Morgunblaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 68
68 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MESSUR Á MORGUN
120 ára afmæli í
Bessastaðahreppi
Á PESSU ári eru liðin 120 ár frá
því Álftaneshreppi hinum forna
var skipt í Garðahrepp og Bessa-
staðahrepp. Af því tilefni hefur ár-
ið í ár allt verið helgað 120 ára af-
mælinu í Bessastaðahreppi og
margt sér til gamans gert af því
tilefni. Nokkur aðdragandi hefur
verið að afmælishaldinu. Árið 1996
kom út Álftaness saga - Saga
Bessastaðahrepps og sérstök af-
mælisnefnd var skipuð til að móta
yfirbragð afmælisársins og til að
hafa umsjón með afmælinu, segir í
fréttatilkynningu. Hefðbundnir
atburðir í bæjarlífinu hafa verið
með sérstökum hátíðarbrag og
meira í þá lagt en venjulega. Gefm
hafa verið út dagskrárrit með
reglulegu millibili, þar sem það
helsta sem á döfinni er, hefur verið
kynnt og sagt frá starfsemi félaga
og stofnana sveitarfélagsins. Á
vordögum 1998 kom út „Bessa-
staðahreppur í 120 ár“, veglegt af-
mælisrit með menningar- og sögu-
legu ívafi sem dreift var til hrepps-
búa og víðar.
Laugardaginn 8. ágúst nk. verður
svo hin eiginlega afmælishátíð. Hún
hefst reyndar strax kvöldið áður á
stórdansleik í íþróttahúsinu þar sem
hljómsveitin Sixties leikur fyrir dansi
og kynslóðimar geta sameinast í létt-
um snúningi. Þegar fánar hafa verið
dregnir að húni á laugardagsmorg-
uninn hefst íþróttakeppni milli
UMFB og nágrannasveitarfélag-
anna, þar sem keppt er til verðlauna
sem aflient verða síðar um daginn.
Afmælishátíðin verður svo sett kl.
14:00 og verður hátíðardagskrá í
íþróttahúsinu.
Utanhúss verða uppblásin leik-
tæki fyrir yngstu börnin og víða um
íþróttahúsið verður sýning á ljós-
myndum Álftnesingsins Péturs
Thomsen sem sérstaklega verður
sett upp af þessu tilefni. Myndirnar
sýna Álftnesinga, mannlíf á Álfta-
nesi og ýmis gömul vinnubrögð sem
óðum eru að hverfa. Á afmælisdag-
skránni verða ávörp, tónlistarflutn-
ingur af ýmsu tagi , skemmtiatriði
og loks verður öllum boðið upp á
risatertu sem bökuð verður sérstak-
lega í tilefni afmælisins.
Sérstakir heiðursgestir verða
fulltrúar vinabæja Bessastaða-
hrepps á Norðurlöndunum, Næst-
ved í Danmörku, Rauma í Finn-
landi, Gjevle í Svíþjóð og Gjövik í
Noregi en á sama tíma fer fram
vinabæjamót í hreppnum og fulltrú-
um vinabæjanna verður því boðið í
afmælisveisluna.
Allir Álftnesingar eru boðnir vel-
komnir til hátíðarinnar að fagna
þessum tímamótum.
Morgunblaðið/Arnaldur
STYRKÞEGAR ásamt Guðjóni Ólafssyni og Bernhard A. Petersen.
Verkefnastyrkur Felags-
stofnunar stúdenta veittur
VERKEFNASTYRKUR Félags-
stofnunar stúdenta var veittur mið-
vikudaginn 29. júlí.
Að þessu sinni voru tveir styrkir
veittir. Andri Stefánsson hlaut
styrk fyrir MS verkefni sitt í jarð-
efnafræði, „Efnaveðrun og efnarof
á vatnasviði Laxár í Kjós og leysni
og mettunarástand frumsteinda
prófessors og Sigurðar Reynis
Gíslasonar, vísindamanns við
Raunvísindastofnun HÍ. María J.
Ammendrup hlaut styrk fyrir MA
verkefni sitt í félagsfræði, „Vinnu-
horf íslendinga", sem unnið var
undir leiðsögn Stefáns Ólafssonar
prófessors. Andri og María luku
námi frá Háskóla Islands 17. júní
framfæri og kynna frambærileg
verkefni. í tilefni af 30 ára afmæli
FS í ár nemur hvor styrkur
200.000 kr.
Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnar-
formaður og Bemhard A. Peter-
sen, framkvæmdastjóri FS afhentu
styrkinn.
Guðspjall dagsins:
Um falsspámenn.
(Matt. 7)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Hjalti Guðmundsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
ustakl. 10.15.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta
fellur niður.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
bamasamkoma kl. 11. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Sigurður Pálsson. Orgeltónleikar kl.
20.30. Ulrich Meldau, organisti við
Kirche Enge í Sviss, leikur.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Kvöldbænir kl.
20.30. Umsjón Svala Slgríður Thom-
sen, djákni.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumar-
leyfa starfsfólks Laugarneskirkju er
bent á guðsþjónustu í Áskirkju.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Frank
M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Prestur sr. Sigurður Grétar
Helgason.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta í
safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl. 11.
Organleikari Kristín G. Jónsdóttir.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messur falla
niður til ágústloka vegna sumarleyfa
starfsfólks og uppsetningar orgels.
Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum í prófastsdæminu.
DIGRANESKIRKJA: Messur falla
niður frá 1. júlí til 9. ágúst vegna
sumarleyfa starfsfólks.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og sumarleyfa
er fólki bent á helgihald í öðrum kirkj-
um prófastsdæmisins.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
ki. 11. Prestur sr. Stefán Lárusson.
Guðrún Lilja Guðmundsdóttir ásamt
fleirum leiðir safnaðarsöng. Organisti
Kári Þormar. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Messur falla niður
fram til 30. ágúst vegna sumarleyfa
starfsfólks. Bendum á guðsþjónustur
í öðrum kirkjum prófastsdæmisins.
Bænastundir eru í kirkjunni alla mið-
vikudaga kl. 18. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónustur
falla niður þar til í lok ágústmánaðar
vegna sumarleyfa en hægt er að ná í
safnaðarprest í síma 552 7270 eða
553 9105.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarárstíg
26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11 og fimmtudag kl. 20. Prest-
ur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messur
sunnudaga kl. 10.30 og 14. Messa kl.
18 á ensku. Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag kl.
17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 19.30, bænastund. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma í umsjón brigader-
anna Ingibjargar og Óskars. Allir
hjartanlega velkomnir.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Hesta-
mannamessa verður i Reynivalla-
kirkju sunnudaginn 2. ágúst kl. 14.
Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur.
VÍDALÍNSKIRKJA: Helgistund kl.
20.30. Almennur safnaðarsöngur.
Organisti er Jóhann Baldvinsson.
Kaffisopi að athöfn lokinni. Sr. Bjarni
Þór Bjarnason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Sjá guðsþjón-
ustu í Vídalínskirkju. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
guðsþjónustu í Vídalínskirkju. Sókn-
arprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30.
Morgunbænir þriðjudaga til föstu-
daga kl. 10. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa sunnu-
daga kl. 17. Tónlistarstund hefst í
kirkjunni kl. 16.40. Fyrir messuna
flytja Jaap Schröder og Helga Ing-
ólfsdóttir verk fyrir barokkfiðlu og
sembal eftir J.S. Bach. í messunni
flytur sönghópurinn The Clerk’s
Group trúarleg söngverk frá 16. öld.
Margrét Bóasdóttir syngur stólvers
úr fornu íslensku handriti í útsetningu
Snorra Sigfúsar Birgissonar við und-
irleik Noru Kornblueh. Organisti er
Örn Falkner. Prestur er sr. Egill Hall-
grímsson.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa:
Messa nk. sunnudag kl. 13.30. Krist-
inn Á. Friðfinnsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Dr. Sigurbjörn Einarsson bisk-
up prédikar. Órganleikari Ingunn
Hildur Hauksdóttir. Sóknarprestur.
Fríkirkjan
í Reykjavík
Vegna sumarleyfa fellur
guðsþjónustuhald niður þar til í
lok ágústmánaðar. Þann tíma er
vísað til guðsþjónustuhalds
nærliggjandi kirkna svo og til
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Þó er hægt að ná í safnaðar-
prest, Hjört Magna Jóhannsson,
ísímum 553 9105 og 552 7270.
Víðtalstímar eru
eftir samkomulagi.
basalts í vatni,“ sem unnið var
undir leiðsögn Jóns Ólafssonar
Bolungarvík
Minnisvarði
afhjúpaður
SUNNUDAGINN 2. ágúst kl.
11.30 verður afhjúpaður minn-
isvarði um hjónin Elísabetu
Hjaltadóttur og Einar Guð-
finnsson í tilefni nýliðins aldar-
afmælis Einars.
Minnisvarðinn stendur
sunnan við Félagsheimili Bol-
ungarvíkur. Um er að ræða
lágmynd sem unnin er af Rík-
eyju Ingimundardóttur,
Reykjavík, og umgjörðin er
hönnuð af Jóni Sigurpálssyni,
Isafirði. Guðjón Kristinsson
frá Dröngum og félagar hafa
annast hleðslu grjótveggs með
flögugrjóti frá heimahögum
Einars í Hvítanesi í Skötufirði.
sl.
Verkefnastyrkur Félagsstofnun-
ar stúdenta er veittur þrisvar á ári.
Tveir við útskrift að vori, einn í
október og einn í febrúar. Nem-
endur sem skráðir eru til útskriftar
hjá Háskóla íslands og þeir sem
eru að vinna verkefni sem veita 6
einingar eða meira í greinum þar
sem ekki eru eiginleg lokaverkefni
geta sótt um styrkinn. Markmiðið
með Verkefnastyrk FS er að
hvetja stúdenta til markvissari
undirbúnings og metnaðarfyllri
lokaverkefna. Jafnframt að koma á
LEIÐRÉTT
Skógafoss
f GREIN sem birtist í blaðinu í
gær, Sparistell á þjóðlegum nótum,
var minnst á Skógafoss undir Aust-
ur-Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu
og hann rangnefndur Skógarfoss.
Fossinn er kenndur við Skóga en
ekki Skóg, og er beðist velvirðingar
á þessum mistökum.