Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 07.01.1999, Qupperneq 54
■^4 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ + Þóra Árnadóttir fæddist á Ytri- Rauðamel, Eyja- hreppi, Hnappa- dalssýslu, 28. febr- úar 1903. Hún lést á Elliheimilinu Grund 21. desember síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 4. janúar. Elsku amma mín hún Þóra er látin. Konan sem var fasti punkturinn í mínu lífi. Bárugatan hennar var mín Báru- gata, húsið sem amma mín og afi byggðu og bjuggu í. Hún Þóra amma var engin venjuleg amma, hún var oft mitt eina haldreipi á erfiðum tímum, hún var mitt lífs- ins tré. Hún er konan sem fylgdi móður minni í sína hinstu ferð til Kaupmannahafnar þar sem reyna átti til þrautar að bjarga lífi henn- ar. Það hefur efalaust ekki verið auðvelt fyrir hana ömmu að snúa aftur úr þeirri ferð. En ég veit að ^a^ðir mín tekur á móti ömmu opn- um örmum og þakkar henni alla hennar aðstoð. Það var eins og erf- iðleikar styrktu hana ömmu mína, með sínu jákvæða lundarfari komst hún í gegnum atburði sem mörgum hefðu verið ofviða. Ósjaldan sagði hún mér frá því þegar henni var vart hugað líf vegna berkla en hún lifði þá af og læknarnir sögðu að hennar góða skap hefði bjargað lífi hennar. Eða þegar hún greindist með krabba- ýijgin áttræð að aldri og við pabbi íluttum til hennar fullviss um að nú þyrfti hún á okkur að halda. En það var öðru nær, hún sat ekki auðum höndum þá frekar en fyrri daginn. í dag er mér efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir allar minningarnar sem ég á, minningar um hluti eða atburði sem mér þóttu kannski ekkert svo ýkja merkilegir þegar ég var lítil stelpa. Æ það eru svo margir hlutir sem við lærum að meta með aldrinum og auknum þroska. Margir litlir hlutir sem við teljum ekki merkilega en þeir eru það einhvern veg- inn. Eg hugsa með hlýju til heim- sóknanna hennar Ingu Jóns til ömmu. Inga Jóns, eins og hún var alltaf kölluð, bjó á Nýlendugötunni og var vinkona hennar ömmu. Nánast hverjum einasta morgni eyddu þær saman í eldhúsinu á Bárugötunni. Á leið sinni til ömmu kom Inga gjarnan við í búðinni hans Birgis á hominu og tók með sér einn og einn pott af mjólk ef ömmu skyldi vanta. Síðan sátu þær í eldhúsinu, drukku kaffi og spjölluðu um daginn og veginn. Eg held að fá okkar hafi gert sér grein fyrir því nána sambandi sem á milli þessara kvenna ríkti. En í dag hugsa ég til þessara heim- sókna með hlýju og þakklæti, þakklæti fyrir að hafa fengið að fylgjast með þeim og þeirra vin- áttu. Hin síðari ár hef ég oft óskað þess að hafa verið eldri og þroskaðri þegar amma var upp á sitt besta en kannski líður mér einmitt þannig í dag af því ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga svona ömmu, ömmu sem lét vel- ferð mína sig varða. Amma náði ekki að lifa þessi jól en ég veit að ÞORA ÁRNADÓTTIR MINNINGAR hún fylgist með okkur sátt við líf sitt og þakklát fyrir að hafa loksins fengið hvíldina, búin að standa sín skil í þessu lífi og gott betur. Það var samt svo notaleg tilfinning að vita af henni undir sama himni og við hin. Á mánudeginum áður en hún dó kyssti ég hana á kinnina og sagði: „Takk fyrir að vera til.“ Hún horfði á mig smástund með brúnu augunum sínum og sagði síðan „sömuleiðis". Eg kveð þig núna elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig - takk fyr- ir að hafa verið til. Þóra Magnea. Látin er í hárri elli síung rausn- ar- og höfðingskona. Síung; kannski er aldurslaus betra orð. „Kenn oss að telja daga vora að vér megum öðlast viturt hjarta" segir í góðri bók (Davíðss. 90.12). Hvað merkja þessi orð? Eru þau áminning um að við megum ekki láta dagana renna tilfinningalaust í gegnum greipar okkar, heldur beri okkur að líta á þá sem dýrmæti, virða þá og gefa þeim verðugt inni- hald? Ef okkur tekst það getur þá stutt líf verið langt og langt líf sínýtt? Er það munurinn á að vera bara til eða lifa sem hin látna vin- kona mín taldi skipta máli. Jónas Hallgrímsson segir í kvæðinu Á nýársdag (1845): En heldur vil ég kenna til og lifa, og þó að nokkurt andsreymi ég bíði en liggja eins og leggur upp í vörðu, sem lestastrákar taka þar og skrifa, og fylla, svo hann finnur ei, af níði. Við mörg hver, nútímafólk, er- um aftur á móti ofurhrædd við sársauka, andlegan og líkamlegan. Þóra Árnadóttir upplifði bæði skúr og skin. Hún var 5. í röð 11 syskina og vegna veikinda móður- innar og erfiðra aðstæðna á heim- ilinu var henni komið í fóstur til bráðabirgða nokkurra vikna gam- alli til góðra vinahjóna. Þarna bundust tryggðabönd og telpan valdi að vera áfram hjá fósturfor- eldrunum. En mér fannst hún á vissan hátt trega foreldrahúsin. Þóra var víðsýn og víðlesin og naut atlætis á menningarheimil- um. Hún upplifði stórkostlegustu breytingar á íslensku þjóðlífi til sjávar og sveita í þúsund ár. Hún þráði skólagöngu en aðstæður leyfðu það ekki, en hún fór til Dan- merkur eftir tvítugt og dvaldi þar í heilt ár og það var henni mikill og góður skóli. Þóra þekkti bæði til þeirra sem lítið höfðu milli handa af veraldleg- um auði og eins hinna sem meira máttu sín. Samúð hennar og hjálp- fýsi við lítilmagna var ríkuleg og hún var með afbrigðum gjafmild. Þegar við kynntumst var ég ný- stúdent og hún tæplega fimmtug fjögurra barna móðir, eitt barn hafði hún misst á 1. ári, hún var sjómannskona, hjá henni bjuggu aldraðir fósturforeldrar og uppeld- isbróðir og vel voru fósturlaunin goldin. Þóra og eiginmaður hennar, sómamaðurinn Eymundur Magn- ússon, sem um árabil var stýri- maður og síðan skipstjóri á skipum Eimskipafélags íslands, byggðu sér hús á Bárugötu 5 í Reykjavík og þvílíkt hús, það var jú reist um þjóðbraut þvera. Látlaus straumur gesta ungra sem gamalla jafnt á hvunndegi sem hátíðum, gesta sem nutu andlegra og veraldlegra veitinga eins og best varð á kosið. Hver voru svo umræðuefnin sem ungu stúlkunni þóttu svona skemmtileg hjá hjónunum á Báru- götunni, jú þau sömu og í félaga- hópnum, bókmenntir, listir og vangaveltur um lífið og tilveruna, nema hvað víðsýni og almenn þekking húsráðenda var meiri en hjá þeim yngri, en aldrei var mað- ur látinn finna til aldursmunar og síns þrönga sjónarhorns. Við Þóra urðum vinkonur og að því er mér fannst jafnöldrur. Fegurð, leiftrandi gáfur, frum- leiki og snilli samræðunnar prýddu hana fram á elliár og ljóðin hurfu henni aldrei, en hún kunni ógrynni ljóða, sem hún hafði á hraðbergi. Mörg síðustu æviárin liðu í skjóli óminnis, en sjarminn og jákvæðnin voru óbrotgjörn. Langt fram eftir aldri var dugnað- ur hennar og vinnulag þannig að hún virtist vart einhöm; áramóta- veislur fyrir stórfjölskylduna, vini og kunningja voru hristar fram úr erminni að því er virtist áreynslu- laust. Sama gilti um hefðbundna árlega matargerð umfangsmikils heimilishalds og daglegan heimilis- rekstur og hvernig sem á stóð var snarlega hellt upp á könnuna og háleitar umræður settar í gang. Hlutskipti sjómannskonunnar hefur oft verið mér íhugunarefni. Hún er framkvæmdastjóri innan- stokks og utanhúss, og verður oft að taka afdrifaríkar ákvarðanir bæði varðandi barnauppeldi og önnur umsvif. Slíkt reynir á sjálfs- traust og styrk og eflir, ef vel tekst til. Sjálfsöryggi og sjálfstæði ein- kenndi Þóru, ein ferðaðist hún til útlanda konin hátt á níræðisaldur. Sjómannskonan fagnar þegar maðurinn kemur í höfn en and- vökunætur og kvíði hljóta oft að verða hennar hlutskipti í normalári, hvað þá á styrjaldar- tímum, en Eymundur sigldi öll stríðsárin í skipalestum á Ameríku og hann var stýrimaður á Goða- fossi sem var skotinn niður, uppi í landsteinum árið 1944. Þá var ekk- ert til sem hét áfallahjálp og hver veit á hvaða vegu afleiðingar þess- arar reynslu hafa komið fram eftir því sem árin færðust yfir. Nokkrum dögum áður en hún sofnaði út af sagði hún við starfs- fólk hjúkrunarheimilisins. „í dag er himininn blár og mig langar að sjá öll börnin mín.“ Þetta var hennar stíll. Var hún kannski skáld, athafnaskáld? Rósa Björk Þorbjarnardóttir. + Guðmundur Er- lendsson var fæddur í Reykjavík hinn 27. september 1921. Hann lést í ®Reykjavík 24. des- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalíns- kirkju í Garðabæ 6. janúar. Móðir Guðmundar, Sveinfríður Jóns- dóttir frá Hamri í Rípurhreppi í Skagafirði, lést 23.7. 1967. Systir Guð- mundar, Guðríður Fjóla Ólafs- dóttir, fæddist 19.1.1941. Guðmundur Erlendsson, hann Gummi múrari, vinur minn - dáinn ^og það á aðfangadaginn. Ég stend í biðröð í banka skömmu fyr- ir nýár og er að fletta blaði þegar ég rekst af hendingu á fregnina. Eg leiði hugann að hverfulleika líð- andi stundar þegar erill og eltinga- leikur við ýmsa hiuti - oft fánýta - truflar persónuleg tengsl og sam- neyti og rýrir þannig ávöxtun þeirra verðmæta sem þyngst vega að leiðarlokum. Kynni okkar Guðmundar hófust fyrir liðlega tveimur áratugum við byggingu járnblendiverksmiðjunn- á Grundartanga. Reyndir og lághentir múrarar, jafnan tveir saman, völdust til að sjá um loka- frágang múrverks í einstökum byggingum og ýmsar smáviðgerð- ir. Guðmundur var þeirra á meðal og vel til þess fallinn vegna reynslu sinnar og vandvirkni. Ég varð bráðlega handlangari við þessa 4imu; hafði litla hrærivél og stund- um dráttarvél til umráða, sá um blöndun og aðdrætti og aðstoðaði á annan hátt eftir föngum. Samstarf allt og fé- lagsskapur var með ágætum svo að aldrei bar skugga á. Um þetta leyti var Guðmundur nær sex- tugu en nokkuð mark- aður af baráttu þess manns sem séð hefur tvenna tíma. Lágvax- inn var hann og dálítið krepptur - kannski af erfiðum kjörum á bemskuskeiði, sem þó eru mér ókunn. Eigi að síður var hann kvikur í hreyfingum og allt svipmót bar vott um lífsfjör og ein- beittan vilja. Sterkustu sérkenni Guðmundar komu þó fyrst í ljós við nánari kynni og verður að segjast að þar mun sjón og heyrn - og síð- an minningin - alltaf verða sögu ríkari. Hann var greindur, fróður um margt og kunni vel að meta haglega orta stöku eða fallegt Ijóð. Þó óx honum enn ásmegin þegar hann fjallaði um ýmis málefni mannlífsins og einstaklinga sem þar komu við sögu. Voru þá afger- andi einkunnir ekki skornar við nögl - á hvom veginn sem var. Oft fylgdu rík blæbrigði í málrómi og svip til frekari áherslu. Eflaust má segja að þama hafi kennt nokkurra öfga, en í þeim fólst um leið sá styrkur sem einkenndi skaphöfn Guðmundar; oft er sá heilastur sem tjáir skoðanir sínar og tilfinn- ingar tæpitungulaust og það átti svo sannarlega við um Guðmund, þar var enga hálfvelgju að fínna. Gagnvart mér komu þessir eðlis- þættir hans fram sem vinsemd, hlýja og trygglyndi sem ég naut alla tíð síðan þótt samstaríinu lyki innan árs. Guðmundur gat séð kímilegar hliðar á sjálfum sér eins og gjarnt er um þá sem hafa af einhverju að taka. Eitt sinn í vikulok bað hann mig að hafa hraðan á við tiltekið verk því að hann væri „kominn í brottfararstellingar". Mér þótti orðalagið myndrænt þar sem Guð- mundur átti í hlut og mundi fleir- um hafa fundist sem hann þekktu. Stundum minnti ég hann á þetta atvik og var honum þá mjög skemmt. „Brottfararstellingamar" voru reyndar ekkert einsdæmi og þeim fylgdu lotulöng símtöl í eina símaklefanum á vinnusvæðinu við litla hrifningu sumra strákanna sem lá á að mæla sér mót við kærusturnar í upphafi helgar - þeir skildu alls ekki „vesenið í kall- inum“. Einhverjir hafa þó kannski vitað betur; a.m.k. grunaði mig að þar væri Guðmundur á tali við geð- þekku, unglegu konuna sína, hana Guðrúnu, sem hann hafði kvænst fáum árum áður. Henni hafði hann kynnst í ferð á hestum yfir Kjöl, en hestamennska var helsta yndi hans í tómstundum. Guðrúnu hitti ég þegar ég heimsótti þau í einbýlis- húsið á Heiðvanginum þar sem glæsileiki og snyrtimennska ríkti innan dyra sem utan. Á lóðinni var gróið hraunið innan seilingar, óraskað eins og það hafði runnið í öndverðu að vilja máttarvaldanna. Ekki fór þó Guðmundur varhluta af áfóllum í lífinu og var hæst reitt til höggs er hann missti Guðrúnu snögglega árið 1983. Hann lét þó ekki bugast, enda átti hann góða að; hóp af systkinum sem sum eru búsett í grennd. Áfram var snyrti- mennska og rausn í garði á Heið- vanginum þótt húsbóndinn væri orðinn einbúi og var margt skrafað þegar við hittumst eða spjölluðum í síma. Var það allt of sjaldan, að mér finnst nú, þegar ekki verður um bætt. Þó hrósa ég happi er ég minnist ferðar með Guðmundi á liðnu sumri undir Hvalfjörðinn þegar við heimsóttum Dóra, vin okkar í Heynesi og vinnufélaga af Tanganum. Þá voru karlar í essinu sínu og engin ellimörk að sjá. Um kvöldið urðum við auðvitað að gera lykkju á leið okkar um Kjalarnesið til að huga að hestum Guðmundar og færa þeim brauð. Guðmundur minn, það hryggir mig að geta ekki fylgt þér síðasta spölinn vegna fjarveru á erlendri grund. Ég kveð þig með heilli þökk fyrir einstaka tryggð og vináttu. „Þar bíða vinir í varpa sem von er á gesti". Völundur Jónsson. Það var á vordögum 1957 að ég undirritaður var að byggja hús að Hringbraut 13 í Hafnarfirði, þá ný- fluttur á miðhæð hússins, en vant- aði múrara til að pússa jarðhæð og 3. hæð. Þá hafði ég samband við vin minn Olaf Pálsson, múrara- meistara í Reykjavík, og bað hann útvega mér 2 duglega múrara í vinnu, sem hann og gerði snarlega en hann var umsvifamikill í bygg- ingageiranum og með marga menn í vinnu. Olafur var stórhuga maður og lét ekki sitja við orðin tóm, kom að bragði með tvo menn á stóra Fordinum sínum og var gustur á þessum stóra manni. Hann kynnti mennina svo; Þetta eru tveir af mínum duglegustu mönnum, en þeir neita að éta á sjoppum, en þá var skylda vinnuveitanda að sjá starfsmönnum fyrir fæði, ef þeir unnu utan heimabyggðar. Annar þessara manna var Guðmundur Erlendsson, sem hér er í dag kvaddur, þannig að kynni okkar hafa spannað rúmlega 40 ár. Ég var svo lánsamur að eiga dugmikla og góða konu; Helgu Guðmunds- dóttur, svo þeir komu báðir í fullt fæði og húsnæði og æ síðan hafa vináttuböndin við Guðmund verið einlæg og sterk. Guðmundur var mikill barnavinur og nutu börn okkar 6 oft ómældrar ánægju við að hlýða á og ræða við hann enda afburða minnugur á menn og mál- efni, ljóðelskui- og kvað rímur ef svo bar undir. Guðmundur var gleðimaður og hafði mikla ánægju af hestum og ferðalögum og ekki spillti ef örlítið væri til á glasi. Við hátíðleg tækifæri gat Guðmundi tekist svo vel upp í ræðumennsku að unun var á að hlýða. Sama sum- ar og Guðmundur varð 50 ára, kom hann heim frá Svíþjóð í frí, en þar hafði hann starfað um nokkurt skeið, ásamt fleii'i Islendingum. Kom hann að máli við mig og kvaðst vilja efna til hópreiðar með ættingjum og vinum yfir hálendið, norður Kjöl og allt til Kambakots á Skaga; heimahaganna. Þetta gæti orðið skemmtileg ferð en það þurfti marga hesta og síðan jeppa og kerrur undir farangur og nesti, gist skyldi í tjöldum á leiðinni. Ég og kona mín ákváðum að slá til en við áttum þá allnokkra hesta. Inn- an tíðar var kominn 11 manna hóp- ur, sem lagði upp í þessa ógleym- anlegu ferð, þar á meðal var æsku- vinkona konu minnar; ólofuð blómarós úr Hafnarfirði, Guðrún Sigurgeirsdóttir, sem síðar varð eiginkona Guðmundar. Svona er ástin og útiveran á okkar und- urfagra landi. Þessi ferð, sem og margar aðrar hestaferðir á lands- mót víða um land, að vaka bjartar sumarnætur þegar sólin gengur ekki til viðar, geymast sem dýr- mætar perlur í safni minninganna. Þá er hægt að segja eins og skáldið Einar Benediktsson: „Vér skynjum vom þrótt, vér þekkjum í nótt, vom þegnrétt í ljóssins ríki.“ Þegar stundaglas lífsins er nær útrunnið er gott að fá að ganga á fund Skapara síns án langvarandi þjáninga, gjöf er lífið en dauðinn náð, þegar heilsan er farin. Ég votta aðstandendum Guðmundar mína dýpstu samúð, Guð blessi minningu hans. Gunnlaugur Jón Ingason. GUÐMUNDUR ERLENDSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.