Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 13
FRÉTTIR
Samanburður KOS á laimum og kaupmætti starfsmanna ríkis og Reykjavíkur
Kaupmáttur dagvinnulauna
jókst um 18,78% á einu ári
Kaupmáttur dagvinnulauna hjá
opinberum starfsmönnum ríkis og borgar
Ársfjórðungsmeðaltal árin 1990-1998
140%-------------------------136,05
Kaupmáttur
KAUPMÁTTUR greiddra dag-
vinnulauna opinberra starfsmanna
ríkisins og Reykjavíkurborgar
jókst um 18,78% frá öðrum árs-
fjórðungi ársins 1997 til og með
annars ársfjórðungs síðasta árs
samkvæmt fréttariti Kjararann-
sóknanefndar opinberra starfs-
manna (KOS). Kaupmáttur heild-
arlauna þessara starfsmanna á
öðrum ársfjórðungi síðasta árs
hafði aukist um 11,34% frá öðrum
ársfjórðungi ársins 1997.
Samkvæmt upplýsingum Kjara-
rannsóknanefndar voru meðaldag-
vinnulaun opinberra starfsmanna
128.739 kr. á öðrum ársfjórðungi í
fyrra og höfðu aukist um 2,63% frá
fyrsta ársfjórðungi. Heildarlaun
opinberra starfsmanna ríkis og
borgar voru að meðaltali 187.634
kr. á öðrum ársfjórðungi síðasta
árs og jukust þau um 3,3% frá
fyrsta ársfjórðungi ársins 1998.
Álls voru stöðugildi opinberra
starfsmanna ríkis og borgar rúm-
lega 17.700 talsins á öðrum árs-
fjórðungi síðasta árs.
Upplýsingar í könnunum KOS
ná til launa allra þeirra sem vinna
hjá ríki og borg og allra launa, sem
skráð eru hjá Starfsmannaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins og
Launaskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar. Sýna tölurnar laun allra þeirra,
sem eru í starfi á hverjum tíma.
Kjararannsóknanefnd bendir á að
þann fyrirvara verði að gera á
samanburði að meðaldagvinnulaun
flestra félaga lækka yfir sumar-
mánuðina vegna þess að sumar-
afleysingafólk kemur inn í lægstu
starfsaldursþrepin. Þá geta meðal-
laun og kaupmáttur þeirra, eink-
um lítilla hópa, geta breyst mikið
við það eitt, að nokkrir starfsmenn
í efsta starfsaldursþrepi fara á eft-
irlaun en nýliðar taka við.
Heildarlaun flugumferðar-
sljóra 433.177 kr. að meðaltali
Séu útreiknuð meðallaun í ein-
stökum mánuðum borin saman eft-
ir félögum, hópum og bandalögum,
kemur í ljós að hæstu heildarlaun
sem greidd voru að meðaltali í júní
á síðasta ári voru greidd starfs-
mönnum í Félagi íslenskra flug-
umferðarstjóra en heildarlaun
þeirra voru að meðaltali 433.177
kr. og meðaldagvinnulaun þeirra
eða föst mánaðarlaun skv. töxtum
voru 239.135 kr. í júní 1998. Heild-
arlaun flugumferðarstjóra í sama
mánuði á árinu 1997 voru 336.348
og dagvinnu- eða föst mánaðarlaun
192.071.
Heildarlaun innan Landssam-
bands lögreglumanna voru að
meðaltali 226.853 kr. í júní í fyrra
samanborið við 191.162 kr. í júní
1997. Dagvinnulaun þeirra í júní
1998 voru 113.858 samanborið við
99.777 íjúníárið 1997.
Heildarlaun starfsmanna í Ljós-
mæðrafélagi Islands voru að með-
altali 180.833 kr. í júní í fyrra sam-
anborið við 159.994 kr. í sama
mánuði 1997. Föst dagvinnulaun
voru 127.183 í júní í fyrra saman-
borið við 116.710 í júní 1997.
Séu laun kennara skoðuð í mán-
uði á meðan skólastarf stendur yf-
ir kemur í ljós að heildarlaun
framhaldsskólakennara í Hinu ís-
lenska kennarafélagi í apríl í fyrra
voru að meðaltali 219.912 saman-
borið við 182.966 í sama mánuði
1997. Dagvinnulaun voru að með-
altali 126.886 kr. í apríl í fyrra en
110.504 í sama mánuði árið 1997.
Heildarlaun heilsugæslulækna
sem heyra undir ákvörðun kjara-
nefndar voru 338.924 í júní sl. en
171.780 í sama mánuði 1997. Föst
dagvinnulaun voru 265.370 í júní í
fyrra að meðaltali samanborið við
117.036 í sama mánuði 1997.
Heildarlaun starfsmanna í
Sjúkraliðafélagi íslands hjá
Reykjavíkurborg voru 142.804 í
júní sl. að meðaltali en þau voru
116.146 i sama mánuði árið 1997.
Dagvinnulaunin voru að meðaltali
99.243 í júní 1998 samanborið við
85.829 í júní árið 1997.
Ríkisskattstj óri
Meira sagt en
talnalegar nið-
urstöður gefa
tilefni til
INDRIÐI H. Þorláksson ríkis-
skattstjóri segist draga í efa hve
marktækar afleiðingar megi
draga af könnun forsætisráðu-
neytis, Verslunarráðs og Vinnu-
veitendasambands Islands á
reglubyrði fyrirtækja vegna laga
og reglna á sviði skattamála.
Indriði sagði í samtali við
Morgunblaðið að sér þætti meira
vera sagt í ályktunum sem fram
koma í skýrslu um könnunina
heldur en talnalegar niðurstöður
könnunarinnar gefa tilefni til.
„Það er sagt að þetta sé al-
þjóðleg könnun og ég er hrædd-
ur um að menn vakni upp við
vondan draum ef það á að bera
þetta saman milli landa, til dæm-
is varðandi það hve skattalög eru
flókin. Ég er hræddur um að
þeir sem dæma íslensk skattalög
vera flókin og óskiijanleg ættu
varla nokkurn stað á skalanum
til að setja það sem er annars
staðar,“ sagði hann.
Fram kom í könnuninni að
rúmlega helmingur þátttakenda
var ósammála þeirri fullyrðingu
að lög og reglur um skattamál
væru auðskiljanlegar, og sagði
Indriði að í þessu sambandi
mætti varpa fram spumingu um
það við hverju menn hefðu búist.
„Skattalög út af fyrir sig eru
einfaldlega ekkert auðskiljanleg,
þannig að það hefði verið mjög
undarlegt að fá niðurstöðu þar
sem meirihlutinn segði að þau
væru auðskiljanleg," sagði Ind-
riði.
Utsalan hefst fimmtudag
kl. 10:00
VERO AAO
Laugavegi 95-97 sími 552 1444 Kringlunni simi 568 6244
Utsalari hefst
fimmtudag
kl. 10:00