Morgunblaðið - 06.12.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1998 B 3Í*
SAFNPLATA Bergþóra Árnadóttir.
Lífsbók
Bergþóru
Árna-
dóttur
SÖNGKONAN Bergþóra Áma-
dóttir hefur ekki sent frá sér plötu í
á annan áratug, en þar áður var hún
dugleg við útgáfu og áberandi í ís-
lensku tónlistarlífi. Fyrir stuttu
sendi útgáfan Fimmund frá sér safn
af lögum hennar frá áratugnum
1977-87 undir nafninu Lífsbókin.
Bergþóra Arnadóttir ólst upp við
tónlist og hóf snemma að semja lög
og texta. Fyrstu upptökur hennar
komu fyrir almanna eyru á safn-
plötu 1975 og tveimur árum eftir
það kom út fyrsta sólóskífan, Ein-
tak. Fleiri plötur fylgdu í kjölfarið
og Bergþóra var iðin við tónleika-
hald og kom víða fram, meðal ann-
ars í útvai-pi og sjónvarpi. 1987
kom út platan I seinna lagi, en í
kjölfarið fluttist Bergþóra til Dan:
merkur og hefur búið þar síðan. í
Danmörku slasaðist hún alvarlega í
umferðarslysi og varð að leggja
tónleikahald og upptökur á hilluna
í bili. Hún hefur þó haldið áfram að
semja lög, þó ekki hafi hún gefið út
plötu síðan 1987.
A safnplötunni Lífsbókin sem
Fimmund gefur út er að finna lög
frá 1911-87, eins og áður er getið.
Þau komu öll út á plötum utan eitt
sem ekki hefur heyrst áður, Hvera-
gerði. Lögin eru alls 21 á plötunni,
en plötur Bergþóru eru allar ófáan-
legar sem stendur og hafa verið
um árabil. Lífsbókin er gefin út í
tilfni af fimmtugsafmæli Bergþóru.
----------
Upphitaðar
Lummur
MEÐ vinsælustu plötum íslenskr-
ar útgáfusögu er plata Gunnars
Þórðarsonar sem hann kallaði
Gamlar góðar lummur. Á henni
fékk hann til liðs við sig ýmsa
söngvara og hljóðritaði gömul
popplög úr ýmsum áttum.
Nafnið á plötunni dró nafn sitt af
innihaldinu, en á plötunni voru
gömul og þrautreynd popplög sem
Gunnar útsetti upp ó nýtt sam-
kvæmt þeirra tíma sið. íslenskir
textar eru við öll laganna, flestir
eftir Jón Siurðsson, en ýmsir aðrir
áttu og texta. Gunnar lék sjálfur á
velflest hljóðfæranna en var þó
með valinkunna menn sér til halds
og trausts, eins og til að mynda
Tómas Tómasson, Sigurð Karlsson
og Nikulás Róbertsson. Söngsveit-
in var ekki af verri endanum held-
ur þó ekki hafi allir haldið áfram á
tónlistarbrautinni, en um raddir
sáu þau Raghildur Gísladóttir,
Linda Gísladóttir, Jóhann Helga-
son, Valur Emilsson og Ólafur
Þórðarson. Af lögum á plötunni má
nefna Vertu ekki að horfa, Ó, nema
ég, Lóa htla á Brú, Marína og Nú
liggur vel á mér.
Fyrir stuttu gaf hljómplötuút-
gáfan Tónaflóð Lummurnar út á
disk, en platan, sem kom út fyrir
ellefu árum, hefur verið ófáanleg
með öllu í fjölda ára.
Jólapakkar til
Nordurlanda
Tekið er á móti pökkum hjá BM fiutningum, Holtagörðum, í vöruhúsi A,
7. og 8. des. Skipið fer frá íslandi 10. des. og verður í Árósum 17. des.,
Moss 18. des. og Varberg 18. des. Nánari upplýsingar veittar hjá
BM Flutningum í síma 569 8000.
SAMSKIP
Holtabakka viö Holtaveg • Sími: 569 8300 • Fax: 569 8327
Gefðu vandaða gjöf!
Gefðu Siemens.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!
M GLEÐILEGRA JÓLA!
m
Siemens
SIEMENS
heimilistækin
eru dyggir
starfskraftar
og sonn
■ ■ I ■ r jC ■