Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
+ Guðmundur Ásgrímsson
fæddist í Hlíð í Hjaltadal 17.
maí 1913. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 11.
janúar síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Sauðárkróks-
kirkju 18.janúar.
Þótt fólk deyi lifa minningar hjá
þeim sem eftir lifa og hafa verið þeim
samferða á lífsbrautinni. Og nú þegar
Guðmundur frá Hh'ð er látinn
streyma minningar um huga minn, en
mér finnst ég geti ekki hugsað til hans
öðruvísi en sjá bosmilt andlit konu
hans fyrir mér um leið. Þau voru svo
yndislega samrýnd, áttu svo margt
samstillt þessi hjón, sem bæði voru
myndarleg í sjón og raun. Hjá þeim
var allt snyrtilegt jafnt utan- sem inn-
anhúss, en þó var hreinlyndið þeirra
aðalsmerki, maður vissi nákvæmlega
hver var meining þeirra hverju sinni
hvort heldur var í orði eða verld. Bæði
voru friðarsinnar en létu þó ekki
ganga á hlut sinn.
Búið var ekki stórt en hirt af alúð
og nærgætni. Þau þurftu því ekkert
að sækja til annarra, voru fremur
veitendur en þiggjendur. Það þurfti
svo sannarlega enginn að greiða
skuldir Hlíðarhjóna.
Þau Hlíðai'hjón voru náskyld og
bæði skyld manninum mínum og öll
höfðu alist upp í dalnum sínum,
Hjaltadal, og voru náin sambönd þar
á milli heimila þeirra alla tíma. 127 ár
naut ég þess að búa á næsta bæ við
þau, það voru hreinustu forréttindi,
lán mitt.
Á jólum og öðrum tyllidögum var
jafn sjálfsagt að koma saman eins
og dagur kemur á eftir nóttu og
auðvitað látlaus samgangur þess á
milli. Börn þeirra urðu vinir okkar
hjónanna og barna okkar og eru æ
síðan. Bæði voru hjónin söngelsk og
félagslynd, höfðu gaman af öllu sem
glæddi á heilbrigðan hátt, fylgdust
vel með lands- og heimsmálum.
Þegar húsbruni varð hjá okkur
nábúum þeirra haustið 1979 reynd-
ust Hjaltdælingar og yfirleitt Skag-
fírðingar, auk annarra vina og ætt-
ingja, okkur ólýsanlega vel og ekki
brást Hlíðarfjölskyldan fremur
venju og hlúði að okkur á allan
máta. Við ákváðum að flytja vorið
1980. Seldum allt og fluttum til
Akureyrar. Þá ákváðu Hlíðarhjónin
einnig að kveðja dvöl í dalnum sín-
um, brugðu búi og fluttu á Sauðár-
krók. Þar keyptu þau einbýlishús á
Fornósi 8 og voru þar uns Friðfríð-
ur lést árið 1992, hinn 15. júlí. Eftir
það dvaldist Guðmundur eitt ár hjá
Margréti dóttur sinni og fjölskyldu
hennar á Sauðárkróki en heilsan fór
að láta sig hjá honum svo hann sótti
um dvöl á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki og var þar fímm síðustu ár
sín.
í huga mér eru minningar ótelj-
andi en þær á ég bara og mín fjöl-
skylda til að ylja okkur við. Ég lýk
þessu því með þakklæti og virðingu
fyrir liðnar samverustundir og bið
niðjum Hlíðarhjóna frá Hjaltadal
allrar blessunar um ókomin ár.
Fjóla Kr. Isfeld.
+ Ingibjörg Hall-
dórsdóttir var
fædd í Sauðholt í
Holtum í Rangár-
vallasýslu 28. apríl
1903. Hún lést á
Droplaugarstöðum
17. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Þórdís
Jósepsdóttir frá Ás-
inundarstöðum og
Halldór Halldórs-
son frá Sauðholti.
Börn þeirra auk
Ingibjargar voru:
Katrín, Sesselja,
Halldór, Gísli, Sveinbjörg, Sig-
ríður, Jósep, Guðrún, Jón, Þór-
dís, Karl, Halldóra hálfsystir
þeirra og Guðlaug uppeldissyst-
ir þeirra.
Ingibjörg giftist Þorbergi
Magnússyni leigubílstjóra frá
Hólmfastkoti í Innri Njarðvík,
Mig langar að kveðja þig, amma
mín, með örfáum orðum. Eg vil
þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar í gegnum tíðina. Margs
er að minnast er hugsað er til
baka. Hlýtt verður mér um
hjartarætur er ég læt hugann
reika allt aftur til þess tíma er ég
var drengur og var að koma í
heimsókn. Hvað það var gott að
koma inn úr nepjunni, setjast í
eldhúskrókinn og fá heitt kakó og
f. 7.7. 1897, d. 1948.
Börn Ingibjargar
og Þorbergs eru: 1)
Þórdís, gift Gunn-
ari Guðjónssyni,
eiga þau þrjár dæt-
ur: Ingibjörgu, Guð-
nínu og Þórdísi. 2)
Aðalsteinn Jón,
kvæntur Stellu
Stefánsdóttur og
eiga þau þrjá syni:
Þorberg, Aðalstein,
og Stefán.
Ingibjörg starfaði
hjá Skattstofu
Reykjavíkur í
íjöldamörg ár. Hún var einn af
stofnendum Sjálfstæðisfélags-
ins Hvatar.
Ingibjörg verður jarðsungin í
dag frá Dómkirlyunni og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarð-
sett verður í Fossvogskirkju-
garði.
pönnukökur með rjóma. Spjalla
um lífið og tilveruna og vera síðan
kvaddur með vettlingum eða
sokkum sem þú prjónaðir. Þú
varst alltaf tilbúin með nýja
vettlinga vegna þess að ég átti það
nú til að týna þeim. Einnig vil ég
þakka þér fyrir það hversu góð þú
varst börnunum mínum og henni
Önnu Maríu. Þú varst alltaf traust,
hafðir ákveðnar skoðanir á
hlutunum og í brjósti þér barstu
umhyggju fyrir þínum nánustu.
Eg veit að þér líður betur núna
eftir erfíð veikindi sem hafa herjað
á þig síðustu ár. Það lýsir þér best
að þú varst ómöguleg þegar gest
bar að garði og þú sagðist ekkert
eiga almennilegt með kaffínu þó þú
værir rúmliggjandi.
Guð blessi minningu Ingibjargar
Halldórsdóttur, ömmu minnar.
Aðalsteinn.
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
MINNINGAR
GUÐMUNDUR
ÁSGRÍMSSON
INGIBJORG
HALLDÓRSDÓTTIR
RAOAUGLVSIIMGAR
ATVIIMIMU-
AUGLÝSIIMGAR
Sýslumaðurinn í
Reykjavík
óskar að ráða starfsmann í almenn skrifstofu-
störf og símavörslu. Reynsla af slíkum störfum
æskileg. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
SFR og fjármálaráðherra.
Umsóknir berist skrifstofu sýslumannsins í
Reykjavík í Skógarhlíð 6,150 Reykjavík.
Afgreiðslustarf
Kvenfataverslun í Kringlunni óskar eftir að ráða
ábyggilegan starfskraft á aldrinum 25—45 ára.
Vinnutími frá 12—18 og 18.30. Umsækjendur
sendi umsóknirtil afgreiðslu Mbl. merktar
„Framtíðarstarf" fyrir 26. janúar.
Kaffi Thomsen
Okkur bráðvantar starfsfólk í eftirtalin hlutastörf:
• Barþjóna. • í uppvask.
• Þjóna. • í fatahengi.
Upplýsingar fást á Kaffi Thomsen eftir kl. 16.
Förðunarfræðingar
Vantar förðunarfræðinga strax.
Erum að fá frábæra snyrtivörulínu.
Svör óskast send til afgreiðslu Mbl., merkt:
„F - 7376".
Byggðaverk ehf.
Óskum eftir að ráða smiðahóp, vanan móta-
uppslætti. Vantar einnig vanan kranamann
> á byggingakrana og verkamenn.
Upplýsingar í síma 565 5261.
TIL SÖLU HFUIMD.R/ MANNFAGNADUR
Veitingahús
Eitt af bestu veitingahúsum (matsala) mið-
borgarinnar ertil sölu vegna sérstakra að-
stæðna. Hér er um að ræða einstakt tækifæri
með vaxandi möguleikum. Góð afkoma.
Einungis ákveðnum fyrirspurnum svarað á
skrifstofu Fasteignasölu Reykjavíkur ehf.
Fasteignasala Reykjavíkur ehf.,
Suðurlandsbraut 46, sími 588 5700.
FÉLAGSSTARF
Félag sjálfstæðis-
manna í Grafarvogi
heldurfund í Hverafold 1—3 um kosningarmál í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.
Stjórnin.
LJTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
Arðbær þátttaka í vöru-
sýningum!
Námskeið á Hótel Sögu, Sal-A, föstudaginn
22. janúar kl.13:30. Sérstakurfyrirlesari Brian
Perkins, framkvæmdastjóri hjá Diversified
Business Communications fjallar um gildi
vörusýninga. Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá Útflutningsráði í síma 511 4000.
Útflutningsráð íslands,
Sýningarsvið.
AT VINIMUHÚSNÆÐI
SM A AUGLYSIIMG AR
Hugsar þitt fyrirtæki
til framtíðar?
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 s 1791218 = Br.
1ÍI....1......11,1.1,1,1411,1.1.111 LIIÉ
d=L =LL =LU (
=Œ
Nú eru að hefjast byggingarframkvæmdir við
þessa glæsilegu skrifstofubyggingu, á einum
besta byggingarstað, miðsvæðis í Reykjavík.
Þetta erfyrsta nýbyggingin á s.k. „lykilreit",
fyrir framsækna starfsemi, sem þarfnast stað-
setningar nálægt miðborginni. Húsið, sem hér
um ræðir, er u.þ.b. 1.900 fm að stærð. Það er
nýtískulega hannað og er möguleiki fyrir fram-
sækin fyrirtæki að hafa áhrif á endanlegt skipu-
lag hússins á fyrsta framkvæmdastigi.
Landsst. 5999012119 VIII
I.O.O.F. 11 s 1791218V2 = 9.I*
Hjálpræðis-
herinn
Kírkjustræti 2
Kl. 20.30 Samkoma,
samkirkjuleg bænavika.
Finn Eckhoff, forstöðumaður Að-
ventsafnaðarins, talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÉSAMBAND (SLENZKRA
____-KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Upplýsingar veitir Brynjar Harðarson á skrif-
stofu Húsakaup.
Háaleitisbraut 58
I kvöld kl. 20.30, Úr hundrad
ára sögu KFUM.
Umsjón meö fundinum og hug-
rtLAC éRsmCSASALA ,® 530 1500
EIGNASALAN ÍTíHUSAKAUP
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Fax 530 1501 • www.husakaup.is
leiðingu hefur Þórarinn Björns-
son. Upphafsorð: Árni Sigurjóns-
son. Upplestur: Hermann Þor-
steinsson.
Allir karlmenn velkomnir.
KENNSLA
Þýskunámskeið Germaniu
eru hafin. Boðið er upp á byrj-
endahóp, framhaldshópa og
taihópa.
Uppl. í sima 551 0705 frá kl.
16.30-17.45.- en leggja má skila-
boð inn á símsvara frá kl. 12—21
Námskeiðin eru öllum opin.
EINKAMÁL
Vill kynnast íslenskri konu
Bandarískur, myndarlegur mið-
aldra maður, í góðu starfi, vill
kynnast fallegri, gáfaðri og að-
laðandi íslenskri konu, (aldur
21—39), með vinskap, giftingu
og fjölskyldu í huga. Getur heim-
sótt hana á íslandi (á vini hér).
Sendu svar merkt: „B — 7316" á
afgreiðslu Mbl. með lýsingu á
sjálfri þér, áhugamálum, metnaði
og framtíðarplönum.
Aðsendar greinar á Netinu
Vg'/ . ALLTAP mb l.is
eiTTHVTAÐ /MÝn