Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Heimshornaflakkari hafði viðdvöl á Akureyri
JIM Rogers, sem ásamt unn-
ustu sinni, Paige Parker, lagði
upp í þriggja ára ökuferð um
heiminn frá Þingvöllum 1. jan-
úar síðastliðinn áði á Akureyri
í gær, en þar sýndi hann bæjar-
búum bifreið sína. Bifreiðin
kallast GLK og er hún smíðuð
úr tveimur Mercedes Benz-bíl-
um; SLK og G Wagon, jeppa og
sportbíl sem hvor um sig kost-
ar um 8 milljónir króna hér á
landi.
Jim Rogers er bandarískur
fjárfestir, háskólaprófessor,
dálkahöfundur og ævintýra-
maður. Hann hefur áður ferð-
ast um heiminn og þá á bif-
hjóli. Um þá ferð skrifaði hann
bókina The Investment Biker:
On the Road with Jim Rogers.
I þeirri ferð sagðist hann hafa
komið til um 70 landa en þau
skötuhjú ætla nú að slá það
met og gott betur því þau ráð-
gera að aka um 100 lönd í
þeirri ferð sem nú er nýhafin.
Ferðasagan
á Netinu
„Við ætlum að vera þijú ár á
ferðinni, komum við í öllum
heimsálfum og gerum ráð fyrir
að hafa lagt um 150 þúsund
kílómetra að baki þegar ferð-
Ætlar að aka um
eitt hundrað lönd
Morgunblaðið/Kristján
JIM Rogers við hinn sérútbúna Mercedes Benz-bíl í Oddeyrarskála
á Akureyri f gær, en hann og unnustan, Paige Parker, munu
ferðast á bflnum uni heiminn næstu þijú ár.
inni lýkur í New York á gaml-
ársdag árið 2001,“ sagði Jim
Rogers. Ferðasagan verður
skráð jafnóðum og birt á Net-
inu, slóðin er www.jim-
rogers.com en hann mun
einnig skrifa greinar um ýmis-
legt það sem tengist þeim lönd-
um sem liann ekur um hverju
sinni, mannlíf, menningu,
stjórnmál og efnahagsmál svo
dæmi séu tekin.
A ýmsu hefur gengið í öku-
ferðinni um Island, ferðalang-
arnir lentu í blindbyl og snjó-
komu á leið sinni frá Egilsstöð-
um og þurftu að snúa til baka.
Björgunarsveitarmenn fylgdu
þeim áleiðis frá Egilsstöðum en
ekki vildi betur til en svo að
einum bflanna var ekið út af
veginum í snjóbylnum og þurfti
Rogers að draga hann upp á
veginn að nýju. Þótti honum at-
vikið nokkuð skondið enda
kvaðst hann vera sá í hópnum
sem óvanastur væri að aka um
Qallvegi í snjókomu og hálku.
Rogers og Parker halda frá
Akureyri í dag, fimmtudag,
áleiðis suður til Reykjavíkur en
ökutækið verður svo flutt með
Eimskip til Immingham í
Englandi í næstu viku, 13. jan-
úar.
Fæðingardeild FSA
Fæðingum
fjölgaði
milli ára
FÆÐINGAR á fæðingardeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
á síðasta ári urðu alls 449 og fjölg-
aði um 39 milli ára. Tvíburafæðing-
ar voru átta, sem er svipaður fjöldi
og árið áður, og því fæddust 457
börn á deildinni árið 1998.
Ingibjörg Jónsdóttir yfirljósmóð-
ir sagði vissulega ánægjulegt að fá
þessa fjölgun fæðinga. „Það var
óvenjumikið annríki seinni hluta
desember miðað við fyrri ár en eins
og áður eru flestir fæðingar yfir
sumartímann.“
Fæðingar hafa ekki verið fleiri á
FSA frá árinu 1990 en þá voru fæð-
ingar 461. Ingibjörg sagði að árin á
eftir hafi fæðingum fækkað og farið
aiveg niður í 380 fæðingar á einu
ári. „Þetta er nú aftur á uppleið og
það er aldrei að vita nema við fáum
nýjan topp á þessu ári.“
Ljómandi góð bytjun
Um miðjan dag í gær höfðu fæðst
11 böm á fæðingardeild FSA og
sagði Ingibjörg það ljómandi góða
byijun á nýju ári. Fyrsti Akureyr-
ingur ársins var drengur sem kom í
heiminn um kl. 02.30 á nýársnótt.
Þjónustuhús
með 6 íbúðum
fyrir fatlaða
HAFIST var handa við byggingu
húss þar sem verða þjónustuíbúðir
íyrir fatlaða í gær, en þá tók Krist-
ján Þór Júh'usson, bæjarstjóri á
Akureyri, fyrstu skóflustungu að
húsinu.
Húsið verður við Eiðsvallagötu
34, niður undir Hjalteyrargötu, og
yerður alls 325 fermetrar að stærð.
I þvl verða 6 litlar íbúðir eða um 50
fermetrar hver og verður húsið á
tveimur hæðum. Auk íbúðanna
verður í húsinu sameiginlegt rými,
vaktherbergi og aðstaða fyrir
starfsfólks. Gert er ráð fyrir að
húsið kosti 32,2 milljónir króna og
stendur Framkvæmdasjóður fatl-
aðra straum af kostnaði, en um það
var samið þegar Akureyrarbær sem
reynslusveitarfélag tók við málefn-
um fatlaðra fyrir tveimur árum.
Valgerður Magnúsdóttir félags-
málastjóri sagði að bærinn myndi
eiga og reka húsnæðið en leigja
íbúðirnar út til íbúanna. „Við erum
með þessu að feta inn á nýjar
brautir í þjónustu við fatlaða, en
þetta verður eins konar nútímaút-
gáfa af sambýli. Hver og einn hefur
þó til umráða sína eigin íbúð en
nýtur sambýlisins við aðra íbúa
hússins," sagði Valgerður.
Byggingarfyrirtækið Fjölnir er
verktaki við bygginguna, en tvö til-
boð bárust þegar þeirra var óskað á
liðnu ári. Staðsetning réð mestu um
að tilboð Fjölnis varð fyrir valinu,
en reynt er að dreifa búsetu fatl-
aðra í öll hverfi bæjarins. Haraldur
Arnason hannaði húsið.
Blaðbera
vantar í Giljahverfi, Akureyri.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461-1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
ÞAU Ingólfur Ármannsson, Margrét Alfreðsdóttir, Haraldur Árnason, Baldur Dýrljörð, Stefán Þengils-
son, Þórgnýr Dýrfjörð, Magnús Garðarsson og Valgerður Magnúsdóttir fylgdust með velheppnaðri
skóflustungu bæjarstjóra sem er lengst til hægri á myndinni.
Morgunblaðið/Kristján
KRISTJÁN Þór Jdliusson tók fyrstu skóflustungu að nýju þjónustu-
húsi fyrir fatlaða í gær, en það verður við Eiðsvailagötu.
Þrettándagleði Gilfélagsins
ÁRLEGT gleðigjugg Gilfélagsins
verður í Deiglunni í Grófargili
föstudagskvöldið 8. janúar kl. 22.30.
Fram kemur hljómsveitin „Fjórir
fjörugir og Rósa Kristín", en í henni
eru þeir Jón Rafnsson, Daníel Þpr-
steinsson, Karl Petersen og Ár-
mann Einarsson sem sjá um hljóð-
færaleikinn og Rósa Kristín Bald-
ursdóttir söngkona.
Húsið verður opnað kl. 22 og í
samvinnu við Karólínu Restaurant
verður boðið upp á þrettándamat-
seðil frá kl. 18 um kvöldið.
Beiðnum um
gjaldþrot
fækkar
HÉRAÐSDÓMI Norðurlands
eystra bárust 56 nýjar beiðnir
um að taka bú til gjaldþrota-
skipta á nýliðnu ári, eða 10 færri
en var árið 1997. Þetta eru mun
færri beiðnir um gjaldþrota-
skipti en dæmi eru um á síðustu
árum. Sem dæmi má nefna að
beiðnimar urðu 96 talsins árið
1996 og árin þar á undan voru
þær í kringum 120 talsins.
Af þeim 56 beiðnum sem bár-
ust á liðnu ári voru 30 vegna ein-
staklinga og 26 vegna félaga.
Kveðnir voru upp 26 gjaldþrota-
úrskurðir á síðasta ári, en þeir
urðu alls 33 árið á undan. Helm-
ingur gjaldþrotanna, eða 13,
voru vegna einstaklinga og jafn-
margh- vegna félaga. AIls eru 5
mál óafgi-eidd frá liðnu ári og
færast yfir á hið nýbyrjaða ár,
1999.
Gjaldþrotaúrskurðum hefur
fækkað ár frá ári á þessum ára-
tug, en sem dæmi má nefna að
árið 1994 voru 60 slíkir úrskurð-
ir kveðnir upp.