Morgunblaðið - 06.08.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 21
Nótaskipaflotinn dreifður um allan sjó
Rólegt á öllum
vígstöðvum
NÓTASKIPAFLOTINN hefur ver-
ið að tínast til veiða eftir verslunar-
mannahelgina og verður stærsti
hluti hans á loðnuveiðum fram til
15. ágúst en þá tekur í gildi bann við
loðnuveiðum fram til haustsins. Að-
eins voru tvö skip að loðnuveiðum
um verslunarmannahelgina, Há-
berg GK og Grindvíkingur GK, en
fengu lítinn afla. Fleiri skip hafa
siglt á miðin eftir helgina en afla-
brögð verið mjög léleg og jafnvel
verri en þau voru í síðustu viku. Þó
nokkur nótaskip hafa horfið til ann-
arra veiða. Nokkur skip eru nú á
kolmunnaveiðum suðaustur af land-
inu og fimm skip eru á leiðinni í
færeysku lögsöguna til makrílveiða.
„Sultan“ til vandræða
I gær voru 14 loðnuskip á miðun-
um um 100 sjómílur norður af Kol-
beinsey eða á leiðinni þangað. Litl-
um sögum fer af aflabrögðum og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fást nú aðeins 10 til 30 tonn
í kasti. Skipin hafa auk þess lent í
vandræðum vegna svokallaðrar
„sultu“ en það eru marglyttuflekkir,
sem setjast í nætumar og þyngja
þær mjög. Mikill fjöldi norski-a
loðnuskipa er einnig á miðunum.
Fjölmörg erlend loðnuskip lönd-
uðu slöttum hér á landi um síðustu
helgi, samtals um 10 þúsund tonn-
um. Alls hefur verið landað rúmum
303 þúsund tonnum af loðnu hér-
lendis á vertíðinni, þar af tæpum 94
þúsund tonnum af erlendum skip-
um. Langmest hefur borist til SR
Mjöls hf. á Siglufirði eða um 43 þús-
und tonn. Um 30 þúsund tonnum
hefur verið landað hjá SR Mjöli á
Seyðisfirði og um 28 þúsund tonn-
um hjá Síldarvinnslunni hf. í Nes-
kaupstað.
Lítil kolmunnaveiði
Hafrannsóknastofnun mældi í
tveimur leiðangrum fyrr í sumar
um 1,5 milljónir tonna af kolmunna
innan íslensku landhelginnar suð-
austur af landinu. Nokkur nóta- og
togveiðiskip hafa nú eftir helgina
reynt við kolmunnann en orðið lítið
ágengt að sögn Hálfdáns Hálfdáns-
sonar, stýrimanns á Berki NK, en
skipið var í gær að veiðum vestur af
Þórsbanka. Auk Barkar NK var
Hólmaborg SU einnig á kolmunna-
veiðum í gær og Huginn VE á leið-
inni á miðin. Þorsteinn EA og Gard-
ar E A hafa einnig verið við veiðarn-
ar síðustu daga. Kolmunninn er
veiddur í flottroll og Hálfdán segir
hann dreifðan og lítinn afla í hverju
hali. Hann segir togað í 10 klukku-
tíma eða meira og aflann aðeins í
kringum 30 tonn í hali. „Stærri og
öflúgri skip hafa hins vegar fengið
þokkalegan afla hér síðustu daga.
Til dæmis hefur færeyska skipið
Kristján í Grjótinu fengið ágætan
afla en hann er hér við veiðar,“
sagði Hálfdán.
Gott verð fyrir makrílinn
Fimm íslensk nótaskip hafa leyfi
til makrílveiða innan færeysku lög-
sögunnar og héldu þau á miðin í
gær og í fyrradag. Skipin eru Elliði
GK, Sighvatur Bjarnason VE, Ant-
ares VE, Bjarni Ólafsson AK og
Jóna Eðvalds SF. Makrílveiðin
hefst vanalega í kringum 10. ágúst á
svæðinu. Þessi sömu skip voru
einnig á makrflveiðum innan fær-
eysku fiskveiðilögsögunnar á síð-
asta ári með þokkalegum árangri og
var aflanum þá landað í Noregi og í
Færeyjum. Mikilvægt er að koma
með makrflinn sem ferskastan að
landi og því geta skipin ekki verið
nema takmarkaðan tíma að veiðum
hverju sinni. Runólfur Hallfreðsson,
útgerðarmaður Bjarna Ólafssonar
5 gerðir - margir litir
60 ára frábœr reynsla.
//// Einar
Farestvett&Caht
Borgartúnl 28 TT 542 2401 og 542 2900
Er*nmr
Morgunblaðið/Sigurgeir
NOTIN tekin um borð fyrir siðustu törnina á sumarloðnuvertíðinni.
AK, segir að verði hins vegar h'til
veiði verði makrflhnn að öllum lík-
indum flakaður eða frystur um
borð. Hann segist gera ráð fyrir að
skipið fari á kolmunna að makríl-
veiðunum loknum.
Eftir nokkru er að slægjast því
makríllinn er verðmæt afurð. Á síð-
asta ári fengust að jafnaði 60 til 70
krónur fyrir kflóið en allt að 100
krónur fyrir dýrustu flokkana. Þeir
sem Morgunblaðið ræddi við telja
að verðið sé svipað nú og í fyrra.
Ki'tctien/lkicfl
Draumavél
heimilanna!
Vegleg bráðargjöfi
ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
ItEIO
Sértilboð á
barnahjálum
TREK 800 SPORT
TREK 820, 27 gíra Shimano Alivio,
krómólí stell og V-bremsur
á kr. 28.36 I (ábur kr. 37.816)
GARY FISHER PIRANHA: 21 gíra
Shimano Acera-X, krómólí stell og V-
bremsur á kr. 23.680 (áður kr. 31.573)
Krómólí/stálstell me
æyangri ábyrgð
Breið gróf-
mynstruðdekk
V-bremsur
Vandaði
bunaður
eins órs
ábyrgð
HJÓLAFATNAÐUR OG
HJÓLATÖSKUR
Ýmsar gerðir með 50% afslætti!
(áíurkr.l5.679)
Sterkar álfelgi
Hjálmatilboð kr. 500
Kr. 19.849;
(aður kr. 27.191,-1
SÉRTILBOD Á
TREK HJÁLMUM
99% ohSéttorí
Helstu útsölustaðir: ÖRNINN REYKJAVÍK - Pípó Akranesi -
Olíufélag útvegsmanna (safiröi - Hegri Sauðárkróki - Sportver
Akureyri - KÞ Húsavík - Króm & hvítt Höfn - Klakkur Vík -
Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum - Hjólabær Selfossi - Birgir
Oddsteinsson Hveragerði - Músik og Sport Hafnarfirði -
Stapafell Keflavík - Hjólið Seltjarnarnesi.
SKEIFUNNI T T
VERSLUN SÍMI 588-9890 VERKSTÆÐI SÍMI 588-9891
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10-16
RAÐQREIÐSLUR
Tilboðið stendur aðeins í nokkra daga á örfáum hjólum af árgerð 1998
ALLIR LINUSKAUTAR MEÐ 30% AFSLÆTTI!