Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 45/
Ár aldraðra
Jenna Jensdóttir
„Til hærra flugs,
til fegra lífs“
Háværar raddir era uppi um það núorðið að aldraðir eigi
sama rétt til að búa á heimilum sínum og aðrir þjóðfé-
lagsþegnar. Inn í þessa umræðu kemst samt sjaldan að
ótalinn fjöldi aldraðra er heilsugóður og tekur þátt í
daglegum störfum sem slík búseta útheimtir.
Hvernig fyndist þeim sem eru á athafnaaldri ef sífellt væri tal-
að um þann hluta þeirra sem hefur á einhvern hátt misst heilsuna
eða er samfélaginu til óþurftar? Ef að er gáð er sá hópur býsna
fjölmennur.
Getum við í raun sest niður og spáð í hve aldraðir, fremur en
aðrir þjóðfélagsþegnar, verði fjölmennir t.d. árið 2005, á þann nei-
kvæða hátt sem nú er er gert?
Örlar ekki á mannréttindabroti þegar einn aldurshópur er
þannig tekinn út úr, þótt vitað sé að stór hluti hans er við sæmi-
lega heilsu og getur auðveld-
lega bjargað sér sjálfur? Auk
þess rennur geysilegt magn
peninga frá þessum virka
hópi, bæði í sköttum og af
arðbærum fyrirtækjum til
framleiðni í þjóðfélaginu.
Hvemig væri að taka þann
hóp aldraðra inn í umræðuna
og gefa þeim tíma í sann-
gjarnri meðferð? Láta síðan verkin tala þar sem þess er þörf.
Aldraðir biðja þess ekki að einhverjir postular komi fram fyrir
þeirra hönd með sífelldu aumingjatali og svínbeygi með því þá
sem veikastir eru fyrir, svo þeir falli í auðmýkt að fótum samfé-
lagsins.
Allir sem einn eiga þeir sama rétt og aðrir þegnar, ekki síst
þegar litið er á langan og í flestum tilfellum giftudrjúgan starfs-
dag.
Sá réttur ber þeim með reisn en ekki kveini.
í þeim anda verður hér beðið um gæfuríkt ár 1999.
Hvernig væri að taka
þann hóp aldraðra inn
í umræðuna og gefa
þeim tíma í sanngjarnri
meðferð? Láta síðan
verkin tala þar sem
þess er þörf.
BRIDS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Reykjavikurmótið
í sveitakeppni 1999
Reykjavíkunnótið í sveitakeppni
1999 fer fram dagana 13.-24. janú-
ar. Spilaðir verða 16 spila leikir
nema að þátttaka verði of mikil til
að leyfa þann fjölda spila. Spilað
verður með forgefnum spilum og
verður árangur hvers pars metin í
fjölsveitaútreikningi.
Keppnisdagar miðað við 22
sveitir (23 umferðir).
13. janúar umf. 1-2
14. janúar umf. 3—4
16. janúar umf. 5-8
17. janúar umf. 9-12
21. janúar umf. 13-14
23. janúar umf. 15-18
24. janúar umf. 19-21
Skráningarfrestur er til kl. 17
þriðjudaginn 12. janúar. 15 efstu
sveitimar úr Reykjavík öðlast rétt
til að spila í undankeppni Islands-
mótsins í sveitakeppni 1999.
Keppnisgjald er 20.000 kr. á
sveit. Skráningarfrestur er til
þriðjudagsins 12. janúar. Tekið er
við skráningu á skrifstofu BSÍ, s.
587 9360. Skráningu verður að
fylgja nöfn 4 spilara í sveitinni.
Bridshátíð
í Borgarnesi
Hin árlega og vinsæla bridshá-
tíð Vesturlands verður nú um
helgina í Hótel Borgarnesi.
Sveitakeppni hefst klukkan 10
laugardaginn 9. janúar og verða
spilaðar 8 umferðir eftir Monrad-
kerfi, 8 spila leikir.
Á sunnudag, 10. janúar, hefst
Mitshell-tvímenningur klukkan 10
og verða spilaðar tvær 26 spila lot-
ur.
Keppnisstjóri verður Jakob
Kristinsson. Heildan'erðlaun í
mótinu era alls 200 þúsund krónur
en þátttökugjald er 1.500 krónur
hvorn dag á mann og er molakaffi
innifalið allan daginn. Hótel Borg-
arnes býður helgartilboð fyrir gist-
ingu og fæði og er tekið við pönt-
unum í síma 437-1119.
Ekki þarf að skrá þátttöku fyrir-
fram en mæta verður tímanlega á
staðinn.
MHSWJIUI
ÍV-RI-R MIUHOM
Kennt í Danshöllinni
Drafnarfelli á þriðjudögum.
Break, Free style,
barnadansar, pör og hjón.
Kennsla hefst 19. janúar.
inmútunflRjrmi
5ÚJ '-JTrJ
^ DönSsmiÐjön
DANSSKðll AUÐflR HARALDS & JÓHANNS ARNAR
SKIPH0LT 25. 105 REYKJAVÍK SÍMI 551 9797 FAX 562 7480