Morgunblaðið - 06.08.1998, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
VIGSLA LAUGAVEGAR
MORGUNBLAÐIÐ
víjí.jiíí:-'
„MÉR flnnst Laugavegrurinn mjög vel hannaður og þegar trén verða komin niður
batnar ásýnd götunnar enn frekar,“ sagði Walter Lentz (t.h.) í Gleraugnasölunni
ásamt Rudiger Seidenfaden.
AÐ MATI Sverris Bergmanns (t.v.), sem hér er ásamt Guðgeiri Þórarinssyni í Herra-
húsinu, er merkilegasta breytingin við nýja Laugaveginn sú viðhorfsbreyting sem þar
hefur verið tákngerð.
Lj ómandi
Laugavegur
Vígsla Laugavegarins fer fram í dag kl. 14 þegar Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri klippir á borð-
ann við gatnamót Barónsstígs og Laugavegar. Fram-
kvæmdir undanfarna mánuði hafa valdið samdrætti í
viðskiptum á Laugaveginum en kaupmennirnir sem
Örlygur Steinn Sigurjónsson heimsótti luku samt allir
upp einum munni um ágæti breytinganna.
LAUGAVEGURINN frá Barónsstíg
í austri til Frakkastígs í vestri var
grafinn upp og lagður að nýju í vor
og sumar. Um nokkurra vikna skeið
þurftu viðskiptavinir verslana við Laugaveg-
inn að leggja á sig nokkurt erfiði til að kom-
ast leiðar sinnar á sandfylltri götunni, yfir
skurði framhjá stórvirkum vinnuvélum og
vinnandi mönnum. Það er hinsvegar liðin tíð
og í dag mun lúðrasveit fara fyrir ski-úð-
göngu niður nýja Laugaveginn áleiðis að
Kjörgarði þar sem boðið verður upp á kaffi
og rjómatertur. Götulistamenn, tónlistar-
menn og aðrir skemmtikraftar munu
skemmta fólki, en hátíðin vegna nýja Lauga-
vegarins mun standa í þijá daga.
Af samtölum við kaupmennina, sem tóku á
móti fótalúnum viðskiptavinum, má samt
ráða að það voru kaupmennirnir sem áttu
samúðina og þeir eru teljandi á fingrum ann-
arrar handar sem bölsótuðust vegna ófærð-
arinnar í sumar. „Viðskiptin drógust saman á
meðan breytingarnar stóðu yfir,“ sagði Walt-
er Lentz, sjóntæknifræðingur í Gleraugna-
sölunni á Laugavegi 65 til síðustu 23 ára.
„Það var alveg eðlilegt og við vissum það fýr-
irfram, en að breytingunum afstöðnum verð-
ur Laugavegurinn stórglæsilegur og flestir
viðskiptavinirnir óska manni til hamingju
með breytingarnar og líta á jákvæðu hliðam-
ar. Fullorðna fólkið komst illilega leiðar sinn-
ar þegar verst stóð á, en lét sig hafa það,“
sagði hann. „Þessi breyting er hluti af upp-
byggingu Laugavegarins ég vona að þetta
hvetji menn til þess að laga húsin við Lauga-
vegin til að fegra hann enn frekar. Mér
finnst Laugavegurinn mjög vel hannaður og
þegar trén verða komin niður batnar ásýnd
götunnar enn frekar.“ Walter hefur stundað
verslunarrekstur í alls fjörutíu ár á Lauga-
veginum og er þeirrar skoðunar að Lauga-
vegurinn myndi sóma sér vel sem göngugata.
„Mér finnst að það ætti að prófa að loka
Laugaveginum fyrir bílaumferð á Löngum
laugardegi. Það myndi gera fólki með fjöl-
skyldur kleift að labba um í rólegheitum
enda tíðkast það í öllum stórborgum heims-
ins. Það væri líka gott að losna við útblást-
ursmengunina en fólk er líka misjafnlega
viðkvæmt fyrir henni,“ sagði Walter.
Vona að breytingarnar dugi
næstu hundrað ár
Hjá Maríu Maríusdóttur, kaupmanni í leð-
urvöruversluninni Drangey á Laugavegi 58,
kvað við svipaðan tón og hún sagði það hafa
komið sér á óvart hvað viðskiptavinirnir létu
breytingar lítið á sig fá á þótt Laugavegur-
inn væri illur yfirferðar. „Það sem var furðu-
legt var, að þótt þeír kæmu skríðandi á fjór-
um fótum inn úr dyrunum a fyrirhöfnina
voru þeir með bros á vor,“ sagði María. „En
brosið er auðvitað breiðara núna eftir að lok-
ið hefur verið við götuna. Það virðist vera
mikil ánægja með framkvæmdirnar meðal
vegfarenda og viðskiptavina og ekki síst hjá
Morgunblaðið/Jim Smart
„EN BROSIÐ er auðvitað breiðara núna eftir að lokið hef-
ur verið við götuna," sagði María Maríusdóttir í Drangey
um viðskiptavini og verslunarfólk á Laugaveginum.
okkur kaupmönnum. Við skulum vona að
þessar breytingar dugi næstu hundrað ár því
ætli gatan hafi verið tekin upp síðustu hund-
rað ár?“ sagði María. Að hennar mati var
fyrir löngu kominn tími til að taka Lauga-
veginn í gegn því hann hafi verið orðinn
verulega illa útlítandi. „Nú má segja að
Laugavegurinn standi í fyrsta skipti undir
þvi að vera aðalverslunargata Islands og ég
vona að það líði ekki önnur tíu ár þangað til
sá hluti Laugavegarins sem nær frá Baróns-
stíg til Snorrabrautar verði tekinn í gegn,“
sagði María og skírskotaði til fegrunar
Laugavegarins frá Skólavörðustíg upp að
Frakkastíg fyrir tíu árum. „Ætlunin var að
halda þá áfram hið fyrsta en það dróst á
langinn einhverra hluta vegna. Þessi breyt-
ing virkar bæði hvetjandi fyrir húseigendur,
verslunareigendur og fólk almennt í borginni
EIGENDUR bamafataverslunarinnar Punkts og Priks fluttu verslunina frá Skólavörðu-
stíg niður á Laugaveg í miðjum breytingum, en að sögn Margrétar Svavarsdóttur eig-
anda gekk allt vel fyrir sig. Dóttir hennar, Hildur Hjartardóttir, var á vaktinni í gær.
þegar það sér aðalverslun-
argötuna sína taka þessi
stakkaskiptum." Maríu virt-
ist sem verslunarhættir Is-
lendinga hefði breyst með
auknum utanlandsferðum
og að þeir kynnu sífellt bet-
ur við verslun úti á götu.
„Nú finnur maður líka fyrir
því að fólk fer í miborgina til
að sýna sig og sjá aðra, ekki
eingöngu til að versla.“ I
framtíðinni sagðist María
sjá yfirbyggðar gangstéttir
á Laugaveginum og að hægt
yrði að loka götunni fyrir
bílaumferð með sama hætti
og er hafður á við Austur-
stræti.
Fólk vill hafa fallegt
í kringum sig
Guðjón B. Hilmarsson,
kaupmaður í íþróttabúðinni
Spörtu við Laugaveg, fór
ekki varhluta af samdrætti í
verslun meðan Laugavegur-
inn var sundurgrafinn, en
stóð klár á því að breyting-
arnar myndu auka viðskiptin seinna. Hann
hefur stundað viðskipti síðustu fimmtán árin
á Laugaveginum og segist vera mjög ánægð-
ur með breytingarnar, sérstaklega með útlit
götunnar. „Það er líka meira pláss fyrir
gangandi vegfarendur og aðeins færri bíla-
stæði. Lýsingin er betri og trén, sem koma
síðar verða til mikillar piýði. Fólk vill hafa
fallegt í kringum sig í dag og sá möguleiki að
loka götunni fyrir bílaumferð á góðviðrisdög-
um kemur einnig vegfarendum til góða.“
Guðjón sagði að viðskiptavinirnir tjáðu sig
mikið um nýja Laugaveginn og það væri
næsta ótrúlegt hversu tíðum þeir gerðu hann
að umtalsefni og allt bæri að sama brunni -
þeir væru afar ánægðir. Guðjón sagði að
verkefnin við Laugaveginn væru óþrjótandi
og að Laugavegurinn væri bara upphafið.
Greinilegt er að yfirbygging gangstéttanna
er kaupmönnum metnaðarmál. „Það kom
fram í könnun, sem gerð var fyrir mörgum
árum, að mikill meirihluti kaupmanna vildi
yfirbyggðar gangstéttir og settar voru niður
undirstöður á ákveðnum stöðum í þeim til-
gangi. Við sjáum fyrir okkur í framtíðinni yf-
irbyggð svæði við torgmyndanir á Laugavegi
77 og fyrir framan Kjörgarð,“ sagði Guðjón
og reifaði að lokum hugmynd um sérstakan
strætisvagn sem gengi rúntinn niður Lauga-
veginn og Austurstræti og upp Hverfisgöt-
una.
Fegin að þessu sé lokið
Við Laugaveg 70 er undirfataverslunin Eg
og þú, sem Sigríður Hennannsdóttir hefur
rekið síðan 1989. Sambýlismaður hennar,
Árni Róbertsson, sem varð fyrir svöi'um
sagðist vera feginn að breytingunum væri
lokið og sæi enga ástæðu til að kvarta yfir
samdrættinum undanfarna mánuði. „Það var
sérstaklega slæmt hérna þegar skurðirnir
voru fyrir framan búðina. Fólki sóttist ferðin
nokkuð brösuglega og fyrir kom að fólk datt
ofan í skurðina," sagði Árni. „Konur á háhæl-
uðum skóm áttu sérstaklega erfitt um vik, en
þetta lagaðist fljótt, enda voru starfsmenn-
irnir mjög röskir og óþægindin voru í lág-