Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 51
MINNINGAR
+ Sigfús Jónsscn
fæddist á Ær-
læk í Axarfirði 2.
febrúar 1930. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 14. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Halldóra
Gunnlaugsdóttir frá
Hafursstöðum í Ax-
arfirði, f. 11.10.
1893, d. 6.8. 1970,
og Jón Sigfússon
frá Ærlæk, f. 25. 1.
1887, d. 30.5. 1969.
Systkini Sigfúsar
eru Guðmundur Jónsson, f. 8.6.
1927, Svava Jónsdóttir, f. 4.8.
1928, og Oddný Rakel Jónsdótt-
ir, f. 20.2. 1936, auk fósturbróð-
ur, Sigurðar Antons Jónssonar,
f. 28.5. 1929.
Árið 1960 kvæntist Sigfús eig-
inkonu sinni, Erlu Sigurðardótt-
ur, f. 12. mars 1934, ljósmóður á
Síðari heimsstyrjöldin breytti
mörgu á íslandi. Skyndilega var ís-
land í hringiðu heimsatburða og
margra alda einangrun rofin með
hersetu erlends vamarliðs. Því
fylgdu margvísleg áhrif, ekki sízt
þau, að miklir fólksflutningar áttu
sér stað úr sveitum landsins í þétt-
býlið, þar sem næga atvinnu var að
fá og tækifærin blöstu við á öllun
sviðum. Það var því ekki að undra,
þótt unga fólkið streymdi suður.
Norður í Þingeyjarsýslu fylgdist
ungur drengur grannt með þessum
þáttaskilum og skynjaði breyting-
amar, ekki síst á tæknisviðinu, og
hann var reiðubúinn að ganga út á
vit ævintýranna.
Þetta var Sigfús Jónsson frá Ær-
læk í N-Þingeyjarsýslu, ungur efn-
ismaður sem sterkir stofnar stóðu
að. Upp úr 1950 réðst hann til
starfa hjá varnarliðinu á Keflavík-
urfiugvelli, en hóf fljótlega eftir það
störf hjá Sölu varnarliðseigna að til-
stuðlan Helga Eyjólfssonar, þáver-
andi forstjóra fyrirtækisins, og
stjórnaði innkaupa- og sölustjóra-
starfi hjá Sölu varnarliðseigna alla
fæðingardeild
Landspítalans. For-
eldrar hennar voru
Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, f. 1910, d.
1966, og Sigurður
Ágúst Þorláksson, f.
1905, d. 1977. Börn
Sigfúsar og Erlu
eru tvö. Þau eru: 1)
Jón Sigfússon, f. 2.5.
1961, framkvæmda-
sljóri. Eiginkona
hans er Hulda Mar-
ía Mikaelsdóttir rit-
ari og eiga þau
þrjár dætur, Hildi,
Huldu og Erlu Maríu. 2) Inga
Dóra Sigfúsdóttir, f. 13.7. 1967,
félagsfræðingur. Eiginmaður
Ingu Dóru er Símon Sigvalda-
son skrifstofustjóri og eiga þau
tvær dætur, Erlu og Sonju.
títför Sigfúsar fer fram frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
tíð síðan - eða um hálfrar aldar
skeið.
Innflutningur bifreiða og vinnu-
véla frá varnarliðinu og verktökum
á Keflavíkurflugvelli skipti gríðar-
lega miklu máli á árum áður meðan
innflutningsfrelsi var takmarkað og
höft ríkjandi. Stórar vinnuvélar og
bandarískar bifreiðar vora fáséðar
og því eftirsóttar hjá Sölu vamar-
liðseigna. Sömuleiðis vora mann-
virki á vegum varnarliðsins, sem af-
hent vora íslenzkum yfirvöldum eft-
irsótt, ekki sízt úti á landsbyggð-
inni, þar sem bændur nýttu þau
undir hlöður og geymslur.
Mun vandfundinn sá Islendingur,
sem þekkti betur til umsvifa vam-
arliðsins hvað umsýslu eigna þess
og einstaklinga, sem störfuðu á veg-
um varnarliðsins, varðaði. Má nærri
geta, að einstaklingur, sem stjórnar
samskiptum milli Islendinga og
Bandaríkjamanna á þessu sviði,
þarf að sýna sanngirni og lipurð í
starfi. Þeim eiginleikum var Sigfús
Jónsson ríkulega búinn og minnist
ég þess ekki, að nein klögumál af
hálfu varnarliðsmanna hafi komið
upp, sem rekja mætti til ósanngirni
af hans hálfu. Þvert á móti fékk
hann góðar umsagnir viðsemjenda
sinna, án þess þó að slaka á kröfum
vinnuveitanda síns.
Sigfús Jónsson átti djúpar rætur
í N-Þingeyjarsýslu. Hann var mikill
náttúruunnandi og heimsótti æsku-
stöðvar sínar hvenær sem færi
gafst og gekk gjaman til rjúpna
ásamt syni sínum Jóni á þeim slóð-
um, þegar færi gafst.
tíngur kynnist Sigfús eftirlifandi
eiginkonu sinni, Erlu Sigurðardóttur
ljósmóður. Það var ást við fyrstu sýn
á síldarplani á Raufarhöfn. Sú ást
entist ævilangt. Samhentari hjón
vora vandfundin og hlýja þeirra og
ást á bömunum tveimur, Jóni og
Ingu Dóra, og bamabörnum var ein-
stök. Fyrir nokkram áram reistu
þau hjón myndarlegan sumarbústað
í Skorradal í Borgarfirði. Þar dvöldu
þau hjón löngum í faðmi fjölskyld-
unnar. Ég vissi að Sigfús hlakkaði til
eftirlaunaáranna í þeim unaðsreit,
sem Skomadalurinn og vatnið bauð
upp á. Úr því verður ekki, því miður,
en í anda sé ég hann fyrir mér kasta
flugunni á spegilsléttu vatninu á
heiðskíram degi, þar sem fjöllin, blár
himinn og vatnið sameinast í eitt.
Ég vil að leiðarlokum fyrir hönd
samstarfsfólks Sölu varnarliðseigna
þakka Sigfúsi fyrir trúmennsku og
framúrskarandi vel unnin störf á
liðnum árum. Hans er sárt saknað
af samstarfsmönnum og viðskipta-
vinum fyrirtækisins.
Blessuð sé minning Sigfúsar
Jónssonar.
Alfreð Þorsteinsson.
Elsku Sigfús frændi. Ég sé þig
núna fyrir mér með hlýlegt brosið
og væntumþykjuna í augunum og
þannig mun ég alltaf muna eftir
þér. Eg mun líka alltaf minnast þín
fyrir velvild þína í garð annars fólks
og hversu fallega þú alltaf talaðir
um allt og alla. En þó að þú hafir
kvatt okkur í bili þá ertu ekki farinn
frá okkur því að við hugsum til þín
öllum stundum, hugsum hlýtt til þín
með þakklæti fyrir að hafa þekkt
þig og átt þig að.
Elsku Erla, Nonni og Inga Dóra,
ykkar sorg er stærst. Megi góður
Guð veita ykkur og öðram í fjöl-
skyldunni styrk og æðraleysi.
Ásthildur frænka.
SIGFÚS
JÓNSSON
MARÍA
HAFLIÐADÓTTIR
+ Jóhanna María
Hafliðadóttir
fæddist í Flatey á
Breiðafirði 6. janú-
ar 1920. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi liinn 12. janúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Lágafellskirkju
20. janúar.
Mig langar með fá-
einum orðum að minn-
ast hennar Maju
ömmusystur minnar.
Mér fannst sárt að fá fréttir af láti
hennar, og kannski treginn mestur
vegna þess, að ég hafði ekki hitt
hana frænku mína alltof lengi. Þeg-
ar ég hugsa til Maju, stórglæsilegi’-
ar, með hrafnsvarta hárið sitt - sé
ég hana ýmist fyrir mér hressa og
káta á Laugateignum, bjóðandi góð-
gjörðir á báðar hendur, eða í mikl-
um hlátur- og söguham, með ömmu
og Petu í fermingunni minni. Nú
eru þær allar gengnar,
þessar þrjár konur,
sem mér fannst svo
ósköp vænt um. Það
var mér afskaplega
mikils virði, að þær
kæmu allar í ferming-
una mína, af því að ég
hafði aldrei hitt
skemmtilegri þrenn-
ingu samankomna.
Þær sögðu hver
annarri skrautlegri og
skemmtilegri sögur, og
gerðu allan búning
sagnanna ævintýri lík-
astan. Svo var annað
ævintýri að koma á Laugateiginn,
þar sem ég sá myn
dir af ótrúlegum dýram í fjarlægum
löndum, og hún Maja frænka eða
Bjössi frændi stóðu með á myndun-
um. Þetta fannst mér stórmerkilegt
fólk. Og þau áttu svo fallegt heimili
og marga hluti, sem lítilli stelpu
fannst svo undurgaman að skoða,
og það var aldrei bannað. En fyrst
af öllu átti öll þessi fjölskylda stór-
Formáli
minningargreina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn,
um foreldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks
hvaðan útfor hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að-
eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.
huga og hlýtt hjartalag, og því bera
afkomendurnir fagurt vitni.
Elsku frænka mín, nú ertu komin
á góðan stað og hittir hann Bjössa
þinn á ný, og þótt ég komist ekki
suður til að fylgja þér, þá verður þú
í hjarta mínu, með öllum hinum
yndislegu ættingjum mínum, sem
ég fékk þau forréttindi að kynnast
og eiga svo lengi, en samt alltof
stutt, en minningin er dýrmæt.
Elsku Halli, Steinunn, Hilmar,
Birna og fjölskyldur, megi algóður
Guð styrkja ykkur og vera með
ykkur öllum.
Steinunn.
Blómabwðin
Cackv*3sk<
,om
v/ FossvogsUi**i<jucjarð
Sími: 554 0500
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir, móðursystir, systir og amma,
ÞÓRUNN BJÖRGÓLFSDÓTTIR,
Stekkjarhvammi 66,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi miðviku-
daginn 20. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnar Halldórsson,
Ingibjörg Ingimundardóttir,
Ingimundur Guðmundsson, Oddný Sigrún Magnúsdóttir,
Ólafur Hafsteinn Einarsson,
Halldór Ragnarsson, Andrea Ó. Ólafsdóttir,
Björgvin Ragnarsson, Sigríður Jóhannsdóttir,
Gróa Ingimundardóttir
systkyni og barnabörn.
+
Móðir okkar,
BJÖRNFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð sunnudag-
inn 17. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar M. Einarsson,
Jóhann S. Einarsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR FRIÐFINNSSON,
Borgartanga 1,
Mosfellsbæ,
lést miðvikudaginn 20. janúar.
Friðfinnur Einarsson, Lilja Pétursdóttir,
Þórunn Ingibjörg Einarsdóttir, Vilhjálmur Bergsson,
Einar Óskar, Elías Örn, Hafsteinn
og Lilja Karlotta.
+
Vinur okkar,
HANNES GARÐARSSON,
Þormóðsgötu 20,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju föstu
daginn 22. janúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigþóra Gústafsdóttir,
Hinrik Hinriksson.
+
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÓLAFAR MATTHÍASDÓTTUR,
Kópavogsbraut 1 b,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
fimmtudaginn 14. janúar, fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, fimmtudaginn 21. janúar, kl.
13.30.
Stefán Svavars,
Þorsteinn J. Stefánsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Svavar Stefánsson, Auður B. Kristinsdóttir
og fjölskyldur.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
bróðir,
ÞÓRARINN MAGNÚSSON
kennari
frá Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum laugardaginn 23. janúar kl. 14.00.
Sigurður G. Þórarinsson, Kristbjörg U. Grettisdóttir,
Ásmundur J. Þórarinsson, Birna Ó. Jónsdóttir,
Linda, Curtis, Emil, Berglind, Lauga, Óskar, Beggi,
Bjartey, Bryndís Björk, Rebekka
og barnabarnabörn.
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/