Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 56
Drögum næst
10.ÍÚIÍ
«
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Þorsteinn Pálsson í
heimsókn á Grænlandi
Undirrit-
*ar sjávar-
útvegs-
samning'
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra er í opinberri heim-
sókn á Grænlandi út vikuna hjá
starfsbróður sínum Heilmann Pavi-
araq. Munu þeir undirrita samning
um vilja til að auka samskipti land-
anna á sviði sjávarútvegs.
Ráðherrarnir ræða ýmis sameig-
^*ínleg mál á fundi sínum í dag, með-
al annars um samstarf í svæða-
stofnunum er snerta bæði löndin.
Þá er ráðgert að ráðherrarnir riti
undir almennan sjávarútvegssamn-
ing landanna, en slíkur samningur
greiðir fyrir auknum möguleikum á
samstarfi. Munu í framhaldi af
honum eiga sér stað viðræður um
samstarf vegna karfa- og grálúðu-
veiða.
Með ráðherranum í fór eru Ari
Edwald, aðstoðarmaður hans, og
~L"Ami Kolbeinsson ráðuneytisstjóri.
Heimsóknin hófst í Nuuk, en ráð-
herra og fylgdarlið hans héldu síð-
an til norðurhluta landsins og munu
dvelja m.a. í Jakobshavn.
Morgunblaðið/RAX
Hvassviðri
og sólarleysi
í vændum
ÞAÐ rigndi á Reykvíkinga í gær,
en næstu daga mun vætutíðin ein-
skorðast við Norður- og Austur-
land þegar allhvöss norðanátt mun
ganga yfir alla landsmenn, ef spár
Veðurstofunnar standast. Ekki
viðrar því vel fyrir landsmót hesta-
manna á Melgerðismelum, sem sjö
til níu þúsund manns sækja.
Að sögn Þorsteins Jónssonar
veðurfræðings má búast við snjó-
komu og slyddu á heiðum og til
fjalla og má jafnvel búast við
ófærð á norðurhluta hálendisins.
Það er allmikil og dýpkandi lægð
á leið austnorðaustur yfir landið
sem veldur vætunni og vindinum.
Fyrir næstu daga spáir Veður-
stofan norðanátt um allt land og
sólarlitlu veðri, en Sunnlendingar
ættu að mestu leyti að sleppa við
rigningu. Norðanlands er búist
v:ð 4 til 8 stiga hita en hlýrra
verður sunnanlands.
Fyrsti hluti sjókvíar háhyrningsins Keiko sjósettur í Eyjum
STEFÁN Martin situr á einu akkerinu, en þau vega átta tonn hvert.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FYRSTI hluti sjókvíar Keikos sjósettur í Vestmannaeyjahöfn í gær.
Akkerin héldu áður
kafbátagirðingum
í seinna stríði
FYRSTI hluti sjókvíar háhyrnings-
ins Keikos var sjósettur í Vest-
mannaeyjum í gær, en undanfarna
daga hefur verið unnið af krafti
við samsetningu kvíarinnar. Kvíin
er sett saman á norðurkantinum í
Vestmannaeyjahöfn og í gær var
fyrsti hlutinn hffður út fyrir kant-
inn. Sá hluti sem sjósettur var í
gær vegur 14 tonn og verður hann
settur við fast austur af kantinum.
Ráðgert er að sjósetja fleiri eining-
ar næstu daga, en síðan verða ein-
ingarnar festar saman eftir að þær
eru komnar á flot.
í dag verður hafíst handa við að
koma fyrir fjórum botnfestingum í
Klettsvík sem halda munu kvínni,
en hvert þessara akkera vegur
átta tonn. Akkerin eru ættuð frá
breska flotanum, sem notaði þau í
Hvalfirði í seinni heimsstyijöld til
að halda kafbátagirðingum og
stórum herskipum. Að sögn Stef-
áns Martin hjá köfunarfyrirtækinu
Djúpmynd, sem hafði milligöngu
um að útvega akkerin, hafði olíu-
félagið Skeljungur eignast þau og
geymt þau í sjó í Nauthólsvík í að
minnsta kosti þijátíu ár. Djúp-
mynd tók þau síðan upp síðastlið-
inn vetur. „Þetta hreyfist aldrei
eftir að það verður komið hér nið-
ur,“ segir Stefán.
Dýpkun í Klettsvík er lokið
þannig að hægt verður að koma
kvínni fyrir þar um leið og sam-
setningu hennar lýkur.
Minna selt á fískmörkuðunum fyrstu 6 mánuðina
Aflaverðmæti um 300
m.kr. meira en í fyrra
Á FYRSTU 6 mánuðum ársins
voru seld um 62.500 tonn á fisk-
mörkuðum hérlendis að verðmæti
um 5,6 milljarðar króna. Það er um
10.000 tonnum minna magn er selt
var á mörkuðunum á sama tíma á
síðasta ári en verðmæti þess er
engu að síður um 300 milljónum
króna meira en í fyrra.
Mest var selt hjá Fiskmarkaði
Suðurnesja á fyrri helmingi ársins
líkt og undanfarin ár eða alls um
18.222 tonn. Það er nokkuð minna en
á sama tíma síðasta árs en verðmæt-
ið samt sem áður meira. Fiskverð
hefur verið mun hærra það sem af er
árinu, samanborið við síðasta ár.
Sem dæmi má nefna að meðalverð á
þorski á fyrstu 6 mánuðum ársins
hjá Fiskmarkaði Suðurnesja vai'
rúmar 104 krónur sem er 15% hærra
verð en á sama tímabili 1997. Verð á
ýsu hefur hækkað nokkuð meira og
var sama tímabili um 20% hærra
samanborið við síðasta ár. Þá var
fiskverð í júnímánuði einnig mun
hærra í samanburði við sama mánuð
í fyrra. Að meðaltali fengust þá tæp-
ar 112 kr. fyrir þorskkílóið eða um
22% hærra verð en í júní í fyrra. Á
sama hátt var verð á ýsu um 38%
hærra á sama tíma.
Þrír fiskmarkaðir sameinast
Um síðustu mánaðamót voru þrír
fiskmarkaðir á Suðvesturlandi sam-
einaðir undir merkjum Faxamark-
aðarins hf. í Reykjavík. Þetta eru
Fiskmarkaðurinn hf. í Hafnarfirði,
Faxamarkaðurinn hf. í Reykjavík
og Skagamarkaðurinn hf. á Ákra-
nesi. Að sögn Olafs B. Olafssonar,
framkvæmdastjóra Faxamarkaðar-
ins hf., er með sameiningunni verið
að mæta þeirri þróun sem átt hefur
sér stað í útgerðarmynstri lands-
manna á síðustu árum og þannig
stefnt að aukinni hagræðingu í
rekstri markaðanna. Hann segir að
ekki verði gerðar miklar breytingar
á rekstri markaðanna.
■ Minna selt/Cl
■ Þrír fiskmarkaðir/C2
í bíó að
næturlagi
SAMBÍÓIN munu standa fyrir
sýningum allan sólarhringinn á
myndinni Armageddon eða
Ragnarökum næstkomandi
fóstudag. í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu er fullyrt að þetta
sé í fyrsta skipti sem Islending-
um gefst færi á að fara í bíó að
næturlagi og í morgunsárið.
Kvikmyndin, sem verður
frumsýnd á fóstudag í sjö söl-
um Sambíóanna í Reykjavík,
auk Borgarbíós á Akureyri,
var frumsýnd í Bandaríkjunum
hinn 1. júlí.
Á íostudaginn verða sýningar
í Bíóborginni við Snorrabraut á
þriggja klukkustunda fresti frá
klukkan 17 og til 12 á hádegi á
laugardag. Sambíóin hyggj-
ast hafa sérstaka öryggisgæslu
í Bíóborginni þessa nótt til að
tryggja að allt fari vel fram.
Saksóknari í Noregi um mál skipstjóra og útgerðar Sigurðar VE
Áfrýjar til Hæsta-
rettar Noregs
SAKSÓKNARI í Noregi hefur
áfrýjað Sigurðarmálinu svokallaða
til Hæstaréttar Noregs. Málið
verður þó ekki tekið fyrir fyrr en
nefnd á vegum Hæstaréttar hefur
tekið ákvörðun um hvort málið fari
fyrir réttinn eða ekki.
í síðasta mánuði sýknaði áfrýj-
unarréttur í Hálogalandi bæði
skipstjóra og útgerð Sigurðar VE
af því að hafa vanrækt tilkynn-
ingaskyldu varðandi komu og
brottfarir, í og úr lögsögunni við
Jan Mayen, og einnig af því að
hafa fært ranglega í afladagbæk-
ur.
Friðrik Arngrímsson, lögmaður
útgerðar Sigurðar, segir það vera
vonbrigði að ekki var látið sitja við
niðurstöðu áfrýjunarréttar en seg-
ist trúa því að góð niðurstaða fáist
ef málið verður tekið fyrir.
„Næsta skref er að koma sjónar-
miðum okkar til nefndarinnar en
báðir aðilar hafa rétt á því. Við vit-
um ekkert um hvenær hún síðan
ákveður um framhaldið og þangað
til er málið í biðstöðu,“ sagði Frið-
rik.
Sigurður Einarsson, útgerðar-
maður Sigurðar, sagðist vonsvikinn
yfir áfrýjuninni. „Eg ræð ekkert
við þetta, en ég hefði kosið að nið-
urstaðan sem liggur fyrir hefði
fengið að standa. Eg vona bara að
ef þetta verður tekið upp þá verði
fyrri niðurstaða staðfest,“ sagði
Sigurður.