Morgunblaðið - 21.11.1998, Qupperneq 10
10 LAUGAEDAGUR 21. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þingsályktunartillaga
um ofbeldi í sjónvarpi
Ekki sýnt á
þeim tíma sem
börn horfa á
ÓLAFUR Hannibalsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, hefur lagt
fram á Alþingi tiUögu til þingsá-
lyktunar um ofbeldisatriði í sjón-
varpi. Meginefni tillögunnar er að
Alþingi álykti að fara þess á leit við
fulltrúa sína í útvarpsráði að þeir
beiti sér fyrir því að hætt verði að
sýna ofbeldisatriði í sjónvarpinu á
þeim tíma sem þess er helst að
vænta að börn séu að horfa á það.
I greinargerð fjallar þingmaður-
inn um ofbeldisatriði í kvikmynd-
um og segir m.a. að sérstaklega
hafl verið bent á þá samþjöppun
ofbeldisatriða sem er að finna í bíó-
auglýsingum á fréttatíma eða
kringum annað efni, þegar búast
má við að fjölskyldan hyggist njóta
samverustunda fyrir framan skjá-
inn. „Síðan er þar að finna í viku
hverri fleiri eða færri sjónvarps-
þætti, sem mega teljast kennslu-
stundir í ofbeldi, spörkum, lamn-
ingu og lemstrun fólks, með þeim
árangri sem endurspeglast í mið-
bæ Reykjavíkur um helgar. Þessu
er fram haldið af því sama ríkis-
vaidi j>g um áratuga skeið hefur
talið íslendinga of viðkvæmar sálir
til að kaupa sig inn á sýningar á
hnefaleikum og raunar bannað
mönnum að þjálfa sig í þeirri
íþrótt.“
Alþingi láti vilja sinn í ljós
í lok greinargerðar segir þing-
maðurinn að um það megi deila
hvort Alþingi geti gefið þeim sem
sitja í nefndum og ráðum á þess
vegum nokkur fyrirmæli. Vænt-
anlega sitji þeir þar vegna þess að
Alþingi treysti þeim til sjálf-
stæðra ákvarðana um málefni
þeirra stofnana sem þeir eigi að
hafa áhrif á. „Flutningsmaður
getur þó ekki séð að það sé úr
vegi að Alþingi láti vilja sinn í ljós
um þau efni ef ástæða þykir til og
beini til þessara fulltrúa sinna til-
mælum um aðgerðir. I það
minnsta sýnist flutningsmanni að
stjórnvöld stæðu sterkar að vígi
um aðgerðir gegn ofbeldisvand-
anum ef þau bæru sjálf hreinan
skjöld í þeim efnum.“
Kátt á hjalla í þinginu
Morgunblaðið/Ásdís
Tillaga um uppbyggð
an veg yfír Kjöl
ÞINGMENNIRNIR Guðni
Agústsson, Framsóknarflokki, og
Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, hafa lagt fram á Alþingi til-
lögu til þingsályktunar um upp-
byggðan veg yfir Kjöl.
Segja þeir í greinargerð að slík
Orðsending
til kjósenda
VIÐ undirrituð vekjum athygli kjósenda á stofnfundi
Frjálslynda flokksins, sem haldinn verður í Reykjavík
dagana 28. og 29. nóvember nk.
Frjálslyndi flokkurinn er til þess stofnaður að verða
nýtt afl í íslenzkum stjórnmálum til framtíðar. Flokkn-
um verður sett stefnuskrá þar sem tekin verður af-
staða til allra helztu þjóðmála. Hann mun verða stjórn-
málahreyfing þeirra, sem standa vilja vörð um jafnræði
þegnanna og frelsi einstaklinganna til orða og athafna.
I upphafi mun Frjálslyndi flokkurinn einbeita sér að
þremur meginmálum: Sjávarútvegsmálum, umhverfis-
málum og samfélagsþjónustu.
Flokkurinn mun beita öllum kröftum til að gjör-
breyting verði á fiskveiðistjóm, þar sem aðaláherzla
verður lögð á að skila þjóðinni lögmætri eign sinni og
afnema með öllu brask með veiðiheimildir og brottkast
fisks. Ennfremur að allir þegnar þjóðfélagsins eigi þess
kost að hefja sókn í eigin auðlindir í hafmu.
Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér eindregið íyrir
vernd íslenzkrar náttúru og hreinleika hennar, til lands
og sjávar. Hann leggur til að öllu frekara jarðraski á
hálendinu vegna nýrra framkvæmda verði hætt meðan
fram fer ítarleg úttekt færustu sérfræðinga á gögnum
þess og gæðum og varðveizlugildi til frambúðar. Flokk-
urinn vill hrinda þeim fljótfæmislögum, sem sett vom
um þessa dýrmætu sameign þjóðarinnar á vordögum
1998.
Frjálslyndi flokkurinn telur til þess brýnustu nauð-
syn að slá skjaldborg um velferðarkeiflð á tímum, þeg-
ar erlend hægri öfgastefna hefír að markmiði að draga
úr samfélagsþjónustunni. Flokkurinn vill jafna laun
karla og kvenna og stórbæta kjör aldraðra og öryrkja.
Flokkurinn boðar gerbreytta stefnu í heilbrigðismálum
og sókn í þeim málum í stað nauðvamar, sem of lengi
hefir tíðkast.
Flokkurinn leggur höfuðáherzlu á að aukin alhliða
Yfírlýsing frá Sverri
Hermannssyni
UNDIRRITAÐUR vill vekja sérstaka athygli á
að stjóm Samtaka um þjóðareign hefur formála-
laust hafnað samstarfí við Sverri Hermannsson og
íylgismenn hans og ákveðið að halda uppi eigin
merki undir forystu Bárðar Halldórssonar fast-
eignasala, Péturs Einarssonar, fyrrverandi flug-
málastjóra, og Valdimars Jóhannessonar, fyrrver-
andi blaðamanns.
menntun er undirstaða í framfarasókn þjóðarinnar.
Frjálslyndi flokkurinn heitir á þig, kjósandi góður,
að veita athygli og atfylgi þessu nýja þjóðmálaafli.
Þeir sem hafa hug á að sitja stofnfundinn, 28. og 29.
nóvember nk., era beðnh’ að tilkynna sig í síma 562-
4515 frá kl. 14-22 alla daga.
Anna Þóra Björnsdóttir, verslunareigandi, Seltjarnarnesi,
Auður Karlsdóttir, kennari, Reykjavík,
Auður Þórisdóttir, bankastarfsmaður, Reykjavík,
Ár-ni Jónsson, verkstjóri, Stykkishóimi,
Áslaug Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Ásthiidur Sveinsdóttir, þýðandi, Hafnarfirði,
Bai-ði Friðriksson, hæstaréttarlögmaður, Reykjavík,
Benedikt Antonsson, viðskiptafræðingur, Reykjavík,
Bergljót Halldórsdóttir, kennari, Isafirði,
Björn Björnsson, bifreiðarstjóri, Reykjavík,
Björn Guðjónsson, tónlistarmaður, Reykjavík,
Eðvarð Árnason, yfirlögi-egluþjónn, Stykkishólmi,
Einar Ki-istjánsson, sjómaður, Höfn, Hornaf.,
Eiríkur B. Eiríksson, bókavörður, Reykjavík,
Erna Ágústsdóttir, skrifstofustjóri, Reykjavík,
Eyjólfur K. Sigurjónsson, endurskoðandi, Kópavogi,
Eyþór Sigmundsson, matsveinn, Kópavogi,
Geir Birgir Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Guðmundur Oddsson, málari, ísafirði,
Guðmundur Wíum Stefánsson, skógræktarbóndi, Vopnafirði,
Gunnai- Ingi Gunnarsson, læknir, Reykjavík,
Gunnar Þ. Gunnarsson, fv. forstjóri, Reykjavík,
Gylfi Björnsson, sjóntækjafræðingur, Seltjarnarnesi,
Gylfi Ingason, mati'eiðslumeistari, Reykjavík,
Halldór Hermannsson, skipstjóri, Isafirði,
Haraldur Sigurðsson, vélfræðingur, Öxarfjarðai'hreppi,
Haraldur Þórarinsson, fv. verkstæðisfonn., Kvistási,
Heiðar Sigurðsson, framkvæmdastjóri, ísafirði,
Heimir Guðbjörnsson, stýrimaður, Reykjavík,
Helgi G. Þórðarson, verkfræðingm', Hafnarfirði,
Hiynur Árnason, járniðnaðarmaður, Seltjamarnesi,
Ingibjörg Jónasdóttir, fv. framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Jón M. Arason, skipstjóri, Þorlákshöfn,
Jón Sigurðsson, fv. framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Jórunn Sigfúsdóttir, húsmóðir, Stykkishólmi,
Kjartan Eggertsson, tónlistarskólastjóri, Ólafsvík,
Kolbrún Björnsdóttir, læknaritari, Reykjavík,
Ki’istleifur Þorsteinsson, landeigandi, Húsafelli,
Kristrún Pétursdóttir, ritari, Reykjavík,
Magnús Þorgilsson, bifreiðarstjóri, ísafirði,
Margrét Sverrisdóttir, kennari, Reykjavík,
Pétur Bjamason, forstj. skólaskrifst., ísafirði,
Pétur Hilmarsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Ragnheiður Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri, Þingeyri,
Ragnhildur Sverrisdóttir, biaðamaður, Reykjavík,
Sigríður B. Ásgeirsdóttir, húsmóðir, Aki'anesi,
Sigurður Kristjánsson, skrifstofustjóri, Mosfellsbæ,
Svava Hjaltadóttir, ritari, Reykjavík,
Sverrir Hermannsson, stjórnmálamaður, Reykjavík,
Þorbjörn Óiafsson, bifreiðarstjóri, Reykjavík,
Þorsteinn Barðason, jarðfræðingur, Reykjavík,
vegagerð yrði mikil hagræðing fyr-
ir landsmenn alla og áætla að
framkvæmdimar myndu kosta inn-
an við einn milljarð króna. Taka
þeir ennfremur sem dæmi að vega-
lengdin milli Selfoss og Akureyrar
myndi styttast um 69 km með slík-
um vegi.
Meginefni tillögunnar er að AI-
þingi álykti að fela samgönguráð-
herra að láta Vegagerðina gera at-
hugun á vegstæði, kostnaði og þýð-
ingu þess fyrir byggðaþróun og
umferð milli landshluta að gera
uppbyggðan veg með slitlagi um
Kjöl. „Kanna þarf ýmsar áhuga-
verðar tengingar út frá núverandi
Kjalvegi sem mundu stytta vera-
lega allar leiðir norður og austur
um. Til dæmis um Blöndustíflu og
niður Mælifellsdal eða Gilhagadal í
Skagafirði. Síðan má hugsa sér að
Héraðsvötn verði brúuð í sambandi
ALÞINGI
við virkjunarframkvæmdii' við Vill-
inganes í Skagafirði," segir í grein-
argerð.
„Trúlega yi'ði Kjölur torfarinn
yfir háveturinn en ekki endilega
verri en margir aðrir fjallvegir í
landinu. Ný tækni býður upp á allt
aðrar upplýsingar á veðurfari,
ferðamönnum til glöggvunar, en
áður var,“ segir ennfremur.
Bifreiðagjöld skv. gildandi lögum og
framlögðu frumvarpi (eitt tímabil, 6 mán.)
Þyngd bifreiðar Gjöld skv. gildandi iögum Gjöld skv. frumvarpi Breyting í upphæð Hlutfatlsl. breyting
800 kg kr. 4.688 kr. 4.800 kr. +112 +2,39%
1.050 6.343 6.405 +62 +0,98%
1.300 8.758 8.430 -328 -3,75%
1.500 10.690 10.050 -640 -5,99%
2.000 15.520 14.100 -1.420 -9,15%
2.500 20.350 18.150 -2.200 -10,81%
3.000 26.214 24.200 -2.014 -7,68%
5.000 30.214 28.200 -2.014 -6,67%
7.000 34.214 32.200 -2.014 -5,89%
10.000 40.214 36.200 -4.014 -9,98%
15.000 50.214 36.200 -14.014 -27,91 %
20.000 60.214 36.200 -24.014 -39,88%
Breytingar á bifreiða-
gjöldum eftir áramót
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
hefur lagt fram á Alþingi frumvarp
til laga um breytingar m.a. á lögum
um bifreiðagjald.
Þar er lagt til að lágmarksgjald
verði hækkað úr 2.993 kr. í 3.000 kr.
eða innan við 1% og ennfremur að
sett verði inn að nýju ákveðin há-
marksupphæð bifreiðagjalds sem
verði 36.200 kr. Þá er lagt til að
gjald fyrir hvert kg af eigin þyngd
bifreiðar að 1.000 kg hækki úr 5,86
kr. í 6 kr. en að gjald fyrir hvert kg
umfram 1.000 kg lækki úr 9,66 kr. í
8,10 kr. eða um 16,5%. Lagt er til að
frumvarpið öðlist gildi 1. janúar
1999.
Samkvæmt gildandi lögum greið-
ir eigandi bifreiðar sem er yfir 1.000
kg 3,80 kr. meira fyrir hvert kíló
sem er yfir 1.000 kg, að 3.000 kg.
Með frumvarpinu er hins vegar lagt
til að úr þessum mun verði dregið
þannig að hann verði 1,10 kr. Fleiri
breytingar eru lagðar til í frum-
varpinu m.a. að þungaskattur af er-
lendum skráðum ökutækjum verði
lækkaður til samræmis við þunga-
skatt af innlendum skráðum öku-
tækjum.