Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 52
- 42 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Yígvöllur Guðrúnar
Helgadóttur og breið-
fylking vinstri manna
UNDIRRITAÐUR
varð þess (vafasama)
heiðurs aðnjótandi að
Guðrún Helgadóttir,
fyrrverandi varaþing-
j^maður Alþýðubanda-
Uagsins, stakk niður
penna í Moggann til að
svara grein minni um
úrsögn hennar og
þriggja (nú fjögurra)
þingmanna úr Alþýðu-
bandalaginu, loks þeg-
ar hyllti í samíylkingu
vinstri manna í land-
inu. Guðrún fjallar um
óverðuga persónu mína
(við höfum aldrei hist)
á þann hátt að furðu
sætir af fyrrverandi háttprúðum
þingmanni og barnabókahöfundi
sem kýs að rakka fyrrverandi
stuðningsmann sinn og dyggan
r jlíjósanda niður í svaðið. I pistlinum
reynir Guðrún að hæðast að sjón-
armiðum mínum vegna klofnings-
ins í Alþýðubandalaginu í stað þess
að svara málefnalega þeirri gagn-
rýni sem ég viðhafði. Hér skal
reyndar viðurkennt að tilgangur-
inn helgaði meðalið, að sálgreina á
óhefðbundinn hátt hræringarnar
innan Alþýðubandalagsins til þess
að reyna að fá viðbrögð. Önnur
svargrein við pistli mínum, eftir
Steinþór Heiðai'sson, starfsmann
^lngflokks óháðra, var hins vegar
málefnalegri og fyrir marga hluti
athygliverð.
Vitaskuld hefi ég ekkert á móti
því að fólk hafi skoðanir á mínum
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifum. En líklega
hefur Guðrún orðið
sannleikanum sárreið
úr því hún kaus að ausa
úr reiðiskálum sínum
með þeim hætti að þar
slettist allt út um allt!
Ég þakkaði Guði fyrir
að 4 ára sonur minn er
ekki orðinn læs því þá
hefði hann fengið áfall
við að uppgötva að
uppáhalds barnabóka-
höfundur hans ætti til
þvílíkt skítkast og raun
bar vitni í fyrrnefndri
grein.
Erum við að missa af
gullnu tækifæri?
Meirihluti Alþýðubandalagsfólks
vill fara samfylkingarleiðina vegna
þess að við trúum því að það sé far-
sælast til áhrifa og framfara fyrir
fólkið í landinu. Guðmn er á
annarri skoðun og ég virði hana
þrátt fyrir það. I því liggur ef til
vill kjarni málsins. Raunvemleika-
tengsl Guðrúnar era rofin vegna
þess að hún virðir ekki skoðanir
annarra heldur kýs að ráðast á fólk
með skít og skömm sem krefur
hana svara þegar hún einn góðan
veðurdag svíkur flokk sinn og
stuðningsfólk til margra ára, án
þess að hafa haldbær rök á taktein-
um. Hún hafði ekki einu sinni séð
I pistlinum reynir
Guðrún að hæðast að
sjónarmiðum mínum,
segir Þorsteinn Gunn-
arsson, í stað þess að
svara málefnalega
þeirri gagnrýni sem
ég viðhafði.
málefnaskrá Samfylkingarinnar
þegar hlaupið var undan merkjum.
Penna Guðrúnar í fyiTnefndri
grein var ekki stjórnað af skyn-
semi. Penna hennar var stjórnað af
ofsafengnum tilfinningum sem
brotna á kletti staðreyndanna. Sem
era þær að Guðrún, Hjörleifur,
Steingrímur, Ögmundur og nú síð-
ast Kristinn, allt sóma þingfólk
sem á flest að baki glæsilegan
stjórnmálaferil, á það m.a. sam-
eiginlegt að eiga ekki samleið með
öðrum. Þau hafa tekið þá afdrifa-
ríku ákvörðun að yfirgefa skútuna
þegar loks hyllir í öfluga vinstri
samfylkingu sem vonandi verður
verðugur andstæðingur Sjálf-
stæðisflokksins í kosningunum
næsta vor.
Ég hefði haldið að ansi sterk rök
þyrfti til þess að réttlæta þá
ákvörðun að yfirgefa flokkinn sinn
eftir áratuga fórnfýsi og starf. Ég
segi að eiginhagsmunasemi hafi
ráðið för, nema að frú Guðrún geti
bent mér á annað. Ég sé ekki bet-
ur, í ljósi nýjustu tíðinda, en að
vinstra fólk í landinu gæti verið að
glata gullnu tækifæri til þess að
byggja upp öflug regnhlífasamtök.
Er sundui-lyndi og snobb vinstri
manna enn einu sinni að verða okk-
ur að falli?
Steinþór bendir réttilega á í
grein sinni að mín sannfæring er
sú að sterkur foringi og ákveðin
fórnfýsi til þess að leggja sitt af
mörkum til öflugs vinstra sam-
starfs, er ein af megin forsendum
þess að fjöldahreyfing á vinstri
vængnum fái meðbyr. Ljósmóður-
hlutverkið fræga er vandasamt og
reyndar virðist formaður Alþýðu-
bandalagsins fá afgerandi stuðn-
ing til þess ef marka má skoðana-
könnun DV. Ég tek undir það að
Margi-ét er sterkasti leiðtogi
vinstri manna í landinu í dag
ásamt borgarstjóranum í Reykja-
vík.
Steinþór talar um að fólk þurfi
að „bæla skoðanir sínar í þágu
samstarfsins". Með svona fram-
setningu er auðvitað samviskan að
naga rödd þeirra sem neita að
beygja sig undir leikreglurnar í
pólitíkinni, að tilheyra breiðfylk-
ingu þar sem lýðræðislegar
ákvarðanir eru teknar. Þeir sem
geta ekki sætt sig við leikreglurn-
ar, að verða stundum undir og
stundum ofan á, eiga auðvitað ekki
samleið með stjórnarmálahreyf-
ingu og eiga að stofna sína einka-
flokka. Við skulum horfast í augu
við það að tilgangurinn með sam-
eiginlegu vinstra framboði er, eins
og Steinþór bendir á, að ná fjölda-
fylgi. Þetta liggur alveg ljóst fyrir.
Er það glæpur? Óttuðust fyrrver-
Islensk stefnumótun í
EES-málum nauðsynleg
-þú ert á réttri slóð
KRÖFUR Spánverja um að
EFTA-löndin haldi áfram að
greiða í sérstakan þróunarsjóð
Evrópusambandsins vegna samn-
ingsins um Evrópska efnahags-
svæðið (EES) hafa vakið upp
nokkuð hörð viðbrögð hér á landi.
Sitt sýnist hverjum í þessu máli en
reyndum Evrópusérfræðingum
kemur þessi krafa Spánverja ekki
á óvart. Þær era í samræmi við
þær baráttuaðferðir sem era not-
aðar í samningaviðræðum, bæði
innan Evrópusambandsins og við
aðila utan þess. A sama tíma hefur
þessi ákvörðun Spánverja hins
vegar beint sjónum manna að mik-
2ja og 3ja
herbergja íbúðir í
Reykjavík óskast
Staðgreiðsla í boði
Leitum fyrir opinbera stofnun að 2ja og 3ja herbergja
íbúðum í Rvík. Öll hverfi koma til greina, bæði í minni
sameignarhúsum og fjölbýlum. Allar 2ja og 3ja her-
bergja íbúðir koma til greina. Engu máli skiptir um
innra ástand íbúðanna, en þær verða staðgreiddar við
kaupsamning. Vinsamlegast hafið samband við sölu-
menn okkar. Við skoðum eign þína samdægurs.
Sölumenn verða við símann til ki. 20 í kvöld.
Hringdu núna.
Valhöll, fasteignasala,
Síóumúla 27, sími 588 4477
ilvægi EES-samnings-
ins fyrir íslenskt þjóð-
félag.
Samningurinn um
Evrópskt efnahags-
svæði (EES) er víð-
tækasti alþjóðasamn-
ingur sem Islendingar
hafa tekið þátt í. Þrátt
fyrir að einungis tæp-
lega fjögur ár séu liðin
frá því að samningur-
inn gekk i gildi hefur
hann haft víðtækari
áhrif á íslenskt þjóðlíf
en flestir gera sér
grein fyrir. Islensk fyr-
irtæki í útflutningi
hafa hagnast af niður-
fellingu tolla af mörgum af helstu
útflutningsvörum okkar. Sýningin
„Evrópudagar“ sem Rannsóknar-
ráð Islands og menntamálaráðu-
neytið skipulögðu í Perlunni fyrir
skömmu sýndi hluta af því mikla
starfi sem farið hefur fram undan-
farin ár. Islenskir aðilar hafa sótt
af miklum krafti inn í rannsókna-
og þróunaráætlanir ESB, íslenskir
skólar hafa nýtt sér möguleika
samnings til að auka stórauka
samstarf við skóla í Evrópu, ís-
lenskir lista- og menntamenn hafa
notið góðs af evrópsku samstarfi á
sviði kvikmyndagerðar, þýðinga
og skiptiverkefna ýmiskonar. Síð-
an má ekki gleyma því að mörg fé-
lagsleg réttindi og lög sem tengj-
ast neytendavernd hafa verið lög-
fest vegna EES-samningsins.
Evrópulönd hafa frá aldaöðli
verið helstu viðskiptaríki Islend-
inga. Þrátt fyrir að aðrir markaðir,
t.d. N-Ameríka og Asía, hafi komið
inn, er líklegt að Evrópa verið
áfram aðalmarkaðssvæði íslenskra
Andrés
Pétursson
viðskiptaaðila í náinni
framtíð. A síðasta ári
fór til dæmis 70% af
vöraútflutningi Islend-
inga til V-Evrópulanda
og 72% af vörainn-
flutningi kom frá sömu
löndum. Þessar tölur
hafa ekki breyst mikið
undanfarin áratug.
Ekki hefur þó legið
fyrir heilsteypt áætlun
íslenskra yfirvalda um
hvernig við getum sem
best nýtt okkur þau
sóknarfæri sem gefast
með EES-samningn-
um. Með þessu er ekki
verið að segja að ís-
lenskir aðilar hafi ekki nýtt sér
marga af þessum möguleikum.
Þvert á móti, á mörgum sviðum
*
Islensk stjórnvöld
ættu því sem fyrst að
móta sér stefnu,
segir Andrés Péturs-
son, varðandi nýtingu
þeirra möguleika sem
gefast með EES-
samningnum.
hafa opinberir aðilar og einkaaðil-
ar náð frábæram árangri á þessu
sviði. Það hefur þó einkum verið
að þakka elju einstakra starfs-
manna ráðuneyta, opinberra
stofnana, fyrirtækja og kraft-
miklu starfi einstaklinga á hinum
ýmsu upplýsingaskrifstofum um
Evrópusamstarf hér á landi, en
andi þingmenn Alþýðubandalags-
ins fjöldafylgi?
Jón Oddur og Jón Bjarni
Frjálshyggjunni verður ekki gef-
ið silkimjúkt félagslegt yfirbragð í
Samfylkingunni eins og Steinþór
túlkar grein mína. I Samfylking-
unni verður frjálshyggjunni hafnað.
Markmiðið með samfylkingunni
er að sameina þá sem aðhyllast fé-
lagshyggju, jafnaðarstefnu og
kvenfrelsi í eina breiðfylkingu. Hér
höfum við öflugan valkost í íslensk-
um stjómmálum sem leggur
áherslu á velferðarkerfi sem tryggi
þátttöku fólks í samfélaginu óháð
félagslegum aðstæðum og efnahag,
þar sem samhjálp og félagslegar
áherslur era í heiðri hafðar.
Ef Guðrán svarar mér á nýjan
leik verður það vonandi af yfirveg-
un og með stílbrögðum sem ég hef
alltaf dáð hana fyrir í bókum sínum.
Vonandi fæ ég þá m.a. hreinskilin
svör við því hvers vegna hún sveik
„flokkinn" þegar hann þurfti hvað
mest á henni að halda, hvers vegna
hún sveik stóran hluta Alþýðu-
bandalagsmanna á landinu sem
hefur staðið með henni í gegnum
súrt og sætt og hvers vegna hún
sagði sig úr Alþýðubandalaginu og
gaf Samfylkingunni langt nef áður
en hún sá málefnaskrá hennar?
Ég bið Guðránu innilega forláts
á því að hafa kallað hana tengda-
móður Fjárfestingarbankans. Og
ég ætla að fyrirgefa Guðránu axar-
skaft hennar á ritvellinum í þetta
sinnið. Ég mun halda áfram að lesa
bækur hennar fyrir börnin mín um
ókomna framtíð enda snilldarverk
þar á ferð. Og ég get ekki að því
gert en Steingrímur J. og Hjörleif-
ur minna mig alltaf svolítið á Jón
Odd og Jón Bjama.
Höfundur er fjölmiðlafræðingvr í
Vestmannaeyjum.
ekki markvissri stefnu um þessi
mál.
Evrópusamstarfið er hins vegar
ekki staðnað eða óbreytanlegt.
Miklar breytingar eiga sér nú stað
innan Evrópusambandsins. Hinn
sameiginlegi gjaldmiðill flestra
Evrópusambandsríkjanna, ECU,
tekur gildi 1. janúar nk. Tíu Mið-
og Austur-Evrópuríki hafa fengið
grænt ljós frá ESB að hefja aðild-
arviðræður við ESB og flest önnur
lönd A-Evrópu hafa einnig lýst yf-
ir áhuga á að ganga í Evrópusam-
bandið. A sama hátt er nauðsyn-
legt að við íslendingar skoðum okk-
ar gang varðandi Evrópusamstarf
nú þegar ný öld fer að ganga í garð.
Norðmenn hafa látið fara fram
úttekt á EES-samningnum og þar
eru lagðar fram tillögur um hvern-
ig landið eigi að rækta þetta sam-
band á næstu öld. Ekki er líklegt
að Norðmenn ætli sér að sækja
enn einu sinni um aðild að Evrópu-
sambandinu þannig að EES-samn-
ingurinn er sá vettvangur sem þeir
ætla sér að rækta sitt samstarf við
Evrópulönd í náinni framtíð.
Engin teikn eru á lofti að Island
ætli sér að sækja um aðild að Evr-
ópusambandinu enda varla til þess
pólitískur vilji á næstunni. íslensk
stjórnvöld ættu því sem fyrst að
móta sér stefnu varðandi nýtingu
þeirra möguleika sem gefast með
EES-samningnum. Að vísu hefur
menntamálaráðuneytið látið fara
fram úttekt á árangri íslenskra að-
ila í rannsókna- og þróunaráætlun
Evrópusambandsins og er það vel.
En það er ekki nema hluti af þessu
Evrópusamstarfi. Fyrsta skrefið
væri að gera heildaráttekt á áhrif-
um samningsins á íslenskt þjóðlíf.
Þegar þvi væri lokið væri næsta
skref að skipa nefnd fulltrúa at-
vinnulífsins og opinberra aðila sem
myndi leggja fram tillögur um
hvernig best væri að nýta þau
sóknarfæri sem EES-samningur-
inn bíður upp á.
Höfundur er Evrópuráðgjafí hjá
Ráðgarði hf.