Morgunblaðið - 21.01.1999, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
BREF
TIL BLAÐSINS
Grettir
Hundalíf
Ljjóska
f/i/ilikur elt'mgaleik.ur.1^
lúibbur eltir k&nt/v/,
ur eíiir 'kubb Oo $bdró }
■ Stebbi eUt/kcU<S
V ' -
A.mm'iro.
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fjárglæfrar
virðast borga sig
Frá Böðvari Böðvarssyni og
Bjarneyju Sólveigu Gunnarsdóttur:
í SUMAR, 25. ágúst, ski-ifuðum við
bréf í Morgunblaðið undir fyrir-
sögninni „Fjárglæfrar". Þar fjölluð-
um við um fjárglæframann, stýri-
mann á frystitogara, sem virðist
geta valsað um bankaker’fíð að vild
með hjálp annarra og án. Hefur
hann komist upp með að fá fólk,
bæði vini og fjölskyldu, til að bæði
taka fyrir sig lán og einnig skrifa
uppá fyrir sig, sem hann síðan læt-
ur falla á viðkomandi, þannig að
margir vita vart sitt rjúkandi ráð.
Eru að minnsta kosti þrjár fjöl-
skyldur í verulegum vandræðum
vegna slíkra mála. Þá er ótalin móð-
ir hans sem hann hefur, einsog í
fyrra bréfinu kom fram, kúgað ár-
um saman og veðsett eign hennar
fyrir ótaldar milljónir.
Einhver, sem ekki hafði kjark til
að koma fram undir nafni, svaraði
þessu bréfi okkar undir nafninu
„móðir“ og sagði þetta ekki satt
vera. Við viljum aðeins benda á upp-
boðsauglýsingu í Dagblaðinu 30. des-
ember 1998 þar sem sonur hennar
ásamt Lífeyrissjóði sjómanna fer
fram á uppboð á eign hennar vegna
skulda sem hann sjálfur hefur stofti-
að til og eru komnar í vanskil. Þessi
maður virðist vera algjörlega ósnert-
anlegur vegna sambanda sinna við
ýmsa stjómmálamenn, sem virðast
greiða götu hans við þessa svika-
starfsemi án þess þó sennilega að
vita hvað er á seyði. Undarlegt er að
það fólk, sem lendir í hremmingum
vegna starfsemi svona manna, virð-
ist ekki hafa nokkum rétt til leiðrétt-
inga sinna mála eða aðstoðar við að
leita réttar síns.
Lögreglan vísar okkur frá sér og
segir þetta okkar einkamál. Okkur
liggur við að kalla hluta af stétt lög-
fræðinga „mafíu“ því að flestir þeir
lögfræðingar, sem við höfum leitað
til, segja með bros á vör: „Það verð-
ur lítið mál að uppræta þetta“; síðan
líður ekki langur tími þar til þögnin
ein grúfir yfir og ekkert gerist.
Bankastjóri hjá SPRON sagði að-
stoð við eitt atriði ekkert mál, en
svo þegar til átti að taka þá virtist
einhver hafa togað í spotta og
skyndilega var ekkert hægt að
gera. Einum aðila, sem við vitum
um og lent hefur í þessum mönnum,
hefur verið þvælt fram og aftur í
tæp tvö ár og sáralítið gerst í hans
málum, nákvæmlega eins og gerst
hefur með okkur.
Einnig leikur granur á að mun
fleira fólk hafi orðið fyrir eignatjóni
vegna starfsemi þessa fjárglæfra-
stýrimanns, vegna tengsla hans við
lögmann fasteignasölu í Reykjavík,
sem stofnuð var fyrir einu eða
tveimur árum, sá hefur haldið hon-
um, á óskiljanlegan hátt, á floti og
stutt hann í þessu braski sínu í
mörg ár. Við erum ekki að skrifa
þetta til að vekja athygli á sjálfum
okkur, heldur höfum við áhyggjur
af því að þessi maður eigi eftir að
leggja fleiri heimili og fjölskyldur í
rúst. Við látum ekki slæva okkur
eða sljóvga í þessu máli, sem hefur
þó verið reynt ítrekað, við viljum
aðeins að allir hafi aðgang að sama
réttlæti. Eitt er þó víst að við hætt-
um ekki fyrr en það gerist.
BÖÐVAR BÖÐVARSSON,
BJARNEY SÓLVEIG
GUNNARSDÓTTIR,
Suðurvangi 14, Hafnarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
er í fullum gangi
Gran Sasso
peysur frá kr. 4.900.-
Ttskuverslun « Kringlunni S-12 « Sími 5533300