Morgunblaðið - 06.08.1998, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Utanríkisráðherra gengur til liðs við uppreisnarmenn
Kabila sakaður um
spillingu og óstjórn
Goma, Jóhannesarborg, Gisenyi, Róm. Reuters.
BIZIMA Karaha, utanríkisráðheiTa
Lýðveldisins Kongó, gekk til liðs við
uppreisnarmenn í Goma í austur-
hluta landsins í gær og hét því að
koma Laurent Kabila, forseta lands-
ins, frá völdum. Karaha sakaði Ka-
bila um spillingu og sagði forsetann
draga taum ættmenna sinna við
stjóm landsins.
„Byltingin fer sem eldur í sinu um
allt land,“ var haft eftir Karaha.
„Uppreisnarmenn ná bæjum á sitt
vald án nokkurrar mótspyrnu vegna
þess að fólk hefur fengið sig fullsatt
á óstjóm Kabilas." Karaha sagði
enn fremur að Laurent Desire Ka-
bila hefði gert meira ógagn í eins árs
valdatíð sinni en Mobutu Sese Seko
einræðisherra á 32 ára löngum
valdaferli.
Bizrnia Karaha, sem var utanrfk-
isráðherra og einn helsti ráðgjafi
Kabilas, er læknir að mennt og leið-
togi Banyamulenge-tútsa, sem búa í
austurhluta landsins, nálægt landa-
mæram Rúanda. Laurent Kabila
komst til valda í maí 1997 með full-
tingi Banyamulenge-tútsa og lið-
sinni stjómvalda í Rúanda.
Allt virðist með kyrram kjöram í
höfuðborginni Kinshasa en útgöngu-
bann hefur verið í gildi í tvær nætur.
Kabila forseti hefur bannað stjóm-
málastarfsemi í Lýðveldinu Kongó
en lofað almennum kosningum í apr-
íl næstkomandi.
Uppreisnarmenn standa einnig
fyrir áróðursstríði við valdhafa í
Kinshasa á bylgjum ljósvakans.
Rödd fólksins, stöð uppreisnar-
manna í Goma, hvetur í tilkynning-
um sínum almenning til að sýna
stillingu jafnframt því að lýsa
óstjórn, spillingu og frændgæsku
forsetans.
Emma Bonino, sem fer með
mannréttindamál í framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins (ESB),
segir ástandið í Lýðveldinu Kongó
ekki koma á óvart, því að ljóst hafi
verið um skeið hvert stefndi: „Svona
fer þegar styrkum stoðum er rennt
undir einn mann en ekki stofnanir
landsins," sagði Bonino og vísaði til
þess að ESB og Bandaríkjastjóm,
sem fijgnuðu valdatöku Kabilas á
síðasta ári, hefðu ekki gert nóg til að
styrkja lýðræði í landinu og hefðu
nú gefist upp á Kabila, sem reyndist
ekki traustsins verður.
Verðfallið á mörkuðum Wall Street á þriðjudag
„Leiðrétting44 eða vís-
bending um verri tíð?
DOW Jones-vísitalan tók nokkurn
kipp upp á við á nýjan leik í gær eft-
ir mesta verðfall á þessu ári á hluta-
bréfamörkuðum í Bandaríkjunum á
þriðjudag. Margir óttast þó að gengi
hlutabréfa eigi enn eftir að falla áð-
ur en markaðir nái sér á strik á ný.
Verðfallið á þriðjudag er í pró-
sentum talið langt frá því að teljast
met. Það var einungis 3,4% en verð-
fallið í október síðastliðnum var
7,18% og verðfallið árið 1987, sem
kallað er „svarti mánudagurinn",
taldist vera 22,6%. Ekki var að sjá að
örvænting hefði gripið um sig á Wall
Street og vonast menn til að hér sé
einungis á ferðinni „leiðrétting" á
mörkuðum, en ekki varanlegt hrun.
Enginn vafi er að vísu talinn leika
á því að vænta megi óstöðugleika á
mörkuðum næstu vikurnar en það
var mat margra að verðfall hefði ef
til vill verið óumflýjanlegt eftir
nokkuð gott gengi undanfarið.
Sautjánda júlí síðastliðinn náði
gengi hlutabréfa sögulegu hámarki
en nú, einungis þremur vikum síðar,
er gengi þeirra lægra en það hefur
verið síðan í október á síðasta ári.
Markaðir í Evrópu fylgdu nokkuð
í kjölfar þróunar á Wall Street en þó
var ekki um að ræða sambærilegt
verðfall og á mörkuðum í Bandaríkj-
unum.
„Hrun“ eða „hiksti“?
Sú spurning sem lék á allra vör-
um í gær var vitaskuld hversu mikið
verðfallið yrði og hversu lengi það
myndi vara. Litið er svo á að verð-
fall upp á tíu til fimmtán prósent sé
„leiðrétting" á gengi hlutabréfa en
þegar gengi hlutabréfa hefur fallið
um meira en tuttugu prósent frá sín-
um hæsta tindi er talað um að „böl-
sýni“ hafi gripið markaði og þá er
farið að tala um hran. Frá 17. júlí,
þegar Dow-Jones vísitalan náði
hæsta tindi ársins, hefur hún fallið
um 9,1 prósent og því var það mat
manna að of snemmt væri að tala
um hran.
Fréttaskýrendur töldu erfitt að
nefna eina ástæðu fyrir verðfalli
hlutabréfa. Talið er hins vegar að
fjárfestar hafi loks farið að gefa
gaum efnahagsöngþveitinu í Asíu
sem valdið hefur minni eftirspurn
þar eftir bandarískum vörum.
Styrkur dollarans hefði jafnframt
valdið þeim fyrirtækjum erfiðleikum
sem ættu í viðskiptum erlendis.
Efnahagsvöxtur væri lægri í Banda-
ríkjunum á þessum ársfjórðungi en
þeim síðasta og að síðustu hefðu
vandamál Bill Clintons, Bandaríkja-
forseta, vafalaust neikvæð áhrif á
mörkuðum Wall Street. Helstu
ástæðuna telja menn hins vegar
vera þá að fregnir hafa nú borist um
að gróði bandarískra fyrirtækja
verði minni á þessu ári en vonast
hafði verið til.
Charles Johnson, verðbréfamiðl-
ari í Baltimore, sagði marga hafa
beðið óþreyjufulla eftir þessari
„leiðréttingu“ á markaðnum og
sagði hana verða til góða því menn
yrðu varari um sig en áður við kaup
hlutabréfa.
Margir fjármálaspekúlantar
vænta þess því að markaðir taki aft-
ur við sér innan skamms og jafn-
vægi náist á nýjan leik. Aðrir benda
hins vegar á að neytendur eyði um
efni fram og þurfí senn að draga úr
útgjöldum sínum og eyðslu. Eyðsla
er hins vegar forsenda hagvaxtar og
því óvíst hvort markaðir ná sér á
strik á næstunni.
Reuters
Japanar minnast kjarn-
orkuárásar á Hiroshima
JAPÖNSK systkini virða fyrir sér minnismerki um kjarnoi kusprengj-
una sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Hiroshima 6. ágúst 1945. f dag
fer þar fram athöfn til að minnast fórnarlamba sprengjunnar.
Rauðvín hollara
en hvítvín
Washington. Reuters.
BRESKIR vísindamenn kynntu
á mánudag þær niðurstöður sín-
ar að neysla rauðvíns í hófi væri
sannarlega góð vöm gegn hjarta-
kvillum.
Því hefur löngum verið haldið
fram að hóflega drakkið vín geti
aðstoðað líkamann í baráttunni
gegn hjartakvillum og jafnvel
krabbameini, og hafa nokkrar
rannsóknir að undanfómu stað-
fest þetta, en nú telja vísinda-
mennirnir sig geta haldið því
fram að öðrum áfengistegundum
fremur sé rauðvínið holl drykkj-
arvara.
I grein í tímaritinu American
Joumal of Clinical Nutrition
halda vísindamennimir því fram
að í rauðvíni sé að finna þráa-
varnarefni sem geti komið í veg
fyrir að fita festist í æðaveggi og
stífli þær. Þessi efni koma úr vín-
berjahýði sem notað er við gerð
rauðvíns en er hins vegar fjar-
lægt snemma í framleiðsluferli
t.d. hvítvíns og er því ekki að
finna þar að neinu ráði.
fullvissaði í gær fréttamenn um að
fyrirhugaðar skattalækkanir
kæmust bráðlega í framkvæmd.
Stjórnvöld boðuðu á þriðjudag að-
gerðir til að styrkja gjaldmiðilinn og
efnahagslífið, á sama tíma og
japönsk dagblöð birtu niðurstöður
skoðanakannana sem gefa til kynna
að ríkisstjómin, sem tók við völdum
í síðustu viku, njóti lítils stuðnings
meðal þjóðarinnar.
Gengi japanska jensins gagnvart
Bandaríkjadollar hefur lækkað
verulega undanfarið. Fjármálaráð-
herrann Kiichi Miyazawa hefur lýst
því yfir að veik staða jensins kæmi
bæði japönum og heimsmarkaðnum
illa. Hann visaði á bug fregnum þess
efnis að hann teldi ekki nauðsynlegt
að stjómvöld gripu til aðgerða til að
styrkja gjaldmiðilinn, og hét því að
það yrði gert.
Miyazawa skýrði ennfremur frá
því að tekjuskattur í efsta skatt-
þrepi yrði lækkaður úr 65% í 50%, í
samræmi við fyrirheit forsætisráð-
herrans Keizos Obuchis um skatta-
lækkanir. Búist er við að Obuchi
muni kynna meginatriði nýrrar
skattastefnu í stefnuræðu á jap-
anska þinginu á morgun.
Neikvæð skoðanakönnun
Niðurstöður skoðanakannana,
sem japönsk dagblöð birtu á þriðju-
dag, gefa til kynna að almenningur í
Japan hafi litla trú á ríkisstjórn
Obuchis. I könnun dagblaðsins Ma-
inichi Shimbun lýstu 48% aðspurðra
sig andvíga stjóminni. Hlutfall óá-
nægðra hefur aldrei verið svo hátt,
þegar um hefur verið að ræða nýja
ríkisstjórn, síðan blaðið hóf að gera
skoðanakannanir árið 1960. í könn-
un hins virta fjármálablaðs Nihon
Keizai Shimbun lýstu 50,9% sig and-
víga stjóminni. Aðeins 25% að-
spurðra í báðum könnunum sögðust
styðja stjómina.
Japanska stjórnin
boðar aðgerðir
Tókýó. Rcutcrs.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Japans
Úttekt á stöðu Mið- og Austur-Evrópuríkja
Þjóðartekjur verða
lengi lakari en í ESB
AÐLÖGUN landanna í Mið- og
Austur-Evrópu, sem sækjast eftir
aðild að Evrópusambandinu
(ESB), að því velmegunarstigi
sem þar ríkir, mun taka mun
lengri tíma en oft hefur verið látið
í veðri vaka, að áliti sérfróðra
embættismanna framkvæmda-
stjómar ESB, sem fram kemur í
nýbirtri úttekt á stöðunni í þess-
um löndum.
Mareo Franco, sérfræðingur
framkvæmdastjórnarinnar í mál-
efnum Ungverjalands, segist í
grein í Wirtschaftspolitische
Blátter, sem gefið er út af austur-
ríska verzlunarráðinu, sannfærður
um að aðlögunarferlið - sem færa
á efnahags- og stjórnkerfi þessara
ríkja í átt að því sem gengur og
EVRÓPA
gerist í núverandi ESB-löndum -
muni taka mun lengri tíma en oft
sé haldið fram að raunin geti orð-
ið.
Sem dæmi um þetta segir
Franco að Ungverjaland sé al-
mennt álitið eitt þeirra ríkja í Mið-
og Austur-Evrópu, sem lengst sé
komið á veg á framfarabrautinni.
Hagvöxtur á þessu ári verður
sennilega á bilinu 3,5-4%, búizt er
við að verðbólga minnki niður í
16% og svo virðist sem erlendar
skuldir, viðskiptajöfnuður við út-
lönd og atvinnuleysishlutfallið séu
einnig á niðurleið. En þjóðartekjur
á mann séu samt enn ekki hærri en
sem nemur 40% af meðaltali ESB-
ríkjanna fimmtán. Jafvel þótt ár-
legur hagvöxtur héldist í 4% tæki
15 ár að hífa tekjurnar á sama stig
og í fátækasta ESB-landinu.
Bankakerfíð vanþroskað
Til að flýta fyrir aðlögunarþróun-
inni er að sögn Francos einkum
þörf á endurbótum á fjármála- og
bankakerfinu og að betri tök náist á
svartamarkaðsviðskiptum. Mest
þörf sé á fjárfestingum í samgöng-
um og samskiptatækni, umhverfis-
málum, rannsóknum og menntun.