ættu að heita saklaus
skemmtun fyrir börn og unglinga
og stæðu langflestar undir nafni
sem slíkar. Bretar hafa ekki legið á
liði sínu í þessum efnum. Veröld í
vændum (The Shape of Things to
Come) eftir sögu H.G. Wells var
ein fyrsta framtíðarmyndin. Dagur
þríungana (The Day of the
Triffids) lýsti furðuverum sem
reyna að kúga gervallt mannkyn til
hlýðni. Bretinn Nicolas Roeg gerði
Manninn sem féll til jarðar (The
Man who Fell to Earth) en sú
mynd var besta geimmynd sem
gerð var á áttunda áratugnum.
Fjöllistamaðurinn David Bowie og
leikkonan Candy Clark áttu þar
stórleik.
Stjörnustríð
Bandariskar kvikmyndir fengu
snert af félagsraunsæi eftir seinni
heimstyrjöld. Þessi stefna var afar
áberandi á seinni hluta sjötta ára-
tugarins. Málsmetandi kvikmynda-
menn forðuðust geimmyndir eins og
heitan eldinn, sér í lagi á sjötta og
sjöunda áratugnum. Nafni Méli'es,
George Lucas, sameinaði ævintýra-
myndir og geimmyndir í Stjörnu-
stríðsþríleiknum (Star Wars, The
Empire Strikes Back, The Revenge
of the Jedi) á áttunda og níunda
áratugnúm og er það meira afrek en
margan grunar því að fáum hafði
tekist það áður. Myndirnar voru óð-
ur til ódýrra framhaldsmynda sem
sýndar voru á undan aðalmyndinni í
kvikmyndahúsum en þessar myndir
voru síðar endursýndar í sjónvarpi
og mótuðu heila kynslóð kvik-
myndamanna.
Stjörnustríðsmyndirnar eru
bráðskemmtilegar og athygli vekur
að þær marka straumhvörf í gerð
vísindaskáldsagna f'yrir breiðtjald
að því leyti að Vesturlandabúar
virðast hafa tekið tæknina í sátt að
nýju. Aður gerði Lucas framtíðar-
myndina THX 1138. Sú mynd var
mjög í anda skáldsögunnar 1984 eft-
ir George Orwell. Geimmyndir og
hryllingsmyndir hafa oft átt samleið
og nægir þar að nefna Geimveru-
myndirnar (Aiien o.s.frv.), Ofreskj-
una (The Thing) og Event Horizon.
Ef til vill hafa geimmyndir orðið
vinsælastar sem bandarískt sjón-
varpsefni. Nægir þar að nefna þátt-
araðirnar Stríðstirnið Galactica,
Buck Rogers, Babylon 5, Geimferj-
una (Star Trek), Geimstöðin 1999,
og síðast en ekki síst Týnd í geimn-
um (Lost in Space). Þættimir Mig
dreymir um Jeannie (I Dream of
Jeannie) sögðu frá geimfara sem
kvæntur er galdrakvendi.
Geimmyndir verða
að raunsæisformi
Raunveralegar geimferðir hafa
orðið mönnum að yrkisefni og orðið
á
CHÁ\
FULLT A
M0RGUN
CHA
CHA # CIÍA CHA * CHA
CHAXCHA
CHA#CHA CHAHfC-HA
CHA-WCHA
—...'^A*CHA
f CHA ♦ CHA
\ Verslunin CHA CHA
Kringlunni og Hringbraut JL-húsinu
Jf
Herradagar 6.-14. júlí
10-15% afsláttur
SýnísKorn
Þ71GLUGGINN
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði,
sími 565 4275.
Opnunartími í júlí,
mánud-fimmtud. kl. 10—18,
föstud. kl. 10—18.30,
laugard. lokað.
HlockerAl Verð áður 5.990
Verð nú 5-090
Verð áður 6.990
Verð nú 5.940