Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 23 Breskur ráðherra sakaður um að „lifa hátt“ á kostnað skattborgara Ihaldsmenn fara fram á rannsókn London. The Daily Telcgraph. IHALDSMENN í Bretlandi vilja að Tony Blair forsætisráðherra efni til formlegrar rannsóknar á ásökunum um að ráðherrann Jack Cunning- ham hafi „lifað hátt“ á kostnað skattborgara. Ritaði Tim Yeo, skuggaráðherra íhaldsmanna í landbúnaðarmálum, Blair bréf í byrjun vikunnar þar sem rifjuð var upp yfirlýsing forsætisráðherrans er hann tók við embætti árið 1997, en þá sagði Blair að Verkamanna- flokkurinn væri ekki kominn til valda eftir átján ára bið til þess eins að njóta þeirra forréttinda sem fylgja valdastólum. Sagði Yeo að í ljósi þessarar yfir- lýsingar væru fregnir af „óhóflegri eyðslusemi" Cunninghams alger- lega óviðunandi og vísaði þar í fréttaflutning The Sunday Times um helgina þar sem Cunningham er sagður hafa flogið til Bandaríkjanna með Concorde-flugvél, dvalist reglulega á fimm stjörnu hóteli í Brussel og boðið Evrópuþingmönn- um Verkamannaflokksins í veislu í Strassborg þar sem veitt var ótæpi- lega af kampavíni. Cunningham var áður landbúnað- arráðherra en tók í fyrrasumar við sérstöku „yfirráðherrastarfi“ þar sem honum er ætlað að samræma störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Hefur hann neitað ásökunum í sinn garð og hafnar því jafnframt að óá- nægt starfsfólk undir hans stjórn hafi lekið upplýsingum um eyðslu- semi hans í fjölmiðla, segist hann eiga afar náið og gott samstarf við starfsmenn ráðuneytisins. „Svívirðileg sóun á fjármunum almennings" Haft var eftir talsmanni ráðu- neytis Cunninghams á þriðjudag að öll ferðalög hans væru í samræmi við stjórnsýslureglur og að ferða- hættir ráðherrans hefðu ávallt hlot- ið samþykki starfsmanna ráðuneyt- anna. Jafnframt hefðu náðst góðir samningar við Conrad-hótelið í Brussel, sem þykir með þeim allra dýrustu og fínustu þar í borg, og Cunningham hefði því ekki greitt Reuters JACK Cunningham brosti breitt þegar honum var úthlutað nýtt ráðherraembætti í fyrrasumar. tæplega þrjátíu þúsund krónur fyrir nótt á hótelinu, eins og verðskrá þess segði fyrir um, heldur mun minna. Sagði talsmaðurinn ennfremur að fréttir þess efnis að Cunningham sæti gjaman að sumbli fram á nótt á bar Conrad-hótelsins og drykki þá einungis rándýrt Macallan-maltvi- ský væru ýktar úr hófi fram. Hvað sem þessum staðhæfingum líðui- hafði The Sunday Times eftir ónefndum opinberum starfsmanni um helgina að Cunningham væri „sekur um þá svívirðilegustu sóun á fjármunum almennings sem ég hef nokkurn tíma orðið var við“. Er það einnig sett á syndaregist- ur Cunninghams að hann hafi flogið með Concorde-þotu til Bandaríkj- anna í stað þess að fljúga með hefð- bundnu áætlunarflugi, sem er mun ódýrara. Kostaði flugferð Cunning- hams til Bandaríkjanna í síðustu viku með Concorde næstum fjögur hundruð þúsund krónur en Cunn- ingham hefði skv. The Sunday Times getað farið þennan sama dag með áætlunarflugi, hálftíma fyrr, fyrir mun minni pening. Krýningarathöfn Karls verði tengd öllum trúarbrögðum London. The Daily Telegraph. HATTSETTIR embættismenn inn- an ensku biskupakirkjunnar velta nú fýrir sér hugmyndum um að tengja krýningarathöfn Karls Bretaprins öðrum trúarbrögðum, þegar og ef af henni verður. Hefur hópur fræðimanna, guðfræðinga og presta fundað reglulega undanfarið eitt og hálft ár í því skyni að ræða um breytingar í þessa átt. Er það tillaga hópsins að breyt- ingar verði gerðar á ævafornri krýningarathöfninni í þá átt að hún verði „veraldlegri", og ennfremur að fleiri trúhópar komi að athöfn- inni. í stað þess að athöfnin verði einungis samkvæmt venjum ensku biskupakirkjunnar muni leiðtogar rómversk-kaþólsku kirkjunnar og meþódista einnig leika þar hlutverk, sem og rabbíni á vegum gyðinga, auk fulltrúa múhameðstráar. Jafnframt yrðu nokkrir þættir sjálfrar krýningarathafnarinnar lagðir niður, t.d. kvöldmáltíðar- sakramentið sem tilheyrir aðeíns tráarkenningum biskupakirkjunn- ar, en á sér ekki stoð i tráarkenn- ingum annarra. Hafa gagnrýnis- raddir einmitt lengi bent á að krýn- ingarathöfnin sjálf sé fjandsamleg í garð kaþólikka. Þykja breytingar á athöfninni, eins og þær sem nú eru ræddar, vekja spumingar um tengsl ríkis og kirkju og um stöðu biskupakirkj- unnar sem þjóðkirkju. Þykir mörg- um sem tími sé kominn til að kon- ungur/drottning sé þjóðhöfðingi allra íbúa Bretlands, ekki aðeins þeirra sem eru í ensku biskupa- kirkjunni. Hefur Karl Bretaprins reyndar þegar látið hafa eftir sér að sem konungur myndi hann vilja taka að sér að vera verndari allra tráarskoðana, ekki aðeins þjóðtrú- arinnar. George Carey, erkibiskupnum af Kantaraborg, þykir þessi umræða hins vegar ekki tímabær og sendi hann frá sér yfirlýsingu á sunnu- dag. Sagði þar að krýningarathöfn næsta þjóðhöfðingja væri alls ekk- ert á dagskrá innan kirkjunnar, Elísabet Englandsdrottning væri við bestu heilsu og því ekki við hæfi að ræða þessa hluti að svo stöddu. 1.-5. apríl - 4 nætur Verð á mann í tvíbýli á Burlington Hotel Innifalið f verðdæmum er flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis, fslensk fararstjórn, skattar og gjöld. 14 nætur Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára) í íbúð með tveimur svefnherbergjum á La Colina, Albir. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð á La Colina, Albir. 31. mars - 12. apríl - 12 nætu 46.862 kr. stgr. Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára) (íbúð með einu svefnherbergi á Playa Ferrera, Cala d'Or. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu svefnherbergi á Playa Ferrera, Cala d'Or. 1.-5. apríl Verð á flugsaeti K Innifalið skattar og gjöld, með gistingu á Cliftorn Ford, fjögurra stjörnu hóteli á frábærum stað í borginni. Spennandi skoðunarferðir, m.a. til Stonhenge og Bath. Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir. Verð 49.900 kr. KAIMARIEYJAR Spennandi vorferðir! Vorferð til Mallorca 12. aprfl - 24. maí - © vikur Vorferö til Benidorm 13. apríl - 25. maí - 6 vikur Eitthvað skemmtiiegt um páskana Örfá sæti laus!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.