Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 25

Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 25 Þrír ráðherrar breska Verkamanna- flokksins segja af sér á tveimur vikum Efasemdir um að átökum sé að fullu lokið MEÐ afsögn Charlies Whelans, talsmanns Gor- dons Browns fjármálaráð- herra, í fyrradag er deilum innan ríldsstjómar Tonys Blair að mati flestra sér- fræðinga lokið í bili. Hafði Whelan verið sakaður um að hafa leikið upplýsingum til fjölmiðla er leiddu til af- sagnar Peters Mandelsons viðskiptaráðherra og Geof- freys Robinsons, aðstoðar- ráðherra í fjármálaráðu- neytinu. Afsögn Whelans var tal- in óumflýjanleg en skiptar skoðanir eru hins vegar um það hvaða áhrif hón mun hafa á togstreituna milli Gordons Browns fjármála- ráðherra og Tonys Blairs forsætisráðherra. Hefur sú kenning verið sett fram í breskum fjölmiðlum að hér hafí einungis lokið einum kafla í sögu sem hófst 1994 þegar Brown og Blair tók- ust á um leiðtogastólinn í Verkamannaflokknum. Frekari muni án efa fylgja í kjölfarið. Brown hefur neitað öll- um beiðnum um að tjá sig opinberlega um afsögn Whelans. Samkvæmt frá- sögn The Daily Telegraph í gær tel- ur hann sig geta dregið úr deilunum í kring um Whelan með þvl að þegja um málið sjálfur. Sagt er að forsæt- isráðuneytið reyni líka að kveða málið niður með því að segja sem minnst. Erfið sambúð Mandeisons og Whelans Whelan er talinn eiga mikinn þátt í því að Gordon Brown nýtur meiri vinsælda á Bretlandi en nokkur breskur fjármálaráðherra undan- farna áratugi. Fréttaskýrendur segja hins vegar að Whelan hafi verið misvandur að meðulum í við- leitni sinni til að auka veg Browns og voru störf hans í þágu fjármála- ráðheirans oft á kostnað annarra ráðherra, ekki síst Mandelsons. Mun Whelan ítrekað hafa lekið upplýsingum í fjölmiðla sem ekki komu Mandelson sérlega vel og var samband mannanna með þeim hætti að Boris Johnson, fréttaskýr- andi The Daily Telegraph, segir að kvöldið sem Mandelson sagði af sér ráðherradómi hafi hann tjáð Tony Blair sína hinstu ósk: „Sendu Whel- an út í hafsauga." Mandelson og Whelan hafi því tekist að „skera hvor annan á háls“, eins og Johnson kemst að orði. Gagnkvæm andúð mannanna er sögð eiga rætur að rekja til þess tíma er Mandelson, er þá var náinn vinur Gordons Browns, tjáði Brown að hann [Mandelson] hygðist styðja Blair í leiðtogaembætti Verka- mannaflokksins en ekki Brown. Það er alkunna að Brown átti erfitt með að fyrirgefa þessi svik en Whelan er hins vegar sagður hafa orðið æfur og æ síðan gert allt sitt til að bregða fæti fyrir Mandelson. I hnotskum em afsagnir Whel- ans, Mandelsons og Robinsons sagðar liður í stærra valdatafli þeirra Browns og Blairs um áhrif og völd innan Verkamannaflokks- ins. The Daily Telegraph segir Blair hafa krafist þess að Whelan viki og það er túlkað sem nokkur ósig- ur fyrir Brown að hann skuli ekki hafa getað stað- ið gegn ósk forsætisráð- herrans. Eftirmaður Robinsons í fjármálaráðuneytinu, Dawn Primarolo, er að vísu sögð Brown handgengin en það telja fréttaskýrendur The Times ekki nægja til að vega upp á móti brott- hvarfi Whelans. Eru ummæli Johns Prescotts varaforsætisráð- hema í síðustu viku sögð til marks um þá valdabaráttu sem nú er háð en Prescott lét hafa eftir sér að hann og Brown myndu í samein- ingu reyna að hefja „hefð- bundin“ gildi Verkamanna- flokksins aftur til vegs og virðingar. Þar sem Peter Mandelson er jafnan talinn einn aðalhönnuða „nýja“ Verkamannaflokksins, auk Tonys Blairs, þykir Ijóst að Blair tapaði bandamanni í baráttunni gegn Brown og Prescott þegar Mandelson hrökklaðist úr ríkisstjórninni. I þessu ljósi hefði staða Browns þess vegna virst afar sterk ef hann hefði getað haldið Whelan. Heimild- armenn á skrifstofu forsætisráð- herrans segja hins vegar að ráðgjaf- ar Blairs hafi fullyrt að ekki kæmi til greina að láta „lítið skítseiði“ eins og Whelan setja forsætisráðherr- ann í klemmu. Stormur í vatnsglasi? Þrátt fyrir að atburðir síðustu tveggja vikna endurspegli tog- streitu milli helstu frammámanna í Verkamannaflokknum, og ekki síð- ur stuðningsmannahópa þeirra sem berjast hatrammri baráttu íyrir vegsemd skjólstæðinga sinna, segir The Times að meðlimir bresku stjórnarinnar hafi andað léttar er þeir fréttu um afsögn Whelans, enda kenna þeir honum um að hafa aukið mjög spennu í samskiptum Blairs og Browns. Ekki er heldur víst hversu mikið er hægt að gera úr ummælum Prescotts um aukna samvinnu þeirra er standa til vinstri við Blair í flokknum. Segir leiðarahöfundur blaðsins að nú þegar undirmennirnir, sem höt- uðust svo innilega, séu á brott gefist Blair og Brown þrátt fyrir allt ein- stætt tækifæri til að leysa persónu- legar deilur sínar án óheppilegra af- skipta utanaðkomandi aðila. Mestu máli skiptir, segir The Times, að óvissu verði ekki leyft að taka völdin, Blair verði að eyða næstu dögum og vikum í að sýna al- menningi og breskum þingheimi að nýleg vandræði Verkamannaflokks- ins, sem að vísu hafa skaðað ímynd hans verulega, muni ekki koma í veg fyrir að Bretlandi verði stýrt af styrk og festu. ERLENT Gordon Brown Peter Mandelson UTSALA - UTSALA hefst í dag Otrúlega lágt verð 60-70% afsláttur Dæmi um verð áður nú Vatteruð úlpa kr. 5.000 kr. 2.000 Plastjakki kr. 4.600 kr. 1.900 Vatterað vesti kr. 2.600 kr. 1.000 Flísjakki kr. 4.700 kr. 1.900 Rúllukraga peysa kr. 3.900 kr. 1.600 Sliuky bolur kr. 2.800 kr. 1.100 Velúrbolur kr. 1.800 kr. 700 Velúrskyrta kr. 3.000 kr. 1.200 Sett, jakki og pils kr. 7.700 kr. 2.300 Sett, bolur og pils kr. 6.600 kr. 2.000 Kjóll kr. 4.500 kr. 1.800 Sítt pils kr. 3.600 kr. 1.500 Litaðar gallabuxur kr. 4.500 kr. 1.800 Dömubuxur kr. 4.600 kr. 1.900 Opid frá kl. 9 til 18 fri Síðumúla 13, sími 568 2870 Sendum í póstkröfu g^ðöCfú Ferðaalmanak Plúsferða til Kanari 04. jan. 22. feb. 11. jan. 01. mars 18. jan. 08. mars 25. jan. 15. mars Ol.feb. 22. mars 08. feb. 29. mars 15.feb. 05. apríl fijrir /ire meine ii.jðíl 43.475 kr. á mann miðaö við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára Umboðsmenn Sauðárkrókur Plúsferða: Skagfiröingabraut 21 Sími: 453 6262 Gríndavflc Akranes Pésinn, Stillholti 18 Rakkarinn, Víkurtraut 27 Sími: 4314222/4312261 Sími: 426 8060 Akureyrí: Setfoss: Ráöhústorg 3 Suðurgarðurhf,Austuivegi22 Sími: 462 5000 Sími: 4821666 Keflavík Vestmannaeyjar Hafnargötu 15 Eyjabúð,Strandvegi60 Sími: 421 1353 Sím'i:4811450 Innifalið er flug, gisting í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallaskattar. I FERÐIR ■ Faxafeni 5 • 108 Reykjavík Sími: 568 2277 • Fax: 568 2274 Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum VIÐ BJOÐUM HE LDSOlUVHIfl 0 NICDRETTE Nikótínlyfjimi 5-9 janúar HOLTS APÓTEK Álfheimum 74 - Glæsibæ S. 553-5212

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.