Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
+
MORGUNB LAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 39
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STORHUGAINN
í NÝJA ÖLD
AKVORÐUN um að reisa tónlistarhús í Reykjavík er
mikið fagnaðarefni. Eftir þær yfírlýsingar, sem ráð-
herrar menntamála og samgöngumála og borgarstjórinn í
Reykjavík gáfu í fyrradag má ganga út frá því sem vísu,
að nú verði unnið ötullega að því að reisa þetta hús, sem
verður fyrst og fremst aðsetur Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands. Mannvirkið mun einnig rúma ráðstefnumiðstöð en
eins og fram kom í máli Björns Bjarnasonar, mennta-
málaráðherra, á blaðamannafundi um málið mun hvergi
verða gengið á hlut Sinfóníuhljómsveitar Islands og tón-
listarmanna við að reisa sameiginlega byggingu af þess-
um toga. Er það mjög mikilvægt.
Sömuleiðis er afar mikilvægt að náðst hafi þverpólitísk
samstaða um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumið-
stöðvar en eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, benti á felst í því trygging fyrir því að mannvirkið
verði reist óháð því hvaða pólitísku vindar blása á næstu
misserum.
Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um staðsetn-
ingu hússins en það mun annaðhvort verða reist við höfn-
ina og Faxaskála eða við Suðurgötu, austan Hótels Sögu.
Báðir kostirnir hafa sína kosti og galla en ljóst má vera að
mannvirki sem þetta myndi setja nýjan svip á miðborg-
ina, gæða hana nýju lífi.
Augljóst er að með byggingu þessa mannvirkis munu
stoðir hins blómlega tónlistarlífs hér á landi verða styrkt-
ar en jafnframt er ljóst að ráðstefnumiðstöð af því tagi
sem hér er áformuð mun auka mjög möguleika í ferða-
þjónustu. Mannvirkið er ótvírætt merki um að landsmenn
stefna stórhuga inn í nýja öld og með nýjar áherslur í far-
angrinum.
Þessi niðurstaða hlýtur að vera sérstakt ánægjuefni
fyrir Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, en eftir að
hann tók við því embætti bundu tónlistarmenn og unn-
endur tónlistar miklar vonir við að hann mundi koma
þessu máli í örugga höfn á yfirstandandi kjörtímabili.
Hann hefur með þeim ákvörðunum, sem nú hafa verið
teknar staðið undir þeim væntingum með þeim hætti, sem
vænta mátti.
SAMKEPPNIUM
ÍBÚÐALÁN
LANDSBANKI íslands hf„ veðdeild, ætlar að bjóða
einstaklingum upp á almenn íbúðalán í samkeppni við
hinn nýstofnaða Ibúðalánasjóð, sem tók við af Húsnæðis-
stofnun ríkisins um áramótin. Þar með er komin opinber
samkeppni við það íbúðalánakerfi, sem verið hefur í land-
inu í áratugi og ber að fagna slíku framtaki, sem ætti að
geta orðið einstaklingum, sem eru að koma sér upp þaki
yfír höfuðið, til hagsbóta.
Veðdeild Landsbankans hefur um langan aldur séð um
innheimtu og lánaafgreiðslu fyrir ^ Húsnæðisstofnun, en
um leið og ákveðið var að stofna íbúðalánasjóð samdist
ekki milli hins nýja sjóðs og Landsbankans um framhald
viðskipta þessara aðila. Veðdeildin, sem hafði nær ein-
göngu sinnt Húsnæðisstofnun, varð því verkefnalaus eða
verkefnalítil við þessa breytingu. Nú hefur hins vegar
stjórn Landsbankans ákveðið að nýta áfram reynslu veð-
deildarinnar með því að fara í samkeppni við hinn ríkis-
rekna íbúðalánasjóð um íbúðalán til einstaklinga.
Strax við upphaf þessarar samkeppni er bryddað upp á
nýlundu. Landsbankinn ætlar að bjóða viðskiptavinum
veðdeildarinnar lán í hinum nýja gjaldmiðli Myntbanda-
lags Evrópu, evrunni. Það þýðir að þau lán verða ekki
með verðtryggingu tengda vísitölu og væntanlega bjóðast
lántakendum mun lægri vextir en ella. Aftur á móti taka
lántakendur í evrulánum ákveðna gengisáhættu og þá er
spurning, hvort menn hafa orðið það mikla trú á stöðug-
leika íslenzkra efnahagsmála, að þeir taki þann kost. Alla
vega eiga menn fleiri kosta völ en áður.
Aukinn fjölbreytileiki í fasteignalánum og samkeppni
er af hinu góða. Nauðsynlegt er einnig, eins og Halldór
Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að bankakerfinu hérlendis verði gert
kleift að sinna þessari starfsemi á jafnréttisgrundvelli við
ríkisstofnunina Ibúðalánasjóð. „A flestum þróaðri fjár-
málamörkuðum heimsins hafa bankar og sérhæfðar fjár-
málastofnanir yfirtekið starfsemi af þessu tagi og hún er
ekki lengur í höndum ríkisstofnana.“
Venileg breyting á
skipulagi húsnæðismála
Ibúðalánasjóður tók
formlega við hlutverki
Húsnæðisstofnunar rík-
isins um áramót og af
því tilefni boðaði Páll
Pétursson, félagsmála-
ráðherra, til blaða-
mannafundar ásamt
stjórnendum stofnunar-
innar, þar sem farið
var yfír þær breytingar
sem þetta hefur í
för með sér.
íbúðalánasjóður tók við hlutverki Húsnæðisstofnunar um áramót
Hið ág*ætasta
mál að
Landsbankinn
sinni slíkri
þjónustu
PÁLL Pétursson, félagsmálaráð-
herra, segir að sér lítist ágætlega á
það að veðdeild Landsbankans bjóði
upp á almenn íbúðalán í samkeppni
við Ibúðalánasjóð, en frá fyrirætlun-
um þar að lútandi var skýrt í Morg-
unblaðinu í gær.
„Ef stjómendur Landsbankans
meta það svo að þeir geti þjónað
neytendum með jafngóðum eða betri
hætti en Ibúðalánasjóður þá er það
hið besta mál,“ sagði Páll.
Hann sagði að ef Landsbankinn
gæti útvegað lán á lægri vöxtum og
þeir treystu sér til að taka meiri
áhættu og ef það kæmi viðkomandi
til góða og yrði ekki til þess að hann
færi sér að voða fjárhagslega, þá
væri það bara hið ágætasta mál, að
Landsbankinn færi út í slíka þjón-
ustu.
PÁLL Pétiirsson sagði að með
tilkomu íbúðalánasjóðs hefði
orðið veruleg breyting á
skipulagi húsnæðismála. Far-
ið hefði fram heildarendurskoðun í
þeim efnum og mikilvægt væri að
koma á framfæri upplýsingum þar að
lútandi. Breytingar á almenna hús-
bréfakerfinu væru einkum fólgnar í því
að bankarnir fengju aukið hlutverk og
fólk ætti ekki að þurfa að gera annað
en hafa samband við sinn fasteignasala
og bankaútibú þegar húsnæðisvið-
skipti væru annars vegar, sem ætti að
vera þægilegra fyrir neytandann.
Breytingar á félagslega íbúðakerfinu
væru hins vegar töluvert miklar. Við-
komandi fengi húsbréfalán og síðan
viðbótar peningalán og samtíma-
greiddar vaxtabætur, sem væri greið-
ari og betri félagsleg aðstoð heldur en
áður hefði verið.
Guðmundur Bjamason, umhverfis-
ráðherra, sem ráðinn hefur verið for-
stjóri íbúðalánasjóðs, sagði á fundin-
um að hann myndi fylgjast með starf-
seminni eins og hann gæti vegna starfa
sinna á öðrum vettvangi næstu vikum-
ar, en gerði ráð fyrir að hann kæmi til
starfa á stofnuninni um það leyti sem
þingstörfum lyki í vor, en reiknað væri
með þinglokum í kringum 10. mars.
Gunnar S. Björnsson, formaður
Morgunblaðið/Arni Sæberg
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR tók við hlutverki Húsnæðisstofnunar ríkisins um áramót. Taldir frá vinstri Gunnar S.
Björasson, formaður stjórnar Ibúðalánasjóðs, Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, og Guðmundur Bjarnason, um-
hverfisráðherra, sem ráðinn hefur verið forstjóri Ibúðalánasjóðs.
stjórnar íbúðalánasjóðs, sagði að mikil
vinna hefði verið samfara þeirri form-
breytingu sem orðið hefði um áramót,
enda væri verið að stokka íbúðalána-
kerfið upp að verulegu leyti. Meðal
þess sem breyttist væri að þjónustan
væri færð nær viðskiptavinunum.
Þannig myndi greiðslumat og öll um-
fjöllun um lánasamninga og kaup-
samninga lántaka fara fram í bönkun-
um og fyrir tilverknað beinlínutengsla
við íbúðalánasjóð. Lántakinn ætti ekki
að þurfa að leita til annarra en síns við-
skiptabanka.
Varðveita um
140 þúsund lánsskjöl
Gunnar sagði að starfsemin væri
mjög viðamikil. I ár yrðu sennilega
sendir út nærfellt 800 þúsund
greiðsluseðlar til fólks alls staðar á
landinu og það skipti miklu máli fyrir
stofnunina að vera í tengslum við
þetta fólk og að það gæti fengið þessa
þjónustu hvar sem væri í bankakerf-
inu. Þá varðveitti Ibúðalánasjóður um
140 þúsund lánsskjöl.
Gunnar sagði að mikil uppstokkun
hefði átt sér stað samfara því að
íbúðalánasjóður tæki við hlutverki
Húsnæðisstofnunar. Deildum væri
fækkað og sviðið einfaldað. Að meðtal-
inni veðdeild Landsbankans hefði
Húsnæðisstofnun verið með 73 starfs-
menn, en eftir uppstokkun yrðu
starfsmenn 49 talsins að meðtöldum
starfsmönnum í defid íbúðalánasjóðs á
Sauðárkróki þar sem væru sex manns.
Gunnar sagði að ný vefsíða íbúða-
lánsjóðs væri með margvíslegum upp-
lýsingum og ætlunin væri jafnframt að
bæta við þær upplýsingar smátt og
smátt. Hún væri þannig úr garði gerð
að fólk ætti að geta farið beint þar inn,
greiðslumetið sig sjálft og aflað sér
þar þeirra upplýsinga sem það þyrfti
um það hvar það stæði í þeim efnum.
Ibúðakaup væru mikilvæg ákvörðun
og miklu skipti að fólk fengi góða leið-
beiningu í þeim efnum og því skipti
geysilega miklu máli að upplýsinga-
gjöf væri góð.
Gunnar fjallaði einnig um þær
breytingar sem verða á félagslega
íbúðakerfinu og sagði að í hinu nýja
félagslega kerfi hefði fólk nákvæmlega
sama frjálsræði og fólk í hinu almenna
húsnæðiskerfi. Þetta væri kannski
stærsta breytingin sem nú yrði. Að
vísu kynnu þeir sem kæmu inn í kerfið
fyrstu tvö árin að þurfa að lúta ein-
hverjum skilmálum húsnæðisnefnd-
anna um að kaupa innlausnaríbúðir
innan kerfisins, en eftir þau tvö ár
gæti einstaklingur farið út á markað-
inn og keypt sér þar íbúð án þess að
hann væri háður nokkrum öðrum skil-
yrðum en þeim að viðkomandi sveitar-
félag væri tilbúið til þess að leggja
fram þann skerf sem það þyrfti í
ábyrgðarsjóð vegna viðbótarlánanna.
Gunnar sagði að það væri nokkurn
veginn ljóst miðað við fyrstu útboð á
húsnæðisbréfum, sem fjármögnuðu
viðbótarlánin og leiguíbúðalánin, að
hægt yrði að bjóða hagstæð kjör á
þeim. Vaxtakjörin væru innan við 4%
á þeim lánum sem væru til 40 ára og
með hliðsjón af þeim kjörum sem þeim
væru að bjóðast á markaðnum ættu
þeir sjálfsagt að geta verið fyrir neðan
5,1% í vöxtum á viðbótarlánum, en
vextir í almenna húsbréfakerfinu eru
5,1%.
Á blaðamannafundinum í gær opn-
aði félagsmálaráðherra formlega nýja
heimasíðu íbúðalánasjóðs, þar sem
hægt er að afla sér upplýsinga um
stofnunina og starfsemi hennar og
framkvæma bráðabirgðagi-eiðslumat.
Margir bankar og sparisjóðir bjóða lán til húsnæðiskaupa
Bjóða vexti á bilinu 5,9 til 8,95%
BANKAR og sparisjóðir hafa margir
hverjir boðið sérstök langtímalán til
húsnæðiskaupa og ráðast vaxtakjör
þeirra af hlutfalli skulda sem á við-
komandi eign hvíla. Lánin eru yfirleitt
veitt til allt að 25 eða 30 ára, vextir eru
á bilinu 5,9 til 8,95%, fastir og verð-
tryggðir. Lántakendur geta notið
vaxtabóta vegna þeirra uppfylli þeir
að öðru leyti skilyrði um slíkar bætur.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis hefur allt frá stofnun árið
1932 veitt húsbyggjendum lán og gerir
enn að sögn Olafs Haraldssonar að-
stoðarsparisjóðsstjóra. I dag eru boð-
in lán til allt að 30 ára á 5,95 tfi 8,95%
vöxtum. Segir Ólafur mikið um eins til
tveggja milljóna króna lán en einnig
talsvert um mun hærri lán. Flestir
taka lán til 15 til 30 ára. Sé eign skuld-
laus eru boðin lægstu vaxtakjörin en
ef veðhlutfall er orðið 6(4-80% eru lán-
in á dýrustu kjörunum. Ólafur segir að
mestu miðað við veðhlutfall en einnig
verðmæti eignar og aðrar kringum-
stæður viðskiptavina sem oft eiga sér
langa sögu hjá SPRON.
Olafur Haraldsson segir fasteigna-
lán sparisjóðsins áfram í boði, þau taki
til nýbygginga, íbúðakaupa, endurnýj-
unar eða til annarra verkefna svo sem
sumarbústaðakaupa, endurskipulagn-
ingar á fjármálum og fleira. Hann seg-
ir hugmyndir Landsbankans um að
taka upp sérstök fasteignalán ekki
breyta miklu hvað SPRON varði.
Sparisjóðurinn hafi alltaf verið snögg-
ur að laga sig að markaðsaðstæðum og
sérgrein hans hafi verið einstaklingur-
inn og svo verði áfram. Þá segir hann
ekkert því til fyrirstöðu að útvega er-
lend lán, vaxtamunur sé enn nokkur
milli Islands og annarra landa en á
móti komi gengisáhættan.
Búnaðarbanki íslands hf. hefur síð-
ustu tvö til þrjú árin veitt húsnæðislán
til 10-25 ára og eru vaxtakjörin á bil-
inu 6,25 til 8,45%. „Vaxtakjörin ráðast
af veðsetningarhlutfalli viðkomandi
eignar og ef aðeins er um 10% veð-
setningu að ræða getum við boðið
lægstu kjörin, við bjóðum 7,25% vexti
fyrir þá sem eru með 30 til 40% veð-
hlutfall en sé það á bilinu 55-60% tök-
um við hæstu vextina, 8,45%“, segir
Moritz W. Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri einstaklingslána Búnaðarbank-
ans.
Moritz segir lánsupphæðina oft á
bilinu tvær til þrjár milljónir króna en
hún geti verið mun hæm ef verðmæti
eignar og veðhlutfall leyfa og viðkom-
andi viðskiptamaður er talinn geta
staðið undir slíku láni. Hann segir
nokkur þúsund slík lán í gangi nú og
Vaxtabætur af öllum
fasteignalánum
VEXTIR af öllum lánum vegna
húsnæðiskaupa, svo og lántöku-
kostnaður vegna þeirra, skapar
rétt til vaxtabóta í fjögur ár frá
því kaup áttu sér stað, ef um notað
húsnæði er að ræða, en í sjö ár ef
um nýbyggingar er að ræða, sam-
kvæmt lögum um tekju- og eigna-
skatt.
Að þessum tíma liðnum skapa
vextir og lántökukostnaður af öll-
um lánum til lengri tíma en
tveggja ára rétt til vaxtabóta og
skiptir í því sambandi ekki máli
hver lánveitandinn er, t.d. hvort
um er að ræða húsbréfalán, lífeyr-
issjóðslán, eða lán frá banka eða
sparisjóði eða hvort um veðlán er
að ræða eða lán frá lánastofnun
með sjálfskuldarábyrgð, enda séu
lánin sannanlega til öflunar á
íbúðarhúsnæði til eigin nota.
hafi viðskiptamenn tekið þau bæði
vegna fjárfestinga í íbúðarhúsnæði,
vegna skuldbreytinga svo og til breyt-
inga eða viðhalds. I sumum tilvikum
er eins konar greiðslumat gert.
Aðspurður segir Moritz það koma
til greina að veita slík lán í erlendum
gjaldmiðli enda sé tiltölulega gott að
fá lán erlendis. Hann benti á að þótt
vextir væru lægri erlendis fylgdi
gengisáhætta erlendum lánum.
Sigurveig Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Islandsbanka, sagði bankann
lengi hafa veitt lán til fjárfestinga í
íbúðarhúsnæði. Þau væru að nokkru
leyti í samkeppni við Húsnæðisstofn-
un og nú íbúðalánasjóð og væri það
ætlan bankans að þróa áfram þennan
kost fyrir íbúðarkaupendur. Hún
sagði þessi lán bankans bera nokkru
hærri vexti en væra fyrir hendi í hús-
bréfakerfinu enda nyti bankinn ekki
ríkisábyrgðar á þeim. Á móti kæmi
hins vegar ákveðinn sveigjanleiki,
möguleikar á breytilegri tilhögun af-
borgana og slíkt. Umsækjendur um
þessi lán verða að fara í gegnum
greiðslumat.
Lánin eru veitt til 25 ára hið mesta
og eru vextir á bilinu 5,9% til 7,75%.
Miðast það við veðhlutfall eignanna.
Sigui-veig sagði lánin yffrleitt á bilinu
1,5 til 5 milljónir króna og að þúsundir
viðskiptavina bankans hefðu nýtt sér
þessi lán.
4
Ekki ríkisábyrgð
til annarra
„Bankarnir eru fullir af peningum
og þeir þurfa að reyna að koma þeim
út. Þeir verða að meta sín viðskipti
sjálfir," sagði Páll.
Aðspurður hvort til greina kæmi
að veita öðrum aðilum en Ibúðalána-
sjóði ríkisábyrgð á lánveitingum sín-
um sagðist Páll ekki sjá það fyrir
sér. „Þetta er ríkisstofnun og ég sé
það ekki að hlutafélög geti farið að
sækja á það,“ sagði Páll.
Hann sagði hins vegar að ríkisá-
byrgðin heyrði fyrst og fremst undir
fjármálaráðuneytið. Niðurstaðan
hefði orðið sú að hafa ríkisábyrgð á
húsbréfunum og það stæði áfram. Ef
menn ætluðu að taka upp ríkisá-
byrgð á annars konar húsnæðislán-
um þá væri það sérákvörðun.
Aðspurður hvort ekki mætti velta
því fyrir sér, úr því ýmsir aðilar á
fjármagnsmarkaði, eins og lána-
stofnanir og lífeyrissjóðir, væru
farnir að bjóða fólki lán til húsnæðis-
kaupa á hagkvæmum kjörum, hvort
almennt húsnæðislánakeríí með rík-
isábyrgð væri orðið tímaskekkja,
sagðist Páll ekki líta svo á. Hann
sagðist telja að við kæmumst ekkert
hjá því að hafa einhverja stofnun,
eins og Ibúðalánasjóð til þess að
framkvæma húsnæðismálastefnu
stjórnvalda og til þess að halda utan
um hina félagslegu aðstoð. „Því mið-
ur erum við ekki komnir á það stig
ennþá í ríkidæminu að allir hafi
möguleika á því að komast yfir hús-
næði aðstoðarlaust,“ sagði Páll
einnig.
Skipað í stjórn
Ibúðalánasjóðs
SAMKVÆMT lögum um húsnæðis-
mál frá því í fyrra skipar félagsmála-
ráðhen-a stjórn íbúðalánasjóðs til
fjögurra ára í senn.
Félagsmálaráðherra hefur skipað
eftirtalda aðila í stjómina frá 1. jan-
úar 1999 til fjögurra ára. Gunnar S.
Bjömsson, húsasmíðameistara, sem
jafnframt er formaður stjórnarinnar.
Varamann hans: Ingunni Guð-
mundsdóttur, forseta bæjarstjórnar
á Selfossi. Hákon Hákonarson, vél-
virkja, sem jafnframt er varaformað-
ur stjórnarinnar. Varamann hans:
Kristin H. Gunnarsson, alþingis-
mann. Arnbjörgu Sveinsdóttur, al-
þingismann. Varamann hennar:
Kristján Guðmundsson, trésmið, for-
mann verkalýðsráðs Sjálfstæðis-
flokksins. Kfristínu Ástgeirsdóttur,
alþingismann. Varamann hennar:
Kristján Gunnarsson, foi-mann
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur. Árna Gunnarsson, fyrrverandi
aðstoðarmann ráðherra. Varamann
hans: Guðránu Kr. Oladóttur, skrif-
stofustjóra Starfsmannafélagsins
Sóknar.
Aukin samkeppni í millilandasímtölum leiðir til lægra verðs
Verðþróun ó simtöluin P&S og Lmidsímmis til útlanda 1ð89-ð9
34,5% meðaltalslækk-
un á 14 mánuðum
Mikil verðlækkun hefur orðið á símtölum til
útlanda undanfarið. Ný fyrirtæki hafa bæst 1
hóp þeirra sem bjóða slíka þjónustu og útlit
er fyrir harða samkeppni á þessum markaði.
Ragna Sara Jónsdóttir skoðaði verðþróun á
símtölum til útlanda og núverandi og vænt-
anlega keppinauta Landssímans.
Gjaldskrá í jan.’99
HINN 1. janúar 1998 lauk
92 ára einkarétti ríkisins á
rekstri rit- og talsíma hér-
lendis. Samkvæmt tilskip-
un Evrópusambandsins var fullu
samkeppnisfrelsi í fjarskiptaþjón-
ustu komið á. Frá þeim tíma hafa
nokkrir keppinautar Landssímans í
fjarskiptaþjónsutu hafið rekstur. Má
þar nefna Tal hf., Skímu/Netsímann,
dótturfyrirtæki Landssímans, ís-
landssíma og Islandia Intemet.
Þótt einokun ríkisins á fjarskipta-
þjónustu hafi formlega lokið 1. janú-
ar 1998, kom fyrsti keppinauturinn á
sviði millilandasímtala ekki fram
fyrr en undir lok síðasta árs. Frá 1.
desember síðast liðnum urðu þátta-
skil að því leyti að nýtt fyrirtæki sem
veitir þá þjónustu hóf starfsemi.
Skíma/Netsíminn, dótturfyrirtæki
Landssímans, býður símnotendum
að greiða lægra verð fyrir minni
gæði í talsambandi í gegnum net-
síma, þ.e. símtöl sem berast í gegn-
um Netið. Tal hf. hefur jafnframt til-
kynnt að fyrirtækið bjóði millilanda-
símtöl frá og með 15. janúar nk. og
lýst því yfir að gjaldskráin verði 20%
lægri en gjaldskrá Landssímans.
Hjá Islandia Intemet er til athugun-
ar að hefja slíka þjónustu og Islands-
sími hefur lýst því yfir að fyrirtækið
muni bjóða upp á alhliða símaþjón-
ustu, jafnt innanlands- sem milli-
landa- og farsímtöl.
Allt að 77% Iækkun
á síðustu 10 árum
Gjaldskrá millilandasímtala hefur
farið ört lækkandi síðast liðið ár, eða
frá því að fjarskiptarekstur var gef-
inn frjáls. Að meðaltali hefur orðið
34,5% lækkun á gjaldskrá millilanda:
símatala frá því í október 1997. 1
nóvember 1997, skömmu áður en
fullu samkeppnisfrelsi var komið á,
varð t.a.m. 22% lækkun að meðaltali
á öllum millilandasímtölum hjá
Landssímanum og á nýliðnu ári voru
gjöld til ýmissa ríkja sem mikið er
hringt í lækkuð. Símtöl til Norður-
Ameríku lækkuðu 4. september sl.
um 13%, úr 54 í 47 krónur mínútan,
og 1. janúar sl. lækkuðu þau enn, um
15% úr 47 krónum í 40 krónur. Á
fjögurra mánuða tímabili lækkuðu
símtöl til Norður-Ameríku því alls
um 26%.
Þann 21. september sl. lækkaði
gjaldskráin til Bretlands, Norður-
landa og Þýskalands úr 38 krónum í
33 krónur, sem nemur um 13% lækk-
un. Hinn 5. nóvember sl. var einnig
gerð víðtæk lækkun til bæði Vestur-
og Austur-Evrópulanda, Rússlands,
Japans og Ástralíu. Mínútugjald til
ýmissa Vestur-Evrópulanda lækkaði
úr 44 krónum í 38 krónur, eða um
13,6%. Símtöl til Austur-Evrópu-
landa lækkuðu einnig, úr 64 krónum
í 44 krónur, sem samsvarar 14%
lækkun. Símtöl til Rússlands, Japan
og Ástralíu lækkuðu úr 84 la-ónum í
73 krónur, sem er 13,1% lækkun.
Þegar litið er á verðþróun út-
landasímtala síðustu tíu ára kemur í
ljós að símtöl til þeirra landa sem
einna mest er hringt til hafa lækkað
á bilinu 62-77% á árabilinu 1989-
1999. Fyrir tíu árum var mínútu-
gjald til Japan til dæmis rámar 318
krónur, en í dag er það 73 krónur.
Lækkunin nemur 77%. Mikil lækkun
hefur einnig orðið á símtölum til
Bandaríkjanna á síðustu tíu árum,
eða 76,5%, úr 170,3 krónum í 40
krónur. Símtöl til Norðurlandanna
hafa einnig lækkað mikið í verði, um
64,2%, úr 92,1 krónu í 33 _______
krónur. Að sögn Olafs
Stephensen, forstöðu-
manns kynningar- og
upplýsingamála Lands-
símans má rekja þessar
lækkanir til alþjóðlegrar samkeppni
á símamarkaði og betri samninga
Landssímans við erlend símafyrir-
tæki.
20-30% ódýrari simtöl
með netsima
Netsíminn/Skíma býður milli 20
og 30% ódýrari millilandasímtöl en
Landssíminn, miðað við dagtaxta
Landssímans sem er hærri en kvöld-
og næturtaxti, en taxti Netsímans
gildir allan sólarhringinn. 32 krónur
kostar að hringja til Bandaríkjanna,
í stað 40 króna hjá Landssímanum,
sem er 20% ódýrara, 26,4 krónur til
Norðurlandanna, Bretlands og
Þýskalands í stað 33 króna hjá
Landssímanum, einnig 20% ódýrara,
Land
Landsíminn
kr./mín.
Netsíminn/
Skíma
kr./mín.
Danmörk 33,00 26,40
Noregur 33,00 26,40
Svíþjóð 33,00 26,40
Finnland 33,00 26,40
Bretland 33,00 26,40
Þýskaland 33,00 26,40
Bandaríkin 40,00 32,00
Ástralía 73,00 58,20
Japan 73,00 58,20
Hjá Landsímanum er um dagtaxta að ræða. Næturtaxtinn er lægri og gildistíminn er breytilegur. Hjá Netsímanum/Skímu er sami taxti allan sólarhringinn.
Næstum
heilt ár án
samkeppni
og 58,2 krónur til Ástralíu og Japan í
stað 73 króna hjá Landssímanum,
munurinn er 20%.
Netsíminn lækkaði símgjöld til
Bandaríkjanna og Kanada hinn 30.■ *
desember sl., úr 37,6 krónum í 32
krónur. Tveimur dögum síðar gekk í
gildi ný gjaldskrá hjá Landssíman-
um þar sem símtöl til Bandaríkjanna
lækkuðu úr 47 krónum í 40 krónur,
eða um tæp 15%.
Verðlækkanir á millilandasímtöl-
um má einna helst rekja til aukinnar
samkeppni, svo og aukinna
tækninýjunga. Flutningsgeta ljós-
leiðarastrengja hefur stóraukist og
betri nýting fæst á tækjabúnaði en
áður. Hvað varðar Netsím-
ann/Skímu, er fyrirtækinu kleift að
bjóða ódýrari millilandasímtöl með
hefðbundnum símtækjum
þar sem símtalið fer i,
gegnum Netið. Ástæður
fyrir verðlækkunum
_________ Landssímans eru hins
vegar einkum vegna
tækninýjunga og aukinnar sam-
keppni, en fyrirtækið hefur náð hag-
stæðari samningum við erlend síma-
félög, sem fela í sér lækkun á enda-
stöðvai-gjaldi.
„Vaxandi samkeppni hefur knúið
símafyrii’tæki til að leita allra leiða til
að lækka verð á símtölum. Varðandi
innanlandsmarkað hefur ekki komið í
ljós fyrr en á allra síðustu mánuðum
að Landssíminn myndi hljóta sam-
keppni í millilandasímtölum. Þó má
skýra verðlækkanir Landssímans
fyrir þann tíma með þróuninni á al-
þjóðlegum símamarkaði og hefur fyr-
irtækið árum saman tekið þátt í
þeim þróun,“ segir Olafur Stephen-
sen, forstöðumaður kynningar- og
upplýsingamála Landssímans.