Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 42

Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Af góðæri og fölskum söng Hinir breyttu tímar kristallast í nýjum einkareknum Viðskiptaháskóla - íslenskt þjóðfélag er smám saman að taka á sig mynd raunverulegs markaðsbúskapar. tjómmál eru skotgrafa- hemaður. Ólíkar fylk- ingar una glaðar hver í sinni skotgröf, sann- færðar um eigið ágæti og fullar hneykslunar á málflutn- ingi og heimsku andstæðinganna. Þangað til einn daginn að sæti býðst við veisluborðið stóra - rík- isstjórnarborðið. Þá stökkva fylk- ingamar óðfúsar uppúr skotgröf- unum, fagna féndum sínum eins og aldagömlum vinum og éta oní sig með bros á vör fyrri staðhæf- ingar og heitstrengingar. Að vissu leyti era samsteypustjómir því til vitnis um þroska, andstæð- ar fylkingar setja sig hver í spor annarrar, slá af ýtrustu kröfum og leita málamiðlunar. En því _________ miður er ekki VIÐHOnr um varanlegan Eftir Jakob F. Þr0®ka að ræða' Ásgeirsson Undirems og veislunni lýkur fer allt í sama farið - fylkingarn- ar búa um sig í skotgröfunum á ný og brynja sig með gömlu slag- orðunum eins og ekkert hafi í skorist. Þetta era leikreglur stjómmál- anna. Þess vegna geta þeir sem áður studdu kvótakerfíð fast, meðan þeir sátu í stjórn, kinn- roðalaust fundið því allt til for- áttu nú þegar þeir era utan stjórnar. Og þeim, sem áður börðust hart gegn EES-samn- ingnum, meðan þeir vora í stjóm- arandstöðu, finnst sjálfsagt að lofa hann á hvert reipi nú þegar þeir era sjálfir við stjórnvölinn. Vissulega má segja að slíkur tvískinnungur sé í takt við mann- lífið að öðra leyti - og stjómmál hljóta að spegla þann veraleika sem umlykur þau. Oft er hneyksl- ast á valdabaráttu og rógi stjóm- málanna sem flestir vita þó að eru iðulega barnaleikur samanborin við það sem viðgengst í ýmsum öðram félagsskap manna, á vinnu- stöðum og í félagslífi margskonar, ekki síst í kirkjusóknum. En á breytingatímum gerist það stundum að hinn hefðbundni skotgrafahemaður stjórnmálanna sýnist undarlega á skjön við vera- leikann og slagorðin innantóm. Þetta kom glöggt fram nú um áramótin þegar forystumenn stjómmálaflokkanna vora beðnir að lýsa ástandinu í Morgunblað- inu og Degi. Af málflutningi stjómarandstæðinga að dæma er ekki annað að merkja en að hér stefni allt hraðbyri til fjandans - fátæktin vaxi dag frá degi, mis- skiptingin keyri um þverbak og „góðærið" sé hvergi til nema í hausnum á Davíð! En hverjar era staðreyndirn- ar? Hagvöxtur undanfarinna þriggja ára er meiri en dæmi eru um áður og stefnir í meiri sam- felldan vöxt landsframleiðslunnar á fjóram árum en nokkru sinni fyrr. Verðbólga hefur haldist við 2% markið undanfarin ár og at- vinnuleysi er nú aðeins um 2,2%. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist stórum - um 3% 1996, 5,5% 1997 og 10% 1998, eða alls um 18,5% á 3 árum. Formað- ur Verslunarráðs íslands telur að unnt sé að auka kaupmátt um 20% fram til 2003 ef rétt verður staðið að málum. Ef sú spá rætist mun kaupmáttur hér á landi hafa aukist um nær 40% á 6 áram! Is- land er nú eitt fárra ríkja í heim- inum þar sem ríkissjóður er rek- inn með umtalsverðum tekjuaf- gangi. Á þessu ári og næsta mun um 30 milljörðum verða varið til lækkunar á skuldum ríkisins. Þriðja árið í röð lækkar tekju- skattur. Endurskipulagning bankakerfisins mun leiða til lækkunar vaxta og draga þar með úr fjármagnskostnaði fyrirtækja og einstaklinga - í sama mund og kaupmátturinn eykst! Allt er þetta til vitnis um óvanalegt góðæri. Nú þegar er farið að tala um að tíundi áratug- ur þessarar aldar sé jafnvel meira framfaraskeið í íslenskum þjóðarbúskap en Viðreisnartím- inn (1959-1971). Þeir stjórnmála- menn sem stinga höfðinu í sand- inn og þverskallast við að kannast við góðærið vekja ekki traust. Til að nýta góðærið sem best verða menn auðvitað að kannast við það. Og þeir sem telja hina bestu tíma sjálfsagða era ekki líklegir til að kunna að fóta sig þegar hin- ir verstu tímar ganga í garð. Velsældin sem nú ríkir í ís- lenskum þjóðarbúskap á ekki nema að hluta rætur að rekja til hagstæðra ytri skilyrða. í upphafi áratugarins sýndu stjómvöld og aðiljar vinnumarkaðarins mikla staðfestu sem nú er að bera ávöxt og leiddi til þess stöðugleika í verðlagsmálum sem við höfum búið við. Markviss stjórn ríkis- fjármála, lækkun skulda, skatta- lækkanir og ekki síst opnara efnahagslíf hafa síðan skapað at- vinnulífinu margvísleg sóknar- færi. Hverjum hefði komið til hugar við upphaf þessa áratugar sá mikli vöxtur sem orðið hefur í hugbúnaðarframleiðslu og lífefna- rannsóknum? Og hverjum hefði þá dottið í hug að almenningur myndi í aldarlok taka virkan þátt í fjármögnun fyrirtækja á hluta- bréfamarkaði? Það má segja að breytingar undanfarinna ára kristallist í hin- um nýja einkarekna Viðskiptahá- skóla sem settur var á fót á liðnu ári. Islenskt þjóðfélag er smám saman að taka á sig mynd raun- verulegs markaðsbúskapar - með auknu valfrelsi einstaklinga, heil- brigðari rekstrargrundvelli fyrir- tækja og minni ríkisafskiptum. Margt er þó ógert. Stjómvöld þurfa að sýna atvinnulífinu enn meiri skilning og gera það að reglu að vinna með fyrirtækjum og einstaklingum í stað þess að setja boð og bönn, það þarf að draga enn frekar úr skattheimtu, einfalda skattareglur, einkavæða meira, minnka ríkisumsvif og halda opinberri reglustýringu í skefjum, ekki síst í ljósi þess reglugerðafargans sem hellist yfir okkur vegna Evrópusamstarfsins. En hinir breyttu tímar hafa í'arið framhjá samfylkingarmönn- um. Úr skotgröfum vinstri manna heyrist gamalkunnur söngur. Það á að ráðast gegn „peningahyggj- unni“, „græðginni" og stórauka útgjöld til félags- og menntamála. En söngur þessi hefur orðið falskan hljóm í eyram þorra fólks. Það hefur heyrt þetta allt saman áður.og man afleiðingarn- ar - höftin, sjóðasukkið, óðaverð- bólguna, skuldasöfnunina og stór- fellda kaupmáttarrýrnun. Skoð- anakannanir sýna að almenning- ur er að gera sér ljóst að aðeins með stöðugleika, öflugum mark- aðsbúskap og auknum erlendum viðskiptum getum við styrkt í sessi það velferðar- og mennta- keifi sem við búum við. Byggðamál og borgarsvæði Á ÞESSU kjörtíma- bli sem öðrum hafa stjórnmálamenn barm- að sér mikið yfir því sem þeir kalla óæski- lega byggðaþróun hér á landi, það er að fólk af landsbyggðinni kýs í auknum mæli að koma sér upp heimili á höf- uðborgarsvæðinu. Ef betur er að gáð er þessi þróun síður en svo óæskileg. Ein af heilögum kúm hagfræðinnar frá því Adam Smith skrifaði hina frægu bók sína um Auðlegð þjóðanna, seint á átjándu öld, hefur verið að líta á þjóðríki sem þær einingar sem horfa skuli til þegar hagvöxtur og framleiðsla era mæld. Á undan- fórnum áratugum hefur þó verið bent á að þessi aðferð sé gengin sér til húðar, hafi hún nokkurn tímann verið gild. Innan þjóðríkja geta ver- ið mörg mismunandi svæði í efna- hagslegu tilliti og er einna skýrast- an mun sjálfsagt hægt að merkja á Italíu, þar sem Norður-Italía er þróað velmegunarríki meðan Suð- ur-Italíu og Sikiley verður best lýst með samanburði við efnahagslega vanþróuð svæði heimsins. Þessi munur er sýnilegur i flest- um ríkjum þegar litið er til borga og stærri þéttbýlisheilda annars vegar og hins svokallaða dreifbýlis hins vegar. Borgir eru ávallt þau svæði sem drífa efnahag þjóðanna og sveitanna og þannig hefur það verið frá örófi alda. Þó framleiðslu á landbúnaðarafurðum sé oftast nær að finna í sveitum er markað- ina fyrir þann vaming að finna í borgum og fullvinnsla hans er þar í flestum tilvikum einnig. Yfirleitt er landbúnaðurinn blómlegri því nær sem hann er markaði í þéttbýli. Borgir og borgarsvæði eru oftast nær sjálfum sér næg um aðfóng, þjónustu og framleiðslu. Með auknu frelsi í heimsviðskiptum mun samkeppnin og samskiptin í æ rík- ari mæli vera á milli borgarsvæða í stað þjóðríkja. Þá eram við komin að kjarna málsins. Því fjölmennari, fjölbreytt- ari og sterkari Reykjavík því betra fyrir Island. Með því að taka Reykjavík blóð, eins og æ ofan í æ er lagt til athugasemdalaust á Al- þingi, erum við að skjóta okkur í fótinn þegar kemur að samkeppni okkar um framleiðið vinnuafl við önnur borgarsvæði heimsins. Við erum að spilla framtíðarmöguleik- um Islands. Byggðastefna á grandvöll sinn í róm- antík en ekki raunsæi. Rauður þráður í öllum byggðastefnuaðgerð- um er að þær era dæmdar til að mis- takast. Það er ekki eins og Alþingi eða rík- isstjórnir Islands hafí setið auðum höndum síðan landið fékk sjálf- stæði í viðleitni sinni til að sporna við eðlileg- um flutningum fólks á svæði þar sem það sér fram á betra líf. Mulið hefur verið undir þær atvinnugreinar sem menn telja helst henta því fólki sem þeir vilja skilgreina sem lands- byggðarfólk, sjávarútveg og land- búnað. Meira að segja hefur verið Byggðastefna, segir Magnús Arni Magnús- son, á grundvöll sinn í rómantík en ekki raunsæi. reynt að múta fólki með allt upp í fjórfoldum atkvæðisrétti á við íbúa höfuðborgarinnar til að halda sig úti á landi og samkvæmt nýrri til- lögu forsætisráðherra (sem vel að merkja er fyrsti þingmaður Reykjavíkur) á markvisst að vinna að því að auka fjölbreytni atvinnu- tækifæra á landsbyggðinni, vegna þess að atvinnuframboð þar sé fá- breyttara en í borginni. Auðvitað er það þannig og getur aldrei orðið öðravísi, sama hvað menn berja hausnum við steininn. En allt kemur fyrir ekki. Fólk er ekki á því að láta draga sig í þessa dilka. Það heldur áfram að kjósa með fótunum og flytjast á það svæði, þar sem vinnuafl þess nýtist best, því sjálfu og þjóðinni til hags- bóta. Þess skal getið að þegar talað er um borgarsvæði Reykjavíkur, þá nær það, í kjölfar bættra sam- ganga, yfir Suðurnes, Faxaflóa- svæðið og jafnvel til Árborgar- svæðisins að auki. Því miður virðist sem svo að þingmenn Reykjavíkur og Reykja- ness hafi ekki áttað sig til fulln- ustu á þessari staðreynd um mikil- vægi borgarinnar. Þeir virðast í flestum tilfellum líta á sig sem þingmenn landsins alls meðan landsbyggðarþingmenn þekkja hlutverk sitt sem málsvarar síns Magnús Árni Magnússon fólks heima í héraði. Sennilega er það hinn mikli fjöldi þingmanna R- kjördæmanna tveggja sem gerir það að verkum að þeir virðast dofnir gagnvart þessu hlutverki sínu. Eða þá sú staðreynd að þeir eru í minnihluta gagnvart öflugum hagsmunagæslumönnum hinna dreifðari byggða, vegna áður- nefnds atkvæðamisvægis. Þar kann einnig að vera á ferðinni ótti við að þurfa að þola bölbænir fyllt- ar djöfulmóð á borgarafundum úti á landsbyggðinni, eins og Jón Baldvin Hannibalsson þurfti að sitja undir þegar hann sem utan- ríkisráðherra kynnti GATT-sam- komulagið landsmönnum. Merkilegt dæmi um alþingis- mann R-kjördæmis, sem virðist ekki átta sig á vandanum, er af háttvirtum sjöunda þingmanni Reyknesinga, Hjálmari Árnasyni. Þar fer maður sem skrifar undir hvert byggðastefnumálið á fætur öðru, nú síðast það að námsmenn af landsbyggðinni ættu að eiga kost á að fá uppgefnar námslána- skuldir sínar og að ákveðnir hópar menntamanna eigi kost á því sama ef þeir kjósa að setjast að á lands- byggðinni. En hinn ágæti þing- maður Reykjaness virðist ekki átta sig á að kjarni málsins er ekki samkeppni Reykjavíkur við lands- byggðina um menntafólk, heldur samkeppni Islands við umheiminn um menntafólk. Þar er Reykjavík og nágrenni hennar okkar helsti styrkur. Það væri nær að létta greiðslubyrði þeirra sem kæra sig um að flytja aftur heim í saman- burði við þá sem láta erlend borg- arsvæði njóta þeirrar menntunar sem íslenska þjóðin hefur gert þeim kleift að stunda. Auðvitað er það á margan hátt athyglisvert og skemmtilegt að byggð sé sem víðast í landinu, en sú byggð verður að vera á forsendum íbúanna sjálfra en ekki ríkisvalds- ins. Ef okkur finnst á annað borð eftirsóknarvert markmið að til verði íslensk þjóð allt næsta árþús- und er það grundvallaratriði að leyfa kostum þéttbýlis hér á landi að njóta sín til fullnustu og gera ekkert sem skaðar aðdráttarafl þungamiðju íslensks samfélags, borgarsvæðis Reykjavíkur, í sam- anburði við önnur borgarsvæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Við búum við eitthvert versta veður á byggðu bóli, við búum við eitthvert myrkasta skammdegi sem mannskepnan þraukar í gegnum. Við búum við fámenni og fjársvelti í menntun og menningu. Það er skylda okkar sem þjóðar að standa ekki í vegi fyrir því að það besta sem við eigum, borgin okkar Reykjavík og borgarsvæði hennar, geti blómstrað til fullnustu um ókomin ár. Höfundur er 15. þingmaður Reykjavíkur. Hugleiðing um happdrætti ÉG ER meðal þeirra sem eiga erfitt með að standast töfra happdrættanna. Það er svo örvandi í tíð- indalausu sýsli hvers- dagsins að finna hvemig spennan vex stig af stigi þegar líður að drætti. Meðan á biðinni stendur glímir hugurinn við það hvernig verja skal vinningnum, en þar er að mörgu að hyggja. í þessum aðdraganda hefur maður auðvitað eigin drauma í fyrir- rúmi, en það er líka hægt að vera örlátur við ættingja og vini. Og svo rennur stundin upp og skjálfandi rýnir maður í blaðið. Það munar tveimur stöfum eins og oft áð- m*. Vonbrigði? Ég veit ekki. Það gengur áreiðanlega betur næst. Og það sem er svo skrítið, þrátt fyrir væntingarnar, er að það liggur við að manni létti. Af hverju? Jú, sjáðu til, eiginlega spilar maður ekki til að vinna held- ur fyrir málefnið. Máleíhið? Já, tökum til dæmis málefni Vöruhappdrættis SÍBS. Þar hefur ágóð- inn undanfama ára- tugi farið til þess að byggja upp Endurhæfingarmiðstöðina að Reykjalundi, eina glæsilegustu heilbrigðisstofnun landsins. Stofn- Þorsteinn Sigurðsson * A næstu árum verður verkefni happdrættis- ins að fjármagna, segir Þorsteinn Sig- urðsson, æfíngasal og tvær þjálfunarlaug- ar, sem kosta a.m.k. 200 milljónir. un sem allir íslendingar era stoltir af og fjöldi fólks þakklátur fyrir. Það kom greinilega í ljós í söfnunni Sigur lífsins. Á næstu árum verður það verkefni happdrættisins að fjármagna æfingasal og tvær þjálf- unarlaugar sem kosta a.m.k. 200 milljónir. Þessi viðbót gerir kleift að minnka 500 sjúklinga biðlista - og veita fullkomnari endurhæfingu á styttri tíma en tekist hefur. Þjóð- hagslega gott mál og ómetanlegt fyrir þá sem þurfa á endurhæfingu að halda. Það er stóri vinningurinn. Höfundur er sérkennslufræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.