Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fjórir slasaðir
eftir árekstur
EINN maður rétt undir tvítugu
liggur á gjörgæsludeild Borgarspít-
alans eftir bflslys á gatnamótum
Sóleyjargötu og Hringbrautar
klukkan eitt eftir miðnætti aðfara-
nótt miðvikudags, þar sem bifreið
rakst á ljósastaur. Hann er ekki í
lífshættu en verður næstu daga á
gjörgæslu að sögn læknis. Þrír aðr-
ir á svipuðum aldri sem voru í bif-
reiðinni voru einnig fluttir á sjúkra-
hús, en slösuðust minna. Að sögn
lögreglunnar missti ökumaður bif-
reiðarinnar stjórn á bifreiðinni í
hálku á Hringbrautinni með fyrr-
greindum afleiðingum. Bifreiðin er
talin ónýt.
Göngutúr
í Lóni
Á ÞESSUM árstíma fara
nokkrir tugir hreindýra af há-
lendinu, um Lónsöræfi og nið-
ur í Lón, og því er ekki óal-
geng sjón að sjá hreindýr þar
um þessar mundir. Tarfar, sem
eru kollóttir á þessum árstíma,
ráfa stundum einir á meðan
kýrnar halda sig frekar í hóp-
um og stundum tarfar með
þeim. Ljósmyndari Morgun-
blaðsins rakst á þennan full-
orðna tarf sem spókaði sig í
Lóni.
Vinnueftirlitið skoðar
aðstæður hjá Norðuráli
Dagamunur er sagður á mengun
í kerskála álversins
STARFSMENN Vinnueftirlits ríkisins skoðuðu aðstæður í
álverksmiðju Norðuráls á Grundartanga í gær og funduðu með
öryggisnefnd fyiúrtækisins. Guðjón Sólmundsson,
umdæmisstjóri VinnueftWitsins á Akranesi, segir að
Vinnueftirlitinu hafí ekki borist kvartanh' frá starfsmönnum
álversins eða öryggisnefnd vegna aðstæðna á vinnustaðnum.
Vinnuaðstæður þessa fyi-stu mánuði hafi einkennst talvert af því
að verið sé að koma fyrirtækinu í gang.
Morgunblaðið/RAX
„Þetta er fyrirtæki sem er rétt farið af
stað. Það hefur verið byggt upp á mjög
skömmum tíma og það tekur tíma að
fullklára þá uppbyggingu. Það var veríð að
taka síðasta kerið í notkun sl. föstudag og
meðan verið er að koma kerunum í fullan
gang er ekki venjulegt ástand í
kerskálunum,“ sagði Guðjón.
Guðjón sagði að dagamunur væri á því
hve mikil mengun væri í kerskálanum.
Astandið í gær hefði ekki verið slæmt.
Hann sagði að Vinnueftirlitið kæmi til með
að gera mælingar og fylgjast þannig með
mengun frá álverinu. Það væri hins vegar
vitað að mengun væri mikil meðan verið
væri að koma kerunum í gang og þess
vegna hefðu þessar mælingar ekki hafíst
enn. Menn hefðu metið það svo að fram að
þessu gæfu mengunarmælingar ekki rétta
mynd af rekstrinum eins og hann yrði
þegar verksmiðjan væri komin í fullan
rekstur.
Guðjón var spurður um hvort mikið hefði
verið um vinnuslys í álverinu. Hann sagðist
ekki hafa tekið saman tölur um slys í
verksmiðjunni. Sem betur fer hefði ekkert
alvarlegt slys orðið þarna, en nokkur
minniháttar óhöpp. Hann sagði að
öryggismál í álverinu hefðu verið til
skoðunar í gær.'Verið væri að vinna að
ýmsum málum og koma öryggismálum til
betri vegar. Hafa þyrfti í huga að hluti af
búnaðinum kæmi úr eldra álveri í
Þýskalandi og hann væri settur niður í nýtt
umhverfi. Það tæki smá tíma að finna
þessum hlutum farveg.
Guðjón sagði að Vinnueftirlitið hefði
fylgst með öryggismálum og aðbúnaði hjá
Norðuráli. Þegar fyrirtækið væri komið í
fullan rekstur yrði gerð úttekt á
fyrirtækinu og reglubundnar mælingar
hæfust.
SÓL í Hvalfírði krefst úrbóta
Stjórn samtakanna SÓL í Hvalfirði hefur
sent frá sér ályktun þar sem lýst er
þungum áhyggjum vegna þess ástands sem
ríkir hjá Norðuráli, eins og komist er að
orði. Vísað er til þess að fréttir hafi borist af
mikilli mengun á vinnusvæði starfsmanna
og tíðum vinnuslysum. Stjórn samtakanna
krefst þess að Hollustuvernd ríkisins
upplýsi um stöðu mengunarvarna hjá
Norðuráli hf. og jafnframt að Vinnueftirlit
ríkisins birti tölur um tíðni vinnuslysa, eðli
þeirra og hvernig forvörnum sé háttað.
I samþykkt stjórnarinnar segir að SOL
líti deilur Norðuráls hf. og eigenda
jarðarinnar Tungu í Svínadal mjög
alvarlegum augum og óski eftir fundi með
stjórendum Norðuráls vegna þessa máls.
Deilurnar brjóti gegn anda viljayfirlýsingar
sem gerð var milli samtakanna og
Norðuráls í mars á sl. ári.
• •
Ororkuþegi mótmælir því að uppbætur skerðist vegna peningalegrar eignar
Bætur skertar eigi öryrki
2,5 milljónir eða meira í
peningum eða verðbréfum
SKERÐING bóta af ýmsum toga
veltur yfirleitt á tekjum, hvort sem
það eru laun eða fjármagnstekjur.
Uppbætur á lífeyri skerðast hins
vegar þegar ákveðinni eign í pen-
ingum eða verðbréfum er náð og er
markið sett við 2,5 milljónir króna
íyrir einstakling. Þessu er mótmælt
í bréfi, sem stflað er á Davíð Odds-
son forsætisráðherra og birtist í
fréttabréfi samtakanna Geðhjálpar í
lok liðins árs undir fyrirsögninni
„Gjör rétt, þol ei órétt“.
Óssur Skarphéðinsson, þingmað-
ur jafnaðarmanna og formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar,
kveðst ekki þekkja þetta tilvik, en
segist harma það þegar gert sé upp
á milli spamaðarforma hjá bótaþeg-
um. Guðni Ágústsson, sem situr í
nefndinni fyrir hönd Framsóknar-
flokks, sagði að þetta kæmi sér á
óvart. Bréfið skrifaði Garðar Sölvi
Helgason örorkulífeyrisþegi og seg-
ir hann að með þessu marki sé sér
refsað fyrir að hafa lagt til hliðar af
þeim bótum, sem honum hafa verið
greiddar.
Aldrei komið til útlanda eða
keypt áfengi eða tóbak
„Ég vil leyfa mér að mótmæla
þeirri grundvallarstefnubreytingu í
almannatryggingamálum sem felst í
reglugerð heilbrigðisráðherra sem
afnemur gi'eiðslu frekari uppbótar á
lífeyri til þeirra sem eiga „peninga-
lega eign“ yfir 2,5 milljónir kr.,“
segir í bréfmu, sem dagsett er 19.
ágúst 1996 og enn hefur ekki verið
svarað að því er segir í fréttabréf-
inu.
„Ég hef verið öryrki frá 1971
þegar ég var 17 ára og á því engan
rétt á lífeyrissjóði. Allan þennan
tíma hef ég lagt fyrir af bótunum.
Sem dæmi um sparnað má nefna að
ég hef aldrei átt bfl, aldrei komið til
útlanda og aldrei keypt áfengi eða
tóbak. Lengi vel brann spamaður-
inn upp í verðbólgunni en á síðustu
árum hefur safnast svolítill sjóður
sem ég hyggst nota til að mæta
óvæntum útgjöldum.“
Garðar Sölvi skrifar að nú sé hon-
um refsað fyrir að hafa talið fram
allt sitt sparifé. Bætur sínar lækki
um 13.000 krónur á mánuði og sér
sé ætlað að lifa af 39.000 krónum á
mánuði. Bætur aldraðrar móður
sinnar séu skertar með sömu rökum
um 10.000 krónur á mánuði þannig
að alls nemi skerðing þeirra 25.000
krónum á mánuði.
„Ósanngjarnt að það sé gert upp
á milli sparnaðarforma“
Össur Skarphéðinsson kvaðst
telja að öðru máli hefði gegnt ef við-
kornandi hefði sett féð í lífeyri.
„Ég þekki ekki þetta mál, en mér
finnst ósanngjarnt að það sé gert
upp á milli sparnaðarforma," sagði
Össur. „I þessu tilviki er um að
ræða mann sem, eftir þvi sem hann
segir sjálfur, hefur ekki leyft sér
mikinn munað til áð spara til elliár-
anna. Ef hann hefði lagt fyrir með
öðrum hætti hefði hann að ég held
ekki goldið fyrir með þessum hætti.
Ef maðurinn hefði átt þetta í stórri
fasteign hefði það ekki leitt til þess
að uppbótin yrði skert. Ég held að
þetta sé mál sem þurfi að skoða."
Guðni Ágústsson sagði að ekki
ætti að gera upp á milli eigna með
þessum hætti. „Þetta kemur mér á
óvart,“ sagði hann. „Ég hafði ekki
áttað mig á þessu og ég tel að það
þurfi að vera fullt samræmi og jafn-
ræði hvort sem menn eiga peninga-
legar eignir eða eignir af öðrum
toga. Mín fyrstu viðbrögð eru að
þetta mál þurfi að athuga.“
Sæmundur Stefánsson, upplýs-
ingafulltrúi Tryggingastofnunar
ríkisins, sagði að hugsunin að baki
því að uppbótin skertist þegar
menn ættu meira en 2,5 milljónir
króna í peningum eða verðbréfum
væri sú að þegar viðkomandi hefði
náð þessari peningalegu eign væri
hann þannig staddur að hann gæti
séð vel fyrir sér. Hann sagði að
þetta væri eitt af mörgum dæmum,
sem sýndu hvað erfitt væri að gera
þetta kerfi réttlátt.
Á heimasíðu Tryggingastofnunar
ríkisins er fjallað um frekari uppbót
á lífeyri, sem heimilt sé að greiða ef
sýnt þyki að lífeyrisþegi geti ekki
framfleytt sér án hennar. „Við mat
á því skal taka tillit til eigna og
tekna bótaþega, þar á meðal bóta
almannatrygginga, og kostnaðar,"
segir þar. „Til þess að geta notið
uppbótar á lífeyri verður viðkom-
andi að hafa einhverja tekjutrygg-
ingu. Uppbót á lífeyri er heimildar-
bótaflokkur og er upphæð hennar
metin í hverju tilviki. Frekari upp-
bætur skulu þó aldrei greiddar til
lífeyrisþega sem á eignir í pening-
um eða verðbréfum yfir 2.500.000
kr., eða hefur heildartekjur, að
meðtöldum bótum almannatrygg-
inga, yfir 92.529 kr. á mánuði. Við-
miðunarmörk hjóna eru 5.000.000
kr. í peningum eða verðbréfum, og
185.058 kr. í heildartekjur á mánuði
samanlagt."