Morgunblaðið - 28.10.1998, Qupperneq 56
- 56 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
XlXlTmilimxmiTllTITlTlTTTlTlTTTlTTlTIlTiTrnTrTTTTri
VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSLANDI IS,m.
Nr. var vikur Mynd Framl./Dreifing Sýningarstaður
1. Ný Ný The Truman Show (Truman-þátturinn) Paramount Laugarásbió, Háskóabíó
2. Ný Ný Halloween H20 (Hrekkjavakan H20) Miramax Regnboginn, Bíóhöllin
3. Ný Ný The Parent Trap (Foreldragildran) Buena Vista Bíóhöllin, Kringlubíó
4. (1) 2 Wrongfully Accused (Kærður saklaus) Morgan Creek Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn
5. (2) 3 A Perfect Murder (Fullkomið morð) Warner Bros. Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó
6. (3) 4 Dr.DolÍttle (Dagfinnur dýralæknir) Sony Pictures Regnboginn, Bíóhöllin J/k
7. (4) 3 Small Soldiers (Smáir hermenn) Dreamworks SKG Hóskólabíó
8. (5) 2 Primary Colors (Valdamesti mníur heims) Mutual Films Bíóhöllin, Háskólabíó
9. (8) 8 The Magic Sword (Töfrasverðið) Warner Bros. Bíóhöllin, Bíób., Kringlub. ÉBwM'ty.
10. (6) 6 The Mask of Zorro (Grima Zorrós) Sony Pictures Stjörnubíó, Bíóhöllin ÆBmm 1
11.1(11) 2 Les Miserables (Vesalingarnir) Sony Pictures
12.1(10) 5 Dansinn ísfilm
13.; (9) 7 Saving Private Ryan (Björgun óbreytts Ryan) Dreamworks SKG
14. i (12) 5 Horse Whisperer (Hestahvíslarinn) Buena Vista
15.; (7) 3 Species 2 (Hættuleg tegund II) MGM
16.1(17) 35 Hugo Per Holst
17.i (16) 12 Lethal Weapon 4 (Banvænt vapn 4) Warner Bros.
i8.; (i4) 12 Sliding Doors (Tvær sögur) Intermedia
19.1(15) 6 Paulie Dreamworks SKG
20.1(13) 10 Godzilla Sony Pictures
’jn
Stjörnubíó
Hóskólabíó
Hóskólabíó
Kringlubíó, Bíób.
Laugarósbíó
Hóskólabíó
Bíóborgin
Laugarósbíó
Hóskólabíó
Bíóhöllin
Truman
vinsælastur
ÆTÓRMYNDIN „The Trum-
an Show“ eða Truman-þátt-
urinn fór beint í efsta sæti
yfír mest sóttu kvikmyndir
hérlendis um síðustu helgi |V
þegar hún var frumsýnd.
Það þurfti svo sem ekki að
koma mörgum á óvart þvíl
myndin hefur fengið mikið
umtal, ekki síst vegna mjög ■
svo burðugs handrits sem
gengur gegn hefðbundnum
bandarískum klisjum og
einnig vegna stórleiks gam-
anleikarans Jims Carreys
sem spreytir sig á sínu
fyrsta dramatíska hlut-
verki og þykir líklegur
til óskarstilnefningar.
Tvær aðrar myndir
eru nýjar á listanum og
fylgja þær fast á hæla
Truman-þáttarins.
Hrekkjavaka H20 er
með Jamie Lee Curtis í
aðalhlutverki og tekur
hún upp þráðinn að nýju
sem Laurie Strode eftir
tuttugu ára hlé. Hún tók þátt í
fyrstu og annarri Hrekkja-
vökunni árið 1978 og 1981 en
alls eru glímurnar við morð-
hundinn Mike Myers orðnar
sjö talsins.
Poreldragildran er ný
mynd frá Disney sem hafnaði
í þriðja sæti. Þetta er ljúf
barna- og fjölskyldumynd
með Dennis Quaid og Nastös-
hu Richardson í aðalhlutverk-
um.
Kvikmyndalistinn yfír mest
sóttu myndir í kvikmyndahúsum
hérlendis verður birtur vikulega á
miðvikudögum í Morgunblaðinu.
Truman og
Carrey eiga
eitt sam-
eiginlegt
„STUNDUM læðist að mér illur grunur og ég
lít í kringum mig og velti því fyrir mér hvort
einhver sé að festa inig á filmu,“ segir Jim Car-
rey í viðtali við breska kvikmyndatímaritið Emp-
/re.
„Vinir mínir segja gjarnan: „Réaðu þig,
það veit enginn um þig.“ Fimm mínútum
síðar þurfuin við að berja af okkur hóp ljós-
myndara og fiýja inn í bíl vegna þess að ég
hafði rétt fyrir mér.“
Eltur af auga linsunnar
Ef til vill er líf leikara í Hollywood ekki
alls ósvipað lífi sakleysingjans og söguhetj-
unnar Trumans Burbanks sem hefur verið
eltur af auga linsunnar frá barnæsku. í mynd-
inni Tniman-þátturinn er ævi hans efniviður dýrustu
sápuóperu Bandaríkjanna sem sjónvarpað er allan sól-
arhringinn við ómældar vinsældir. Ævi hans er í beinni
útsendingu allt frá fæðingu.
Alvöru sápuópera hefur svo sem lengi verið draumur
margra dagskrárgerðarmanna sem hafa reynt að kom-
ast nálægt því í þáttum á borð við „The Real World“ á
MTV-sjónvarpsstöðinni og „The Living Soap“ á BBC2.
En ekki síður allra slúðurdálkahöfundanna.
En eru Truman og Carrey að beijast við sömu
grýluna? Vinsældir þáttarins um Truman [Sannur
maður] virðast byggjast á því að þar er fjailað um
raunverulega atburði og raunverulega manneskju.
Og byggja ekki vinsældir slúðurþátta á borð við „Hardcopy“ og
gulu pressunnar á því sem gerist „í alvörunni" í lífi fræga
fólksins?
Truman-þátturinn hefur
fengið jákvæðar viðtökur
frá ófáum gagnrýnend-
um. Carrey þykir líklegur
tii að hreppa óskarinn.
Geðsjúklingurinn Carrey
„Ég læt það ekki fara í taugarnar á mér,“ segir Carrey
um hið blindandi kastljós fjölmiðla. „Ég
geri mér alveg grein fyrir að fólk hefur
áliuga á því gerist í mínu Iífí,“ heldur hann
áfram.
„Hins vegar fer blygðunarlaus illgirni í
taugarnar á mér. Ég get alveg tekið sak-
lausu gamni en Hardcopy ... ég hef séð frétt-
ir þar sem ég er á tökustað í sloppnum mín-
um ... svona álíka svalur og agúrka og þeir
taka nærmynd af mér og fylgja mér eftir.
Síðan er mynuin sýnd hægt í þættinum og
þeir láta mig depla augunum eins og ég sé
fuilur. Allskyns ógurleg dýrahljóð eru spiluð
undir útsendingunni eins og það sé verið að
slátra ljónum og svínum. Svo taka þeir ein-
hverja grettu sem ég hef sett upp til þess að
reyna að vera fyndinn og hægja á myndinni svo
ég líti út fyrir að vera geðsjúklingur. Eða þeir
segja að ég sé algjörlega stjórnlaus og ómögu-
legt sé að vinna með mér.
Sannleikurinn er sá að það mætti spyija hvaða tökulið sein er
að því hvort reynslan af þvi að vinna með mér liafí verið auð-
mýkjandi á einhvern hátt. Ég skal leggja lífið að veði fyrir því
að svo væri ekki.“
Hermenn
Spielbergs
HERSVEIT Tom Hanks
í stórmynd Spielbergs
„Björgun óbreytts
Ryans“ lendir ósjaldan í
kröppum dansi. Meðlim-
um sveitarinnar er ætl-
að að vera þverskurður
af þeim ungu banda-
rísku hermönnum sem
létu lífið fjarri ættjörð
sinni fyrir óljósan mál-
stað og innblásnir af
ósannfærandi heljumóð.
I búninga hersveitar
Hanks, sem sumir hveij-
ir voru notaðir í seinna
stríði, völdust ungir og
upprennandi leikarar og
kvikmyndagerðarmenn
í Hollywood. Og víst er
að stríðsmyndin verður
þeim ekki að aldurtila
heldur á hún eftir að
verða þeim stökkpallur
til frekari áhrifa og
frama í kvikmyndaborg-
inni. En hveijir eru
þessir menn?
Giovanni Ribisi
Ed Burns
Ed Burns
(óbreyttur Reiben)
Steig fram í sviðsljósið þegar hann
gerði ódýra og óháða mynd, Bræð-
urna McMullen. Þar gaf hann tóninn
fyrir framtíðina og fylgdi á eftir með
því að skrifa handrit að og leikstýra
myndinni „She’s The One“. Þriðja
mynd hans, Það verður ekki aftur
snúið, eða „No looking Back“, er
þegar fullkláruð og er með Lauren
Holly og Jon Bon Jovi í aðalhlut-
verkum. Björgun óbreytts Ryans er
mjög ólík fyrri viðfangsefnum hans
þar sem það er í fyrsta skipti sem
hann flytur texta eftir aðra og er
leikstýrt af öðrum.
Jeremy Davies
(Upham undirliðþjálfi)
Frami Jeremy Davies í Hollywood
var ekki skjótur. Hann hefur farið
með ófá smáhlutverk í myndum á
borð við Byssuóður, Nell og „Twist-
er“ ásamt óháðu myndinni „Spank-
ing The Monkey". Hans sérgrein eru
duglausar, ráðvilltar persónur gegn:
umsýrðar af óákveðni og ótta. I
framhaldi af Björgun óbreytts
Ryans lék hann í myndinni „Going
AJl the Way“ og á næstunni leikur
hann í myndinni Engisprettunum og
á móti Robert Carlyle í mannætu-
hrollvekjunni Banhungraður.
Vin Diesel
(óbreyttur Caparzo)
Barry Pepper
(óbreyttur Jackson)
Kanadamaðurinn Pepper hefur
hingað til mestmegnis leikið í sjón-
varpsmyndum. I æsku ferðaðist
hann með fjölskyldu sinni um Suður-
Kyrrahaf á heimagerðum báti. Eftir
það fór hann í leiklistartíma og hefur
leikið í ótal sígildum leiki-itum.
Fyrsta kvikmyndahlutverk hans var
í myndinni „Firestorm" og næst leik-
ur hann á móti Gene Hackman, Will
Smith og Jon Voight í Ovini ríkisins.
Efth- það fer hann með hlutverk í
myndinni „The Green Mile“.
Giovanni Ribisí
(sjúkraliðinn Wade)
Ribisi hefur áður unnið með
„æðsta yfírmanni" Tom Hanks. Það
var þegar hann lék ólánsama
trymbilinn Chad í myndinni „That
Thing You Do!“ sem handleggs-
brotnaði og verður að víkja fyrir öðr-
um einmitt þegar frægðarsól hljóm-
sveitarinnar fer að skína.
Ribisi hefur leikið í fjölda mynda á
tíunda áratugnum. Hann fékk já-
kvæða dóma fyrir SubUrbia, þótti
heppinn að deyja snemma í Póst-
manninum og er einn af föstum
aukaleikurum í Vinum þar sem hann
leikur bróður Phoebe. Hann leikur
næst í myndinni „The Mod Squad" á
móti Claire Danes og „Hinni systur-
inni“ á móti Diane Keaton.
Stuttmynd Diesels „MultiFacial“
þótti svo góð að ekki þurfti meira til
að Spielberg byði honum hlutverk í
Björgun óbreytts Ryans.
I framhaldi af því skrifaði hann,
leikstýi’ði og lék aðalhlutverkið í
„Strays", fyrstu kvikmynd sinni í
fullri lengd. Hann vinnur nú að því að
gera þætti byggða á myndinni fyrir
MTV og er einnig að vinna að handriti
að Dyravörðunum, sem byggð er á
reynslu hans af því starfi í New York.
Þá talar hann inn á teiknimyndina
Járnrisann, sem byggð er á barna-
bók Ted Hughes Járnmanninum, og
verður í næstu áströlsku vísinda-
skáldsagnamyndinni „Pitch Black“.
Adam Goldberg
(óbreyttur Mellish)
Eitt af fyrstu hlutverkum hans
var í mynd Richards Linklaters
„Dazed & Confused". Hann lék
einnig á móti Billy Crystal í „Mr.
Saturday Night“ og í mynd Johns
Singletons „Æðri menntun“ eða
„Higher Learning". Sem handrits-
höfundur og leikstjóri hefur hann
gert rómaða mynd „Viskí og mjólk“.
Þá hefur hann leikið herbergisfélaga
Matthew Perry í Vinum. Næst á
dagskrá hjá honum er að tala inn á
framhaldsmynd Babe „Svín í stór-
borginni" og einnig hlutverk í mynd
Ron Howards „Ed TV“.