Morgunblaðið - 07.01.1999, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Námið er 280 kennslustunda skipulagt starfsnám og er
sérhannað með þarfir atvinnulífsins í huga. Nemendur
útskrifast sem tölvu- og rekstrartæknar að námi loknu.
Markmið námsins er að útskrifa nemendur með hagnýta
þekkingu á tölvunotkun, bókhaldi, tölvubókhaldi og rekstri.
Námið hentar þeim sem vilja :
Q Styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum
O Annast bókhald fyrirtækja
0 Öðlast hagnýta tölvuþekkingu
0 Auka sérþekkingu sína
0 Starfa sjálfstætt
Umsagnir nemenda um námið:
„ Var byrjandi á tölvur, vinn nú í tölvuumhverfi“
„Frábært nám og frábær kennsla“
„ Tölvu- og rekstrarnámið gerði mér kleift að skipta um starf“
„Ég sýndi lokaverkefnið mitt í viðtalinu og fékk vinnuna“
„Sé um bókhald í fyrirtækinu, gat það ekki áður“
Boðið er upp á morgun- og kvöldtíma.
Sveigjanleg greiðslukjör.
RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Skeifan 11 b • Sími 568 5010
Friðarhlaupið
er hafið
SRI Chinmoy heims-
einingar-friðarhlaup-
ið hófst í áttunda
sinn, nú á miðnætti á
gamlárskvöld í Ama-
dora í Portúgal þeg-
ar hlauparar frá Sri
Chinmoy-maraþonlið
inu báru á milli sín
tákn hlaupsins, log-
andi friðarkyndil, í
11 km iniðnætur-
keppnishlaupi. Síðar
á nýársdag hófst
formlega Evrópu-
hluti friðarhlaupsins
með opnunarathöfn í
Lissabon.
Sri Chinmoy-mara-
þonliðið mun daglegí
sjá um að senda
myndir og ferðasög-
ur hlauparanna á
Netið og gera þannig
heiminum öllum
kleift að fylgjast með
þessu stærsta og
lengsta boðhlaupi sögunnar.
Heimasíða Evrópufriðarhlaupsins
er www.europepeacerun.com
íslendingar taka ekki þátt í
Evrópufriðarhlaupinu að þessu
sinni en þess í stað mun Sri Chin-
moy-maraþonliðið á Islandi
skipuleggja friðarhlaup sem
verður hlaupið hringinn í kring-
um landið meðfram þjóðvegi 1 og
á nokkrum öðrum þéttbýliskjörn-
SRI Cinmoy, stofnandi friðarhlaupsins.
um í júní-júlí og tengja ísland
þannig heimsfriðarhlaupinu. Sri
Chinmoy-maraþonliðið á Islandi
sem árlega stendur fyrir Islands-
hluta friðarhlaupsins, friðar-
hlaupi í grunnskólum auk ýmissa
smærri almenningshlaupa mun
ennfreinur skipuleggja friðar-
hlaup í Færeyjum og á Grænlandi
í sumar í samráði við fulltrúa
heimamanna.
Kynning á starf-
semi Gjábakka
ÞAÐ hefur skapast sú hefð að
kynna þá starfsemi sem fyrirhug-
uð er í félagsheimili eldri borgara
í Kópavogi, Gjábakka, í upphafi
hvers árs.
Kynningin verður fimmtudag-
inn 7. janúar og hefst kl. 14 í Gjá-
bakka. Þar munu margir kynna
starfsemi sem þeir hafa umsjón
með en nú eru starfandi mjög
margir áhugamannahópar í Gjá-
bakka og óskað hefur verið eftir
að 19 mismunandi námskeið verði
í Gjábakka fram til vors. Auk
þessa eru margir fastir liðir í
starfseminni og margar einstakar
uppákomur eins og þon-ablót,
góugleði, einmánaðarfagnaður,
hörpuhátíð, handverksdagar og
handavinnusýning.
Frístundahópurinn Hana-nú og
Félag eldri borgara í Kópavogi
munu kynna sína starfsemi sem
fyrirhugað er að verði í Gjábakka
fram til vors. Hægt verður að fá
kaffi og heimabakað meðlæti á
vægu verði og Söngfuglarnir taka
lagið.
FRCE /TVIE
Kennslustaðir:
Skipholt 25 á laugardögum
Drafnarfell á þriðjudögum
Komum einnig á staðinn
inniú+unARjífn/
50J TJrrL
DAnSsmiÐjön
DANSSKÓLI AliÐAR HARALDS & JÓHANNS ARNAR
SKIPHOLT 25, 105 REYKJAVÍK SÍMI 561 9797 FAX 562 7480