Morgunblaðið - 21.11.1998, Síða 10

Morgunblaðið - 21.11.1998, Síða 10
10 LAUGAEDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Þingsályktunartillaga um ofbeldi í sjónvarpi Ekki sýnt á þeim tíma sem börn horfa á ÓLAFUR Hannibalsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, hefur lagt fram á Alþingi tiUögu til þingsá- lyktunar um ofbeldisatriði í sjón- varpi. Meginefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fara þess á leit við fulltrúa sína í útvarpsráði að þeir beiti sér fyrir því að hætt verði að sýna ofbeldisatriði í sjónvarpinu á þeim tíma sem þess er helst að vænta að börn séu að horfa á það. I greinargerð fjallar þingmaður- inn um ofbeldisatriði í kvikmynd- um og segir m.a. að sérstaklega hafl verið bent á þá samþjöppun ofbeldisatriða sem er að finna í bíó- auglýsingum á fréttatíma eða kringum annað efni, þegar búast má við að fjölskyldan hyggist njóta samverustunda fyrir framan skjá- inn. „Síðan er þar að finna í viku hverri fleiri eða færri sjónvarps- þætti, sem mega teljast kennslu- stundir í ofbeldi, spörkum, lamn- ingu og lemstrun fólks, með þeim árangri sem endurspeglast í mið- bæ Reykjavíkur um helgar. Þessu er fram haldið af því sama ríkis- vaidi j>g um áratuga skeið hefur talið íslendinga of viðkvæmar sálir til að kaupa sig inn á sýningar á hnefaleikum og raunar bannað mönnum að þjálfa sig í þeirri íþrótt.“ Alþingi láti vilja sinn í ljós í lok greinargerðar segir þing- maðurinn að um það megi deila hvort Alþingi geti gefið þeim sem sitja í nefndum og ráðum á þess vegum nokkur fyrirmæli. Vænt- anlega sitji þeir þar vegna þess að Alþingi treysti þeim til sjálf- stæðra ákvarðana um málefni þeirra stofnana sem þeir eigi að hafa áhrif á. „Flutningsmaður getur þó ekki séð að það sé úr vegi að Alþingi láti vilja sinn í ljós um þau efni ef ástæða þykir til og beini til þessara fulltrúa sinna til- mælum um aðgerðir. I það minnsta sýnist flutningsmanni að stjórnvöld stæðu sterkar að vígi um aðgerðir gegn ofbeldisvand- anum ef þau bæru sjálf hreinan skjöld í þeim efnum.“ Kátt á hjalla í þinginu Morgunblaðið/Ásdís Tillaga um uppbyggð an veg yfír Kjöl ÞINGMENNIRNIR Guðni Agústsson, Framsóknarflokki, og Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðis- flokki, hafa lagt fram á Alþingi til- lögu til þingsályktunar um upp- byggðan veg yfir Kjöl. Segja þeir í greinargerð að slík Orðsending til kjósenda VIÐ undirrituð vekjum athygli kjósenda á stofnfundi Frjálslynda flokksins, sem haldinn verður í Reykjavík dagana 28. og 29. nóvember nk. Frjálslyndi flokkurinn er til þess stofnaður að verða nýtt afl í íslenzkum stjórnmálum til framtíðar. Flokkn- um verður sett stefnuskrá þar sem tekin verður af- staða til allra helztu þjóðmála. Hann mun verða stjórn- málahreyfing þeirra, sem standa vilja vörð um jafnræði þegnanna og frelsi einstaklinganna til orða og athafna. I upphafi mun Frjálslyndi flokkurinn einbeita sér að þremur meginmálum: Sjávarútvegsmálum, umhverfis- málum og samfélagsþjónustu. Flokkurinn mun beita öllum kröftum til að gjör- breyting verði á fiskveiðistjóm, þar sem aðaláherzla verður lögð á að skila þjóðinni lögmætri eign sinni og afnema með öllu brask með veiðiheimildir og brottkast fisks. Ennfremur að allir þegnar þjóðfélagsins eigi þess kost að hefja sókn í eigin auðlindir í hafmu. Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér eindregið íyrir vernd íslenzkrar náttúru og hreinleika hennar, til lands og sjávar. Hann leggur til að öllu frekara jarðraski á hálendinu vegna nýrra framkvæmda verði hætt meðan fram fer ítarleg úttekt færustu sérfræðinga á gögnum þess og gæðum og varðveizlugildi til frambúðar. Flokk- urinn vill hrinda þeim fljótfæmislögum, sem sett vom um þessa dýrmætu sameign þjóðarinnar á vordögum 1998. Frjálslyndi flokkurinn telur til þess brýnustu nauð- syn að slá skjaldborg um velferðarkeiflð á tímum, þeg- ar erlend hægri öfgastefna hefír að markmiði að draga úr samfélagsþjónustunni. Flokkurinn vill jafna laun karla og kvenna og stórbæta kjör aldraðra og öryrkja. Flokkurinn boðar gerbreytta stefnu í heilbrigðismálum og sókn í þeim málum í stað nauðvamar, sem of lengi hefir tíðkast. Flokkurinn leggur höfuðáherzlu á að aukin alhliða Yfírlýsing frá Sverri Hermannssyni UNDIRRITAÐUR vill vekja sérstaka athygli á að stjóm Samtaka um þjóðareign hefur formála- laust hafnað samstarfí við Sverri Hermannsson og íylgismenn hans og ákveðið að halda uppi eigin merki undir forystu Bárðar Halldórssonar fast- eignasala, Péturs Einarssonar, fyrrverandi flug- málastjóra, og Valdimars Jóhannessonar, fyrrver- andi blaðamanns. menntun er undirstaða í framfarasókn þjóðarinnar. Frjálslyndi flokkurinn heitir á þig, kjósandi góður, að veita athygli og atfylgi þessu nýja þjóðmálaafli. Þeir sem hafa hug á að sitja stofnfundinn, 28. og 29. nóvember nk., era beðnh’ að tilkynna sig í síma 562- 4515 frá kl. 14-22 alla daga. Anna Þóra Björnsdóttir, verslunareigandi, Seltjarnarnesi, Auður Karlsdóttir, kennari, Reykjavík, Auður Þórisdóttir, bankastarfsmaður, Reykjavík, Ár-ni Jónsson, verkstjóri, Stykkishóimi, Áslaug Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri, Reykjavík, Ásthiidur Sveinsdóttir, þýðandi, Hafnarfirði, Bai-ði Friðriksson, hæstaréttarlögmaður, Reykjavík, Benedikt Antonsson, viðskiptafræðingur, Reykjavík, Bergljót Halldórsdóttir, kennari, Isafirði, Björn Björnsson, bifreiðarstjóri, Reykjavík, Björn Guðjónsson, tónlistarmaður, Reykjavík, Eðvarð Árnason, yfirlögi-egluþjónn, Stykkishólmi, Einar Ki-istjánsson, sjómaður, Höfn, Hornaf., Eiríkur B. Eiríksson, bókavörður, Reykjavík, Erna Ágústsdóttir, skrifstofustjóri, Reykjavík, Eyjólfur K. Sigurjónsson, endurskoðandi, Kópavogi, Eyþór Sigmundsson, matsveinn, Kópavogi, Geir Birgir Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík, Guðmundur Oddsson, málari, ísafirði, Guðmundur Wíum Stefánsson, skógræktarbóndi, Vopnafirði, Gunnai- Ingi Gunnarsson, læknir, Reykjavík, Gunnar Þ. Gunnarsson, fv. forstjóri, Reykjavík, Gylfi Björnsson, sjóntækjafræðingur, Seltjarnarnesi, Gylfi Ingason, mati'eiðslumeistari, Reykjavík, Halldór Hermannsson, skipstjóri, Isafirði, Haraldur Sigurðsson, vélfræðingur, Öxarfjarðai'hreppi, Haraldur Þórarinsson, fv. verkstæðisfonn., Kvistási, Heiðar Sigurðsson, framkvæmdastjóri, ísafirði, Heimir Guðbjörnsson, stýrimaður, Reykjavík, Helgi G. Þórðarson, verkfræðingm', Hafnarfirði, Hiynur Árnason, járniðnaðarmaður, Seltjamarnesi, Ingibjörg Jónasdóttir, fv. framkvæmdastjóri, Reykjavík, Jón M. Arason, skipstjóri, Þorlákshöfn, Jón Sigurðsson, fv. framkvæmdastjóri, Reykjavík, Jórunn Sigfúsdóttir, húsmóðir, Stykkishólmi, Kjartan Eggertsson, tónlistarskólastjóri, Ólafsvík, Kolbrún Björnsdóttir, læknaritari, Reykjavík, Ki’istleifur Þorsteinsson, landeigandi, Húsafelli, Kristrún Pétursdóttir, ritari, Reykjavík, Magnús Þorgilsson, bifreiðarstjóri, ísafirði, Margrét Sverrisdóttir, kennari, Reykjavík, Pétur Bjamason, forstj. skólaskrifst., ísafirði, Pétur Hilmarsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík, Ragnheiður Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri, Þingeyri, Ragnhildur Sverrisdóttir, biaðamaður, Reykjavík, Sigríður B. Ásgeirsdóttir, húsmóðir, Aki'anesi, Sigurður Kristjánsson, skrifstofustjóri, Mosfellsbæ, Svava Hjaltadóttir, ritari, Reykjavík, Sverrir Hermannsson, stjórnmálamaður, Reykjavík, Þorbjörn Óiafsson, bifreiðarstjóri, Reykjavík, Þorsteinn Barðason, jarðfræðingur, Reykjavík, vegagerð yrði mikil hagræðing fyr- ir landsmenn alla og áætla að framkvæmdimar myndu kosta inn- an við einn milljarð króna. Taka þeir ennfremur sem dæmi að vega- lengdin milli Selfoss og Akureyrar myndi styttast um 69 km með slík- um vegi. Meginefni tillögunnar er að AI- þingi álykti að fela samgönguráð- herra að láta Vegagerðina gera at- hugun á vegstæði, kostnaði og þýð- ingu þess fyrir byggðaþróun og umferð milli landshluta að gera uppbyggðan veg með slitlagi um Kjöl. „Kanna þarf ýmsar áhuga- verðar tengingar út frá núverandi Kjalvegi sem mundu stytta vera- lega allar leiðir norður og austur um. Til dæmis um Blöndustíflu og niður Mælifellsdal eða Gilhagadal í Skagafirði. Síðan má hugsa sér að Héraðsvötn verði brúuð í sambandi ALÞINGI við virkjunarframkvæmdii' við Vill- inganes í Skagafirði," segir í grein- argerð. „Trúlega yi'ði Kjölur torfarinn yfir háveturinn en ekki endilega verri en margir aðrir fjallvegir í landinu. Ný tækni býður upp á allt aðrar upplýsingar á veðurfari, ferðamönnum til glöggvunar, en áður var,“ segir ennfremur. Bifreiðagjöld skv. gildandi lögum og framlögðu frumvarpi (eitt tímabil, 6 mán.) Þyngd bifreiðar Gjöld skv. gildandi iögum Gjöld skv. frumvarpi Breyting í upphæð Hlutfatlsl. breyting 800 kg kr. 4.688 kr. 4.800 kr. +112 +2,39% 1.050 6.343 6.405 +62 +0,98% 1.300 8.758 8.430 -328 -3,75% 1.500 10.690 10.050 -640 -5,99% 2.000 15.520 14.100 -1.420 -9,15% 2.500 20.350 18.150 -2.200 -10,81% 3.000 26.214 24.200 -2.014 -7,68% 5.000 30.214 28.200 -2.014 -6,67% 7.000 34.214 32.200 -2.014 -5,89% 10.000 40.214 36.200 -4.014 -9,98% 15.000 50.214 36.200 -14.014 -27,91 % 20.000 60.214 36.200 -24.014 -39,88% Breytingar á bifreiða- gjöldum eftir áramót GEIR H. Haarde fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar m.a. á lögum um bifreiðagjald. Þar er lagt til að lágmarksgjald verði hækkað úr 2.993 kr. í 3.000 kr. eða innan við 1% og ennfremur að sett verði inn að nýju ákveðin há- marksupphæð bifreiðagjalds sem verði 36.200 kr. Þá er lagt til að gjald fyrir hvert kg af eigin þyngd bifreiðar að 1.000 kg hækki úr 5,86 kr. í 6 kr. en að gjald fyrir hvert kg umfram 1.000 kg lækki úr 9,66 kr. í 8,10 kr. eða um 16,5%. Lagt er til að frumvarpið öðlist gildi 1. janúar 1999. Samkvæmt gildandi lögum greið- ir eigandi bifreiðar sem er yfir 1.000 kg 3,80 kr. meira fyrir hvert kíló sem er yfir 1.000 kg, að 3.000 kg. Með frumvarpinu er hins vegar lagt til að úr þessum mun verði dregið þannig að hann verði 1,10 kr. Fleiri breytingar eru lagðar til í frum- varpinu m.a. að þungaskattur af er- lendum skráðum ökutækjum verði lækkaður til samræmis við þunga- skatt af innlendum skráðum öku- tækjum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.