Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 21
NEYTENPUR
2,2% lífeyrissparnaður
Þarf ekki að hafa áhrif
á tekjutryggingu
„ÞAÐ er ekki rétt að lífeyris-
sparnaður sé óhagstæður fyrir
stóran hóp af fólki vegna þess
að útborgun lækki tekjutrygg-
ingu Tryggingastofnunar," seg-
ir Gunnar Baldvinsson, for-
stöðumaður VIB,
og vísar til fréttar
í Morgunblaðinu
sl. laugardag þar
sem ráðgjafi hjá
Fjárfestingu og
ráðgjöf fjallar um
að séreignar-
sparnaðurinn
henti ekki hópi
fólks.
„Ég bendi á
tvennt í þessu
samhengi. Fólki
er frjálst að taka út þennan sér-
eignarsparnað fyrir 67 ára ald-
ur og þeir sem verða svo illa
staddir að þurfa á tekjutrygg-
ingu að halda eiga því að geta
verið búnir að taka sparnaðinn
út áður en til þess kemur.
I öðru lagi og það sem vegur
þyngra er að mér finnst rangt
að vera að ráðleggja fólki sem
er á miðjum aldri að miða við að
það fái tekjutryggingu frá
Tryggingastofnun. Tekjutrygg-
ingin er fyrst og fremst fyrir þá
sem munu eiga takmörkuð líf-
eyrisréttindi og lítinn sparnað.
Upphaflega var tekjutryggingin
sett til bráðabirgða og það er
ekkert víst að hún verði enn við
Iýði þegar fram í sækir.“ Gunn-
ar segir að lokum að ráðgjafinn
hafi bent á söfnunartryggingar
innlendra og erlendra líftrygg-
ingafélaga sem hann telur hag-
kvæmari en séreignar-
sparnaðinn. „Þetta sparnaðar-
form hentar ein-
göngu þeim sem
eiga nokkrar
eignir og greiða
eignaskatt og
geta bundið
sparnað í mjög
Iangan tíma.
Astæðan er sú
að fólk þarf að
greiða sölu-
kostnað í upp-
hafi sem er allt
frá þriggja
mánaða og upp í eins og hálfs
árs sparnað og það tekur lang-
an tíma að vinna þennan
kostnað upp, eða 25-30 ár.
I Bandaríkjunum hefur koinið
í ljós að helmingur af þeim sem
sparar með þessum hætti heldur
það ekki út og gefst að
meðaltali upp eftir sjö ár. Það
situr þá uppi með kostnaðinn.“
Gunnar segir að ýmsir aðrir
kostir á markaðnum séu ein-
faldlega betri. „Lífeyrissparnað-
urinn hentar flestum að því leyti
að skattaleg meðferð hans er
hagkvæm auk þess sem 0,2%
bætast við frá atvinnurekanda.
Það sem fólk þarf hins vegar að
átta sig á er að þetta er bundinn
sparnaður til 60 ára aldurs.“
ÓTRÚLEGT
TILBOÐ
Ath.: Takmarkaðar birgðir.
Sendum í póstkröfu,
sími 511 4141.
búðin
EITT VERÐ Á ÖLLUM VÖRUM
Laugavegi 118,
Kringlunni,
Keflavík.
Nýtt ár opnar þér nýjar leiðir. Þá borgar sig að velja sér farartæki sem gerir allar leiðir færar.
Honda CR-V er vel búinn og sprækur sportjeppi á mjög hagstæðu verði sem gerir hann að
hinum ákjósanlegasta ferðafélaga. Á þessu ári skalt þú setja þér háleitari markmið en nokkru
sinni fyrr og ná þeim með nýjum Honda CR-V.
- hér eru gæði á ferðinni
Honda á íslandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 I 100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. I2-I6 á laugardögum
P
m | • 1;-; B