Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_______UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR____
Samfylkingin farveg'ur
hugsjóna nútímans
SAMFYLKINGIN
er komin af stað og
skriðþunginn mikill
strax í upphafi. Fimm
eða sex prófkjörsþátt-
takendur opnuðu
kosningaskrifstofur
um helgina. Alls staðar
.'var krökkt af fólki,
þrátt fyrir dýpstu og
kröppustu lægð í
manna minnum. Ahugi
almennings á prófkjör-
inu sýnir að kosning-
arnar í vor verða
spennandi. Samruni
þeirra afla, sem að
framboðinu standa
sannar að hér er fólk
að verki sem vill breyta til, svara
kalli tímans og hlusta á kjósendur.
Kjósendur í vor eiga í fyrsta sinn í
sögu lýðveldisins aðeins um tvennt
að velja. Kjósendur geta valið sam-
einað og þrekmikið afl þeirra sem
vinna að frelsi og jöfnuði eða flokk
^peirra manna sem telja það heppi-
legast til framfara að standa kjur
eins og steinn. Hóglífið hefur til
dæmis dregið svo duginn úr núver-
andi stjómarherrum að þeir þora
ekki að láta reyna á margrómaðar
vinsældir sínar í opnu prófkjöri. Ef
ánægja fólks með stjómarherrana
er svona mikil, hversvegna má það
ekki láta hana í ljós í opnu próf-
kjöri? Hvernig á fólk að trúa því að
þessir menn nenni að vinna fyrir
hag þess þegar þeir nenna ekki að
Xierjast fyrir pólitískri framtíð
sinni, heldur tryggja sér með valdi
örugg sæti á fremsta bekk án tillits
til vilja flokksfélaga sinna? Virð-
ingarleysi stjómarherranna gagn-
vart borgurum og samferðamönn-
um birtist augljósast í
því að þeirra eigin
lagabrot em snar-
hendis gerð lögleg
með einni lagasetn-
ingu eftir aðra og
framvörpum þrykkt í
gegnum þingið án um-
ræðu eins og hálendis-
framvarpinu og
gagnagrannsfrum-
varpinu.
Mesta ógn sem
steðjar að íslenskri
menningu í dag er
virðingarleysi fyrir
mönnum og umhverfi.
Raunveraleg mark-
mið í pólitík snúast
ekki um peninga, hagræðingu,
sparnað, ávöxtun fjár og stöðug-
leika á fjármagnsmarkaði. Það eru
sjálfsagðir og eðlilegir hlutir í dag-
legu lífi siðaðra manna. Raunveru-
Raunveruleg markmið í
pólitík, segir Stefán
Benediktsson, snúast
ekki um peninga.
leg pólitísk markmið snúast um
frelsi og jafnrétti allra þegna til að
lifa lífi sínu með fullri reisn og
varðveislu þess umhverfis sem við
berum ábyrgð á. Velferðarríkið er
ekki óskhyggja eða draumur. fs-
lendingar era í hópi ríkustu þjóða
heims. Við búum við mikið góðæri
en samt er vegið að velferð og sam-
hug. Aðför að velferðarríkinu er
aðfór að menningu okkar. Það er
bágbylja að velferðarríkið sé baggi
á þjóðinni. Velferðarátgjöld á Is-
landi eru helmingi lægri en hjá
þeim þjóðum sem við beram okkur
saman við og sumar þessara þjóða
eiga engar auðlindir og allar þurfa
þær að halda úti her.
Það er blettur á menningu okkar
að banna öryrkjum og öldruðum að
njóta þeirrar sjálfsvirðingar sem
felst í að nýta hæfileika sína í
starfi. Það er blettur á menningu
okkar að refsa öryrkjum og öldrað-
um fyrir að vilja vera nýtir sam-
borgarar. Það er blettur á menn-
ingu okkar að eiga engin úrræði
fyrir starfsfólk sem hrekst úr
vinnu vegna „hagræðingar". Það er
blettur á menningu okkar að gera
foreldram ókleift að vera samvist-
um við börn sín samtímis og þau
koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Það er blettur á menningu okkar
að ætla að rásta viðkvæmu lífríki
norðan jökla til að byggja álver
fyrir menn sem mega ekki byggja
það heima hjá sér. Byggjum vel-
ferðarríki þar sem einstaklingur-
inn og reisn hans er í öndvegi.
Tryggjum frelsi og rétt allra til
mannsæmandi lífs. Varðveitum
jafnrétti og samstöðu, órjúfanlegan
þátt menningar okkar. Tökum
höndum saman og nýtum náttúra
okkar þannig að ekkert fari til
spillis. Stöndum vörð um umhverfi
okkar, því við fáum aldrei annað
land. Við eigum val. Veljum það
sem er menningu okkar til fram-
dráttar og höfnum því sem ógnar
henni. Veljum velferð fólks og
verndun umhverfis.
Höfundur er arkitekt og þjóðgarðs-
vörður og tekur þátt íprófkjöri
Samfylkingar í Reykjavík á vegum
Alþýðuflokksins
Stefán
Benediktsson
Samfylking í þágu jafn-
réttis og kvenfrelsis
NÚ STEFNIR í
prófkjör Samfylking-
arinnar í Reykjavík
þann 30. janúar og í
Reykjanesi þann 6.
janúar. Það er mér
mikið fagnaðarefni að
samkomulag hefur
tekist um að stofna
samfylkingu í þágu
jafnaðar, félagshyggju
og kvenfrelsis eins og
að var stefnt.
Það er forvitnilegt
að hugleiða stöðu jafn-
réttis kynjanna á ís-
landi á þessum tima-
mótum í hitanum í
Suður-Afríku, þar sem
Vég var stödd í nokkra daga. Hér
kraumar enn óánægja þrátt fyrir
mikil umskipti. Væntingarnar eru
miklar og mörgum finnst framfar-
irnar of hægar. Robbin-eyja, þar
sem Nelson Mandela forseti var í
fangelsi í 27 ár, blasir við út um
gluggann og ferðamaðurinn er
minntur á þrælasölu og kúgun með
sögulegum minjum og listaverkum.
Þrátt fyrir 5 ára lýðræði hefur ekki
tekist að jafna þjóðartekjunum
réttlátlega og mismunun leynir sér
ekki.
-*■ Þó að aðskilnaðarstefnan hafi
grandvallast á kynþáttamismunun
þá er jafnrétti og mismunun kynj-
anna einnig áhyggjuefni margra.
Konur sem eru menntaðar kvarta
undan tvöföldu vinnuálagi og þjón-
ustuleysi vegna barna, á meðan
aðrar mega þola mjög lág laun eða
m^itvinnuleysi. Au-pair þjónustan er
umfangsmikil, enda hentar hún
bæði fjölskyldum þeirra kvenna
sem hafa atvinnu og
atvinnulausum stúlk-
um sem ekki eiga
margra kosta völ. Það
vakti athygli mína að í
Háskóla Höfðaborgar
■ starfar Rannsóknar-
stofa um lög, kynþætti
og kynferði og í dag-
blöðum er nú mikið
talað um að framgang-
ur kvenna í utanríkis-
þjónustu landsins sé
mjög góður. Þrátt fyr-
ir þessi jákvæðu merki
hafa fræðimenn héðan
áhyggjur af því að
draumurinn um jafn-
rétti þegnanna,
draumurinn um endurreisn á
grandvelli lýðræðis muni seint ná
til kvenna vegna þess að þær búi
Látum það ekki
verða örlög samfylk-
ingar A-flokkanna
og Kvennalista, segir
Guðný Guðbjörns-
ddttir, að standa sig
ekki í jafnréttis-
málum.
oft við mikið ofbeldi og kúgun
heima fyrir, stúlkur sæki síður
grannmenntun en piltar, og valda-
tilfærslan sem þegar hefur orðið
hafi ekki orðið til kvenna í sama
mæli og karla.
Síðastnefnda atriðið á einnig við
um nýju lýðveldi Austur-Evrópu.
Þar hafa kvenfrelsishreyfingar átt
erfitt uppdráttar og konurnar sem
börðust í mannréttindahreyfing-
um hurfu af sjónarsviðinu þegar
karlarnir mynduðu nýja valda-
kjarna. Svipuð gagnrýni er nú
orðuð við stjórn Blairs í Englandi,
sem margar konur bundu miklar
vonir við. Látum það ekki verða
örlög samfylkingar A-flokkanna
og Kvennalista að standa sig ekki
í jafnréttismálum. Eg hef tekið
þátt i að móta stefnuskrá Sam-
fylkingarinar á öllum vinnslustig-
um. Þar hafa jafnréttismálin skip-
að verðugan sess. Þó að vandinn
birtist öðruvísi á Islandi en í Suð-
ur-Afríku, eins og greint verður
frá í annarri grein, eru verkefnin
bæði ærin og brýn. Núverandi
stjórnvöld hafa viðurkennt brot á
jafnréttislögum í svari við fyrir-
spurn minni á Alþingi og lítið hef-
ur miðað í þeirra stjórnartíð við að
afnema launamun kynjanna.
Stjórnvöld þurfa að átta sig á fé-
lagslegri og þjóðhagslegri óhag-
kvæmni kynjamisréttis, og hafa
vilja til breytinga. Það hafa stjórn-
arflokkarnir ekki sýnt þrátt fyrir
fagrar áætlanir. Samfylkingin hef-
ur metnaðarfull áform í jafnréttis-
málum. Því er mikilvægt að í próf-
kjörinu framundan verði þeim
tryggð seta á Alþingi sem setja
kvenfrelsi og jafnrétti þegnanna í
víðustu merkingu þess orðs á odd-
inn.
Höfundur er þingkona Kvennalist-
ans og þátttakandi íprófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavik.
Guðný
Guðbjörnsdóttir
Prófkjör
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
Arnbjörgu
Sveinsdóttur
í 1. sæti
Kristín Þóra Garðarsdóttir,
Smárahvammi 3, Fellahreppi, skrifar:
í STÖRFUM
sínum sem sveit-
arstjórnar- og al-
þingismaður hefur
Arnbjörg Sveins-
dóttir sýnt að þar
fer traust kona
sem eflst hefur að
þekkingu til að
gegna forystuhlut-
verki innan Sjálf-
stæðisflokksins. Aralöng afskipti
hennar af sveitarstjórnarmálum
hafa gefið henni innsýn í þarfir
fólks og atvinnulífs í fjórðungnum.
Sem þingmaður á Alþingi Islend-
inga hefur hún m.a. setið í fjárlaga-
nefnd, menntamálanefnd og félags-
málanefnd og þar hefur hún aflað
sér þeirrar reynslu sem forystu-
maður Sjálfstæðisflokksins á Aust-
urlandi þarf að hafa. Málflutningur
Ai'nbjargar einkennist af ki’afti,
þekkingu og reynslu sem sýnir að
hún er tilbúin að takast á við og
nýta þau verkefni og tækifæri sem
kjördæminu bjóðast. Kynni mín af
Arnbjörgu segja mér að þar fer
sterk persóna sem hefur mikla
löngun til að vinna af krafti og
skynsemi fyrir hag sinna umbjóð-
enda.
Eg vil hvetja alla Austfirðinga til
að fjölmenna í prófkjörið og
tryggja Sjálfstæðisflokknum á
Austurlandi trausta forystu í kosn-
ingunum í vor. Kjósum Arnbjörgu
Sveinsdóttur í fyrsta sætið á D-
lista.
►Meira á Netinu
Styðjið
Aðalstein í
annað sætið
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri Bændasamtaka Islands, skrifnr:
AÐALSTEINN
Jónsson í Klaust-
urseli gefur kost á
sér í annað sæti á
lista Sjálfstæðis-
flokksins í Austur-
landskjördæmi.
Eg leyfi mér,
þótt utan frá sé, að
skora á þátttak-
endur í prófkjör-
inu á laugardaginn að styðja hann,
það styrkir listann. Það skiptir
máli, að samsetning hans endur-
spegli breytilega búsetu og at-
vinnuhætti í kjördæminu.
Aðalsteinn hefur fyrir löngu
áunnið sér traust stéttarbræðra
sinna, bæði heima fyrir og á lands-
vísu. Hann var um tíma formaður
Búnaðarsambands Austurlands og
er nú formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda. Hann er því í for-
ystusveit félagssamtaka bænda,
ódeigur en sanngjarn talsmaður
umbjóðenda sinna, og berst fyrir
framgangi atvinnulífs á lands-
byggðinni.
Búskapurinn í Klausturseli, og
sú nýbreytni í atvinnusköpun sem
þar er í gangi, sýnir að fólkið þar
gefst ekki upp fyrir aðsteðjandi
vanda, það berst til sigurs.
Aðalsteinn á erindi á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
►Meira á Netinu
Frestum ekki
framtíðinni -
veljum Albert
Sigurpáll Ingibergsson, kerfisstjóri,
Höfn, Hornafirði, skrifar:
VIÐ eram nú að
upplifa mestu
tæknibyltingu
mannkyns.
Ef Austfirðing-
ar ætla að ná til
sín bita af tækni-
kökunni þá þarf
trausta en jafn-
framt hugmynda-
ríka ráðamenn. Al-
bert Eymundsson hefur skilning á
mikilvægi menntunar og þekking-
ar. I prófkjöri sjálfstæðismanna á
Austurlandi hefur hann meira en
aðrir frambjóðendur lagt áherslu á
möguleika upplýsingatækninnar.
Nám, viðskipti, afþreying, ferða-
þjónusta og samskipti verða að
mestu tölvuvædd. Upplýsinga-
tæknin er forsenda þess að ná við-
skiptalegu forskoti í framleiðslu-
greinum, viðskiptum og þjónustu-
greinum. Upplýsingatæknin sem
slík er einhver arðbærasta atvinnu-
starfsemi sem íyrirfinnst sé rétt að
verki staðið.
Eg vil því skora á ungt og fram-
sýnt fólk að velta þessum hlutum
fyrir sér. Kjósum Albert í fyrsta
sæti í prófkjöri sjálfstæðisfólks á
Austurlandi því við höfum ekki efni
á að fresta framtíðinni.
► Meira á Netinu
Kjósum
Arnbjörgu i
efsta sætið!
Emma Tryggvadóttir Fagrahjalla 3
Vopnafirði skrifar:
Á laugardaginn
velja austfirskir
sjálfstæðismenn
forustusveit sína
fyrir næstu kosn-
ingar. Hart er
barist um 1. sæti
listans en í það
sæti þurfum við
að setja okkar
sterkasta fram-
bjóðanda. Arnbjörg Sveinsdóttir
hefur verið þingmaður okkar
Austfirðinga sl. 4 ár og starfað
m.a. í þremur mikilvægum nefnd-
um þ.e. fjárlaga-, mennta- og fé-
lagsmálanefnd. Auk þeirrar dýr-
mætu reynslu sem hún hefur afl-
að sér á Alþingi hefur hún víð-
tæka reynslu af sveitarstjórnar-
málum. Sem þingmaður hefur hún
ferðast um kjördæmið og kynnst
vel hagsmunamálum einstakra
byggðarlaga og unnið ötullega að
málum þeirra, verkefnin eru þó
enn næg og með þrautseigju og
dugnaði mun Arnbjörg áfram
vinna að málefnum okkar Aust-
firðinga.
Það er gott og hæfileikaríkt fólk
sem býður fram krafta sína í þessu
prófkjöri en í mínum huga er eng-
inn efi, ég met reynslu, þekkingu
og kraft Arnbjargar að verðleikum
og kýs hana í 1. sæti listans.
► Meira á Netinu
Kristín Þóra
Garðarsdóttir
Sigurgeir
Þorgeirsson
SigurpáU
Ingibergsson