Morgunblaðið - 06.08.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 51
HESTAR
Vindheimamelar af-
greiddir á einum degi
VINDHEIMAMELAMÓTIN
mega muna sinn fífil fegurri þegar
hestamenn flykktust víða að af
landinu og sett voru Islandsmet. Nú
var hestamót Skagfirðinga afgreitt
á einum degi og þótt mótið væri op-
ið öllum var eftir því sem næst verð-
ur komist aðeins einn keppandi að
sunnan.
Héraðssýning kynbótahrossa var
haldin í tengslum við mótið og komu
þar fram tuttugu og sex hross og
þar af var einn stóðhestur fjögurra
vetra sem fór í fyrstu verðlaun. Hér
var á ferðinni Gyllir frá Hafsteins-
stöðum, en hann hlaut 8,17 fyrir
hæfileika sem er aldeilis góð
frammistaða hjá ungum hesti. Fyrir
sköpulag hlaut hann 7,95 og 8,06 í
aðaleinkunn.
Af hryssum sex vetra og eldri var
efst Svartasól frá Ytra-Skörðugili
sem er undan Safír frá Viðvík og
Glóð frá Ytra-Skörðugili með 8,11 í
aðaleinkunn, 7,73 fyrir sköpulag og
8,50 fyrir hæfileika. Næst henni var
Hending frá Flugumýri sem er und-
an Kveik frá Miðsitju og Hörpu frá
Flugumýri með 8,08 í aðaleinkunn,
7,70 fyrir sköpulag og 8,46 fyrir
hæfileika. Fast á hæla Hendingar
kom Móheiður frá Borgarhóli með
8,07 en hún er undan Hektori frá
Akureyri og Bleikálu frá Borgar-
hóli. Þær fáu hryssur fjögurra og
fimm vetra sem komu fram voru all-
ar í lágum tölum.
Gæði hrossanna á Vindheimamel-
um virðast í góðu lagi þótt mótið og
öll umgjörð þess sé risminni en var
hér á árum áður. Hinsvegar má
ætla að pottur sé brotinn í æsku-
lýðsstarfi hestamanna í Skagafirði
þar sem ekkert ungmenni skráir sig
til leiks og aðeins einn keppandi er í
unglingaflokki. Mikilvægi æsku-
lýðsstarfs í hestamennskunni verð-
ur seint ofmetið og ekki hvað síst
þegar samkeppnin er um sálimar
milli tómstundagreina, sem eru
orðnar æði fjölbreyttar, er jafn mik-
il og raun ber vitni. Það er því full
ástæða að hvetja Skagfirðinga til að
auk þennan þátt félagsstarfsins.
Úrslit urðu sem hér segir:
A-flokkur
1. Hlekkur frá Hofi, eigandi og
knapi Jóhann Friðgeirsson, 8,57.
2. Móheiður frá Borgarhóli, eigandi
Stefán Jónsson, knapi Gestur Stef-
ánsson, 8,46.
3. Þilja frá Hólum, eigandi Hólabú-
ið, knapi Egill Þórarinsson, 8,55.
4. Þröstur frá Ytri-Skeljabrekku,
eigendur Kristín Pétursdóttir, Jón
Gíslason og Jóhann Þorsteinson
sem var knapi, 8,41.
5. Muska frá Keldudal, eigandi
Leifur Þórarinsson, knapi Eysteinn
Leifsson, 8,42.
6. Brynjar frá Syðstu-Grund, eig-
andi og knapi Jóhann B. Magnús-
son, 8,42.
7. Kóróna frá Garði, eigandi Jón
Sigurjónsson, knapi Gunnlaugur
Jónsson, 8,41.
8. Þula frá Hólum, eigandi og knapi
Anton Níelsson, 8,37.
B-flokkur
1. Nökkvi frá Tunguhálsi, eigandi
Valborg Hjálmarsdóttir, knapi
Magnús B. Magnússon, 8,42.
2. Björk frá Hólum, eigandi Hólabú-
ið, knapi Anton Níelsson, 8,34.
3. Hugleikur frá Hofstaðaseli, eig-
andi Finnbogi Bjamason, knapi
Bjami Jónasson, 8,37.
4. Ljómi frá Laufhóli, eigandi
Bjami Jónasson, knapi Eysteinn
Steingrímsson, 8,32.
5. Lykill, eigandi Bjarni Jónasson,
knapi Björgvin D. Sverrisson, 8,26.
6. Vængur frá Hólakoti, eigandi og
knapi Hinrik M. Jónsson, 8,31.
7. Úði frá Halldórsstöðum, eigendur
Gunnar og Páll, knapi Páll Viktors-
son, 8,31.
8. Lýður frá Hólum, eigandi Hóla-
búið, knapi í forkeppni Anton Níels-
son, knapi í úrslitum Egill Þórarins-
son, 8,28.
Unglingar
1. Gáski frá Brimnesi, eigandi Ingi-
mar Pálsson, knapi Inga D. Ingi-
marsdóttir, 8,13.
Börn
1. Dreyri frá Saurbæ, eigandi Ey-
mundur Þórarinsson, knapi
Heiðrún Ó. Eymundsdóttir, 8,47.
2. Öld frá Lækjamóti, eigandi Þórir
ísólfsson, knapi Sonja L. Þórisdótt-
ir, 8,41.
3. Spói frá Fjalli, eigendur Anna og
Þórólfur, knapi Sæunn K. Þórólfs-
dóttir, 8,28.
4. Sprauta frá Neðra Ási, eigandi
Ólafur Guðmundsson, knapi Jó-
hanna Magnúsdóttir, 8,27.
5. Elding frá Gígjarhóli, eigandi og
knapi Jökull R. Jónsson, 8,21.
6. Búi frá Skefilsstöðum, eigandi
Hólabúið, knapi Dana Ý. Antons-
dóttir, 8,14.
7. Galsi frá Hjaltastöðum, eigandi
og knapi Helga B. Þórólfsdóttir,
8,02.
8. Glaumur frá Hjaltastöðum, eig-
andi og knapi Pétur Ó. Þórólfsson,
8,01.
Tölt
1. Mona Fjeld, Stíganda, á Blæ frá
Ánabrekku.
2. Páll Viktorsson, Herði, á Úða frá
Halldórsstöðum.
3. Elvar Einarsson, Stíganda, á
Glitni frá Syðra-Skörðugili.
4. Anton Níelsson, Stíganda, á
Björk frá Hólum.
5. Sölvi Sigurðarson, Herði, á Yrju
frá Keldudal.
250 metra skeið
1. Ösp frá Syðri-Brennihóli, eigandi
Erling Ingvarsson, knapi Baldvin
A. Guðlaugsson, 25,48 sek.
2. Vængur, eigandi og knapi Jón W.
Bjarkason, 27,98 sek.
150 metra skeið
1. Ör frá Akureyri, eigandi Erling
Ingvarsson, knapi Baldvin A. Guð-
laugsson, 14,93 sek.
2. Bárður frá Stóru-Ásgeirsá, eig-
endur Petra og Anton, knapi Ánton
Níelsson, 16,00 sek.
3. Olga frá Árgerði, eigandi Magni
Kjartansson, knapi Gestur Júlíus-
son, 16,20 sek.
300 metra stökk
1. Gammur frá Saurbæ, knapi
Heiðrún Ó. Eymundsdóttir, 23,30.
2. Snerill frá Varmalæk, eigandi
Björn Sveinsson, knapi Elvar L.
Friðriksson, 23,37 sek.
3. Brimir frá Kýrholti, eigandi Kol-
brún Sæmundsdóttir, knapi Hinrik
M. Jónsson, 24,34 sek.
Norðurlandamótið í hestaíþróttum
Fimm nýliðar og tveir reyndir
knapar skipa íslenska liðið
N ORÐURLANDAMÓTIÐ í hesta-
íþröttum hófst í gærmorgun með
mótsetningu og fánakveðju að
Hedeland í Danmörku en að því
loknu hófst keppni í fimmgangi
fullorðinna og unglinga og fimiæf-
ingum þar á eftir. í dag fer fram
forkeppni í fjórgangi og þá verður
keppt í gæðingaskeiði og að því
loknu fara fram B-úrslit í fimm-
gangi unglinga. Á morgun hefst
dagskráin með forkeppni f
slaktaumatölti og því næst for-
keppni í tölti og B-úrslit í fjórgangi
unglinga og að sfðustu fyrri sprett-
ir í 250 metra skeiði.
Islenska liðið skipa Hulda
Gústafsdóttir á Hugin frá Kjartans-
stöðum í tölti, fimmgangi og gæð-
ingaskeiði, Jóhann G. Jóhannsson
keppir á Glaði frá Hólabaki í tölti,
fimmgangi, gæðingaskeiði, 250
metra skeiði og 100 metra skeiði
með fljúgandi ræsingu. Reynir Örn
Pálmason keppir á Þræði frá Hvít-
árholti f tölti og fjórgangi, Sigurð-
ur Heiðar Óskarsson keppir á Kát
frá Störtal í tölti og fjórgangi, Þór-
ir Örn Grétarsson á Níels frá Árbæ,
Herbert Ólason á Spútnik frá Hóli
og Brjánn Júlfusson á Eitli frá
Akureyri keppa allir í 250 metra
skeiði og 100 metra skeiði með
fljúgandi ræsingu.
Unglingaliðið er þannig skipað:
Rakel Róbertsdóttir, Geysi, keppir
á Landa frá Fuglebjerg í tölti og
fjórgangi, Ingunn Birna Ingólfs-
dóttir, Andvara, keppir á Kolu frá
Berkelei í fimmgangi, gæðinga-
skeiði og slaktaumatölti, Pála Hall-
grímsdóttir, Gusti, keppir á Gim-
steini frá Höskuldsstöðum í tölti og
fjórgangi og Sigurður S. Pálsson,
Herði, keppir á ívari frá Hæli í tölti
og fjórgangi.
Til stóð að Rúna Einarsdóttir
mætti með hryssuna Snerpu frá
Dalsmynni í tölt og fjórgang en af
því verður ekki að sögn Hallgríms
Jónassonar þar sem Rúna gat ekki
mætt með hryssuna f skylduskoðun
hjá dýralækni á mánudag á móts-
stað. Sigurður Sæmundsson lands-
liðseinvaldur valdi liðið sem keppir
í flokki fullorðinna en í því eru ein-
göngu knapar búsettir erlendis og
allir nýliðar utan Jóhann G. Jó-
hannsson og Hulda Gústafsdóttir.
Unglingaliðið valdi æskulýðsnefnd
Landssambands hestamannafélaga.
Hallgrfmur sagði að liðsmenn hefðu
mætt á staðinn í byrjun vikunnar
og væri góður andi rfkjandi. Veðrið
hefði fram að þessu verið frekar
leiðinlegt en spáin fýrir mótsdag-
ana eitthvað betri.
SÍMA
TORG
Upp
spretta
upplýsiagar!
Símatorg er upplýsingaþjónusta sem
einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki
geta nýtt sér, ýmist til að veita
upplýsingar eða nálgast þær.
Á Símatorginu er að finna fjölbreyttar
upplýsingar um vöru og þjónustu
sem lesnar hafa verið inn á
sjálfvirkan símsvörunarbúnað.
Þú getur, þér að kostnaðarlausu,
læst aðgangi að öllum eða
þremur efstu flokkum Símatorgsins.
Þú getur pantað læsingu að Simatorginu
og fengið nánari upplýsingar hjá
Þjónustumiðstöð Símans
í gjaldfrjálsu númeri 8oo 7000.
2
o
SÍMINN