Morgunblaðið - 07.01.1999, Side 62
J>2 FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
VAK. SÚLÍTVg
VEL úr/
HÚN sé /WE& /Í/LJZ
L~ÉÉSS/)f< y&/ZTU/?’_
íið 0 x 0 J J
píj^
jtn
■ 01996 Trtbun* M«JI« S«vtoM. Ina
Grettir
Hundalíf
bakarí ■’r
!' /tún.es , ,> íls L»eqrunJ^_
0
-J±t
m
Ljóska
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
A
Er Island að verða
að lögreg’luríki?
Frá Hirti Jónasi Guðmundssyni:
EKKI alls fyrir löngu tók lögreglan
í Reykjavík upp á myndband mót-
mæli Ungra sósíalista fyrir utan
sendiráð Bandaríkjanna, vegna loft-
árása Bandaríkjamanna og Breta á
írak 18. desember sl. Kröfðust Ung-
ir sósíalistar þess eftir mótmælin að
frumrit og hugsanleg afrit upptakn-
anna yrðu afhent þeim eða að þau
yrðu eyðilögð að öðrum kosti. Sögðu
Ungir sósíalistar myndatökur lög-
reglunnar hafa þjónað þeim tilgangi
einum að skrá niður hverjir voru á
fundinum og að þessar myndatökur
væru atlaga að rétti þátttakenda í
mótmælunum til að tjá pólitískar
skoðanir sínar. Ennfremur sögðu
Ungir sósíalistar að ef myndataka
þessi tengdist einhverri rannsókn
lögreglunnar væri það réttur þeirra
að fá að vita hver sú rannsókn væri
og hver tilgangur lögreglunnar væri
með þessum myndatökum.
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, sem birtist 24. desember
sl., hafði’Geir Jón Þórisson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
þetta um málið að segja: „Við viss-
um ekki í hvað myndi stefna [í mót-
mælunum] og þess vegna urðum við
að vera með allan þann viðbúnað
sem til þarf til að bregðast við ef
eitthvað gerist sem gæti ógnað við-
komandi sendiráði. Nú reyndust
þetta hin friðsömustu mótmæli og
því verður engin frekari rannsókn á
myndum eða þeim gögnum fylgjandi
að neinu leyti.“ Geir var þá spurður
að því hvort myndirnar flokkuðust
sem lögreglugögn. „Nei,“ sagði
Geir, „ekki nema þær sæti einhverri
rannsókn eða frekari vinnu. Það var
engin ástæða til þess eftir að mót-
mælunum lauk. Það er ekkert sem
kallar á að myndimar verði notaðar
í neinum rannsóknar- eða lögreglu-
tilgangi." Geir var þá spurður hvort
Ungir sósíalistar mættu þá ekki fá
myndirnar. Því svaraði Geir svo:
„Það er lögreglustjórans að ákveða,
ég sé enga ástæðu til þess. Við ætl-
um áð eiga þessar myndir í mynda-
safni okkar.“
Þá vaknar spurningin: Til hvers í
ósköpunum á að geyma þessar
myndir ef þær þjóna ekki nokkrum
einasta rannsóknar- eða lögreglutil-
gangi? Hver er eiginlega tilgangur
lögreglunnar með þessu? Stefnir
lögreglan í Reykjavík að því að
koma sér upp myndabandaleigu, eða
er um að ræða ódýra leið til öflunar
afþreyingarefnis fyrir lögreglumenn
á vakt? Og hver eru svo rökin þessu
til réttlætingar? Jú, Geir Jón segir í
fyrmefndu samtali að myndatök-
urnar megi réttlæta með vísan í
ályktun Mannréttindanefndar Evr-
ópuráðsins, en þar segir m.a. að
myndataka af einstaklingi sem tek-
ur þátt í opinberri uppákomu flokk-
ist ekki sem afskipti af einkalífi við-
komandi. Þetta er allt gott og bless-
að. Hér er bara ekkert verið að
ræða um einkalíf eins né neins, held-
ur tjáningarfrelsi manna. Rétt
þeirra til að tjá skoðanir sínar! Ekki
veit ég hvað Geir er að rugla þessu
tvennu saman. Ef ég held ræðu,
skrifa grein eða tek þátt í mótmæl-
um, er þá um að ræða einkalíf mitt?
Auðvitað ekki! Ef svo hins vegar
væri, væm þessi tvenn stjórnar-
skrárvernduðu réttindi manna,
einkalífið og tjáningarfrelsið, ömgg-
lega fléttuð saman í sömu greinina í
stjómarskrám vestrænna lýðræðis-
ríkja, en ekki sitt í hvorri. Þessi rök-
semdafærsla Geirs, ef röksemda-
færslu skyldi kalla, fellur því alger-
lega um sjálfa sig.
Það sér því hver maður að vinnu-
brögð og framkoma lögreglunnar í
Reykjavík í þessu máli er algerlega
út í hött. Hlutverk lögreglunnar er
að þjóna borgumm þessa lands, en
ekki að njósna um þá. Lögreglan í
Reykjavík ætti þvi að sjá sóma sinn í
því að viðurkenna mistök sín, biðja
Unga sósíalista afsökunar á fram-
ferði sínu og annaðhvort afhenda
þeim umræddar upptökur, fmmrit
og hugsanleg afrit, eða eyða þeim að
öðrum kosti.
HJÖRTURJÓNAS
GUÐMUNDSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
Smáfólk h
- Til sölu - notaðar
teiknimyndabækur
Er þetta það
eina sem þú
átt?
Fyrirspurnir
Frá Rúnari Sigurjónssyni:
EKKERT lát virðist á umræðunni
um Landmælingar íslands og þá
spillingu sem þar þrífst í skjóli flutn-
ings til Akraness. Nauðsynlegt er að
tekið verði á þessum málum á tím-
um endurskoðunar í ríkisrekstri. Ég
vil því leyfa mér að taka þrjú mál
upp á yfirborðið og varpa þeirri
spurningu til umhverfisráðherra
hvers vegna ekki hafi verið tekið á
þeim.
1. Ólöglegum flutningi Landmæl-
inga íslands til Akraness er nú að
ljúka. Sá verktaki sem valinn var til
að flytja öll framleiðslutæki og inn-
anstokksmuni er gamall kunningi og
sveitungi yfirmanna Landmælinga
af Skaganum. Hvers vegna var svo
dýr flutningur ekki boðinn út og
hvers vegna voru Ríkiskaup ekki
höfð með í ráðum?
2. Tveir af yfirmönnum Landmæl-
inga íslands stofnuðu einkafyrir-
tæki í árslok 1997 sem ætlað var að
taka við leifunum eða brotunum af
stofnuninni eftir flutninginn.
Nefndu þeir fyrirtækið því viðeig-
andi nafni Landbrot og er það „ehf.“
enda var gert ráð fyrir umtalsverð-
um rekstri í kortagerð og kortaút-
gáfu. Hvers vegna hefur Ríkisend-
urskoðun ekki verið fengin til að
kanna þennan ólöglega ráðahag?
3. Að sögn heimildarmanna er nú
verið að vinna_ við nýtt tölvukerfi
Landmælinga Islands, þar á meðal
nýja heimasíðu. Til þess verks var
valinn bróðir nýskipaðs forstjóra
Landmælinga. Um úttekt á tölvu-
málum stofnunarinnar sá einn af yf-
irmannsvinunum úr Stangaveiðifé-
lagi Reykjavíkur. Hvers vegna eru
slík milljónaviðskipti ekki sett í al-
mennt útboð í stað afhendingar til
vina og ættingja?
Hvaða svör á ráðherra umhverfis-
mála við þessum spurningum og
hvað ætlar hann að láta spillta emb-
ættismenn Landmælinga Islands
vaða lengi uppi í skjóli ákvörðunar
um nauðungarflutning út á land?
RÚNAR SIGURJÓNSSON,
Miðtúni 11, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.