Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 65
Kvikmyndagerð á Flateyri
Heit og
köld saga
Vetrartökum á myndinni I faðmi hafsins
er nýlokið á Flateyri. Sagan er þjóðsaga
og draugasaga, bæði létt og rómantísk.
--———-----------------------7---------
Annar leikstjóranna, Lýður Arnason,
sagði Hildi Loftsdóttur að þetta væri allt
spurning um matreiðslu.
EINNI SÆNG nefnist kvik-
myndafyrirtæki Jóakims Reyn-
issonar og Lýðs Árnasonar leik-
stjóra myndarinnar „I faðmi hafs-
ins“. Hildur Jóhannesdóttir aðstoð-
aði við handritsskrifín og meðfram-
leiðandi þeirra er Nýja bíó.
Þeir félagar hafa áður gert stutt-
myndina „Ertu sannur?“, sem sýnd
var í Sjónvarpinu, eftir að hafa gert
um 20 stuttmyndir bara fyrir sjálfa
sig. Langþráður draumur er því að
rætast; að gera kvikmynd í fullri
lengd. En þann draum hafa þeir fé-
lagar alið með sér í tíu, jafnvel tutt-
ugu ár.
„Eg komst í kynni við eina allra
fyrstu myndbandsupptökuvélina
sem kom til landsins á áttunda ára-
tugnum og þá fékk ég algjöra
dellu,“ segir Lýður, „og byrjaði
strax að búa til myndir. Við Jóakim
hittumst í Hítardalnum þar sem ég
var að taka mynd, og þannig kynnt-
umst við af tilviljun."
- Um hvað fjallar sagan?
„Hún fjallar um ungan útgerðar-
mann sem er að fara að gifta sig, en
brúðurin hverfur á brúðkaupsnótt-
unni og ekkert finnst nema kjóllinn
hennar í fjörunni. Síðan rekur sag-
an hvað um hana varð og hvemig
hann tekur á þessum málum.
Jóakim skrifaði söguna upphaflega
sem stuttmynd, en við ákváðum að
gera alvörumynd út frá hugmynd-
inni.“
- Erþetta ævintýri?
„Nei, þetta er bæði draugasaga
og þjóðsaga sem markast af skörp-
um andstæðum. Annars vegar ógn-
andi snjóhengjunum í fjöllunum og
hafinu sem tekur til sín annan
hvern sjómann að lokum, og svo
hins vegar iðandi mannlífinu og
hvernig fólk tekst á við þetta. Þetta
er heit og köld saga, myndi ég
segja. Þetta er hvorki hádrama né
gamanmynd. Myndin er frekar
raunsönn lýsing og kómíkinni em
líka gerð skil.
Það em einhver dulmögn sem
maður verður fyrir þegar maður býr
á svona stað. Það hefur mikil áhrif á
AÐSÓKN
Jaríkjunum
Titill Síðasta vika Alls
1. (-) Varsity Blues 1.260 m.kr. 17,5 m$ 17,5 m$
2. (1) Patch Adams 868 m.kr. 12,1 m$ 98,7 m$
3. (2) ACivil Action 847m.kr. 11,8 m$ 31,3 m$
4.(15) The Thin Red Line 818m.kr. 11,3 m$ 14,4 m$
5. (-) At First Sight 608m.kr. 8,4 mS 8,4 m$
6. (4) Stepmom 560m.kr. 7,8 m$ 72,0 m$
7. (3) You’ve Got Mail 477m.kr. 6,6 m$ 98,9 m$
8. (5) The Prince of Egypt 453m.kr. 6,3 m$ 82,6 m$
9. (-) Virus 433m.kr. 6,0 m$ 6,0 m$
10.(8) Shakespeare in Love 341m.kr. 4,7 m$ 21,3 m$
Fótboltamynd
vinsælust
FÓTBOLTAMYNDIN
„Varsity Blues“ var hlut-
skörpust á fjögurra daga
langri helgi Martin Luthers
Kings og lialaði imi tæpa 1,8
milljarða áður en yfir lauk á
mánudagskvöld.
Myndin er framleidd af
Paramount og MTV og höfðar
til yngri kynslóðarinnar enda
var yfirgnæfandi meirihluti
bíógesta undir 25 ára aldri.
Það kom hins vegar á óvart að
konur vom í meirihluta eða
54% sem er óvenjulegt þegar
íjiróttamynd er anncars vegar.
A móti kemur að kyntröllið
James Van Der Beek úr „Daw-
son Creek“ fer fyrir fríðum
hópi karlmanna í myndinni.
Tekjur „Varsity Blues“ era
nýtt frumsýningarmet um
þessa helgp og slá út þær 958
miHjónir sem myndin „Higher
Leaming" þénaði árið 1995.
Titanic halaði aftur á móti iim
2,6 milljarða þessa helgi í
fyrra.
FÓLK í FRÉTTUM
Góð myndgæði
„SIGURÐUR Kristjánsson er svo flottur, hann er
eins og landslagið hérna,“ segir Lýður um einn
leikarann, sem hér situr til borðs með starfsfélaga
sinum, Hinriki Ólafssyni.
- Er þetta þá séríslensk saga?
„Já, en við stefnum að því að
myndin hafi fjölþjóðlega skírskotun,
og sýna hana utan landsteinanna.
Við ætlum að gera sjónvarpsútgáfu
sem verða tveir klukkutíma þættir,
auk þess sem við getum líka sýnt
hana í bíóhúsum."
- Eruð þið með eins vélar og
dönsku dogma-gæjarnir?
„Ég held að þeir séu með litlar
digital-vélar sem eru um 300 þús-
und króna virði, og þess vegna fyrir
áhugamenn. Okkar mynd er líka
tekin á digital-myndband, nema það
að myndavélin er einhver voða
græja sem ég held að kosti um tíu
milljónir. Hún er því með töluvert
betri upplausn og talsvert ljósnæm-
Morgunblaðið/Egill Egilsson
GUÐMUNDUR Bjartmarsson kvikmyndatökumað-
ur ásamt leiksljórunum tveimur, Jóakim og Lýði.
mann og við reynum að koma því á
framfæri. Maður er í miklu meiri
nánd við náttúruna og líka gamla
tíma. Þegar maður gengur út eftir
firði þá er eins og að ganga aftur í
tímann. Myndin á að gerast fyrir sjö
árum og líka í dag, en mun sjálfsagt
hafa yfir sér tímalausan blæ vegna
umhverfisins. Svo erum við að reyna
að gera fólk stolt af því að vera ís-
lendingar og búa á þessum stað.“
ÞAÐ ER enginn
vandi ad láta snjóa
smávegis.
ari. Enda sérðu það á myndunum
sem Danirnir eru að gera að mynd-
gæðunum er verulega ábótavant
miðað við filmuna. Það gæti alveg
gengið upp við okkar sögu líka,
þannig að við getum alltaf rýrt
myndgæðin í eftirvinnslu ef þörf
þykir!"
- Erþetta rómantísk saga?
„Já, en ekki væmin. Ef Amerík-
anarnir myndu matreiða hana þá
yrði hún væmin. En þegar við lítum
til Evrópu þá sjáum við hvað þeir
gera skemmtilegar rómatískar^
myndir. Þetta er allt saman spura-*
ing um matreiðslu."
/ 6 kjúklingabitar
Stór skammtur a\
frönskum kartöfli
, PEPSI