Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Bæklingur um kjöt og kjötvörur
A að vera
búið að breyta
vöruheitum
„í HAMBORGARA slcal aðeins nota
nautgripakjöt“ og „hamborgar-
hryggur er saltaður og léttreyktur
purulaus svínahryggur“. Þessi og
ýmis önnur ákvæði um flokkun og
samsetningu kjöts er að fínna í nýrri
reglugerð um kjöt og kjötvörur. Þar
er notkun margra vöruheita einnig
skilyrt eins og að saltkjöt geti aðeins
verið saltað dilkakjöt.
Nýlega kom út bæklingur um kjöt
og kjötvörur sem skýrir út þær
breytingar sem reglugerðin felur í
sér. Bæklingurinn er unninn í sam-
starfí Hollustuvemdar ríkisins, Sam-
taka iðnaðarins og Framleiðsluráðs
landbúnaðarins. Umhverfísráðu-
neytið og landbúnaðarráðuneytið
styrktu útgáfu bæklingsins.
Ragnheiður Héðinsdóttir, mat-
vælafræðingur hjá Samtökum iðnað-
arins, segir að markmiðið með nýrri
reglugerð hafí verið að koma á
ákveðnum vinnureglum í kjötiðnaði
og ekki síst að auðvelda neytendum
að átta sig á samsetningu mismun-
andi vara. „Með útgáfu þessa
bæklings er verið að vekja
athygli neytanda á því að
reglurnar hafi tekið
gildi og leiðbeina
þeim um hvernig
þeir geta nýtt
sér upplýsingar
sem koma fram
á umbúðum
kjötvara. Hann
mun líka nýtast sem
leiðbeiningar fyrir starfsfólk í
kjötiðnaði."
Ragnheiður segir að reglugerðin
sem er númer 302/1998 hafí birst á
prenti í júní sl. og tekur hún gildi i
áfóngum. „Ákvæði um nafngiftir og
innihaldslýsingar tóku gildi sex mán-
uðum eftir birtingu eða í byrjun des-
ember sl. og síðast taka gildi ákvæði
um merkingu næringargildis eða 10.
júní næstkomandi.“
-Þýðir þetta að neytendur eigi
núna að geta gengið að því vísu að
skinka sé aðeins úr svínakjöti og á
innihaldslýsingu komi til dæmis
fram innihald vatns?
„Já, skinkunni er skipt eftir gæð-
um í fjóra flokka og í innihaldslýs-
ingu á að koma fram prósentuhlut-
fall vatns í skinkunni. Þá má taka
sem dæmi að ekki á að vera hægt að
kaupa lambahamborgarhrygg því
nafnið má eingöngu nota á svína-
hrygg. Þá á Bayonne-skinka t.d. ein-
göngu að vera fáanleg úr svínslæri
með puru.“
Ragnheiður segir að vinnureglur
um nafngiftir og samsetningu kjöts
og kjötvara hafi lengi verið
áhugamál kjötiðnaðarins og það var
fyrir frumkvæði forsvarsmanna og
fagmanna í kjötiðnaði að hafíst var
handa við undirbúning reglugerðinn-
ar fyrir tíu árum.
Guðrún Elísabet Gunnarsdóttir
matvælafræðing-
ur hjá Holl-
ustuvemd
ríkisins segir
að ekki hafi
verið gerð út-
tekt á því
hvort fram-
leiðendur hafi
þegar merkt
kjöt og kjötvörur
samkvæmt reglugerðinni.
Hún segist þó vita að ekki sé
almennt búið að merkja vörur með
þessum hætti. „Heilbrigðiseftirlit
hefur eftirlit með því að reglu-
gerðinni sé framfylgt og mun gera
viðeigandi ráðstafanir eins og með
aðrar merkingar matvæla. Neytend-
ur geta einnig haft áhrif með því að
hafa samband við Heilbrigðiseftirlit
síns sveitai-félags og koma með
ábendingar ef merkingum er ábóta-
vant.“
Hægt er að nálgast bæklinginn
hjá Hollustuvernd ríkisins.
FARIÐ var í stórmarkað og af handahófi keyptir nokkrir pakkar af áleggi þar sem orðið skinka kom fram.
Guðrún Elisabet Gunnarsdóttir, matvælafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins, fór yfir umbúðamerkingar á
þessum skinkupakkningum. „Kom í ljós að í innihaldslýsingu á raftaskinku sem framleidd er af Kjötumboðinu
hf. er talað um vatnsinnihald 0%. Þar sem vatn er ekki meðal innihaldsefna er rangt að tilgreina það í
innihaldslýsingu. Aðrar umbúðamerkingar voru í lagi nema ekki stóð á umbúðum að um kælivöru væri að ræða.
Á skinku frá Sfld og fiski er ekki talað um vatn í innihaldslýsingu. Ef vatn er eitt af innihaldsefnum þarf það að
koma fram og magn þess í prósentum. Eðlilegra er að kalla gæðaskinku frá Kjarnafæði lúxusskinku ef um er að
ræða hreinan vöðva með engu viðbættu vatni. Viðskeyt.ið gæði getur verið villandi og er ekki í samræmi við
gæðaflokkun í reglugerðinni. Kalkúnaskinka er heiti sem ekki má nota. Slíka vöru verður að kalla eitthvað
annað. í kalkúnaskinku frá Gæðafæði þarf auk þess að koma fram magn af viðbættu vatni. Beikonskinka er
heiti á vöm frá Höfn á Selfossi. Ekki má nota orðið beikonskinka nema um sé að ræða svfnakjöt úr hrygg eða
síðu. Varan verður þá Iíka að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar um skinku (lfl) hvað varðar hlutfall magurs
kjöts og fitu. Vara þessi inniheldur einnig sojaprótein. Ef magn þeirra fer yfir 3% þarf einnig að tilgreina það í
innihaldslýsingu. Auk þess þarf að tilgreina prósentu vatns og flokksheiti aukefna vantar.“
Mælieiningaverð
auðveldar neyt-
endum samanburð
í nokkur ár hefur alltaf fylgt mæli-
einingarverð með helgartilboðum
hér á neytendasíðu. Borist hafa fyr-
irspurnir bæði frá kaupmönnum og
lesendum um hversvegna svo sé.
Mælieiningarverð eru upplýsingar
sem eiga að auðvelda neytendum að
velja vörur með því að bera saman
t.d. kfló- eða lítraverð vöru. Þá eru í
gildi reglur um mælieiningarverð
hér á landi og það eru þær sem
farið er eftir í þessu sambandi.
Að sögn Kristínar Færseth deild-
arstjóra hjá Samkeppnisstofnun
skuldbundu íslendingar sig til að
setja reglur um mælieiningarverð
við gildistöku EES- samningsins og
voru þær gefnar út á vegum Sam-
keppnisstofnunar árið 1994.
Hvað er mæli-
einingarverð?
Kristín segir að mælieiningar-
verð sé verð vöru miðað við ákveðna
þyngdar-, rúmmáls- , lengdar- eða
flatarmálseiningu, s.s. kíló, lítra,
metra og fermetra. Allar vörur sem
seldar eru miðað við þessar mæli-
einingar skulu vera merktar með
mælieiningarverði auk söluverðs.
„Það er löng hefð fyrir því að gef-
ið sé upp kflóverð á kjöti, fiski og
fleiri afurðum og lítraverð á ýmsum
afurðum, s.s. mjólk og safa. Þannig
höfum við með skjótum hætti getað
borið saman verð á þessum vörum
með það fyrir augum að gera sem
hagkvæmust innkaup. Með þessum
reglum um mælieiningarverð eigum
við einnig að geta séð og borið sam-
an kflóverð á til dæmis brauði,
ávöxtum, grænmeti og sjampói."
Kristín segir að lokum að versl-
unareigendum sé skylt að gefa upp
mælieiningarverð ef söluverð vöru
er gefið upp í auglýsingum svo sem
í dagblöðum eða bæklingum sem
dreift er í hús. Hún bætir hinsvegar
við að því miður sé það ekki alltaf
gert.
Sumarlisti
Keys kominn
FARIÐ er að dreifa Kays sumar-
listanum. Þar er að fínna sumartísk-
una fyrir næsta sumar og hægt að
panta dömufatnað frá stærð 8-24 og
herraföt upp í stærð 58.
Skinka er ekki
bara skinka
NEYTENDUR eiga ekki lengur að geta keypt
kalkúnaskinku eða lambaskinku því skinka á
bara að vera saltað og e.t.v. reykt svínakjöt.
Óleyfiiegt er að kalla brauðálegg skinku nema
það innihaldi eingöngu svfnakjöt. Skinku er
sfðan skipt í gæðaflokka eftir hlutfalli magurs
kjöts.
Lúxusskinka er saltað, beinlaust og e.t.v.
reykt svínalæri, sem innihaldur a.m.k. 95%
magurt kjöt.
Skinka er heiti á vöru sem verður að innihalda
a.m.k. 80% magurt kjöt. Slík skinka getur
innihaldið allt að 18% af viðbættu vatni.
Brauðskinka verður að innihalda a.m.k.
65% magurt kjöt. Slík skinka getur
innihaidið allt að 18% af viðbættu vatni.
Brauðskinka með viðbættu vatni
verður að innihalda a.m.k. 50% magurt
kjöt. Þá má reikna með að viðbætt.
vatn geti verið allt að 45%.
Bayonneskinka er hins vegar saltaður og
reyktur beinlaus vöðvi úr svínalæri með puru.
SVONA á að merkja brauðskinku. Þarna
kemur fram innihald vatns í prósentum
og nafnið er brauðskinka þar sem
vatn er innan þeirra marka sem
leyfilegt er undir því nafni.
Nýtt
brauðskíIka
ifmi hðld; Svtnékjöt, vat&(Z8%),
b1nd1«fn1<'£ 451,£ 407} matarsaH.'Söjapr
st«rki efnKt 621).
tiráavárriðnefrii (E 301). uhdartrermuduft,
rot vama r-eín ? í E .250)
iNœrlnaargUdi f IQOs: orfca 134<kkðl ,pröteín 16g
kolvetni 3o,fitð natrlwm 2a,
SEYHIST 1 KÆtl Vlð 0-4*C
Pékkunard. pytiga
Best fyrif fe/kg
Verð kr’
■yað,