Morgunblaðið - 06.08.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 67
FÓLK í FRÉTTUM
Mannskap-
góðum gír
ÞAÐ VORU færri að skemmta
sér eu vanalega um verslunar-
mannahelgina í Reykjavík. En
þar sem fólk var samankomið
var einstaklega góð stemmning,
því þessa helgi myndast oft
skemmtileg eining hjá þeim sem
verða eftir í bænum.
Á Kaffi Reykjavík var hljóm-
sveitin Sixties að leika fyrir
dansi, og ekki vantaði stuð í
mannskapinn á þeim bænum. Jó-
hann Goði Rúnarsson, yfirþjónn
á staðnum, segir hljómsveitina
oft spila hjá þeiin því strákarnir
standi sig alltaf vel, nái upp
góðu stuði og það sé það sem
gildi á skemmtistöðum. „Við
höfðum opið i öllu húsinu, bæði
uppi og niðri, og það var mikil
stemmning. Miklu meiri en við
gerðum okkur vonir um þessa
heigi.“
Guðmundur Gunnlaugsson,
trommuleikari Sixties, segir tak-
mark sveitarinnar að skemmta
fólki. Þess vegna flytji þeir lög
sem flestir geti haft gaman af
eins og bítla- og diskólög ásamt
því efni sem þeir hafa gefið út á
piötu. Ofugt við margar aðrar
hljómsveitir dregur Sixties sig í
hlé á sumrin og leyfir þá sumar-
hljómsveitunum að komast að.
Upp úr verslunarmannhelgi
byijar svo ballið að nýju, Sixties
fer út um allt land og spilar á
hinum ýmsu uppákomum. „Við
erum alveg tilvalin árshátíðar-
hljómsveit," sagði trommarinn
að lokum.
urinn í
SIXTIES voni í góðu stuði eins og vanalega; Einar Þorvaldsson gítai-Ieik-
ari, Rúnar Örn Friðriksson söngvari og Bergur Birgisson bassaleikari.
KATRIN Rúnarsdóttir og Margrét Karlsdóttir ætluði ekki að missa af
verslunarmannahelgi í Reykjavíkurborg.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VILHJÁLMUR Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir, Rósa Jónsdóttir, Ásdis Einarsdóttir og Óskar Þórðarson fengu sér hressingu áður en þau skelltu sér
í' dansinn.