Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Á ferð um
Island á
Lapplander
HULDAR BREIÐFJÖRÐ
eltir I luldar Breiðtjörð
Ungur Reykvíkingur sem sjaldan hefur
komið út fyrir borgarmörkin ákveður um
hávetur að beina lífi sínu á nýjar brautir;
kveðja Kaffibarinn, kaupa Lapplander-
jeppa og halda í tveggja mánaða hringferð
um Island þar sem jeppinn er bústaður
hans.
En þessi ferð í vetrarmyrkri um
viðsjárverðar heiðar í leit að Islandi verður
jafnframt leit íslendings að sjálfum sér.
í bókinni er brugðið upp óvæntu Ijósi á
hina margbrotnu íslensku þjóð. Hógvær
og ísmeygileg gamansemi gera þessa
ferðasögu um ísland og íslenskan hug-
myndaheim að hreinum skemmtilestri.
Vörulisti og happ-
drætti sameinuð í eitt
sérstaklega góðum kjörum sem
geta verið margfalt lægra verð en
uppsett verð.
Sem dæmi mætti nefna að bíl
sem kostar tvær milljónir. Einn
slíkur verður settur á eins konar
uppboð og má bjóða lægst hálfa
milljón króna. Fari svo að hæsta
tilboð sé aðeins ein milljón hreppir
sá hinn sami bílinn. Talló er því
hvorttveggja í senn, eins konar
happdrætti og vörulisti.
Að sögn Magnúsar Jónatansson-
ar hjá Talló gerast kaupin með
”'*•»»», Ö*'*
þeim hætti að viðskiptavinur skoð-
ar listann með upplýsingum um
vöruna og þjónustuna sem í boði er
og þar er tilboðunum skipt í flokka.
Listanum verður dreift mánaðar-
lega með Morgunblaðinu og við-
skiptavinurinn getur hringt í núm-
er Talló. Þar fær hann sérstakt við-
skiptanúmer og gi-eiðir ákveðið
þjónustugjald sem getur verið 500
krónur eða hærra, eftir því hvaða
vöru er um að ræða. Greitt er með
krítarkorti.
Sé t.d. um sjónvarpstæki að
ræða geta verið 10 stykki í boði í
happdrættinu. Hann getur gert allt
að fimm tilboð og sé lægsta tilboð
hans meðal þeirra tíu hæstu fær
hann sitt sjónvarpstæki. Hærri
boðin, sem hann lét skrá, teljast
ekki með. Greitt er þjónustugjald
fyrir hvert tilboð.
Fulltrúar frá sérstakri eftirlits-
nefnd viðurkenndra aðila fylgjast
með því að ekki sé maðkur í mys-
unni þegar dregið er en notaður er
til þess gerður hugbúnaður sem
tekur við tilboðunum, sem hægt er
að gera í tíu daga, og raðar þeim
niður hverju sinni. Um leið og búið
er að draga er hinum heppnu skýrt
frá niðurstöðunni og fá þeir þá af-
hendingarseðil sem þeir framvísa í
viðkomandi verslun.
Kaupgleðin virkjuð?
Magnús er spurður hvort þetta
sé ekki einfaldlega tilraun til að
misnota alræmda kaupgleði íslend-
inga sem vakið hefur athygli víða,
þ. á m. á írlandi og blanda henni
saman við lottófíknina. Hann neit-
ar því.
„Hér er eingöngu um gæðavörur
að ræða og það sem skiptir öllu,
vöru sem fólk hefur í raun ákveðið
að fá sér, t.d. nýtt sjónvarp. Það
getur farið hefðbundnum leiðina,
farið í búðina og keypt tækið. En
nú gefst því kostur á að kaupa
sams konar tæki á mun lægra verði
og það sem meira er, ef til vill fær
það tæki sem
kostar 80.000
krónur í búð á 50
þúsund hafi það
gert tilboð sem
nemur þeirri fjár-
hæð og hefur
heppnina með sér.
Ef ég tek fyrsta
listann þá myndi
varan sem þar er
boðin til kaups
kosta alls 57 millj-
ónir í búð en við
seljum hana á 31
milljón. Afgangur-
inn, 26 milljónir, era
búbót fyrir neytendur sem taka
þátt í þessu.“
Hann segir að Talló semji um
kaup á einu ári á t.d. þúsund sjón-
varpstækjum á heildsöluverði og
njóti þar magnafsláttar sem venju-
legur neytandi geti ekki samið um
við verslunina. Talló situr þó ekki
uppi með varninginn ef hann selst
ekki heldur kaupir einvörðungu
' þann hluta sem tilboð berast í.
Tekjur Talló eru fyrst og fremst
af þjónustugjaldinu en einnig að
einhverju leyti af þeim vöram sem
ekki lenda í happdrættinu en era
þó seldar á tiltölulega lágu verði að
sögn Magnúsar. En hljóta verslun-
areigendurnir 20 ekki að tapa við-
skiptum ef Talló slær í gegn?
„Það segir sig sjálft að þá færist
hluti viðskiptanna yfir til okkar en
þeir vega það og meta sjálfir hvað
henti þeim best. Við fáum að selja
ákveðinn hluta, t.d. 5% af ákveð-
inni þvottavélategund, með þessum
hætti en ekki allar vélarnar. Og
þeir halda eftir sem áður viðhalds-
og varahlutaþjónustunni."
NÝ tegund af vöralista, Talló, er að
hasla sér völl hér á landi og er um
að ræða ísraelska hugmynd sem
rekin er hér á landi með sérleyfi.
Ekki er eingöngu um að ræða
kynningu á varningi að ræða held-
ur geta væntanlegir kaupendur
gert tilboð í ýmsar vörar og þjón-
ustu. AIls hafa 20 þekkt fyrirtæki
gengið til samstarfs við Talló.
Birgjarnir bjóða fyrst og fremst
gæðavörur og ábyrgjast þeir að
varahlutir og viðhald verði með
sama hætti og við venjuleg inn-
kaup. Um er að ræða vörar af
margvíslegu tagi, handverkfæri,
tölvur, eldhúsinnréttingar og bíla
svo að eitthvað sé nefnt. Einnig er
hægt að kaupa farmiða hjá ferða-
skrifstofum og ávísanir á t.d. sport-
vörar í nokkram verslunum.
Það sem er nýtt er að kaupandi
getur gert fleiri en eitt tilboð í vör-
ur eða þjónustu á listanum, sem
gefinn verður út í hverjum mánuði
og mega þau vera undir uppsettu
verði en ávallt er þó tilgreint lág-
mark sem bjóða megi. Listaverðið
er ávallt lægra en í hefðbundnum
verslunum en einnig er takmarkað-
ur fjöldi af hverjum hlut boðinn á
Nýtt
Nýr Mjúkís
frá Kjörís
KJÖRÍS hefur sent frá sér
nýja gerð af Mjúkís fyrir jóla-
söluna.
Nýi ísinn er með súkkulaði-
húðuðum möndlum og möndlu-
bitum og er í eins lítra umbúð-
um. Til að auka gæði vörunnar
hefur fyrirtækið sett allan
Mjúkísinn í nýjar umbúðir með
innsigli.
“ndarh,
Völundar-
hús og
dreki
FYRIRTÆKIÐ Andvari í Reykja-
vík hefur sent frá sér nokkur ný
spil frá Ravensburger. Er um að
ræða fjölskylduspil, barnaspil og
þroskaspil.
Eitt af nýju spilunum nefnist
Dularfulla völundarhúsið og er
ætlað fyrir 2-4 þátttakendur á
aldrinum 10-99 ára. Finna þarf
réttu leiðina um völundarhús dul-
arfulls kastala. Margvísleg furðu-
dýr verða á vegi þátttakenda,
finna þarf fjársjóði og heyja ein-
vígi. Annað spil heitir Drekinn og
er fjölskylduspil, einnig fyrir 2-4.
Þátitakandi reyna að hefta ferð
hinna með spilasteinum til að
verða á undan í mark.