Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Framkvæmdir við íþróttamiðstöð og félagsheimili Hauka hafnar á Ásvöllum Aætlaður kostn- aður um 500 milljónir króna FYRIRHUGUÐ fþróttamiðstöð og félagsheimili Knattspyrnufélags Hauka í Hafnarfirði sem reist verður á Ásvöllum. FRAMKVÆMDIR eru hafnar við byggingu um 5.300 fermetra íþróttamiðstöðvar og félagsheimilis Knattspyrnufélagsins Hauka á Asvöllum í Hafnarfirði og var fyrsta skóflustungan tekin í gær. Áætlað- ur kostnaður er um 500 milljónir króna og greiðir Hafnarfjarðarbær 80% en knattspyrnufélagið 20%. Gert er ráð fyrir að íþróttahúsið verði tilbúið til notkunar í ágúst árið 2000 og að húsið verði fullbúið ásamt félagsmiðstöð hinn 12. apríl árið 2001 á 70 ára afmæli félagsins. „Petta er stærsta framkvæmd sem félagið hefur ráðist í nokkru sinni og langþráð," sagði Lúðvík Geirsson, foi-maður Hauka. „Við er- um landnemar á nýju framtíðar- svæði bæjarins á Ásvöllum. Með því að fá þetta hús og þessa miðstöð undir starfsemi okkar náum við í fyrsta sinn í nærri sjötíu ára sögu félagsins að sameina allt okkar starf á einn stað, sem er bylting fyrir okkur. Við störfum nú á þremur stöðum í bænum og það hefur sín áhrif. Þetta er sú framtíð sem við höfum verið að bíða eftir í áratugi og mun gjörbreyta allri aðstöðu til íþróttastarfsemi í bænum.“ Iþróttahús eftir 20 mánuði Sagði hann að mikil vinna hefði verið lögð í allan undirbúning og skipulag á svæðinu og að samstarf allra aðila hefði verið gott. Gert er ráð fyrir að íþróttahúsið verði tekið í notkun eftir 20 mánuði og að félagsaðstaðan verði vígð á 70 ára afmæli félagsins árið 2001. Sl. vor var formlega gengið frá framkvæmdasamningi milli Hauka og bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um byggingu íþróttamiðstöðvarinnar og samhliða var gerður samningur um sölu á eldra íþróttahúsið Hauka við Flatahraun og rennur hlutur Hauka upp í nýframkvæmdina. Nýja íþróttamiðstöðin mun rísa norðvestan við gervigrasvöll á svæði milli vallarins og Ásbrautar og verður aðkoman frá hringtorgi á Asbraut. íþróttamiðstöðin verður í þremur meginhlutum og skiptist í íþróttasal ásamt forsal, búningsklefa og rými tengdu rekstri hússins og félags- miðstöð. í byggingarlýsingu segir að forsalurinn sé hugsaður sem bæjargata og að frá henni liggi leið- ir um húsið. Götunni tengist innig- arður sem afmarkast af félags- miðstöð, veitingasal, karatesal og búningsklefum. Forsalnum tengist einnig aðstaða starfsmanna og dag- leg afgreiðsla og sala léttra veitinga ásamt miðasölu. Iþróttasalurinn er 45x46 metrar og rúmar þær íþróttagreinar sem helst eru stundaðar innanhúss. Gert er ráð fyrir um 2.000 áhorfendum á útdregnum áhorfendapöllum en þegar pallarnir eru í geymslustöðu nýtist gólfplássið til íþróttaiðkana og má þá skipta salnum með tjöld- um í 3-4 hluta allt eftir notkun. Búningsherbergi verða tólf, tíu eru við hlið íþróttasalar en tvö við karatesal í suðurenda hússins og eru þau einnig hugsuð fyrir notend- ur gervigrasvallar. I félagsmiðstöðinni eru skrifstof- ur félagsins ásamt starfsaðstöðu og geymslum fyrir hverja deild. Þar er einnig fundarherbergi og veislusal- ur íyrir um 120 manns ásamt fram- reiðslueldhúsi. Við hlið veitingasal- ar er karatesalur og með fellanleg- um vegg á milli þein’a verður hægt að slá þeim saman í 250 manna veit- ingasal. Fram kemur að við upp- byggingu hússins hafí verið miðað við að hægt verði að byggja annan minni sal til æfinga og/eða keppni norðaustan við húsið. Rúmlega 16 hektara svæði Nýtt deiliskipulag hefur verið unnið að rúmlega 16 hektara íþrótta- og útivistarsvæði félagsins samhliða hönnunanúnnu og undir- búningi að byggingu íþrótta- miðstöðvarinnar. í greinargerð með skipulaginu kemur fram að gert sé ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi á svæðinu. Aðalleikvöllurinn er sunn- an við gervigrasvöllinn með 400 metra hlaupabraut og aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. Gert er ráð fyrir yfirbyggðri áhorfendastúku og áhorfendastúku við gervigrasvöllinn og að síðar megi byggja yfir völlinn. Sunnan við aðalvöllinn eru þrír tennisvellli og við vellina er gert ráð fyrir sundlaugarbyggingu á tveimur hæðum með 50 metra útisundlaug, heitum pottum og útisvæði. Vestast á svæðinu er gert ráð fyrir sam- hangandi grasæfingarsvæði. í skipulagstillögunni er einnig gert ráð fyrir göngu- og hlaupaleið- um um ^svæðið sem tengjast nágrenni Ástjarnar og um Ásfjall- Tekið er fram að háspennulína sem liggur í jaðri svæðisins milli Hauka- svæðisins og friðlandsins verði fjar- lægð. Sýnd eru 430 bílastæði og sjö stæði fyrir rútur auk þess sem gert er ráð fyrir 105 bílastæðum þegar álagið er mest. Listasjóður Hauka stofnaður STOFNAÐUR hefur verið sér- stakur Listasjóður Hauka, í þeim tilgangi að kaupa listaverk og list- skreytingar í og við nýju íþrótta- miðstöð félagsins á Ásvöllum. Það var aðalfundur félagsins sem samþykkti að fela stjórn Félagsráðs að ganga frá stofnun sjóðsins og sjá um umsýslu hans og rekstur í samvinnu við aðal- stjórn. í frétt frá Haukum segir að þess sé vænst að einstakling- ar, félög og fyrirtæki sýni þessu máli áhuga og styrki félagið og styðji í þeirri viðleitni að koma upp listaverkum á Ásvöllum og listskreytingum og gera þannig umhverfið sem glæsilegast. Nýjar höfuðstöðvar Landssímans í Laugardal Hugmynd um hátækni- garð fyrir almenning LANDSSÍMI íslands hf. áformar að opna starfsemi sína almenningi ef hugmynd um að flytja aðalstöðvar fyrirtækisins í Laugardalinn verður að veruleika. Búist er við að formleg- ar viðræður Landssímans og Reykjavíkurborgar um lóðina í Laugardalnum munu hefjast innan tíðar. Áður höfðu Samtök um bygg- ingu tónlistarhúss ráðgert að reisa þar tónlistarhús en fallið hefur verið frá þeirri hugmynd. „Ástæðan fyrir því að við sækj- umst eftir þessari lóð er í fyrsta lagi sú að hún er mjög nálægt annarri starfsemi okkar við Suðurlandsbraut og Armúla en þar er um þriðjungur starfsemi fyrirtækisins á höfuðborg- arsvæðinu. Einnig hefur þeirri hug- mynd verið velt upp í viðræðum við borgina að hluti riýs Landssímahúss verði opinn almenningi og yrði nokk- urs konar gagnvirkur hátæknigarð- ur. Þar yrði sýning á því nýjasta í fjarskipta- og nettækni og öðru sem tengist starfsemi Landssímans. Þessi miðstöð gæti þjónað því hlut- verki að opna fólki, ekki síst yngri kynslóðinni, sýn á nýja tækni, upp- lýsingasamfélagið og þá möguleika sem í því felast,“ sagði Ólafur Steph- ensen forstöðumaður upplýsinga- og kynningarsviðs Landssímans. Tengslin við Laugardalinn væru því mjög spennandi og mætti hugsa sér að ferð í hátæknigarðinn yrði hluti af skemmtilegri fjölskylduferð í Laug- ardalinn. Fram til þessa hafa viðræður Landssímans við Reykjavíkurborg verið óformlegar en ætla má að formlegar viðræður heíjist á næst- unni. Að sögn Ólafs Stephensen hef- ur borgin sýnt áhuga á að eignast hluta lóðar Landssímans í Grafar- vogi, þar sem fjarskiptastöðin í Gufunesi stendur, fyrir íþrótta- aðstöðu. „Við teljum alveg koma til greina að í þessum samningum yi'ði um ein- hver makaskipti að ræða.“ Forsvarsmenn tónleika Bjarkar segja gagnrýni ósanngjarna Ákveðin mistök urðu við miðasölu EINAR Örn Benediktsson, einn forsvai’smanna Smekkleysu hf. og einn helsti skipuleggjandi tónleika Bjarkar í Þjóðleikhúsinu, segir að gagnrýni sú sem fram hefur komið á miðasölu á tónleikana sé ósann- gjörn. Ákveðin mistök hafi hins vegar orðið við framkvæmd miða- sölunnar. Tæknimenn tóku sæti „Það var ranglega sagt að 500 miðar yrðu seldir á hvora tónleika, þegar ljóst var frá upphafi að t.d. búnaður ljósamanna og sjónvarps- manna myndi skerða sætafjöldann verulega, eða um fimmtíu sæti í kvöld [gærkvöldi]. Þá mátti alltaf búast við gestum þeirra sem standa að tónleikunum, t.d. þeirra átta strengjaleikara sem spila með Björk. Ég býst við að um átta hundruð miðar hafi verið til sölu. En það þýðir samt að 80-90% gesta í húsinu greiddu miða sína fullu verði,“ segir Einar Öm. Hann segir jafnframt að viður- kennast verði að ákveðin mistök hafi verið gerð. „Við höfum ekki selt miða í Þjóðleikhúsið áður og erum vanari því að selja í hús á borð við Laugardalshöll, þar sem kannski 4.000 til 6.000 miðar eru í boði. Þar sést með nokkurra daga fyrirvara ef útlit er fyrir að miðar seljist upp, en í Þjóðleikhúsinu sést slíkt með nokkurra mínútna fyrir- vara. Það hús var hins vegar valið með tilliti til sjónvarpsupptöku." Einar Öm kveðst sömuleiðis ekki sjá neitt athugavert við að fáein fyrirtæki fengu þess kost að kaupa miða handa starfsfólki sínu skömmu áður en miðasala til handa almenningi hófst, enda hafi í mörg- um tilvikum verið um sérstaka vel- unnara Smekkleysu að ræða og um lítið hlutfall af heildarmiðafjölda hafi verið að ræða. Þá hafi orðið þau mistök að utn 40 miðar á fyrri tónleikana hafi „horfið“ í tölvukerfi Þjóðleikhúss- ins og ekki komið í ljós fyrr en dag- inn eftir að miðasalan hófst. Til athugunar að takmarka Þá verði að taka með í reikning- inn að vart hafi orðið við svarta- markaðsbrask með miða. „Mér var t.d. bent á rafpóst þar sem boðnir vora átta miðar á síðari tónleika Bjarkar á 150 dollara stykkið. Þá kemur til greina að við takmörkum miðakaupin í framtíðinni þannig að hver einstaklingur fái ekki að kaupa meira en tvo til fjóra miða," segir Einar Örn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.