Morgunblaðið - 21.01.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Iþróttahús
vígt á
Þórshöfn
Þórshöfn - Nýtt íþróttahús var
vígt á Þórshöfn sl. sunnudag að
viðstöddu fjölmenni. Með tilkomu
þessa glæsilega húss er nú brotið
blað í sögu íþrótta- og æskulýðs-
mála hér í byggðarlaginu enda
býður nýja húsið upp á ótal mögu-
leika sem ekki voru áður fyrir
hendi til íþróttaiðkana.
Hátíðardagskrá var í íþrótta-
húsinu og hófst hún með því að
sóknarpresturinn, sr. Ingimar
Ingimarsson, blessaði laugina
meðan yngri kynslóðin fór í sund.
Aðaldagskráin var eftir hádegi og
hófst með því að presturinn bless-
aði húsið. Kórsöngur var á dag-
skrá og margir gestir tóku til
máls, bæði heimamenn og aðrir.
Það var mál manna að þetta
myndarlega hús, sem loksins er
orðið að veruleika, beri merki um
þor og framsýni þeirra sem á sín-
um tíma ákváðu að ráðast í þetta
verk en það voru sveitarstjórnir í
Þórshafnar- og Svalbarðshreppi.
íþróttahúsið fékk góðar gjafír á
hátíðinni, m.a. eina milljón króna
frá Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
sem nota skal til tækjakaupa í
húsið eða það sem helst þurfa þyk-
ir, frá Rauða kross-deildinni á
svæðinu kom fullkominn endur-
lífgunarbúnaður sem er skilyrði í
SR. INGIMAR Ingimarsson blessaði húsið.
vel búnum sundlaugum og Spari-
sjóður Þórshafnar gaf 250.000 kr.
Bygging hússins hófst sumarið
‘97 og er táknrænt að leikskóla-
börn tóku fyrstu skóflustunguna.
Húsið er hannað af AVT teikni-
stofunni á Akranesi sem hefur
mikla reynslu af hönnun slíkra
húsa og þykja hús þeirra hag-
kvæm og hafa reynst vel. Um
byggingu hússins sáu ÞH-verk-
takar á Þórshöfn og Trévangur hf.
í sameiningu. Byggingarmeistari
verksins var Jón Beck frá ÞH-
verktökum og stýrði hann verkinu
með styrk og dugnaði frá upphafi
til enda. Einnig komu nokkrir
undirvertakar að byggingunni t.d.
sá vélaverkstæðið Þistill hér á
Þórshöfn um gerð stiga, handriða
ogaðra járnavinnu.
I íþróttahúsinu er íþróttasalur,
33x24 metra, vel búinn tækjum og
er fullkomin aðstaða til íþrótta-
kennslu, æfmga og keppni. Sund-
Iaugin er 17x8 metrar, glæsileg
innisundlaug þar sem mikið hefur
verið lagt upp úr að rýmið sé opið,
bjart og aðlaðandi. Við sundlaug-
ina eru tveir heitir pottar og
vatnsgufubað. I þjónusturýminu
er líkamsræktarstöð, ljósabekkur,
4 búningsherbergi, félagsaðstaða
fyrir skóla og fleiri auk mötuneyt-
is fyrir skóla, einnig skrifstofur.
Þarna verður því frábær aðstaða
til íþrótta- og félagsstarfs og er
betri tími framundan fyrir skólana
í Svalbarðs- og Þórshafnarhreppi
og yngri kynslóðina í þessum
sveitarfélögum.
Sundkennsla, sundþjálfun og
sundleikir verða nú stundaðir allt
árið um kring. íþróttasalurinn
gefur bömunum færi á að kynn-
ast, læra, æfa og keppa í nánast
öllum þeim íþróttagi-einum sem
áhugi þeiri'a stendur til. Auðvelt
verður að skipuleggja í húsinu
byggðarlagið því þegar fólk velur
sér búsetu hugsar það ekki síst
um það hvernig búið er að skóla-,
íþrótta- og æskulýðsmálum fyrir
börn.
Að loknum kaffiveitingum tók
við flugeldasýning í boði Lions-
klúbbsins á staðnum og var það
glæsilegur endir á góðum degi.
Norðurland vestra
Prófkjör Sam-
fylkingar ákveðið
PRÓFKJÖR Samfylkingar Alþýðu-
bandalagsins, Alþýðuflokksins og
Kvennalistans á Norðurlandi vestra
íyrir alþingiskosningarnar 8. maí
1999 verður haldið 13. febrúar nk.
Allir íbúar á Norðurlandi vestra
sem fæddir eru árið 1981 eða fyrr
hafa rétt til að greiða atkvæði í
prófkjörinu.
Kosið er um fjögur efstu sætin.
Kosning í tvö efstu sætin er bind-
andi. Frestur til að tilkynna fram-
boð er til 23. janúar. Tilkynnt skal
um framboð til eftirtalinna aðila:
Unnars Rafns Ingvarssonar,
Jöklatúni 14, Sauðárkróki og
sJóns Karlssonar, Hólavegi 31,
Sauðárkróki.
Skákmót til minning-
ar um Ottó Arnason
Ólafsvík - Á dögunum hélt Taflfélag
Ólafsvíkur árlegt hraðskákmót til
minningar um Ottó Árnason bókara
en hann var á árum áður aðalfrum-
kvöðull að öflugu skákmóti í Ólafs-
vík. Keppt er um farandbikar sem
Bakki sf. gaf fyrir allmörgum árum.
Tólf keppendur voru á mótinu og
urðu úrslit sem hér segir: 1. Gylfí
Scheving, 9 vinningar, 2. Gísli Boga-
son, 8 vinningar og í 3.-4. Sigurður
Scheving og Sæþór Gunnarsson, 7
vinningar.
Nokkur lægð hefur verið í starf-
semi Taflfélags Ólafsvíkur undan-
farin ár en nú ætla menn að endur-
heimta gamla keppnisandann í fé-
laginu. Ráðgert er að hafa skákæf-
ingar á hverju sunnudagskvöldi í
Gistiheimilinu Höfða. Skora félags-
menn á alla þá er áhuga kunna að
hafa á skák að koma á æfingar.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs.
MARIA Lárusdóttir og Sigurður Þórðarson eru bjartsýn á rekstur
Shellskálans á Egilsstöðum.
Nýir rekstraraðilar Shell-
skálans á Egilsstöðum
Egilsstöðum - María Lárusdóttir
og Sigurður Þórðarson hafa tek-
ið við rekstri Shellskálans á
Egilsstöðum. Þau hafa bæði
starfað sem lögregluþjónar í
Reykjavík en ákváðu að söðla
um og reyna eitthvað nýtt og
taka við rekstri skálans til eins
árs.
Reksturinn verður með hefð-
bundum hætti að viðbættu því að
í veitingasölu verður boðið upp á
súpu og brauð og rétt dagsins,
allan daginn, auk skyndibita.
Kokkur er Guðmundur Sigurðs-
son. Þau eru bjartsýn á rekstur-
inn og bjóða Austfirðinga og
ferðafólk velkomið.
Eigenda-
skipti hjá
Noru í Stykk-
ishólmi
Norður-Hérað
Röskun á sköla-
starfí veg’iia
ófærðar á vegum
Vaðbrekku, Jökudal - Eftirhreytur
stórhríðarinnar sem gekk yfír Jök-
uldal og Norður-Hérað um síðustu
helgi hafa komið niður á skólastarfi
á Norður-Héraði í þessari viku. Að
sögn Sverris Kristinssonar, skóla-
stjóra Skjaldólfsstaðaskóla, hefur
skólastarf legið niður á Skjaldólfs-
stöðum mánudag og þriðjudag
vegna ófærðar en hluti af nemend-
um mætti í gær en þá var enn ófært
á Efra-Jökuldal.
Allir vegir á Norður-Héraði urðu
ófærir í stórhríðinni en þjóðvegur 1
og Austurdalur voru opnaðir á
mánudag og slóð lögð að Efradal,
aftur kófaði á veginn og í slóðina
aðfaranótt þriðjudags svo færi
spilltist. Allir vegir voru síðan opn-
aðir í gær en óvíst er að þeir haldist
opnir fram að helgi vegna þess að
ennþá spáir éljagangi og kófi. Að
sögn Elsu Árnadóttur, skólastjóra í
Brúarárskóla, hefur nokkur röskun
verið þar einnig. Nemendur í Efra-
Jökuldal komust ekki til skólans
fyrr en seinnipart mánudags þegar
búið var að leggja slóðina þar, og
ekki varð frekari röskun hjá þeim
vegna þess að þeir Efradælingar
eru allir í heimavist. Aðrir nemend-
ur Brúarárskóla hafa komið of seint
til skólans alla daga sem af er þess-
ari viku vegna vondrar færðar og
biðar eftir að vegurinn sé opnaður á
morgnana.
Reiknað er með að skólastarf
verði með eðlilegum hætti í dag
vegna þess að búið er að opna alla
vegi í sveitarfélaginu og vonast er
til að þeir haldist færir fram að
helgi þótt spáð sé kófgarra.
Stykkishólmi - Kavíai'verksmiðjan
Nora í Stykkishólmi var stofnuð
árið 1990 upp úr þrotabúi Bjargar
hf. Stofnendur voru Ágúst Sigurðs-
son og Olafur Kristjánsson og hef-
ur sá síðarnefndi verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Nú
um áramót urðu eigendaskipti á
fyrirtækinu. Sigurður Ágústsson
hf. keypti helmingshlut Ólafs Krist-
jánssonar sem á nú allt hlutafé í fé-
laginu og hefur reksturinn verið
sameinaður öðrum rekstri Sigurð-
ar Ágústssonar hf.
Verksmiðjan hefur framleitt
kavíar úr grásleppu- og loðnu-
hrognum. Framleiðslan hefur öll
farið á erlendan markað. Á undan-
fórnum árum hefur orðið sam-
dráttur í framleiðslunni vegna
samkeppni og verðfalls. Nora hef-
ur með gætni staðið af sér niður-
sveiflur sem hafa orðið.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar
framkvæmdastjóra verða engar
breytingar á rekstrinum við eig-
endaskiptin. Hann segir að verk-
efnastaðan hafi breyst til batnaðar
á síðustu mánuðum. Gerður hefur
verið mikilvægur samningur við
erlendan kaupanda sem tryggir
næg verkefni á þessu ári. Hann
reiknar með að framleiðslan nái
jafnvel að tvöfaldast á þessu ári
miðað við árið í fyrra.
Hjá Noru starfa nú um 14
manns þegar framleiðslan er kom-
in í fullan gang.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
VERKSTJÓRARNIR Bernt Sigurðsson og Karvel Jóhannesson ásamt
franikvæmdastjóra fyrirtækisins, Sigurði Ágústssyni. Þeir halda á
krukkum með kavíar sem verið er að framleiða fyrir kaupendur í
Ástralíu.