Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 07.01.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 35 AÐSENDAR GREINAR hverfi sínu saman við formlegt nám í eðlisfræði og stærðfræði. Við telj- um raunar að málfræðingar sem rannsakað hafa máltöku bama muni ekki vera sammála því að móður- málið leki inn í gegnum húðina, eða barnið verði talandi ósjálfrátt, held- ur þarf hvert bam að leggja á sig mikið og skipulegt nám og sýna talsverðan sjálfsaga til að ná tökum á þeirri kúnst að tala. En það er önnur saga. Móðurmálskennsla í skólum felst ekki í því að nemendur komi í kennslustundir og æfi sig í að tala móðurmálið, agalaust og ósjálfrátt. Það ætti varla að þurfa að segja Þorsteini, né nokkrum öðram. Og við verðum ekki vör við að ritgerða- smíð, bókmenntasaga, málsaga eða ljóðgreining, svo fáein af viðfangs- efnum móðurmálskennslunnar séu upptalin, síist inn í nemendur á ósjálfráðan hátt. Vilji þeir ná góðum tökum á efninu verða þeir að til- einka sér öguð og markviss vinnu- brögð. Talsverður tími móðurmáls- kennara fer reyndar í að þjálfa vinnubrögð nemenda. Eðlisfræði gegnum húðina Svo vikið sé að eðlisfræði sýnist okkur hægt að öðlast þekkingu á eðlisfræðilegum eiginleikum um- hverfisins á annan hátt en með formlegu eðlisfræðinámi í skóla. Okkur dettur jafnvel í hug að ganga svo langt að halda því fram að eðlis- fræði sé það viðfangsefni sem létt- ast lærist í gegnum húðina. Hvemig skynjum við til dæmis mun hita og kulda nema í gegnum húðina? Eða muninn á mýkt og hörku, eða bleytu og þurrki? Og verður rafstraumur ekki prýðilega skynjaður í gegnum húðina? Að minnsta kosti betur en íslensk bókmenntasaga. Ef það er rétt hjá Þorsteini að nemendur komi sér hjá því að læra raungreinar væri honum nær að líta í eigin barm og velta því íyrir sér hvort ef til vill sé ástæða til að huga að kennsluháttum í raungreinum í stað þess að stimpla flesta nemend- ur landsins sem agalausa húðarlet- ingja. Að öllu gamni slepptu er mergurinn málsins auðvitað sá að allt nám krefst agaðra vinnubragða. Og nú, á tímum síbreytilegrar þekk- ingar, ætti starf allra kennara að vera að talsverðu leyti fólgið í því að kenna nemendum að leggja mat á misgóðar upplýsingar og vinna úr þeim á skipulegan og skynsamlegan hátt. Eigum við að vera montin? Það má auðvitað hafa gaman af togstreitu í hálfkæringi á milli kennslugreina i skólum. Við þykj- umst sum kannast við létt raun- greinamont og látum þá ekkert eiga hjá okkur í þröngum hópi. Allt í góðu! En þegar komið er á opin- beran vettvang era flestir sammála um að láta af öllum slíkum barna- skap. Þótt Þorsteinn segi á einum stað í viðtalinu að hér á landi séum við á ýmsum sviðum „ekki nógu montin af sérstöðu okkar“ er mont vond stefna í fræðilegri umræðu. Og þegar prófessor við Háskóla ís- lands, sem meira að segja hefur verið oddviti kennslumálanefndar skólans og er í upphafi viðtalsins kallaður „vísindasagnfræðingur", ruglar saman fræðigrein og sjálf- lærðu atferli og heldur því fram að einmitt hans vísindi - og helst þau ein - krefjist agaðra vinnubragða viljum við ekki lengur taka þátt í gríninu. Eins og fyrr segir er allt nám vinna sem byggist á sjálfsaga. Það er engum til framdráttar - og allra síst menntun í landinu - að upphefja raungreinanám og þá sem stunda það með því að gera lítið úr öðram greinum og þeim sem við þær fást. Höfundar eru íslenskukonnarar í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þarftu aðstoð við áramótaheitin? ÞESSAR ÞRJAR BUA YFIR MORGUM GOÐUM RAÐUM! Bók sem hefur hjálpað milljónum manna um allan heim við að taka ábyrgð á eigin lífi og breyta ferli þess með jákvæðum hugsunum. Louise L. Hay hefiir að leiðarljósi í starfi sínu og lífsspeki að: ,3f við erum tilbúin að takast á við hinar huglægu hindranir má sigrast á næstum hveiju sem er.“ Höf. Louise L. Hay Einkenni Candida koma oft fram eftir veisluhöld og hátíðir og geta verið: . Síþreyta - máttleysi - úthaldsleysi - þunglyndi - áhuga- leysi - kvíði - ofvirkni - höfuðverkur - magabólgur - kviðverkir - hægðavandamál - þurrkur í húð o.m.fl. í þessari bók er fjallað um lyfjalausar bataleiðir o.m.fl. Höf. Hallgrímur Þ. Magnússon læknir og Guðrún G. Bergmann leiðbeinandi ^L^rírhessum fVEPPASÝKlNG ■ **?»***, M, GuðrúnG.eergmann G dr'dur Hannesdóttir9 í þessari bók er að finna ljúffenga rétti sem allir eiga það sameiginlegt að innihalda hvorki hvítan sykur, ger, mjólkurafurðir né hvítt hveiti. Auðveldir og heilsusamlegir réttir fyrir alla, sérstaklega þá sem þjást af Candida eða fæðuóþoli. ■ Höf. Guðrún G. Bergmann og Guðríður Hannesdóttir. Bélciilívniiinaar aa réðaiöf Guðrún og Guðríður kynna ELDAÐ UNDIR JÖKLI í Heilsuhúsinu á Skólavörðustíg föstudaginn 8/1 írá kl. 14-17. Guðrún og Hallgrímur kynna ELDAÐ UNDIR JÖKLI og CANDIDA SVEPPA- SÝKINGÍ Heilsuhúsinu, Kringlunni, laugardaginn 9/1 frá kl. 13-16 og í Heilsuhúsinu á Smáratorgi sunnudaginn 10/1 frá kl. 14-16. 1 1 Fréttir á Netinu vDmbl.is ALLTAf= eiTTHVAÐ NÝTl UTSALAN er hafin ferra GARÐURINN KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.