Morgunblaðið - 09.02.1999, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR1999
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
i —;--------
Fiorentina varð
fyrir miklu áfalli
SPENNAN heldur áfram að
magnast á toppi ítölsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu og
óhikað má fullyrða að topplið
. Fiorentina hafi orðið fyrir
þungu höggi í viðureign sinni
við AC Milan á sunnudag.
Ekki einasta voru leikmenn
Mílanóliðsíns mun snarpari í
leiknum, sem lyktaði með
markalausu jafntefli, heldur
meiddist markahrókurinn
argentínski, Gabriel Omar
Batistuta, heldur illa undir lok
leiksins og var borinn af velli.
Jafnteflið nýttu Parma og
Lazio sér til að nálgast topp-
liðið mjög, en meistarar Ju-
ventus eru með böggum hild-
ar sem áður og nálgast nú
verri enda deildarinnar óð-
fluga.
Fiorentina hafði fyrir leikinn unn-
ið sigur í síðustu tíu heimaleikj-
um sínum. Vöm og miðja Míianó-
liðsins var hins vegar afar þétt fyrir
og með smáheppni hefðu gestirnir
getað tekið öll þrjú stigin.
Giovanni Trappatoni sagði enda í
ieikslok að jafntefli væri ekki
alslæm niðurstaða, meiðsli Batistut-
as væru öllu verri.
„Hann er hjarta liðsins," sagði
hann um framherjann, sem líklega
verður frá keppni í mánuð vegna
hnémeiðsla. „Það þarf ekki annað
en að líta á þau átján mörk sem
hann hefur skorað á þessu tímabili,"
bætti hann við og var greinilega
áhyggjufullur. Hann hefur enda
fyllstu ástæðu til; ekki aðeins verð-
ur Batistuta fjarri góðu gamni í
mánuð, Brasilíumaðurinn Edmundo
er á leið heim í frí vegna hinnar ár-
vissu kjötkveðjuhátíðar og þá er
Luis Oliveira meiddur. Það er því
hætt við að framlína liðsins verði fá-
liðuð í næsta leik gegn Udinese.
Milljarðaliðið Lazio er á hinn
bóginn á fljúgandi siglingu - liðið
Baggio og
Vierií
framlínu
ítala
DINO Zoff valdi á sunnudag
ítalska landsliðið sem mæta á
Norðmönnum í vináttulands-
leik annað kvöld.
ítalska liðið er skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Markverðir: Gianluigi Buffon
(Parma), Angelo Peruzzi (Ju-
ventus).
Vai-narnienn: Fabio Canna-
varo (Parma), Mark Iuliano og
Gianluca Pessotto (Juventus),
Paolo Maldini (AC Milan),
Alessandro Nesta (Lazio),
Christian Panucci (Real Ma-
drid), Moreno Torricelli (Fior-
entina).
Miðvallarleiknienn: Demetrio
Albertini (AC Miian), Jonath-
an Bachini (Udinese), Dino
Baggio, Parma, Diego Fuser
Pai-ma, Sandro Cois (Fiorent-
ina), Eusebio Di Francesco
(AS Roma), Gianluca Zam-
brotta (Bari).
Framheijar: Roberto Baggio
(Inter Milan), Enrico Chiesa
(Parma), Francesco Totti (AS
Roma), Christian Vieri
(Lazio).
MARKAKÓNGURINN argentínski, Gabriel Omar Batistuta, meiddist í leik Fiorentina gegn AC Milan og verður líklega frá keppni
í mánuð hið minnsta.
Reuters
vann um helgina níunda sigurinn í
röð. Undir stjóm Svíans rökvísa,
Svens Görans Eriksons, gengur allt
í haginn þessa dagana og snilling-
amir í framlínunni, Marcello Salas
og Christian Vieri, leika við hvum
sinn fíngur og allar sínar tær.
Heppnin virðist aukinheldur al-
gjörlega á bandi Rómarliðsins.
Þannig virtist sem Perugia hefði
skorað fyllilega löglegt mark í fyrri
hálfleik, er boltinn fór yfir marklín-
una, en Argentínumaðurinn Matias
Almeyda sparkaði honum frá og
dómarinn lét háværar kröfur
Perugiamanna sem vind um eyru
þjóta.
Tvö mörk frá Salas og eitt frá Vi-
eri tryggðu síðan sigurinn, Vieri
hefur nú skorað sex mörk í átta
leikjum.
Frakkinn Youri Djorkaeff gerði
þrennu í 5:l-sigri Intemazionale á
Empoli. Inter hefur einnig verið á
fleygiferð upp á síðkastið og þar
hefur sóknarleikurinn verið í fyrir-
rúmi - liðið hefur gert 25 mörk í síð-
ustu fimm Ieikjum sínum.
Raunum Juventus virðist ekki
ætla að linna og ekkert hefur geng-
ið hjá þessu fomfræga stói-veldi á
keppnistímabilinu. í stórleik sunnu-
dagskvöldsins mátti Juve sætta sig
við stórtap, 2:4, á heimavellinum
gegn mjólkurdrengjunum í Parma.
Þetta var fyrsti sigur Parma á
Juve í níu leikjum og í byrjun var
raunar fátt sem benti til annars en
sigurs Tórínóliðsins. Alessio
Tacchinardi kom heimamönnum
nefnilega yfír eftir stundarfjórðung
og leikmenn Juventus virtust ör-
uggir og ógnandi í leik sínum.
Allt breyttist hins vegar á átta
mínútna leikkafla fytir leikhlé.
Framherjarnir hjá Parma, þeir
Crespo og Chiesa, gerðu þá þrjú
glæsileg mörk og slökktu allar sig-
ui'vonir heimamanna. Til að full-
komna daginn gerði Crespo þriðja
mark sitt í upphafi seinni hálfleiks -
setti boltann með hælspyrnu fram-
hjá markverði Juve og fullkomnaði
niðurlægingu meistaranna, sem
náðu þó aðeins að rétta sinn hlut
undir lokin með marki varamanns-
ins Daniels Fonsecas.
Amar kom inn á
gegn Sheff. Wed.
Arnar Gunnlaugsson lék fyrsta
leik sinn með Leicester á
laugardag, er liðið lá á heimavelli
gegn Sheffíeld Wednesday, 0:2.
Arnar kom inn á sem varamaður í
seinni hálfleik, en náði ekki að
setja mark sitt á leikinn.
Leicester hefur ekki gengið vel
í deildinni upp á síðkastið, vann
raunar síðast lið Sheffield Wed-
nesday um jólin, 1:0. Síðan hafa
jafntefli eða tap verið hlutskipti
liðsins og vonir um Evrópusæti
minnka með hverri umferðinni.
Hins vegar er enn von með fram-
gangi í deildarbikarnum, þar sem
liðinu hefur gengið allt í haginn.
Fyrir leikinn áttu þrír lykil-
menn Leicester í meiðslum og
jafnvel var talið að Arnar myndi
fara beint í byrjunarliðið. Þess í
stað stóðst Emile Heskey læknis-
skoðun og lék í framlínunni við
hlið Tony Cottees. Hvorugur náði
sér hins vegar á strik og fyrir vik-
ið er talið líklegt að Arnar nái sæti
í byrjunarliðinu í næsta leik.
„Er ekki gráðugur“
Arnar Gunnlaugsson sagði í við-
tali við Daily Mail að ummæli Col-
Mynd/Paul Broadwick
ARNAR Gunnlaugsson á
bekknum hjá Leicester.
ins Todd, framkvæmdastjóra
Bolton, hafi valdið því að stuðn-
ingsmenn félagsins, hafi talið
hann gráðugan og snúið við hon-
um baki.
Arnar, sem genginn er til liðs
við Leicester, neitaði í vetur að
skrifa undir nýjan samning við
Bolton og var hann settur á sölu-
lista. I kjölfarið lýsti Todd fram-
kvæmdastjóri því yfir að græðgi
réði því að Arnar vildi ekki sam-
þykkja tilboð Bolton. Arnar lék
síðustu 15 mínúturnar í kveðjuleik
sínum fyrir Bolton gegn Norwich.
Þegar hann kom inn á leikvöllinn
bauluðu stuðningsmenn Bolton á
hann. Arnar segir að hróp áhorf-
enda hafi sært sig. Hann segir í
samtali við Daily Mail um helgina
að Todd hafi spillt sambandi sínu
við stuðningsmenn Bolton. „Þeir
héldu að mér væri ekki umhugað
um félagið en allar sögur um
græðgi eru ósannar. Eg er aðeins
gráðugur í að skora mörk,“ segir
Arnar.
Segir í frétt blaðsins að Arnar,
sem hafi skorað 14 mörk fyrir
Bolton í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar á þessu tímabili, hafi
kostað félagið um 10 milljónir ís-
lenskra króna árið 1997. Hann var
seldur til úi-valsdeildarfélagsins
Leicester í liðinni viku fyrir um
402 milljónir króna.
Alltí
upp-
námi á
Spáni
ALLT er í uppnámi í topp-
baráttu spænskra knatt-
spyrnuliða eftir Ieiki helg-
arinnar og nokkur lið geta
með réttu talist gera kall til
ineistaratitilsins í vor.
Þannig unnu Barcelona,
Real Madrid, Valencia og
Celta Vigo öll leiki sína, en
sólardrengirnir frá Mall-
orca virðast úr myndinni
eftir tap.
Framheijinn ungi Raul
Gonzales var munstraður í
hlutverk fyrirliðans hjá
Evrópumeisturum Real Ma-
drid og tók nafnbótinni vel
- gerði þrennu í 3:2-sigri
Madridarliðsins á Valla-
dolid.
Fjarvera þeirra Manuel
Sanchis og Fernando Hier-
ros losaði um fyrirliðaband-
ið og óhætt er að segja að
Raul hafi brugðist vel við
kallinu. Um leið minnkaði
pressan á hollenska þjálfar-
ann Guus Hiddink, enda
hefur Real leikið ágætlega
frá áramótum og gæti jafn-
að Barcelona um næstu
helgi er liðin mætast í rétt-
nefndum risaleik.
Barcelona komst í hann
krappan gegn Extrema-
dura, en Hollendingurinn
Patrick Kluivert reyndist
betri en enginn undir lokin
og gerði sigurmarkið í 2:1-
sigri Katalóníuliðsins.
Celta frá Vigo vann stór-
sigur, 4:1, á Villareal, og er
í öðru sæti með betri
markamun en Real og Va-
lencia. Mallorca er hins veg-
ar á niðurleið eftir l:0-tap
gegn Espanyol.