Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 49
FOLK I FRETTUM
GEIMMYNDIR eru ekki lengur gerðar af vanefnum eins og sjá má á
myndinni Návígi (Close Encounters of the Third Kind) eftir Steven
Spielberg.
geimmyndum. Nægir þar að nefna
Solaris eftir rússneska leikstjórann
Andrei Tarkovski en efnið sótt Tar-
kovski í samnefnda skáldsögu eftir
Stanislas Lemm. Pví miður hafa
Rússar gert fáar geimmyndir.
Kommúnistar töldu slíkar myndir
til marks um borgaralega úrkynjun
og flótta frá raunveruleikanum og
þröngvuðu félagsraunsæi upp á
bændur og búalið í meira en hálfa
öld. Myndin Fimmta frumefnið eft-
ir Frakkann Luc Besson var svo
vanhugsuð að hetjan og illmennið
ÞESSI furðuvera er vart týnd í geimnum þótt henni bregði fyrir
í samnefndri mynd.
mætast aldrei í myndinni. Bretar
gerðu Hvell-Geira (Flash Gordon) á
lok áttunda áratugarins. Einhver
hugvitsmaður tók upp á því að gera
myndina Gandgeira (Flesh Gor-
don). Þegar menn héldu að nú
hefðu þeir séð bókstaflega allt var
gerð framhaldsmynd um Gandgeira
til að kóróna vitleysuna. Þjóðverj-
inn Wolfgang Petersen gerði
myndina Fjandvinir (Enemy Mine)
en fylgdi þar bandarískri forskrift
líkt og landi hans Emmerich.
Gamanmál í geimnum
Gamanleikarinn Jerry Lewis lék
geimveru í myndinni Heimsókn til
lítillar plánetu (Visit to a Small Pla-
net) sem gerð var eftir leikriti eftir
Gore Vidal. Mel Brooks hugðist gera
grín að myndaröð George Lucasar í
myndinni Geimboltum (Spaceballs)
en sjálfar Stjömustríðsmyndimar
vom í raun fyndnari en þessi ósköp.
Flestar geimmyndir era fáránlegar í
eðli sínu svo að oft er líkt og menn
séu að bera í bakkafullann lækinn
þegar gert er grín að slíkum mynd-'
um. Sveinsstykki leikstjórans Johns
Carpenters, Helstimið (Dark Star),
ein frumlegasta geimmynd sem gerð
hefur verið, er jafnframt gaman-
mynd. Bakkabræður (The Three
Stooges) náðu til tunglsins en Abbot
og Costello komust til Mars. Gaman-
leikarinn Don Knotts hélt ótrauður i
upphæðh- í myndinni Seinheppna
geimfaranum (The Reluctant Astro-
naut). Eldflaugakappinn (Roeket-
man) fjallaði um geimfara sem
greinilega var náskyldur Knotts og
felögum. r
Islendingar hafa ekki látið sitt
eftir liggja í þessum efnum. Stutt-
myndin Sól sól skín á mig segir frá
geimferð, að ógleymdri Oxmá-
plánetunni. Geimmyndir hafa und-
anfarið fengið byr undir báða vængi
eftir því sem tæknibrellum hefur
fleygt fram. Lunginn úr tekjuhæstu
myndum kvikmyndasögunnar (E.T.,
Stjörnustríð, Menn í svörtu, Full-
veldisdagurinn) eru geimmyndir svo
að þetta form á eftir að lifa góðu lífí
næstu áratugi þótt margir kjósi ef-
laust að halda sig við hversdagslegri
sögur og hafa fæturna á jörðinni.
GEIMÁLFURINN E.T. er vin-
sælasta geimvera allra tíma.
INNRÁS úr geimnum (Invasion
of the Body Snatchers) er
dæmigerð fyrir bandarískar
vísindaskáldsögur frá
McCarthy-tímanum.
kveikjan að nokkrum myndum. Ro-
bert Altman gerði Niðurtalningu
(Countdown) um geimfara á vegum
NASA. Einvalalið (The Right Stuff)
og Apolló 13 eru sannsögulegar.
2001 er í raun eina frammúrstefnu-
myndin sem náð hefur lýðhylli.
Þetta meistaraverk er eflaust besta
mynd sem gerð hefur verið um
geimferðir fyrr og síðar. Höfundar
Steingeitarinnar (Capricorn One)
gerðu því skóna að bandaríska
leyniþjónustan hefði sett fyrstu
tunglgönguna á svið á sínum tíma
og hikaði ekki við að myrða saklaust
fólk til að leyna svikunum. Ef til vill
endurgerir Oliver Stone þessa
mynd einn góðan veðurdag.
Þjóðverjinn Roland Emmerich
glæddi með Fullveldisdeginum
(Independence Day) að nýju geim-
myndh- um illvígar furðuverur sem
hyggjast leggja jarðarbúa að velli.
Höfundar sóttu mikið í smiðju H.G.
Wells (The War of the Worlds), þó
ekki samtölin. Myndin Stjörnudátar
(Starship Troopers) var af svipuð-
um toga spunnin nema í þeirri
mynd börðust Ameríkumenn við
risavaxnar pöddur út í himinhvolf-
inu. Furðu sætir að þótt nú á dögum
sé varið milljónum til gerðar vís-
indaskáldsagna hafa þær aldrei ver-
ið fáranlegri eins og þessar tvær
myndir bera vott um. Segja má að
fátæklegar tæknibrellur í geim-
myndum á sjöttu áratugnum hafi
verið í fullu samræmi við önnur efn-
istök. Nú á dögum era hins vegar
oft hjákátleg samtöl, fráleitt handrit
og vondur leikur á skjön við glæsi-
legar tölvubrellur.
Aðrir þjóðir en Bretar og
Bandaríkjamenn hafa spreytt sig á