Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónlistarmenn fagna ákvörðun
um byggingu tónlistarhúss
Hlíf Halldór Kjartan
Sigurjónsddttir Haraldsson Olafsson
Björn Th. Stefán P. Jónas
Amason Eggertsson Ingimundarson
TÓNLISTARMENN eru almennt
ánægðir með að ríkið og Reykjavík-
urborg hafa loks gert með sér sam-
komulag um byggingu tónlistarhúss
í miðborginni, ef marka má samtöl
sem Morgunblaðið átti við nokkra
fulltrúa þeirra í gær. Þó að menn
séu ekki allir jafnhrifnir af því að
vera í nábýli við ráðstefnumiðstöð
og hótel, fagna sumir þeirri áherslu-
breytingu sem þeir teija að felist í
því að nú sé talað um tónlistarhús
og ráðstefnumiðstöð en ekki ráð-
stefnu- og tónlistarhús, eins og það
hefur áður verið orðað.
„Það er alveg ótrúlegur áfangi að
þessi ákvörðun skuli nú vera tekin,“
segir Hlíf Sigurjónsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. „Það var svo gaman
að koma í vinnuna í morgun, það
voru allir svo brosandi og hýrir,
léttir og kátir, fólk trúir varla sínum
eigin eyrum - nú veðjum við bara
um hvað þetta eigi eftir að taka
langan tíma. Helst myndum við
vilja sjá þetta eftir svona tvö ár. Við
tökum undir með borgarstjóra, sem
sagði að þegar menn væru farnir af
stað með framkvæmdir þá yrðu þær
að ganga fljótt.“
Hljómsveitin hafi
alltaf forgang
Hvað varðar fyrirhugað sambýli
Sinfóníuhijómsveitarinnar og ráð-
stefnumiðstöðvar kveðst Hlíf vona
það besta. „Ef það er alveg ljóst að
hijómsveitin hafi alltaf forgang, þá
ætti þetta sambýli að geta gengið,"
segir hún. I sama streng tekur
Halldór Haraldsson, skólastjóri
Tóniistarskólans í Reykjavík. „Það
er klárt mál að ef salur er hannaður
sérstaklega fyrir tónlist þá er hægt
að halda þar ráðstefnu líka. En sé
hann hannaður sem ráðstefnusalur
er ekki víst að það sé hægt að nota
hann sem tónlistarsal. Nú eru menn
alveg yfír sig hissa á því hversu
góður hljómburðurinn er í Salnum í
Kópavogi, en það er auðvitað vegna
þess að þar hafa sérfræðingar unnið
saman, arkitekt og hljóðverkfræð-
ingur, með þennan tilgang í huga,“
segir Halldór, sem álítur ákvörðun
ríkis og borgar um byggingu tón-
listarhúss mikla gleðifregn.
„Ég fagna því að hálfrar aldar
barátta skiii nú loks þessari
ánægjulegu niðurstöðu og ég er
sannfærður um að þetta tónlistar-
hús á eftir að vera mikil lyftistöng
fyrir tónlist og tónlistariðkun í land-
inu,“ segir Kjartan Ólafsson, for-
maður Tónskáidafélags Islands,
sem gleðst sérstaklega yfír því að
Sinfóníuhljómsveit Islands sé nú
loksins búinn viðunandi samastað-
ur. „Sinfóníuhljómsveitin er marg-
búin að sýna það og sanna að hún er
mjög fín og frambærileg hljómsveit
en hún hefur búið við vondar að-
stæður í áratugi," segir hann.
Stórkostlegur áfangi
Bjöm Th. Ámason, formaður Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna, er
sömuleiðis ánægður og segir við-
brögð sinna félagsmanna mjög já-
kvæð. „Þegar við lítum um öxl og
íffjum upp þá baráttu sem tónlistar-
menn hafa lagt að baki, þá er þetta
vægt til orða tekið alveg stórkostleg-
ur áfangi. Og eftir að hafa hlustað á
menntamálaráðheira og borgar-
stjóra lýsa þeim áformum sem uppi
em um það hvemig á að búa að saln-
um og starfsumhverfi tónlistar-
manna, þá er ég alveg sannfærðm-
um að þetta verður íyrsta flokks. Svo
eiga menn auðvitað eftir að setjast
niður og skoða hvernig húsið á að líta
út,“ segir hann og bætir við að hann
telji að tónlistarhús, ráðstefnumið-
stöð og hótel geti örugglega farið vel
saman en vissulega sé það flókið mál
og að mörgu að hyggja í því sam-
bandi. Björn kveðst vilja nota tæki-
færið og þakka, fyrir hönd tónlistai’-
manna, þeim fjöhnörgu einstakling-
um og fyrirtækjum sem hafa lagt
fram fé málefninu til framdráttar.
Hvað varðar þá fjármuni sem þegar
hafa farið í undirbúningsvinnu, telur
hann að þeir hafi ekki farið í súginn.
Fyrir þá hafi farið fram ákveðin for-
hönnun, sem menn hafí lært heilmik-
ið á og eigi eftir að nýtast vel þegar
tóniistarhúsið verður byggt.
Að sögn Stefáns P. Eggertssonar,
formanns Samtaka um tónlistarhús,
nemur stofnkostnaður við undh’bún-
ing að byggingaframkvæmdum rúm-
lega 35 milljónum króna að núvirði,
en sem kunnugt er var fyrir
nokkrum árum efnt til samkeppni
um hönnun tónlistarhúss í Laugar-
dal. Stefán segir ljóst að stór hluti
þeirrar vinnu hafi nýst í núverandi
verkefni. Hann telur samkomulag
ríkis og borgar, sem kynnt var á
þriðjudag, gríðarlega mikinn og
merkan áfanga. „Hlutverk samtak-
anna í þessu máli hefur verið að
haida hugmyndinni lifandi og vinna
að því að stjórnmálamenn taki hana
upp á arma sína. Okkur hefur verið
það ljóst mjög lengi að það gerðist
ekki öðru vísi en að ríld og borg
tækju höndum saman um þetta verk-
efni,“ segir hann. „Við höfum haft
gott samráð við stýrihópinn sem hef-
ur stýrt þessari vinnu núna síðast,
stjóm samtakanna hefur íylgst með
framvindunni og verið mjög sátt við
allt sem lýtur að þætti tónlistarinnar
í húsinu," segir Stefán.
Hvar, hvenær
og hvernig?
Hvað varðar fyi’irhugað sambýli
tónlistar og ráðstefnuhalds segir
hann að vissulega heyrist efasemd-
araddir úr báðum hópum, bæði frá
tónlistarfólki og ráðstefnufólki. „En
við trúum því að þetta eigi alveg eft-
ir að geta gengið upp, það eru svo
mörg fordæmi fyrir því erlendis frá
að það hafí gengið. Það verður bara
að tryggja stöðu allra, ekki síst Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, og ég held
að það sé einfalt mál.“
Jónas Ingimundarson, píanóleik-
ari og einn aðalhvatamaðurinn að
byggingu Tónlistarhúss Kópavogs,
kveðst vilja óska þjóðinni til ham-
ingju. Hann fagnar þvi mjög að ríki
og borg hafi nú tekið höndum sam-
an um þessa ákvörðun, sem sé mjög
stórt skref fram á við. „En það hefði
náttúrulega glatt mig ennþá meira
ef menn hefðu verið búnir að taka
ákvörðun um nákvæmlega hvar,
hvenær og hvernig ætti að byggja
húsið, þannig að það væri hægt að
byrja strax á morgun og klára þetta
í hvelli,“ bætir hann svo við.
Tilbúinn undir tréverk
TOIYLIST
S in á i* i n n
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Aríur, sönglög og dúettar eftir
ýmsa höfunda. Tomislav Muzek
tenór, Davíð Ólafsson bassa-
barýton, Ólafur Vignir Albertsson,
píanó. Smáranum, sal Söngskólans,
þriðjudaginn 5. desember kl. 20:30.
UPPSKRIFT að skemmtilegum
söngtónleikum gæti hljóðað svo: góð-
ar raddir, góður salur, góðir áheyr-
endur. Og svo auðvitað ýmislegt
fleira - svosem góð efnisskrá. En
hversu mikils virði innlifaðir áheyr-
endur eru fyi-ir unga söngvara á
hraðri uppleið mátti glöggt heyra og
sjá á „Nýárstónleikum frá Vínar-
borg“ á þriðjudagskvöldið var í nýj-
um, helzt til litlum en ágætlega
hljómandi sal Söngskólans á Veg-
húsastíg, þegar Davíð Óiafsson
bassabarýton og þýzk-króatískur
tenór að nafni Tomislav Muzek, báðfr
réttum megin við þrítugt, leiddu
saman hesta sína við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar. Það væri engu
ofaukið að segja, að stemmningin
hafí verið á suðumarki nánast frá
byrjun, því tónleikagestir létu
hraustlega í sér heyra, svo að Króat-
inn ungi hlýtur að hafa öfundað fé-
laga sinn af slíkum heimahögum.
Leita verður langleiðina suður iyrir
Mundíufjöll til að finna jafnhlýjar
undirtektir í „blaseruðum" tónleika-
heimi nútímans, og kemur raunar úr
hörðustu átt að þurfa að rekast á fyr-
irbærið hér á köldum klaka norður-
hjarans.
Fátt er vandræðalegra en þegar
slegið er á létta strengi í fjarveru
gæðainnistæðu. En kómískar fettur
þeirra félaga í samsöngvum eins og
„Wien, Wien, nur du allein“ og
„Santa Lucia“ - að ekld sé minnzt á
afvötnunartæka útleggingu Davíðs á
bjórkjallaranum - komu eðlilega, já
nánast elegant, út, vegna þess að
söngurinn stóð meira en undir sér,
og kómíkin passaði við aðstæður -
enda féllu uppátækin auðheyranlega
ekki í verri jarðveg úti í sal en alvar-
legra efnið. Raunar voru dúettamir
svo vei samhæfðir, bæði fyrir augu
og eyru, að hvarflaði að manni að hér
færu efnilegir Magister og Glúnt,
næðu þeir Davíð einhvem tíma góð-
um tökum á sænsku. Hinn ægifagri
dúett úr Perluköfurum Bizets, „Au
fond du temple saint“, sýndi á hinn
bóginn, að ljóðrænn samsöngur
þeirra tvímenninga gat verið ekki
Helga Egils-
dóttir
sýnir í As-
mundarsal
HELGA Egilsdóttir opnar sýningu
í Ásmundarsai iaugardaginn 9. jan-
úar kl. 16. Þetta er áttunda einka-
sýning Helgu í Ásmundarsal.
Á sýningunni, sem nefnist
„Heimar", em sex olíumálverk sem
öll em unnin á þessu ári. Þau em öll
undir sterkum áhrifum frá íslensk-
um vetri.
Helga hefur m.a. sýnt í Gerðar-
safni, Listasafni Kópavogs, og
Listasafni ASI auk fjöida annarra
síðri, e.t.v. burtséð frá smáósamræmi
í styrk undir lokin.
Þess á milli var skiptzt bróðurlega
á sviðsljósinu í einsöngsatriðum.
Tomislav Muzek söng eingöngu
ítölsk lög; tvær Mozart-an'ui’, „Che
gelida manina" úr La Boheme og
nokki’ai’ gamalsælar ítalskai’ eyma-
glennur eftir hlé, „Non ti scordar di
me“, „Musica proibita", „Toma a
Surriento" og „Core ‘ngi-ato“. Hvert
var öðra glæsilegra, og augljóst, að
hér fór hvorki mefra né minna en
stórtalent, jafnvel án þess að miða
við ungan aldur. Hljóðfærið var
hljómfagurt, tilfinningin sönn og
bein, en tæknimeðferðin útsmogin á
við gamla rottu í faginu.
Þegar undirritaður heyrði síðast í
Davíð Ólafssyni var það í hlutverki
Wills nokkurs Parkers, langs
kúi-ekaslána sem hafði verið að sjá
heiminn í Kansas City (í Oklahoma!-
uppfærslu Söngskólans íyrir tæpum
tveim áram). Nú var hann aldeilis
OLIUMÁLVERK eftir Helgu.
170x140 sm.
einka- og samsýninga heima og er-
lendis.
skriðinn úr púpunni; kominn með
boldangs bassabai-ýton sem fyllti
hvem krók og kima. Það er langt síð-
an maður hefur séð aðra eins framfór
á jafnstuttum tíma, og lýðum Ijóst, að
hér fór hinn efnilegasti hljómskáli í
mannsmynd; senn tilbúinn undir tré-
verk - aðeins fínpússningin eftir. Það
var eftirtektarverð breidd í túlkun
Davíðs nú þegar. T.a.m. er veralegur
eðlismunur, svo vægt sé til orða tek-
ið, á Papageno og Sarastro í
Töfraflautu Mozarts, en Davíð söng
aríur beggja af sannfærandi skap-
gerðarmótun. Söngleikjalögin
Edelweiss (Sound of Music) og Youn-
ger Than Springtime (South Pacific)
tókust ekki alveg eins vel, mest sakir
enska textans, auk þess sem síðara
lagið (raunar tenórlag) hefði mátt
vera töluvert viðkvæmara og sumt
nær tali en söng. 01’ man river
(Showboat) var hins vegar engu
minna en frábært hjá Davíð, jafnvel
að enskuframburði meðreiknuðum.
Fúsalögin tvö, „íslenzkt ástarljóð“ og
„Þín hvíta mynd“, nutu góðs af fyrir-
myndarskýrri íslenzkri textamótun
söngvarans, sem á greinilega erindi
við bæði söngpall og leiksvið, um leið
og fínpússningu iýkur.
Ríkarður Ö. Pálsson
----------------
Nýárstónleik-
ar endurteknir
NÝÁRSTÓNLEIKAR frá Vín
verða endurteknir fimmtudaginn
7. janúar kl. 20.30 í sal Söngskól-
ans í Reykjavík, Hverfísgötu 45.
_ Þar koma fram þeir Davíð
Ólafsson, bass/baritón og
Tomislav Muzek tenór og við
flygilinn er Ólafur Vignir Al-
bertsson.
Fluttar eru óperuaríur, ftölsk
sönglög og amerísk söngleikja-
lög. Tónleikarnir verða einnig í
Njarðvíkurkirkju laugardaginn
9. janúar kl. 16.
Reykvíkingar
Munið
borgarstjórnarfundinn
í dag kl. 17.00
sem útvarpað er á
l\/ær
mamMKW