Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 53
ELÍAS
ÞORKELSSON
+ Elías Þorkelsson fæddist í
Efri-Ey 16. janúar 1910.
Hann lést í Klausturhólum á
Kirkjubæjarklaustri 23. desera-
ber síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Fossvogskirkju
30. desember.
Elías Þorkelsson, íyiTum bóndi í
Nýjabæ í Meðallandi, var greindur
maður, varkár í orðum, forðaðist
fuliyrðingar um menn og málefni að
lítt athuguðu máli áður en hann tók
afstöðu eða myndaði sér skoðun.
Þegar hann hafði aldur til gekk
hann í ungmennafélag Meðallend-
inga en það var stofnað 1908 og var
meðlimur þess meðan hann var bú-
settur í sveitinni. Hann tók mikinn
þátt í störfum þess enda var hann að
upplagi mikill félagshyggjumaður
og fylgdi ákveðið manngildishugsjón
ungmannafélaganna. Sú afstaða
hans var mótandi þáttur til fylgis
hans við ýmis mál er rædd voru í
sambandi við framtíðarmál sveitar-
félagsins og þjóðarinnar í heild.
Framsóknarfélaginu léði hann
fylgi sitt og fylgdist náið með átök-
um á sviði stjórnmálanna og baráttu
launþeganna fyrir auknum réttind-
urn sínum og launum.
Ég minnist þess er ég var að al-
ast upp í Meðallandinu á bernsku-
og æskuárum mínum, að oft barst
talið að spádómum um hvaða starf
biði einstakra æskumanna og marg-
ar ástæður lágu til slíkra dóma. Það
var aldrei dregið í efa að Elías yrði
áhrifamaður í félagsmálum, a.m.k. í
sveit sinni.
Hann, eins og margir ungir menn
í Meðallandinu, kynntist félagsleg-
um störfum og viðhorfum til þeirra í
þeim héruðum þar sem þeir unnu,
einkum að vetrarlagi. Að fara til út-
vers var eins konar lausnarorð
ungra manna auk þess sem því
fylgdi nokkur fjárvon. Eh'as átti
samskipta og aðstoðar að vænta
suður með sjó þar sem fóðurbróðir
hans var og önnur skyldmenni ná-
komin. En það gat orðið ævintýri
líkast að komast á þann ákvörðun-
arstað. Leiðin var löng austan úr
Meðallandi og vestur á Reykjanes á
þeim árum. Oftast varð að ganga
langar leiðir með farangur sinn á
bakinu og hættur biðu í miðsvetrar-
veðrum og torsóttum vegum meðan
samgöngur voru á frumstigi. En út-
versmenn settu ekki fyrir sig erfið-
leikana sem kynnu að mæta þeim.
Að lokinni fór lék ánægjusvipur á
andlitum þeirra er þeir rifjuðu upp
minningar frá þessum ferðum.
Bemsku- og æskusveitin beið El-
íasar og búnaðarstörf þar. Árið
1935 fluttu þeir feðgarnir Þorkell og
Elías frá Efri-Ey og að Nýjabæ.
Olafur Ingimundarson, sem hafði
búið þar i 17 ár, brá þá búi sínu og
flutti tii Reykjavíkur með fjölskyldu
sinni. A þeim árum var sú stefna
ráðandi að nýta hverja jörð sem
losnaði í ábúð til búsetu. Það þótti
vel ráðið er þeir feðgamir Elías og
Þorkell fluttu að Nýjabæ. Fyrstu
tvö árin höfðu þeir bústýru sem
annaðist störfin jnnan bæjar svo
sem háttur var. Árið 1937 flutti til
þeirra dugnaðar- og myndarkonan
Sveinbjörg Ingibergsdóttir frá Mel-
hól, sem hafði þénað víða og hlotið
mikið lof fyrir dugnað og alhiða
myndarskap.
í janúar 1939 giftust þau Elías og
Sveinbjörg. Heimili þeirra varð
fljótlega þekkt fyrir gestrisni,
greiðvikni og myndarskap og leiðir
margra lágu til hinna ungu hjóna í
Nýjabæ.
Verkefnin sem biðu ungu hús-
bændanna vora margvísleg. Dag-
legar annir utanbæjar kröfðust
tíma húsbóndans, lagfæringar húsa,
viðhalds og endurbóta tækja og
margs annars sem mætti sívökulum
augum bóndans. Hann byggði rúm-
gott og þægilegt íbúðarhús að
nokkru til viðbótar við þau íbúðar-
hús sem fyrir voru frá búskaparár-
um fráfarandi bónda. Slátturinn
beið síns tíma með frumstæðum
tækjum sem varð að nýta þar sem
engjar voru að litlu leyti véltækar
og aldrei mátti slaka á eftirliti með
búfénaði og öflun fóðurs. Löngum
varð að hafa í huga takmörkuð fjár-
ráð svo nýtni varð allsstaðar að vera
í fyrirrúmi. Þótt húsmóðirin væri
dugleg og hagsýn og nýtti tímann
svo vel sem kostar var á fannst
henni að dagarnir liðu of fljótt.
Fjögur börn eignuðust þau hjónin á
árunum 1940-1953, sem öll komust
upp, nutu menntunar og starfa nú
að margvíslegum störfum sem þau
njóta fyrir álits vegna skyldurækni
og alhliða trúmennsku.
Það var margt sem beið í þágu
sveitarinnar og Elías var kallaður
til. Nokkur slík störf skulu nefnd
hér. Hann tók virkan þátt í starf-
semi Kaupfélags Skaftfellinga. Auk
þess að vera fastur viðskiptamaður
þess var hann fulltrúi félagsdeildar-
innar í sinni sveit á aðalfundum fé-
lagsins, en árlega var aðalfundur fé-
lagsins haldinn í Vík eða Kirkjubæj-
arklaustri. Þar kynntust tránaðar-
menn og fulltrúar félagsins nánar
er þeir ræddu framtíðarmál félags-
ins. Trúnaðarmaður Sláturfélags
Suðurlands í Meðallandinu var
hann um skeið, formaður Búnaðar-
félags Leiðvallarhrepps var hann í
átta ár. Hann var meðal stofnenda
Slysavarnadeildarinnar Happasæls
í Meðallandi og var mörg ár í stjórn
hennar, en hún var stofnuð 1939. I
hreppsnend var hann kosinn 1950
og var í nefndinni til þess er hann
flutti úr sveitinni. Þegar hér var
komið sögu hafði Élías kennt nokk-
urs sjúkleika um árabil sem gerði
honum ómögulegt að stunda búskap
svo þau hjónin ákváðu að bregða
búi og flytja til Reykjavíkur 1959
eftir 22 ára búskap í Nýjabæ. Síðan
þau fluttu þaðan hefur jörðin verið í
eyði.
Þau Eh'as og Sveinbjörg keyptu
íbúð í Nökkvavoginum þar sem þau
bjuggu um skeið en Elías vann dag-
launavinnu hjá útgerðarfyrirtækinu
Júpíter og Mars á Kirkjusandi. Þar
naut hann óskipts trausts vinnuveit-
anda fyrir dugnað og árvekni í
störfum. Þama kynntist hann af-
stöðu vinnufélaganna til baráttu-
mála verkalýðsfélaganna og sóknar
til bættrar launa og aukinna rétt-
inda á mörgum sviðum.
Á Kirkjusandi vann hann til þess
er hann var nær sjötugur. Meðan
þau hjónin héldu síðast saman
heimili bjuggu þau í bjartri og fal-
legri íbúð á Kópavogsbraut 16 þar
sem þau undu vel hag sínum, þrótt-
ur þeirra þvam smátt og smátt en
börn þeirra íylgdust náið með líðan
þeirra.
Sveinbjörg dó á sjúkrahúsi hér í
borginni 19. apríl 1996. Elías dvald-
ist síðustu árin í Elli- og hjúkranar-
heimilinu Klausturhólum á Kirkju-
bæjarklaustri en þar dó hann 23.
desember sl.
Þessir kæra sveitungar og vinir
eru horfnir. Ég minnist þeirra með
virðingu og þökk fyrir ótaldar sam-
eiginlegar ánægjustundir fyrr og
síðar, um leið og við hjónin vottum
börnum þeirra og fjölskyldum
dýpstu samúð okkar.
Ingimundur Ólafsson.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hólmgarði 9,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu-
daginn 14. janúar sl., verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 22. janúar
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birna Ingadóttir,
Guðmundur Ingi Ingason,
Guðmundína Ingadóttir,
Júlíus Ingason,
Bettý Ingadóttir,
Ástríður Ingadóttir,
Hulda Fríða Ingadóttir,
Sigurður Ingason,
Bragi G. Bjarnason,
Sigrún Pálsdóttir,
Þóra Árnadóttir,
Valgarð Reinhardsson,
Magnús Theodórsson,
Sigurbjörn Þorleifsson,
Sólrún Rögnvaldsdóttir.
t
Við þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
GUÐRÚNAR KORTSDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 50,
Reykjavík.
Matthías Matthíasson, Líney Sigurjónsdóttir,
Margrét Matthíasdóttir,
Hulda Matthíasdóttir, Jón Pétursson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð við fráfall og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KATRÍNAR KETILSDÓTTUR
frá Gýjarhóli,
Kópavogsbraut 1b.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
STEFANÍA AÐALSTEINSDÓTTIR,
Miklubraut 13,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 12. janúar sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 22.
janúar kl. 13.30.
Valgerður Jóna Sigurðardóttir, Hrafn Þórisson,
Ragnar Aðalsteinn Sigurðsson, Nanna Ragnarsdóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Stefán Sigurðsson, Helga Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR,
Engihlíð,
Vopnafirði,
verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju
laugardaginn 23. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður á Hofi.
Halldór Björnsson,
Þorgeir Hauksson, Guðbjörg Leifsdóttir,
Jóna Kristín Halldórsdóttir, Gunnar Smári Guðmundsson,
Björn Halldórsson, Else Moiler,
Ólafia Sigríður Halldórsdóttir, Þorsteinn Kröyer,
Gauti Halldórsson, Halldóra Andrésdóttir
og barnabörn.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
STEINDÓR J. BRIEM,
síðast til heimilis í Unufelli 27,
Reykjavík,
sem andaðist á dvalarheimilinu Ási aðfaranótt
sunnudagsins 10. janúar, verður jarðsunginn
frá Skálholti, föstudaginn 22. janúar, kl. 14.00.
Jarðsett verður á Torfastöðum.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl.
12.00. Komið verður við í Fossnesti, Selfossi, kl. 13.00.
Málfríður Jónsdóttir Briem,
Guðrún Sigríður Briem, Guðmann Þ. Karlsson,
Kristinn Geir Briem,
Jón Briem.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT DAGBJARTSDÓTTIR,
Höskuldarvöllum 19,
Grindavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 14. janúar, verður jarðsungin
föstudaginn 22. janúar kl. 14.00 í Grindavíkur-
kirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Esther Þórðardóttir, Einar Guðlaugsson,
Guðmundur Kjartansson, Bóthildur Sveinsdóttir,
Þórður Magni Kjartansson, Stígur Karlsson,
Eiríka G. Árnadóttir, Margrét Einarsdóttir,
Guðlaug Einarsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Sauðá,
Vatnsnesi,
lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga sunnu-
daginn 17. janúar.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju laugar-
daginn 23. janúar kl. 14.00.
Ellert Gunnlaugsson, Aðalheiður Jónsdóttir,
Jón Gunnlaugsson,
Sverrir Gunnlaugsson, Matthildur Birgisdóttir,
Þorgeir Gunnlaugsson, Þórunn Eiríksdóttir
og barnabörn.