Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 50
60TT FÓIIC • ?ÍA
Morgunblaðið býður þér að fá
blaðið þitt sérpakkað og merkt
50 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
________________MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Halldór
POPPSTJARNAN Páll baksviðs að læra nýjan texta.
Ungir sem aldnir
í stuði á Sögu
HLJÓMSVEITIN Casino og Páll
Óskar héldu spariball í Súlnasal
Hótels Sögu sl. laugardagskvöld og
var góð stemmning á staðnum eins
og meðfylgjandi myndir sýna.
„Við vorum rosalega ánægðir með
mætinguna og fannst frábærast að
þeir sem mættu voru á aldrinum
20-80 ára,“ sagði Páll Óskar í viðtali
við Fólk í fréttum. „Svo virðist sem
svona breiðum aldurshópi líki tón-
listin okkar, og við vorum mjög
hissa. Samt ekki of, því flestir hafa
gaman af nýju plötunni okkar „Ster-
eo“. Enginn nema Bubbi Morthens
hefur talað illa um hana, en hann
sagði á Bylgjunni að við værum
versta hljómsveit í heimi.“
Þorgrími Jónssyni bassaleikara
finnst fínt að vera í vinsælli popp-
hljómsveit: „Það er skemmtileg til-
breyting frá því að vera ekki neitt.
Ég var samt búinn að heyra flestar
bransasögurnar áður. Allir þykjast
vita hvernig hann gengur fyrir sig og
eru að kenna hinum eitthvað, en
helmingurinn af því er lygi.“
Palli og Casino munu halda áfram
á sömu nótum í sumar, hoppa og
skoppa út um allt land, og það nær
hámarki um verslunarmannahelgina
þegar þeir spila á Akureyri á fóstu-
dagskvöldið og á Þjóðhátíð í Eyjum
á sunnudagskvöldið. Þorgrímur seg-
ir Eyjarnar það mest spennandi í
sumar. „Ég hef aldrei komið til Eyja,
og það verður gaman að sjá hvort
þeir verða búnir að byggja kví fyrir
Keikó.“
Næsta fimmtudagskvöld munu
þeir drengir hins vegar spila óraf-
magnað á Astró og verða lögin í
öðruvísi útsetningum og kannski
ekki jafn dansvæn. Þorgeir er viss
um að það verði fróðlegt að heyra
hvernig það kemur út. „Við ætlum
bara að spila af fingrum fram. Lögin
verða í annarri mynd en hingað til,
en hins vegar er hljómsveitin að
megninu til órafmögnuð nú þegar,
þannig að breytingin verður ekkert
rosaleg.“
MEÐ textann í hendinni tekur Páll nýja lagið.
PÆJUNUM Júlíu Gunnarsdóttur og Báru Hannesdóttur
finnst lagið algjört æði. . .
Hringdu í áskriftardeildina í síma
á sölustað nálægt sumarleyfis-
staðnum þínum hér á landi.
Nýttu þér þjónustu
Morgunblaðsins og fylgstu með.
. . . og Berglindi Laxdal og Birni Ólafssyni finnst dásamlegt
að dansa við það.