Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Aðeins gálgafrestur?
Búist við hrinu
kvdtamálaferla
BÍÐIÐ þið bara, ég kem aftur, ég kem alltaf aftur.
5 Cu n m
UUyp
v
QqaÍaju
d jxÍAÚiulxi£| A - ox|/ (uu^xLAxlux|.AÍc/Jxi£cUun/ j/cd/ i 5. jxuxiuiAy ti£ 2 7. jÁi&swui/i/.
Perlan er afbragðs veitingastaður þar sem allt snýst um fólk. Kvöldstund ( Perlunni er öðruvísi.
Veitingar eru fyrsta flokks og þjónustan snýst um þig meðan þú snýst um borgina. Til að
fullkomna rómantíska stund er svo tilvalið að fá sér snúning á dansgólfinu við Ijúfan söng
og undirleik Þóris Baldurssonar, Eddu Borg og Birgis Baldurssonar.
x oxj o.p.emxa.n<i i.
odxxeÍtamaÍAÆAtfí/
Sturla Birgisson matreiðslumeistari Perlunnar er fulltrúi
fyrir íslands hönd í Bocuse d’or ‘99.
Samkvæmt skilgreiningu Steingríms Sigurgeirssonar
blaðamanns Mbl. er Bocuse d'or óopinber heims-
meistarakeppni einstaklinga í matreiðslu.
C)J dáiiefiÍA' m c iófaAxi/i/ C cícl (i Ua'i.ÚlcI'
íJcafux íittjA.inó
Fjórir sérvaldir sjávarréttir, hver öðrum betri.
Ond c.-i/oJelca'i jatj
X.)c/aá iA/ í iPcaú vnnv
- LmíMM/ á á v'u ll..
w >; íí íl & n
Þar sem alll snýst umfólk
*Kvöldverður og dans
Umhverfissamtök Islands
Samtök þeirra
sem áhuga hafa á
umhverfismálum
TOFNFUNDUR
Umhverfíssamtaka
íslands verður hald-
inn í dag, fimmtudaginn
21. janúar. Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi
forseti íslands, er meðal
þeiira sem staðið hafa að
undirbúningi stofnunar
samtakanna.
„Samtökin eiga að vera
vettvangur þeirra sem
vilja vinna að umhverfís-
málum og vernda þau lífs-
gæði sem felast í náttúru
Islands, á láði, lofti og
legi.
Við viljum einnig vera
málsvari þeirrar stefnu
að auðlindir Islands til
lands og sjávar verði
ætíð nýttar af varúð og
með sjálfbærum hætti
svo sem minnst spillist líf
og land, eins og segir í
lögum samtakanna.
Markmiðið m_eð stofnun Um-
hverfissamtaka Islands er að þau
séu víðtæk og nái til sem flestra.
I lögum samtakanna mun koma
fram að einstaklingar ásamt sam-
tökum, félögum og fyrirtækjum
geta átt aðild að þeim. Við höfum
hugsað okkur samtökin sem
nokkurs konai- regnhlífarsam-
tök.“
Vigdís segir að samtökin vilji
styðja það mæta fólk sem vinnur
að endurheimt landgæða og það
hafi einmitt verið henni hjartans
mál svo lengi sem hún man.
„Samtökin vilja einnig stuðla að
framkvæmd alþjóðasamninga um
vemdun umhverfis jarðar, hafa
samvinnu við erlend umhverfis-
samtök og taka þátt í ráðstefnum
um alþjóðleg umhvei-fismál.
Eg hef unnið að þessum mál-
um um árabil. Það vill svo til að
ég hef góð sambönd við virt er-
lend umhverfissamtök og mér er
ljóst að það er löngu tímabært að
stofna svona víðtæk samtök á Is-
landi. Okkur hefur á síðari árum
aukist þrek og kjarkur til að líta í
eigin barm og gera okkur grein
fyrir hvað miður fer á heimaslóð-
um. Sannleikurinn er sá að um-
hverfismál hafa fengið mikið
vægi um allan heim og það er að-
kallandi að við látum heyra í okk-
ur líka á alþjóðavettvangi.
Það er mér metnaðarmál að Is-
land eigi sína rödd í umræðunni
um umhverfismál heimsins,
trausta rödd sem vekur aðdáun.
Oftast hefur okkur tekist það.“
Vigdís segist vera mikið á
ferðinni innan þessa sviðs, hún er
formaður í heimsráði sem tekur á
siðfræði í vísindum og tækni þar
sem orkumál og mál varðandi
ferskt vatn eru í brennidepli
ásamt upplýsingasamfélaginu.
„Ég er oft innt eftir því hvernig
þessi mál standa á
Islandi og mér
þykir vænt um að
geta komið núna að
þessu starfi í Um-
hverfissamtökum
íslands."
- Hvernig verður starfsemi
samtakanna háttað?
„Við hyggjumst beita okkur
fyrir því að tengja okkur betur
við umheiminn og efla umræðuna
um umhverfismál hér heima. Þau
eru eins og við vitum ekki lengur
einkamál þjóða.
I því sambandi er af mörgu að
taka. Við höfum til dæmis áhuga
á að halda ráðstefnu um arðsemi
náttúrunnar og fyrr en síðar
munum við standa fyrir umræð-
um og ráðstefnu um landeyðingu
á Islandi.“
►Vigdís Finnbogadóttir er
fædd í Reykjavík árið 1930.
Hún var frönskukennari við
Menntaskólann í Reykjavík og
við Menntaskólann í Hamrahlíð
á árunum 1965-1972 og kenndi
jafnframt leikbókmenntir við
Háskóla íslands og annaðist
frönskukennslu í sjónvarpi.
Hún var leikhússtjóri Leik-
félags Reykjavíkur frá
1972-1980 er hún var kjörin
forseti Islands. Því embætti
gegndi hún til ársins 1996.
Vigdís er formaður heims-
ráðs um siðferði í vísindalegri
þekkingu og tækni með orku,
ferskt vatn og upplýs-
ingaþjóðfélagið sem þunga-
miðju. Hún er farandsendi-
herra UNESCO í tungumálum
til varnar hinum smærri á
heimsbyggðinni.
Vigdís á eina dóttur, Ástríði.
Hún undirstrikar að Umhverf-
issamtök íslands eigi að vera eins
og önnur virt umhverfissamtök í
heiminum og leggja lið ályktun-
um sem voru gerðar á umhverfis-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Rió árið 1992. „Við verðum liðs-
menn framkvæmdaáætlana um
sjálfbæra þróun í heiminum og
sjálfbæra nýtingu á orkulindum.
Við viljum hjálpa til að vekja at-
hygli á loftmengun. Margir Is-
lendingai- halda eflaust að við
þurfum ekki að hafa áhyggjur af
loftmengun. Sannleikurinn er sá
að við siglum samsíða öðrum
Evrópuþjóðum í þeim málum.
Útblástur koltvísýrings er jafn
mikill hjá okkur á mann og ann-
ars staðar í Evrópu."
Vigdís segir að Umhverfissam-
tök Islands muni láta sig varða
allt sem lýtur að umhverfismál-
um og vilji einnig
vekja raunsæja um-
ræðu og stuðla að
því að gert verði
mat á réttmæti allra
ákvarðana sem
teknar eru varðandi
umhverfi okkar.
- Hverjir eru það, auk þín, sem
standa að stofnun þessara sam-
taka?
„I undirbúningsnefndinni hafa
verið Gunnar G. Schram lagapró-
fessor, Júlíus Sólnes, prófessor
og fyrrverandi umhverfis-
ráðherra, Steingi’ímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsætis-
ráðheiTa, og Óskar Magnússon
stjórnarformaður Baugs.
Stofnfundur samtakanna sem
haldinn er í Norræna húsinu
hefst klukkan 17 í dag.
Auðlindir íslands
til lands og sjávar
verði ætíð
nýttar af varúð