Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 55
FRETTIR
100.
stjórnar-
fundur
SKB
100. STJÓRNARFUNDUR Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra bama
var haldinn á skrifstofu félagsins
föstudaginn 8. janúar síðastliðinn. I
tilefni þeirra tímamóta ákvað
stjórnin að fjárfesta í myndfunda-
búnaði til notkunar á heimilum
barna með krabbamein sem ekki
þurfa að liggja inni á sjúkrahúsi en
komast engu að síður ekki í skól-
ann.
Síðastliðin tvö ár hefur félagið
unnið að verkefni sem miðar að því
að koma til leiðar viðhaldi náms og
félagslegra samskipta nemenda
sem þurfa að vera fjarri skóla sín-
um sökum veikinda eða slyss með
notkun myndfundatækni. Meðal
annars hefur félagið ásamt
nokkrum stuðningsaðilum útvegað
myndfundabúnað í nefndum til-
gangi á allar barnadeildir landsins.
Skilyrði fjrir því að sá búnaður
nýtist er að viðkomandi skólar hafí
til umráða sams konar búnað.
Myndfundasamband á milli skóla
og bamadeildar komst fyrst á í
febrúar 1998 þegar nemandi úr
Grunnskólanum á Hellissandi nýtti
sér þennan möguleika liggjandi inni
á Bamaspítala Hringsins. Foreldr-
Á MYNDINNI er stjórn SKB samankomin á 100. fundi félagsins. Bene-
dikt Gunnarsson vantar á myndina. Talið frá vinstri, efri röð: Guðmund-
ur Jónsson, Gestur Jónsson, Eyjólfur Þórðarson og Sigurbjöm Sigurðs-
son. Neðri röð: Guðleif Vigfúsdóttir, Jóhanna Guðbrandsdóttir, Benedikt
Axelsson formaður, Skúli Jónsson og Albert Sævar Guðmundsson.
ar hans höfðu þá gefíð grunnskólan-
um myndfundabúnað. Ef marka má
síðustu fréttir virðist fólk í ráðandi
stöðum á umræddu sviði vera farið
að átta sig á þeirri jákvæðu leið sem
hér um ræðir. Til marks um það má
nefna að Fræðslumiðstöð Reykja-
víkur hefur fjárfest í nokkram ein-
tökum og er í óða önn að koma bún-
aðinum fyrir í skólum þar sem hann
nýtist best. Akureyrarbær mun
einnig vera að hugsa sér til hreyf-
ings. Fleiri má nefna eins og t.d.
Grannskólann á Eskifírði sem kom
sér upp búnaði með liðveislu Lands-
símans eftir að nemandi þaðan
brenndist illa í ágúst 1998 og þurfti
af þeim sökum að liggja lengi á
Barnaspítala Hringsins.
+
Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vináttu í orði og verki
við fráfall elskulegs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður, bróður og afa,
JÓNASAR BJARNASONAR
fyrrverandi yfirlæknis.
Sérstakar þakkir til Heimahlyningar Krabba-
meinsfélagsins, starfsfólks deildar 13D á
Landspítala og sr. Einars Eyjólfssonar fyrir
ómetanlegan stuðning og aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Tryggvadóttir,
Bjarni Jónasson,
Tryggvi Jónasson,
Helga Jónasdóttir,
Jónas Jónasson,
Herdís Jónasdóttir,
Jóhanna Jónasdóttir,
Ásgeir Jónasson,
Málfríður Bjarnadóttir,
Anna S. Guðmundsdóttir,
Kristín Hraundal,
Snæbjörn Geir Viggósson,
Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir,
Brynjar Þórsson,
Bjarni Bjarnason
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐFINNU VILHJÁLMSDÓTTUR,
Vistheimilinu Seljahlíð,
áður Hæðargarði 44.
Brynhildur Kristinsdóttir,
Selma Kristinsdóttir,
Vilma Mar,
Hjálmar D. Arnórsson,
Halldóra F. Arnórsdóttir,
Hörður Diego Arnórsson,
Jóhann Diego Arnórsson,
Alma Diego Arnórsdóttir,
Brynjólfur Árnason,
Erling Ottósson,
Anna Kristjánsdóttir,
Arngeir Lúðvíksson,
Kolbrún Emma Magnúsdóttir,
María Jenný Jónasdóttir,
Ævar Gestsson,
Guðfinna Diego Arnórsdóttir, Karvel H. Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofa og verslun Sölu varnarliðseigna verður lokuð milli
kl. 10 og 13 fimmtudaginn 21. janúar vegna jarðarfarar
SIGFÚSAR JÓNSSONAR sölustjóra.
Sala varnarliðseigna.
Legudögum sjúkra barna á spít-
ölum fækkar stöðugt. Þar með er
ekki endilega sagt að börnin kom-
ist fyrr í skólann. Nær er að álykta
að börnin séu einangrað frá skóla
og félögum heima hjá sér í auknum
mæli en á sjúkrahúsinu í minni
mæli. Sú þróun á eftir að halda
áfram enda verður hún að teljast
jákvæð. Af framangreindum
ástæðum hefur SKB ákveðið að
leggja aukna áherslu á stuðning við
skjólstæðinga sína heima fyrir með
þeim hætti sem hér er fjallað um.
Myndfundabúnaðurinn mun
standa fjölskyldum barna í krabba-
meinsmeðferð til boða hvar á land-
inu sem er samhliða því að þrýst
verður á viðkomandi skólayfirvöld
að koma til móts við þarfir um-
ræddra nemenda svo að búnaður-
inn geti nýst þeim og þar með rofíð
einangranina, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Vinabæirnir Hafnar-
fjörður og Akureyri
NÆSTA laugardag verður með
formlegum hætti komið á vinabæj-
arsamskiptum á milli Akureyrar
og Hafnarfjarðar. Daginn áður
ætla bæjarstjórarnir að skipta um
sæti og skoða sig um í vinabænum,
Magnús Gunnarsson fer norður og
Kristján Júlíusson suður.
„Hugmyndin að sérstökum
tengslum milli Akureyrar og Hafn-
arfjarðar kom fram í viðræðum
bæjarstjóranna sl. vor og var
menningarfulltrúa Hafnarfjarðar
falið að kanna frekar möguleika á
slíkum tengslum. Af hálfu Akur-
eyrarbæjar hafa starfsmenn
menningardeildar tekið þátt í við-
ræðunum og er skemmst frá því að
segja að áhuginn hefur vaxið enda
bæirnir um margt áþekkir,“ segir í
sameiginlegri fréttatilkynningu frá
bæjarfélögunum.
Ennfremur segir: „Avinningur
slíkra tengsla er margþættur.
Stofnanir bæjarfélaganna era
álíka að stærð og geta því hæglega
tekið upp ýmiss konar samskipti
sem styrkti starfsemi þeirra og
þjónustu. Pólitískir fulltrúar og
starfsmenn bæjarfélaganna geta
kynnst hvernig þau viðfangsefni
sem þeir era að glíma við era leyst
hjá hliðstæðum stofnunum og síð-
ast en ekki síst er það von þeirra
sem að málinu koma að tengslin
megi nýtast félagasamtökum og
hagsmunahópum til að koma á nýj-
um samskiptum við fólkið sem er
að gera svipaða hluti í vinabænum.
A byrjunardeginum, 23. janúar,
verða opnaðar sýningar á hvoram
stað, Byggðasafn Hafnarfjarðar
sér um sýningu sem sett verður
Verslunin hættir sölu á fatnaði á Fosshálsi og
því seljum við allan lagerinn með allt að
80%
affslætti
Fyrir krakkana
Fleece-húfur, prjónahúfur, skíðavettlingar, hanskar, peysur,
buxur, bakpokar og fl. í úrvali
Rrussell
ATHLETIC
^óolumbia
[ciloa m a r xj
Opið í dag
11-18
upp í ráðhúsi Akureyrar og Minja-
safnið á Akureyri setur upp sýn-
ingu í nýja salnum í Hafnarborg,
Apótekinu. Þá verður sérstök há-
tíðardagskrá á hvorum stað og
skjásamband gefur gestum færi á
að fylgjast með opnuninni á hinum
staðnum líka. Hátíðardagskráin
hefst klukkan 14 en klukkan 17
verða síðan hafnfírskir tónleikar
fyrh- norðan og akureyrskir í Firð-
inum. Tríó Björns Thoroddsens
leikur í Deiglunni fyrir norðan og
sönghópur Tónlistarskólans á
Akureyri, Raddir norðurljósanna,
Voces Borealis, syngur í Hásölum,
Strandbergi. Dagskráin er öllum
opin.“
Fræðslu-
fundur
LAUF
FYRSTI fræðslufundur LAUF,
Landssamtaka áhugafólks um
flogaveiki, verður haldinn í
kvöld, fimmtudagskvöldið 21.
janúar, í sal Félags heymaR-
lausra, Laugavegi 26, 4. hæð
og hefst hann kl. 20.30. Gengið
inn í húsið Grettisgötumegin.
Sólveig hjá Grænum kosti
mun koma og ræða um hollt
og gott grænmetisfæði af fjöl-
breyttum toga.
CA. 3-12
Þykkar, rniúkar, hlýjar og
falleqar fleece-peysur a
Rrakka verð kr.
2.990.-
föstudag - laugardag HREYSTI .
M. 11-1 8 —sportvönunus
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858