Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
+ Guðríður
Pálmadóttir
fæddist á Akureyri
12. júní 1925. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss
Reykjavíkur af
völdum umferðar-
slyss 29. desember
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fossvogskirkju
6. janúar.
Elsku amma mín,
það er komið að
kveðjustund, sá tími er
kominn sem ég alveg frá barnæsku
óttaðist hve mest. Amma mín, sem
ég ávallt dáði og elskaði, hefur lagt
upp í sína hinstu för alltof snemma.
Það er svo margt sem kemur upp í
hugann þegar ég hugsa til baka um
allar þær yndislpgu stundir sem við
áttum saman. Á Sogaveginum hjá
þér og Garðari afa tók ég mín fyrstu
skref, sagði mín fyrstu orð, lærði að
fara með „Faðir vorið“, sem þér
þótti svo fallegt. Við vorum vanar
að fara með uppáhaldsbænina þína
saman áður en ég fór í bólið. Þú
varst sú eina sem ávallt sagðir bólið.
Elsku amma mín, þú varst svo
yndisleg kona, svo falleg. Á þessu
augnabliki sé ég fyrir mér myndina
af þér og afa, þið voruð bæði ung og
Sóh-ún, elsta dóttir þín, situr á milli
ykkar. Ég var krakki og spurði þig:
„Amma, hvaða leikarar eru þetta?
Þetta er svo falleg kona.“ Já, amma
mín, þú varst bæði falleg og hjarta-
hlý kona. Það er siður íslendinga að
spyrja hverra manna maður sé,
hvort sem er í útlöndum eða heima
á íslandi. Mér er það minnisstætt
að eldri kona sem ég hitti í Lúxem-
borg spurði mig þess-
arar spumingar. Þegar
hún heyrði að ég væri
barnabarn Guðríðar
Pálmadóttur og Garð-
ars Hólms áttaði hún
sig fljótlega á hvaða
fólk þetta væri. Hún
sagði mér að fólk hefði
snúið sér við á götu til
að horfa á eftir þessu
myndarlega pari.
Hjá henni ömmu
minni var ég tíður
gestur. Það var alltaf
svo gott að koma til
hennar. Helst vildi hún
baka tíu sortir, henni fannst við
aldrei borða nóg. Já, hún amma mín
var húsmóðir af lífi og sál. Alla sína
ævi var hún að hugsa um aðra, gera
öðmm greiða og hjálpa.
Ég þakka þér, elsku amma mín,
fyrir þær yndislegu stundir sem við
höfum átt saman. Okkar síðasta
samverastund var í sumar, þegar ég
kom heim til íslands og kynnti fyi-ir
þér unnusta minn. Ég veit, elsku
amma mín, að afi hefur nú tekið á
móti þér. Ég sakna þín meira en
mín fátæklegu orð fá lýst.
Elsku mamma, Gerður, Gréta,
Sólrún og Erlingur, megi Drottinn
Guð vaka yfir ykkur og veita ykkur
styrk í þessari miklu sorg.
Elsku amma, ég kveð þig með
bæninni sem þú kenndir mér:
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki.
Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni,
gef oss í dag vort daglegt brauó
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum.
MINNINGAR
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu,
því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
aðeilífti
amen.
Þín
Sólrún Lísa.
Elsku amma mín, nú hefur þú
kvatt okkur í síðasta sinn og viljum
við minnast þín hér.
Á þessum árstíma þegar hátíð
ljóss og friðar er og fjölskyldan er
saman komin var sorg í hjarta okk-
ar vegna þess að ekki gastu verið
hjá okkur, en þú varst með okkur á
vissan hátt vegna þess að hlýja þín
og kærleikur er með okkur og það
er svo mikilsvert að eiga. Þú varst
sérstök að eiga að, vegna þess að
sjaldgæft er að finna eins hjarta-
hlýja og góða manneskju og þú
varst. Ég hugsa að fáir njóti lífsins
eins og þú gerðir vegna þess að það
er sjaldgæft að fólk kunni að gefa af
sér eins og þú gerðir svo innilega og
blítt að það geislaði af þér. En nú
ertu lögð af stað í ferðina miklu og
munu englarnir umvefja þig á himn-
inum. Við kveðjum þig, amma mín,
með ljóði Davíðs Stefánssonar:
Lengi heilluðu hugann
heiðríkir dagar, alstirnd kvöld,
líf þeirra, ljóð og sögur,
sem lifðu á horfmni öld.
Kynslóðir koma og fara,
köllun þeirra er mikil og glæst.
Bak við móðuna miklu
rís mannlegui’ andi hæst
Vor jörð hefúr átt og alið
ættir, sem khfu fell og tind.
Því vísa þær öðrum veginn,
að vizkunnar dýpstu lind.
Enn getur nútíð notið
náðar og fræðslu hjá liðinni öld.
Drauminn um vorið vekja
vetrarins stjömu kvöld.
Lilja Björk, Gunnar og synir.
GUÐRÍÐUR
PÁLMADÓTTIR
JODIS
BENEDIKTSDÓTTIR
+ Jódís Benedikts-
dóttir fæddist í
Stóraholti í Holts-
hreppi í Skagafírði
26. desember 1911.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Sauðárkróks
22. desember síðast-
iiðinn og fór útför
hennar fram frá
Sauðárkrókskirkju
2. janúar.
Látin er Jódís Bene-
diktsdóttir á Veðra-
móti, en hún hefði orð-
ið 87 ára hinn 26. desember. Ættir
hennar og æviágrip verða ekki rak-
in hér, aðeins örfá kveðjuorð og
þakkir fyrir störf hennar í þágu
Kvenfélags Skarðshrepps, en hún
var félagi frá stofnun þess, allt til
dauðadags, og kjörin heiðursfélagi á
síðastliðnu sumri.
Jódís var mjög virk í störfum fé-
lagsins, formaður þess á áranum
1990 til 1996 og síðast í ferðanefnd
sumarið 1997 og skipulagði þá
ásamt öðrum skemmtiferð í Dala-
sýslu og var hún einnig fararstjóri í
þeirri ferð, enda frábær ferðafélagi
og naut þess að ferðast og skoða
landið.
Árið 1995 greindist Jódís með
krabbamein, en þrátt fyrir þau veik-
indi var hún virkur félagi og alltaf
boðin og búin að vinna og leggja öll-
um málum lið.
Jódís vann með okkur að kaffi-
sölu við Skarðarétt öll haust nema
nú hið síðasta, enda þá orðin fár-
sjúk, og síðasti fundur sem hún sat
með okkur var í september síðast-
liðnum í Réttaskúrnum okkar, er
við skipulögðum reéttakaffið. Á
jólatrésskemmtunum og öðrum
samkomum þar sem laga þurfti
súkkulaði annaðist Jódís þann þátt
því að enginn gerði það betur en
hún.
Einn af draumum Jódísar var að
við kvenfélagskonur
færum í vorferð til
Parísar, en þvi miður
var sú ferð aldrei farin,
og fór um það eins og
sumt annað, sem um er
rætt, en hefur ekki enn
komist í framkvæmd.
En vonandi eigum
við eftir að fara París-
arferðina hennar Jó-
dísar, og þá sannfærð-
ar um að þar verður
hún með í för.
Jódís var alltaf frjó í
hugmyndum og var
margt bæði fróðlegt og
skemmtilegt sem hún fékk okkur til
að gera, svo sem að halda „körfu-
ball“, fara í reiðtúra að sumrinu,
berjaferðir, halda málfundi og
margt fieira.
Jódís var glæsileg kona og bar
sig vel. Hún var bráðvel greind,
hafði gott minni og var vel hagmælt,
svo sem best sést á broti úr kveðju
sem hún flutti á fundi Sambands
skagfirskra kvenna:
Eg óska ykkur farsællar ferðar í ár,
til Frakklandsins stóra og hlýja.
Það kraftaverk telst, þó að kjarkur sé smár,
að kanna svo veröldu nýja.
Jódís var snillingur að vinna í
höndunum, og allt handbragð henn-
ar fallegt. Hún var áhugamanneskja
um íslenska tungu og talaði fallegt
mál. Þá var hún góður upplesari og
sagði ágætlega frá. Aldrei hallmælti
Jódís neinum, eða talaði styggðar-
yrði til nokkurs manns, var ætíð
fyrst til að miðla málum svo sem
unnt var og sjá það sem jákvætt
var. Hún bar ávallt með sér gleði og
var ákaflega gefandi manneskja.
Glettni fylgdi Jódísi alltaf, hún
var hláturmild og hafði ríka kímni-
gáfu, svo að um leið og hún birtist
var eins og létti og lifnaði yfir öllu.
Hún var félagslynd og naut sín vel í
góðum félagsskap.
Litla kvenfélagið okkar hefur
misst mikið og við eigum eftir að
sakna hennar, en góðar minningar
munu ylja okkur.
Þú barst með þér sól og svalandi blæ,
það sáu víst flestir sem komu á þinn bæ.
Þó harmandi væru og hryggir í lund
þá hressti og nærði þín samverustund.
Með ástkærri þökk fyrir umliðna tíð,
örugga vináttu og orðin þín blíð.
Við kveðjum þig vinur sem fórst okkur frá,
og framar á jarðríki megum ei sjá.
(Agúst Jónsson)
Eftirlifandi eiginmanni Jódísar,
Guðmundi Einarssyni, og börnum
þeirra, Höllu og Einari, og fjöl-
skyldum þeirra sendum við samúð-
arkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Félagssystur í Kvenfélagi
Skarðshrepps.
t
Bróðir okkar,
FINNUR JÓNSSON,
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar fimmtudaginn 31. desember.
Útför hans verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 9. janúar
kl.14.00.
Alfreð Jónsson,
Ægir Jónsson.
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 55
■ ' ' ' ........... ' ...—.*
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA GÍSLADÓTTIR,
Droplaugastöðum,
áður til heimilis
á Vífilsgötu 18,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
5. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Helga Karlsdóttir, Jón Ásmundsson,
Björn Karlsson,
Anna B. Jónsdóttir, Guðmundur Valur Oddsson,
Ásmundur Jónsson,
Anna Hera Björnsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN KORTSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 50,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum á nýársdag.
Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 8. janúar kl. 15.00.
Matthías Matthiasson, Líney Sigurjónsdóttir,
Margrét Matthíasdóttir,
Hulda Matthíasdóttir, Jón Pétursson
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
BJÖRN BJÖRNSSON,
Bjarkarlundi,
Hofsósi,
er andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Sauðár-
króki, að kvöldi jóladags, 25. desember,
verður jarðsunginn frá Hofsóskirkju, laugar-
daginn 9. janúar kl. 14.00.
Steinunn Ágústsdóttir,
Valdimar Björnsson, Elísabet Guðmundsdóttir,
Sólberg Björnsson, Arnfríður Árnadóttir,
Björn Björnsson, Margrét Magnúsdóttir,
Guðbjörg Björnsdóttir, Bjarni Pálmarsson,
Sigurður Björnsson, Svala Gísladóttir,
Björk Björnsdóttir, Sigfús Stefánsson,
Kristín Björnsdóttir, Eiríkur Hansen
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR G. GUÐMUNDSSON
netagerðarmaður,
fyrrverandi formaður Nótar,
Jökulgrunni 6,
áður Holtsbúð 49, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag,
fimmtudaginn 7. janúar, kl. 15.00.
Svanberg Haraldsson, Aðalheiður Sigurðardóttir,
Sigurjóna Haraldsdóttir, Örn Zebitz,
Ágústa Haraldsdóttir Cary, Robert H. Cary,
Eiður H. Haraldsson, Björk Vermundsdóttir,
Ester Haraldsdóttir, Siggeir Ólafsson,
Jón Ingvar Haraldsson, Sólveig Jóna Jónasdóttir,
Hólmfríður Haraldsdóttir, Helgi Lárusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SIGRÍÐUR KRISTJANA JÓNSDÓTTIR,
Brautarholti,
Kjalarnesi,
sem andaðist á heimili sínu aðfaranótt mið-
vikudagsins 30. desember, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju laugardaginn 9. janúar
kl. 13.00.
Páll Ólafsson,
Guðrún Páisdóttir, Stefán H. Hilmarsson,
Ásta Pálsdóttir, Gunnar Páll Pálsson,
Þórdís Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir,
Bjarni Pálsson, Ólöf Hildur Pálsdóttir
og barnabörn.
V