Morgunblaðið - 21.01.1999, Side 60
oO FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
i
INNHVERF ÍHUGUIM
Mahanashi Mahesh Yogi
Innhverf íhugun (TM) er einföld, huglæg tækni
sem iðkuð er í 20 mínútur tvisvar á dag. Á fimmta
hundrað rannsóknir sýna jákvæð áhrif daglegrar
iðkunar á andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Almennur kynningarfyrirlestur í
kvöld, fimmtudagskvöld, ki. 20.00 á
Bárugötu 11 (ris).
ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ, sími 551 6662
Litir: Brúnir m/sv. Stærðir. 41-50. Tegund: Bighorn. Verð 12.990.
Vatnsheldir m/nóttúrulegum, stömum gúmmísóln
og lausu „termoplus" fóðri
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Er unnt að veita góða
heilbrigðisþjónustu á
annan og ódýrari hátt?
Opinn fundur í Súlnasal Hótels Sögu
laugardaginn 23. jan. kl. 14:30
Dagskrá:
Baldur Guðlaugsson formaður
Varðar - Fulltrúaráðsins flytur inngangsorð.
íslenskur háskólaspítalí
Sigurður Guðmundsson, landlæknir.
Ríkisrekstur eða einkarekstur
Steinn Jónsson, forstöðulæknir.
Hvaða rekstrarform hentar sjúkrahúsum?
Asta Möller, form. Fél. ísl. hjúkrunarfræðinga.
Eiga frjálsar tryggingar erindi í
íslenskt heilbrigðiskerfi?
Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur.
Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu
Einar Páll Svavarsson, framkvstj. Domus Medica.
Pallborðsumræður og fyrirspurnir.
Stjórnandi Elsa B. Valsdóttir, læknir
Samantekt.
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra
Fundarstjóri
Jóna Gróa Sigurðardóttir, borgarfulltrúi
Allir velkommr
Vörður
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík V
#mb I.IS — L.LTAf= eiTTHVAÐ /VÝT7
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Skeyti til út-
varpsstjóra
EFTIR allan gauragang-
inn á gamlárskvöld mun
margur hafa lagt hlustir við
orðum útvarpsstjóra síð-
ustu mínútur líðandi árs,
enda ómaksins vert. Hann
bryddaði upp á lofsverðri
nýjung; tvö ungmenni lásu
ljóð með slíkum ágætum að
unun var á að hlusta.
Ríkisfjölmiðlar, sjón-
varp og gamla gufan,
munu enn um langa íram-
tíð verða alþjóð fyrirmynd
um framburð íslenskrar
tungu. Verður því að gera
miklar kröfur til allra
starfsmanna þeirra sem
láta til sín heyra. En hér
hefur orðið einn misbrest-
ur á; konur þær sem aug-
lýsingar lesa eru mjög
skýrmæltar svo að allt
kemst til skila sem segja
skal. En sá er galli á gjöf
Njarðar að áherslur
þeirra á orð eru fyrir neð-
an allar hellur. Þegar fólk
hefur nógu lengi heyrt
sömu ambögumar, fer það
að telja þær rétt mál.
Útvarpsstjóri ætti nú að
láta sérfræðing sinn um ís-
lenskt mál rétta áherslu
þeima. Það ætti að verða
létt verk og löðurmannlegt.
Jón A. Gissurarson.
Tapað/fundið
Húfa í óskilum
HÚFA, svört og þykk,
með rauðum stöfum,
fannst við Lindar-
götu/Frakkastíg 8. janúar.
Upplýsingar í síma
552 6225 milli kl. 11-12.
Myndavél týndist
á LA Café
MYNDAVÉL, Konica,
lítil og silfurlituð í svörtu
leðurhulstri, týndist á
LA Café föstudaginn 8.
janúar.
Skilvís finnandi hafi
samband í síma 699 0484
eða 565 6593. Fundar-
laun.
Karlmannshanskar
í óskilum
KARLMANNSHANSKA
R fundust ofarlega í
Fossvoginum. Upplýsing-
ar í síma 588 1062 eftir kl.
17.
Gráir fíngra-
vettlingar týndust
GRÁIR, fóðraðir flngra-
vettlingar úr ull týndust
um sl. áramót í miðbæn-
um eða þar í grennd.
Finnandi vinsamlega haf-
ið samband í síma
552 3159.
Dýrahald
Kisa á flækingi
SVÖRT kisa með rauða ól
er á flækingi á horni
Garðastrætis og Hávaila-
götu og þar í grennd. Þeir
sem kannast við að eiga
svona kisu geta hringt í
síma 551 5832.
SKAK
Umsjón Margeir
I’étursson
STAÐAN kom upp á öfl-
ugu opnu móti í Linares á
Spáni sem iauk um síðustu
helgi. Vladimir Georgiev
(2.540), Búlgar-
íu, var með
hvítt og átti
leik gegn V.
Saravanan
(2.390), Ind-
landi.
18. Dxg4! -
fxg4 19. Hxf7 -
Rf5 20. Hf8+ -
Dxf8 21. Bxf8
- Rxg3 22.
hxg3 - Bd4+
23. Kh2 - Bd7
24. Hfl - He8
25. Bh6 og
svartur gafst
Þeir Aleksei Drejev,
Rússlandi og Artashes
Minasjan, Armeníu, sigr-
uðu á mótinu sem var mjög
öflugt. Þeir hlutu 8 v. af 10
mögulegum. Næstir komu
Rússarnir Burmakin og
Kharlov, Sorokin, Argent-
ínu og Giorgadze, Georgíu
með l'/i v. Helgi Ólafsson
varð í 22.-43. sæti með 6 v.
upp.
HVITUR leikur og vinnur.
HOGNI HREKKVISI
o 'ftanrv notar sitt -eigið krydd."
MÉR finnst að þið þurfið
að ákveða ykkur. I síðustu
viku var ég draumabarn,
en nú er ég orðinn
óforbetranlegur
óþekktarangi.
ÉG verð að biðja þig
að tala ekki um
veikindi við mig
utan vinnutíma.
Víkveiji skrifar...
EFTIR að Alþingi ákvað að heim-
ila að 2% viðbótarframlag laun-
þega í lífeyrissjóð yrði undanþegið
skatti hefur skapast mikil sam-
keppni milli fjármálafyrirtækja um
þennan lífeyrissparnað. Stöðugár
auglýsingar eru í fjölmiðlum um
þennan sparnaðarkost. Aukinn
sparnaður þjóðarinnar er að sjálf-
sögðu hið besta mál, en sú spurning
vaknar hver kemur til með að borga
allar auglýsingarnar. Kostnaður
hlýtur að lenda á þeim sem greiða í
lífeyrissjóðina. Hluti af lífeyrissparn-
aði fólksins fer því í að greiða aug-
lýsingarnar. Á undanfömum árum
hefur kostnaður við rekstur lífeyris-
kerfísins farið lækkandi ár frá ári.
Fróðlegt verður að sjá hvort þær
breytingar sem eru að verða á lífeyr-
issjóðakerfí landsmanna leiða til
þess að kostnaðurinn hækkar á nýj-
an leik.
xxx
BÚNAÐARBANKINN er eitt
þeirra fyrirtækja sem sent hafa
auglýsingabæklinga heim til fólks
um þennan lífeyrissparnað. I bæk-
lingnum eru sett upp dæmi um hvað
fólk getur átt stóran lífeyrissjóð eftir
sparnað í tiltekin ár. I einu dæminu
gefur bankinn sér þá forsendu að líf-
eyrissjóðurinn skili 12,5% ávöxtun í
30 ár. Furðulegt má heita hvemig
bankinn leyfir sér að setja fram
dæmi með slíkri forsendu. Þegar
tryggingafræðingar gera upp lífeyr-
issjóði fram í tímann reikna þeir yf-
irleitt með 2,5-3,5% ávöxtun.
í síðustu skýrslu bankaeftirlitsins
um lífeyrissjóði á íslandi kemur fram
að ávöxtun á árinu 1997 var 7,9%,
sem verður að teljast mjög góð ávöxt-
un. Enginn lífeyrissjóour náði 12,5%
meðalávöxtun á tímabilinu 1993-1997.
Eftirlaunasjóður Búnaðarbanka ís-
lands, sem er reyndar ekki sjóðurinn
sem bankinn er að auglýsa, en bank-
inn sér engu að síður um að ávaxta,
skilaði t.d. 2,5% ávöxtun á árinu 1997.
Að gefa í skyn að fólk geti vænst
12,5% ávöxtunar gengur ekki upp.
XXX
YÍKVERJI var einu sinni sem
oftar að horfa á Ríkissjónvarpið
fyrir nokkrum dögum. í dagskrárlok
kom auglýsingaþáttur, sjónvarps-
markaður, og þar sem Víkverji hefur
ekki horft á þennan þátt árum sam-
an ákvað hann að sjá hvað væri á
boðstólum.
Fyrst var boðið upp á eitthvert
undraefni, TheraCel, ef Víkverja
misminnif ekki, sem sagt var þeirrar
náttúru að fólk yngdist um 10 ár á 10
mínútum ef það bar efnið á andlitið!
Krukkan með efninu kostaði 11.940
krónur. Sýndar voru myndir af kon-
um sem yngdust á örskotsstund og
viðtöl við enn aðrar konur um áhrifa-
mátt efnisins. Viðtölin voru auðvitað
tekin í borg hinna ungu, París.
Síðan voru boðnir til sölu megrun-
areyrnalokkar á 2.490 krónur parið
og þeir voru sagðir þeiiTar náttúru
að konur myndu léttast um 6-7 kg
við notkun þeirra.
Vissulega er Víkverji ekki dóm-
bær um ágæti vörunnar en vissar
efasemdir hljóta að vakna, a.m.k. um
svo skjótvirk áhrif lyfsins TheraCel.
Að vísu er tekið fram að 14 daga
skilafrestur sé á vörunni en ef að lík-
um lætur er verulega gengið á birgð-
irnar eftir 14 daga notkun.