Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.11.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 33 LISTIR Mannleg reisn og æðruleysi Bóka- kynning í Odda HELGI Gunnlaugsson, dó- sent vD Félagsvísindadeild Háskóla Islands, kynnir í dag, fimmtudag, kl. 20.30, væntan- lega bók sína um afbrot á Is- landi, Wayward Icelanders: Punishment, Boundary Main- tenance and the Creation of Ciime. Kynningin er í boði Félagsfræðingafélags Islands og fer fram í húsi Félagsvís- inda- og viðskipta- og hag- fræðideilda Háskóla Islands, stofu 101 í Odda. I bókinni rekur Helgi af- brot á Islandi í sögulegu Ijósi, varpar ljósi á viðhorf almenn- ings til glæpa og refsinga, kynferðisafbrota og fíkni- efna. Verk úr náttúruefn- um í Galleríi Hár og list LJÓSIÐ í myrkrinu heitir sýning Ragnheiðar Ólafsdótt- ur og Aðalsteins Gunnarsson- ar, sem opnuð er í dag, fimmtudag kl. 21, í Hár og list, Strandgötu 39, Hafnarfirði. Verkin eru öll unnin með blandaðri tækni, úr náttúru- efnum, s.s. steinum, málmum, horni, gleri og leðri. Ragnheiður er menntuð í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Aðalsteinn er sjálfmenntaður í listinni. Sýningin er opin daglega frá kl. 9-18 og 14.-18 um helgar og lýkur laugardaginn 2. desember. Tónlistarskólinn í Reykjavík Kammer- tonleikar í Grensáskirkju KAMMERTÓNLEIKAR Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir föstudaginn 20. nóvember kl. 20.30 í Grensás- kirkju. A efnisskrá er Tríó í g-moll op. 63 eftir C.M. von Weber, Strengjakvartett op. 77 nr. 1 í G-dúr eftir J. Haydn, Píanókvartett í g-moll Kv 478 eftir W.A. Mozart, Kvintett op. 57 fyrir píanó og strengja- kvartett og Strengjakvartett nr. 1 eftir D. Sjostakovitsj. Ljóðalestur í Gerðarsafni RAGNAR Ingi Aðalsteinsson ljóðskáld les úr nýrri ljóðabók sinni, Jörð, í Gerðarsafni, í dag, fimmtudag kl. 17. Upp- lesturinn er á vegum Ritlist- arhóps Kópavogs. Aðgangur er ókeypis. Skólatónleik- ar í Egils- staðakirkju AÐRIR tónleikar Tónlistar- skólans á Egilsstöðum á þessu misseri verða í Egils- staðakirkju föstudaginn 20. nóvember kl. 20. Efnisskráin er blönduð söng og hljóðfæraslætti. BÆKUll i: n d ii r iii i ii ii i ii <> a r Á MÖRKUM MANNABYGGÐA Endurminningai' James Huntington skráðar af Lawrenee Elliot. Þýðandi Guðmundur Jónsson frá Hafrafelli. 164 bls. í kiljubroti. Mál og menning 1998. VEIÐIMENNSKA, karl- mennska, æðruleysi og óttaleysi frammi íýrir harðneskjulegi'i náttúru er baksvið og umgjörð þessarar ævisögu kynblendingsins James Huntington sem alið hefur allan sinn aldur á heimskauta- svæðum Alaska og Kanada. Móðh'- in var indíáni af Athabaska-ætt- flokki og faðirinn hvítur sem kom- ið hafði frá Buffalo í New York í gullleit. Ekki hafði hann þó neitt gull upp úr krafsinu en gerðist loðdýraveiðimaður þess í stað. Huntington fæddist 1914 og skráir Elliot söguna eftir honum í fyrstu persónu; bókin kom út í Band- aríkjunum 1966, þá var Hunt- ington enn í fullu fjöri og gæti þess vegna verið enn á lífi. Sagan hefst á frásögn af móður Huntingtons sem varð íyrir þeirri bitru reynslu að horfa upp á er fyrri eiginmaður hennar var myrt- ur og síðan var morðinginn sýknaður eftir sýndarréttarhald langt fjarri heimahögunum. Móðirin hélt þá af stað heimleiðis fótgangandi og var rúmt ár á leiðinni yfir óbyggðir Alaska en vegalengdin sem hún lagði að baki voru litlir 1.600 kílómetrar. Hafði enginn svo vitað sé á þeim tíma farið þessa leið áður fótgangandi, að sögn Huntingtons. Þessi saga af hetjudáð indíánakonunnar þraut- seigu setur tóninn fyrir það sem á eftir kemur; James er ekki nema fimm ára gamall þegar hann ásamt 7 ára gömlum bróður sínum og 2 ára systur verður fyrir því áfalli að missa móður sína á sviplegan hátt í kofa fjarri mannabyggðum. Systkinunum litlu tekst að draga fram lífið í hálfan mánuð þar til hjálp berst. Eftir það tekur við daufleg vist á trúboðsskóla í nokk- ur ár en þegar James er tólf ára tekur faðir hans syni sína með sér út í óbyggðirnar til veiða. Næstu árin eru þroskatími drengjanna, þeir læra allt sem læra þarf til að lifa af landinu og veiða sér til mat- ar og framfærslu. Eftir nokkurra ára paradísar- dvöl feðganna í óbyggðunum tekur alvara lífsins við, faðirinn deyr og Huntington verður að standa á eigin fótum. Honum tekst það og ágætlega. Hann kvænist og eign- ast börn, hann tekur þátt í hverri hundasleðakeppninni á fætur annarri og vinnur frækna sigra. Fyrir verðlaunaféð kemur hann sér upp dálítilli verslun og sér fram á náðugri daga. Þá fer konan frá honum og stuttu síðar brennur búðin til kaldra kola. Hann lætur þó ekki hugfallast, heldur hverfur aftur til fjalla, safnar kröftum og kjarki og byrjar ódeigur upp á nýtt með sjö börn á framfæri. Af framansögðu mætti kannski ætla að þetta væri eins konar raupsaga, gamall veiðimaður segir frægðar- og hetjusögur af sjálfum sér. Því fer fjarri. Þetta er heill- andi og hógvær frásögn, tungutak sögumanns er einfalt en karlmann- legt. Þýðingin er blátt áfram og ágætlega trúverðug sem fyrstu persónu frásögn þessa alþýðu- manns sem slær ekki um sig með stóryrðum né flóknum hugtökum, en hefur samt ágæt tök á hugsun sinni og lífsskoðun. Stfllinn er hlutlægur, greint er frá atburðum en lítt staldrað við tilfinningalegar skýringar. Þó leynir sér ekki að hjarta sögumanns er stórt og til- finningarnar hlýjar. Bakgrunnur hans litast af upprunanum, kyn- blendingur á erfiðara uppdráttar en hvítur maður, en hvergi sér þess þó stað að hann örvænti eða vorkenni sjálfum sér þess vegna. Vafalaust hefur skrásetjari sög- unnar, Lawi-ence Elliot, haft margar spurnir af James Hunt- ington áður en fundum þeirra bar saman; saga þessa manns ber það með sér að hann hafi verið orðinn goðsögn í lifanda lífi á þessu harðbýla svæði. Lesandinn verður þó að draga ályktun þessa efnis sjálfur, þar sem frásögnin er æðrulaus og raunsæ. Jafnframt er þetta fróðleg lesning um lífs- baráttu fólks á framandi landsvæði og lífsmáta sem líklega er að mestu liðinn undir lok. Lúðrasveit verkalýðsins Hausttón- leikar í Ráðhúsinu LÚÐRASVEIT verkalýðsins held- ur hausttónleika sína í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 21. nóvember kl. 14. A efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Leonard Bernstein, Engelbert Humperdinck, Percy Aldridge Grainger, Rossini, Prokofieff og Gordon Langford. Alls leika um 40 hljóðfæraleikar- ar með Lúðrasveit verkalýðsins og stjórnandi sveitarinnar er Tryggvi M. Baidursson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. --------------- Utg-áfuhóf í Félagsstarfi Gerðubergs í TILEFNI af útgáfu ævisögu Eyjólfs R. Eyjólfssonar, alkakræk- is, Gengið á brattann, verður hald- ið útgáfuhóf í Gerðubergi á vegum félagsstarfsins þar, föstudaginn 20. nóvember kl. 16. Gerðubergskórinn mun syngja undir stjórn Kára Friðrikssonar, við harmónikkuundirleik Bene- dikts Egilssonar og píanóundirleik Unnar Eyfells, félagar úr Tónhorn- inu, Big bandi Gerðubergs, leika létt lög og Eyjólfur sjálfur les upp úr bók sinni. Hávar Sigurjónsson ERTU TIL 1 VETRARAKSTURINN? SÍÐUSTU EINTÖKIN BALENO £^^4X41 ÁLFELGUR - VETRARDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI vökva/veltistýri • upphituð framsæti • 2 loftpúðar rafmagn í rúðum og speglum • aflmikil 16 ventla vél • vindkljúfur með hemlaljósi • styrktarbitar í hurðum samlitaðir stuðarar • hæðarstillanleg kippibelti i ^ BALENO EXCLUSIVE 4X4 1.595.000 kr. I ^ ^SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Midási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.