Morgunblaðið - 13.12.1998, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR13. DESEMBER 1998 C 9
Helsinki. Morgunblaðið.
HNÉLIÐIR Finnlandsforseta eiga
ef til vill eftir að ráða úrslitum í
næstu forsetakosningum, að mati
margra fmnskra stjórnmálasér-
fræðinga. Martti Ahtisaari forseti
hefur reynt að ræða sem minnst
um heilsufar þau fjögur ár sem
hann hefur gegnt embættinu. Nú,
þegar styttist í kosningar, hafa
menn hins vegar farið að velta
vöngum yfir því hvort Ahtisaari
hafi þrek til að gefa kost á sér í
annað skipti.
Finnar hafa afar slæma reynslu
af vanheilsu þjóðhöfðingja. Urho
Kekkonen var við völd frá 1956 til
1981 en síðustu tíu árh: átti hann
við alvarleg veikindi að stríða.
Embættismenn í kringum forset-
ann reyndu að þagga niður alla
umræðu um heilsu hans með þeim
afleiðingum að þjóðin vissi lítið
sem ekkert.
Nýlega hefur komið í ljós að
læknar Kekkonens sannfærðu for-
setann sjálfan um að hann væri
jafnhraustur og maður á miðjum
aldri þrátt fyrir að hann væri orð-
inn sjötugur. Opinberlega létu
læknar forsetans eins og ekkert
væri.
Þjáðist Kekkonen af heilabilun
sem olli minnisleysi og sjónskerð-
ingu. Þar sem Finnlandsforseti fer
með stjórn utanríkismála getur
starfsgeta hans ráðið úrslitum í
mörgum tilvikum. Kekkonen var til
dæmis þekktur fyrir að ræða eins-
Fyrir árið 2000
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Aðsendar greinar á Netinu
ýg>mbl.i$
\LLTAf= e/TTHXSAÐ A/ÝTT-
Finnar velta vöngum yfír
heilsufari forsetans
lega við leiðtoga Sovétríkjanna.
Þegar Mauno Koivisto tók við af
Kekkonen tók hann að birta niður-
stöður úr reglubundnum læknis-
skoðunum. Þótti þetta tákn um
breytta tíma enda var Koivisto sá
sem varð að hlaupa í skarðið þegar
Kekkonen veiktist endanlega í
veiðiferð í Víðidalsá sumarið 1981.
Þegar Martti Ahtisaari náði
kjöri veturinn 1994 sagðist hann
fyrst ætla að fylgja dæmi Koivistos
varðandi birtingu læknisrann-
sókna. Einnig hét hann því að fara
í megrun því augljóst þótti að hinn
nýkjömi forseti væri kominn
þónokkuð yfir meðalþyngd þjóð-
höfðinga. Meðal annars reyndist
nauðsynlegt að endurbyggja stiga-
gang í forsetasetrinu Furunesi
(Mantyniemi).
Smám saman var þó horfið frá
þeirri hefð að birta upplýsingar um
heilsufar forseta. Þegar Ahtisaari
var spurður hverju það sætti
reyndi hann að gera sem minnst úr
málinu.
Forsetinn reiddist mjög í haust
er finnskir fréttamenn hófu um-
ræðu um málið. Lýsti Ahtisaari því
yfir að ekkert vit væri í því að birta
plögg þar sem einungis væri tekið
fram að heilsa hans hefði ekkert
breyst. Forsetinn bætti einnig við
að tíðar utanlandsferðir hans bæm
þess vott að ekki skorti hann þrek.
Mættu þeir fréttamenn fylgja for-
setanum sem gætu.
Fyrir nokkru varð þó aftur
breyting á stefnu forseta. Forseta-
embættið gaf út yfirlýsingu um að
þyngd Ahtisaaris hefði valdið
minni háttar erfiðleikum. Væru
það aðallega hnéliðir forsetans sem
væru famir að gefa sig og þyrfti
hann að fara í skurðaraðgerð innan
skamms.
Stuðningsmenn Ahtisaaris velta
nú fyrir sér hvort liðirnir muni
endast í rúmt ár en forsetakosn-
ingar verða í janúar og febnlar ár-
ið 2000.
Augljóst virðist að þetta vanda-
mál sé farið að há forsetanum.
Finnar sjá reglulega sjónvarps-
myndir þar sem forseti þeirra á í
vemlegum erfiðleikum með að taka
nokkur skref upp í ræðustól.
Jafnilla gengur honum að ganga
við hlið erlendra þjóðhöfðingja.
Vinsældir Ahtisaaris fara minnk-
andi í skoðanakönnunum og virðast
margar ástæður liggja að baki.
Ahtisaari hefur sagt að hann hygg-
ist tilkynna snemma á næsta ári
hvort hann gefi kost á sér í næstu
kosningum.
ifi
frelsiö!
Kostirnir eru ótvíræðir:
- engir reikningar
- engin mánaðargjöld
- engin binding
Með GSM Frelsi frá
Símanum færðu:
- GSM númer
- talhólfsnúmer
- 2000 kr. irmeign
- íooo kr. aukainneign
við skráningu
f^rclsi
GSN.kort
Símamírrier —
2000 kr. inneign
Frelsiskort kr. 3.500,
F reisispakkdr
Nokia 5110 Frelsispakki
i
Nokia 5110 pakkaverð - kort + sími 24.980,-
listavrrð 19795 j
Sagem 725 Frelsispakki
Sagem 725pakkaverð ■ kort + simi 17.980,-
llstavtrð 11480 f
f Ericsson 628 Frelsispakki
Ericsson 628 pakkaverð - feorf + simi 16.980,-
Ustaverð 1I.11Í
Alcatel One Touch Basy Frelsispakki
Alcatel One Touch Easy pakkaverð - feort + simi 15980,-
Ustaverð 17.1ÍJ |
Frelsispakkatilboðin gilda
til 24. desember n.k.
800
7000
Gjaldfijálst þjónustunúmer
www.simi.is/simar
www.gsm. is/frelsi
PÓSTURINN
SÍMINN
Armúla 27, sími 550 7800 • Knngíunni, sími 559 6890 • Landsvima
Sauðárkróki, simi 4551009 • Ísafiröi, sími 450 6000 * Akureyri, slrni 460 6710 <
i\usturvöii, simi 550 6579 • Þjúnustuvari, sími 800 7000 • Símanum lr.terni
L'tn, simi 470 1000 • Selfossi, sími 4801190 • Keflavik, s>mi 420 1515 • A