Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 42
"42 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Illdeilur eru
alltaf til góðs!
Áfengi og vímuefni
I áramótaávarpi
okkar ástsæla lista-
manns Flosa Olafsson-
ar sem hann flutti Is-
lendingum fjallaði
hann um jákvæðar
''hliðar þess að troða
illsakir við náungann.
„Uldeilur eru alltaf til
góðs,“ sagði Flosi, sem
ávallt hefur lög að
mæla. Þetta veit Páll
Tryggvason barnageð-
læknir, sem greinilega
vill láta gott af sér
leiða á nýju ári. Og
hvers vegna að velja
frið þegar maður á
kost á góðu stríði? Páll fjallar um
mig og Barnaverndarstofu, þá
stofnun sem ég veiti forstöðu, í
tveim af þrem greinum í Mbl. und-
anfarið. Þar sem rými í Mbl. er orð-
ið jafn takmörkuð auðlind og físk-
j!rinn í sjónum verð ég að takmarka
athugasemdir mínar stórlega.
Afstaða Barnageðlæknafélags
Islands
Páll titlar sig formann Barnageð-
læknafélags íslands í greinarskrif-
um sínum en notar ekki starfsheiti.
Með því lætur hann að því liggja að
hann tjái skoðanir félagsins. Sé
þetta raunin er mér brugðið, þá
þekki ég barnageðlækna á íslandi
iila. Nú óska ég eftir að fá úr þessu
skorið og fer þess á leit við stjóm
^ess ágæta félags að hún fræði les-
endur blaðsins um þetta atriði.
Þetta skiptir miklu máli í ljósi þess
að bamageðlæknar, t.a.m. greinar-
höfundur sjálfur, hafa hingað til
lagt sig fram um að fá meðferðar-
vistun fyrir skjólstæðinga sína á
meðferðarheimilum Barnaverndar-
stofu sem, að mati Páls Tryggva-
sonar, em hins vegar „á engan hátt
fær um að veita sérhæfða með-
ferð“. Augljóslega er hér um stóra
þversögn að ræða, sem Barna-
verndarstofa á kröfu á að fá skýr-
ingu á.
Hver em þau rök sem Páll til-
greinir þegar hann fellir þann dóm
að Barnaverndarstofa sé á engan
hátt fær um að veita lögbundna
þjónustu? Annars vegar að stór
hluti þeirra sem vistast á meðferð-
arheimili Barnaverndarstofu eigi
við geðrænan vanda að stríða og
hins vegar að skortur sé á sérhæfðu
starfsfólki á meðferðarheimilum
stofunnar. Að síðarnefndum rökum
Páls verður vikið í seinni hluta
greinar þessarar.
Geðrænn vandi og meðferð
Nokkur hluti þeirra unglinga
sem nýtur þjónustu Barnaverndar-
stofu á við geðræn vandamál að
stríða. Þessi börn eru
flest vistuð að beiðni
barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans
(BUGL), sem Barna-
verndarstofa á náið
samstarf við. Þótt ein-
staklingur sé haldinn
sjúkdómi er sjaldnast
ástæða til að hann
dveljist á sjúkrahúsi
nema þá í vissan tíma.
Unnt er að halda sjúk-
dómum niðri, ýmist
með lyfjameðferð, við-
talsmeðferð eða heil-
brigðu lífemi. I örfáum
tilvikum væri að sönnu
heppilegra að þau
væru á geðdeild í
lengri tíma, en geðdeild fyrir ung-
linga til langtímameðferðar er því
miður ekki til í landinu. Barna-
verndarstofa hefur meiri áhuga á
að leysa vandamál en að skapa þau
og þegar samstarfsaðilar okkar á
BUGL leita til okkar með slík mál
með fulltingi barnaverndarnefndar
Barnaverndarmál
Væri ekki nær að þeir
sem bera hag mála-
flokksins fyrir brjósti
legðu sitt á vogarskál-
arnar til að vinna þess-
ari stefnu fylgi, segir
Bragi Guðbrandsson í
fyrri grein sinni, heldur
en bíta í hælana á þeim
sem gera sitt besta til
að veita börnum þá að-
stoð sem unnt er við
ríkjandi aðstæður?
þá gerum við okkar besta. Hitt er
svo annað mál að við höfum stund-
um spornað við en dæmi er um að
þá höfum við sætt úrskurði ráðu-
neytis í kjölfar læknisfræðilegs sér-
fræðiálits um að sinna þeim samt,
þá í samvinnu við BUGL. Vart
verður því haldið fram með rökum
að stofan sé að seilast eftir þessum
skjólstæðingahópi þótt okkur þyki
vænt um hann eins og aðra.
Meginhluti þeirra umsókna sem
berst Barnaverndarstofu um með-
ferðarvistun fyrir börn varðar
hegðunarraskanir þar sem neysla
vímugjafa kemur oft við sögu. Stór
hluti þessara barna hefur fengið
Bragi
Guðbrandsson
- Gœðavara
Gjaíavdra — malar- og kafíistell.
Allir verðflokkar.
Heimsfrægir hönnndir
m.a. Gianni Versace.
VEIiSLUNlN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Undir Jökli
margháttaðan stuðning og grein-
ingu sálfræðinga og lækna. Mörg
þeirra eiga að baki ítrekaðar inn-
lagnir á Vog sem þau gátu ekki nýtt
sér vegna mótþróa. Niðurstaða sér-
fræðinga barnaverndarnefndanna
er sú að þessi böm þurfí fyrst og
fremst á atferlis- og umhverfismeð-
ferð að halda, ekki lyfjameðferð.
Þau eru því ekki veik í þeim skiln-
ingi að þau þurfí á sjúkrameðferð
að halda og oft alls ekki líklegt að
það hjálpi til að börnin líti á sig sem
sjúklinga. Þess vegna er engin
ástæða til að slík meðferð heyiá
undir heilbrigðisyfírvöld eins og
Páll heldur fram. Meiru varðar að
samstarf sé gott á milli sérfræðinga
óháð því hvar þeir starfa.
Samstarf um lausnir
Barnaverndarstofa er ekki heil-
brigðisstofnun og því hlýtur lækn-
isþjónusta á hennar vegum að vera
takmörkuð. Það hefur verið afstaða
stofunnar að rétt sé að leita eftir
geðheilbrigðisþjónustu innan heil-
brigðisþjónustunnar. Að vísu höf-
um við talið nauðsynlegt að hafa
geðlækni í okkar þjónustu á Stuðl-
um þar sem fer fram greiningar-
meðferð auk neyðarvistunar í
bráðatilvikum. Þar njótum við
starfskrafta Péturs Haukssonar
geðlæknis sem sinnir okkur frá-
bærlega þótt um hlutastarf sé að
ræða.
Sú áhersla sem Barnaverndar-
stofa leggur á mikilvægi barnageð-
læknisþjónustu kemur m.a. fram í
skipan fagteymis sem starfað hefur
á vegum stofunnar frá upphafi. í
því eiga sæti m.a. yfirlæknirinn á
BUGL, geðhjúkrunarfræðingur
sem starfar á Barnaverndarstofu
og forstöðumaður Stuðla. Hinir
tveir síðarnefndu hafa áður starfað
á BUGL í áraraðir. Á vettvangi
fagteymisins er fjallað um allar um-
sóknir um meðferðarvistun sem
kunna að yera á gráu svæði m.t.t.
verkaskiptingar BUGL og Barna-
verndarstofu. Jafnframt er þar
fjallað um geðheilbrigðisvandamál
þeirra einstaklinga sem eru í með-
ferð á hverjum tíma eftir því sem
tilefni er til, og dæmi eru um að í
kjölfarið fylgi innlögn á BUGL. Á
fundum fagteymis kemur yfirlækn-
irinn jafnframt á framfæri þeim
skjólstæðingum sem að hans mati
þyrftu að njóta meðferðar hjá
Barnaverndarstofu. Þetta samstarf
er stöðugt að verða nánara og Ólaf-
ur Guðmundsson yfirlæknir hefur
reynst stofunni haukur í horni við
úrlausn flókinna mála.
Af ofangreindu má ljóst vera að
Barnaverndarstofa leggur ríka
áherslu á að börn á hennar vegum
njóti geðheilbrigðisþjónustu þegar
það á við. Vandinn er hins vegar sá
að geðheilbrigðisþjónusta barna á
Islandi er afar veikburða svo oft er
ekki unnt að fá þá þjónustu sem
börnunum ber. Þessu eru ítarlega
gerð skil í skýrslu geðstefnunefnd-
ar, sem afhent var heilbrigðisráð-
herra nýlega. Þar er að fínna merk-
ar tillögur um eflingu geðheilbrigð-
isþjónustu fyrir börn og unglinga.
Væri ekki nær að þeir sem bera
hag málaflokksins fyrir brjósti
legðu sitt á vogarskálarnar til að
vinna þessari stefnu fylgi, heldur
en bíta í hælana á þeim sem gera
sitt besta til að veita börnum þá að-
stoð sem unnt er við ríkjandi að-
stæður?
Höfumlur cr forstjóri
Bnrmi vcrn dnrs tofu.
ÉG get ekki orða
bundist.
Get ekki setið þegj-
andi þegar mér berast
slæmar fréttir frá
minni ástkæru heima-
byggð. Þessar fréttir
segja, að nú fækki fólki
í Snæfellsbæ. Og þegar
ég nýverið heimsótti
þann stað, blasti við
sjónum nokkuð, sem
kom mér á óvart. Það
standa auð og yfirgefin
hús í Ólafsvík. Hús
með stórum spjöldum í
gluggum, þar sem þau
eru auglýst til sölu.
Eitt sinn vildi fólk svo
gjarnan eiga heima í Ólafsvík og á
Hellissandi. í stórum hópum fluttist
fólk undir Jökul, af því að þar var
lífsbjörgina að fá. Lífsbjörgina sem
fólst fyrst og fremst í fiskfanginu,
því undir Jökli er að finna bestu og
gjöfulustu fiskimið í heimi. Og þessi
fiskimið eru þarna svosem ennþá og
eru jafnvel gjöfulli en þau hafa
nokkru sinni verið. Og nú er þessi
byggð orðin mun betur í sveit sett,
en hún var. Þar er bættum sam-
göngum fyrir að þakka. Nú er ekki
meira en tveggja tíma akstur, á
góðum degi, frá Reykjavík og undir
Jökul.
En í dag ber skugga yfir Snæ-
fellsjökul.
Byggðamál
Ef byggðin undir Jökli
fengi að dafna með eðli-
legum hætti og jafn-
ræði fengi að vera með
fólki, segir Grétar
Kristjónsson, þá hafið
þið ekkert að sækja til
Reykjavíkur.
Þessi skuggi er ákvörðun misvit-
urra manna sem hafa löggjafarvald.
Þeir hafa ákveðið að hin fengsælu
mið undir Jökli skuli vera í einka-
eign. Þeir hafa dregið markalínu
milli afkomenda hinna gengnu sæ-
víkinga sem byggja þetta ægifagra
land. Einn skal vera lénsherra -
annar þræll. Ekkert skilur þessa
menn að annað en það, að þeir sem
nú eiga fiskimiðin, þeir voru svo
heppnir að eiga fiskibát á ákveðnum
tíma. Þessir heppnu menn, sem eiga
auðlindina, sem dró fólk úr ýmsum
áttum, virðast ekkert hafa til henn-
ar unnið, frekar en aðrir. Jafnvel
eru þess dæmi, að lögfræðingar í
Reykjavík, sem aldrei hafa migið í
saltan sjó, þeir eigi nú bát undir
Jökli, og þar með einkarétt á fiski-
miðunum - auðlindinni sem er und-
irstaða mannlífsins í landi sólarlags-
ins. Þessum bátum er síðan róið til
fiskjar, af dugandi sjómönnum - af-
komendum víkinganna fornu. Af-
komendum þeirra sem skópu vel-
sældina. Þeirra manna sem með
dugnaði sínum og seiglu gerðu
garðinn frægan. Afkomendur þeirra
eru nú þrælar þemra
sem af einhverjum
ástæðum, góðum eða
slæmum, eiga nú ein-
hverja peninga að ráði.
En nú kemur það
sem mér þykir merki-
legast vai’ðandi þessa
löggjöf, sem er óðum
að leggja margar fagr-
ar og auðugar byggðir í
auðn:
Hæstiréttur dæmdi
nýverið svo, að þessi
löggjöf væri brot á
stjórnarskránni.
Hæstiréttur landsins
lítur svo á, að meiri-
hluti alþingis brjóti
jafnræðisreglu stjómarski'árinnar á
þegnunum.
Svo mörg voru þau orð.
Þetta, sem hér um ræðir, er auð-
vitað hlutur sem því miður er alltaf
og ævinlega að gerast í heiminum.
Harðstjórar heimsins leggja undir
sig auðlindir landanna, meðan þjóð-
irnar búa við kröm og neyð. En
þessir herrar þurfa ráð, sem ekki
virðist þörf á hér. Þeir beita her-
valdi. En meðan þetta gerist og
andmælendur valdníðslunnar eru
teknir af lífi eða fangelsaðir, annars
staðar í heiminum - þá er annað
uppi á teningnum hér á landi. Þo-
lendur stjómarskrárbrotanna gera
sér lítið fyrir og kjósa þessi ósköp.
Eins og ekkert sé ganga svínbeygð-
ir sævíkingar undir Jökli að kjör-
borðinu og greiða kúgurum sínum
atkvæði. Mér skilst að stuðningur
við ríkisstjórn íslands hafi aukist,
frekar en hitt, þegar áfellisdómur
hæstaréttar var kveðinn upp. Og
líkt og Neró lék á hörpu, meðan
Rómarborg brann, þá situr Davíð
Oddsson og yrkir sálma, meðan
byggðin undir Jökli bíður afhroð.
Ibúum þessa svæðis hefur verið
stillt upp í tvær andstæður sem ger-
ir þá ósátta hvern við annan. Sumir
eiga fiskimiðin - aðrir eru réttlausir
og mega ekki sækja sjóinn nema í
umboði einhvers annars.
Og nú vil ég beina orðum mínum
beint til sveitunga minna undir
Jökli:
Hversu lengi ætlið þið að láta
þetta viðgangast? Ólsarar og Sand-
arar, sem lömdu hvor annan í ómeg-
in, svona af því að þeim þótti bara
svo gaman að slást. Ætlið þið að
láta allt þetta gerast baráttulaust?
Hvergi á Islandi er náttúrufegurðin
meiri en undir Jökli. Hvergi er víð-
áttan meiri og sólarlagið fegurra.
Hvergi er auðveldara að Iifa auðugu
og gefandi lífi, enda hef ég nýverið
sannreynt, það sem ég svosem vissi,
að í Snæfellsbæ býr listamaður í
öðru hverju húsi. Ég átti þess kost
að sækja menningarviðburð í Röst,
þar sem hver snillingurinn á fætur
öðrum kom á svið og sló í gegn. Og
viku síðar var sú saga endurtekin í
Klifí í Olafsvík. Þetta segir mér,
ásamt mörgu öðru, að ef byggðin
undir Jökli fengi að dafna með eðli-
legum hætti og jafnræði fengi að
vera með fólki, þá hafið þið ekkert
að sækja til Reykjavíkur. Og þótt
Esjan sé að vísu fögur, þá stenst
hún ekki samanburð við Jökulinn,
sem ég sé í góðu skyggni í blámóðu
út um gluggann minn.
Grétar Kristjónsson
Byrjendanámskeið
í karate að hefjast.
Upplýsingar í síma 551 4003
www.itn.is/thorshamar
f \
BIODROGA
snyrtivörur
Fréttagetraun á Netinu
^mbl.is
Við Breiðafjörð
A Breiðafirði bára rís í vindi
og berst um langan veg til fjörusanda;
eldgömul fjöll mót Ægi sjálfum standa,
Utnesið bláa skartar Jökultindi.
Minn hugur ber mig heim til æskuslóða
og hér var borinn drengur ungur forðum,
og mætti ég því mæra þig í orðum,
þú mikla, góða móðir ungra ljóða.
Úrsvali breiður, blástu lengi - lengi,
ljúfsárum trega fylltu hugann draumi,
þegar ég hugsa heim í ríki þitt.
Leiktu sem forðum létt á þýða strengi,
lýriskan draum í sjávarfallastraumi.
Eldbrunnar strendur, eru landið mitt.
Höfundur er rithöfundur.