Morgunblaðið - 06.08.1998, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOP KR. 400 Á ALLAR MYNDIR KL. 5 OG 7
kía iMzrm
má ég kynno
Laurence
j’/l'JDÍS'J r'yitei"
J'jjyph ÍÍ3Djj3j
Uuj'uj jav/sil
Jojil rJúii'Jjjduf
VINARBRAGÐ, FRUMSYND A MORGUNN
r
* *
HÁSKÓLABÍÓ
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 552 2140
NÝn OG BETRA'
Ffwn
990 PUNKTA
FERBU i BÍÓ
Aifabakka S, simi SS7 8900 09 5S7 8905
www.samfilm.is
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. bdddkjItal
Þú trúir pví ekki
fyrr en þú sérð það
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. ■hdkstal
Brasilísk fegurð
HEGOMI hefur lengi plagað mann-
“■ inn, og ef eitthvað er færist hann í
aukana með ári hverju. Konur jafnt
sem karlar eyða miklum peningum í
útlitið; föt, líkamsræktaraðstöðu,
hár og konur í andlitsfarða hvers
konar. Um helgina opnuð snyrti-
vörusýningin Cosmoprof Cosmetica
‘98 í Sao Paulo í Brasilíu. Þangað
koma 500 fyrirtæki að kynna vörur
sínar og gestir munu verða um 75
þúsund frá enn fleiri löndum.
Á myndinni má sjá brasilíska fyr-
irsætu spegla sig eftir að hafa próf-
að nýjustu línuna. Fólk sem vinnur í
snyrtigeiranum ætti aldeilis að geta
sprautað, spartlað og klínt næstu
dagana, ósonlaginu og öðrum við-
kvæmum náttúrufyrirbærum til
hrellingar.
Motown-safnið heimsótt
► TÓNLISTARMENNIRNIR
Michael Jackson og Stevie Wond-
er heimsóttu Motown-safnið í
Detroit ásamt Esther Gordy Ed-
ward, systur Berry Gordy sem
stofnaði Motown-fyrirtækið á
y sínum tima. Jackson og Wonder
eru báðir í Detroit til að veita
viðskiptajöfrinum Don H. Barden
liðstyrk, en hann er að sækjast
eftir spilavítaleyfí í kosningum
sem fara fram þessa dagana.
Þess má geta að Michael Jackson
og Stevie Wonder hófu báðir fer-
il sinn sem tónlistarmenn hjá
Motown-fyrirtækinu.
KVIKMYNDIR/Stj örnubíó og Laugarásbíó hafa tekið til sýninga
myndina Sliding Doors með Gwyneth Paltrow, John Hannah,
John Lynck og Jeanne Tripplehorn í aðalhlutverkum.
Hvað hefði gerst ef...?
HELEN hittir James (John Hannah) í lestinni.
JOHN Lynch leikur sambýlismanninn Gerry.
Frumsýning
SLIDING Doors er saga um ör-
lög, tímann og ástina. Helen
(Gwyneth Paltrow) er ung kona á
uppleið í góðri stöðu hjá almanna-
tengslafyrirtæki í London. Hún
virðist hafa allt sitt á þurru. Hún
gegnir spennandi starfi og er í sam-
búð með Gerry (John Lynch) rithöf-
undi sem berst við að koma sér á
framfæri.
En dag nokkurn þegar Helen er
skyndilega rekin úr starfi án sjáan-
legrar ástæðu og fer þess vegna
heim fyrr en venjulega tekur líf
hennar óvænta stefnu. Eða öllu
heldur tvær óvæntar og andstæðar
stefnur. Myndin segir tvær ólíkar
sögur, sem gerast þó á einhvern
hátt samtímis: Hvað hefði getað
gerst ef aðeins Helen hefði verið á
öðrum stað á öðrum tíma?
Önnur sagan er þannig að á leið
sinni heim til þess að segja Gerry
slæmu fréttimar verður Helen and-
artaki of sein til að ná neðanjarðar-
lestinni og dyrnar lokast á nefið á
henni. Við lestarstöðina er hún
rænd og síðan flutt á spitala þar til
hún kemst heim við illan leik.
En hvað ef hún hefði náð lestinni?
Þá hefði hún sest við hliðina á heill-
andi ókunnugum manni, James
(John Hannah), hefði tekið hann tali
og kynnst honum. Þá hefði hún
komið heim nægilega snemma til
þess að koma að sambýlismanni sín-
um í rúminu með viðhaldinu, Lydiu
(Jeanne Tripplehom).
Myndin segir þessar tvær sögur
sitt á hvað en saman vinda þær sig í
átt að einum sögulokum.
Maðurinn á bak við myndina SIi-
ding Doors er breski leikarinn Pet-
er Howitt, sem er höfundur hand-
rits og leikstjóri myndarinnar.
Hann segist hafa fengið hugmynd
að sögunni þegar hann var að ganga
á Charing Cross Road í London og
var næstum því orðinn fyrir bfl.
Meðan hann var að jafna sig á áfall-
inu fór hann að hugleiða hvað hefði
getað gerst og velta fyrir sér hve
undarleg örlög manna geta orðið.
„Það kviknaði hugmynd í höfðinu
á mér og strax og ég kom heim
hringdi ég í félaga minn og sagði
honum að ég væri kominn með frá-
bæra hugmynd að kvikmynd,“ segir
Howitt.
En ýmislegt gekk á áður en
myndin komst á hvíta tjaldið.
Skoski leikarinn John Hannah var
fljótur að skuldbinda sig til verks-
ins. Það kom hins vegar bakslag í
málið og peningar fengust ekki fyrr
en nokkru síðar að Hannah var í
Hollywood til að fylgja eftir tæki-
færum sem honum buðust í kjölfar
myndarinnar Four Weddings and a
Funeral.
Þar hitti hann leikstjórann og
framleiðandann Sydney Pollack og
sagði honum af handriti Howitts.
Samtali þeirra lauk með því að
Pollack tók að sér að útvega fé til
kvikmyndagerðarinnar. Pollack
féllst á að gefa Howitt færi á að
þreyta frumraun sína við leikstjórn
við gerð myndarinnar. Saman tókst
þeim svo ásamt öðrum aðstandend-
um að fá stjörnuna Gwyneth Pal-
trow til að taka að sér að leika aðal-
hlutverkið.