Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningur rikis og Skógræktarfélagsins um framlag til Landgræðsluskóga Langstærsta skógrækt- arverkefnið hingað til Morgunblaðið/Þorkell FRÁ undirritun samningsins á Iaugardag. Frá vinstri: Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra, Hulda Valtýsdóttir, formaður Skóg- ræktarfélags Islands, og Geir H. Haarde íjármálaráðlierra. SAMNINGUR milli ríkisins og Skóg- ræktarfélags Islands, sem felur m.a. í sér árlegt og stigvaxandi fjáríramlag til samstarfsverkefnisins Land- græðsluskóga, til ársins 2003 í hlut- falli við minnkandi framlag Skógrækt- ar ríkisins á trjáplöntum tii verkefnis- insi var undirritaður á laugardag. I lok samningstímabilsins árið 2003, verður fjái'framlag ríkisins til Skóg- ræktarfélagsins komið í 16 miiljónir króna, en á sama tíma verður plöntu- framleiðslu Skógræktar ríldsins vegna verkefnisins lokið. Þannig mun Skógræktarfélagið sjá um að bjóða út framleiðslu á einni milljón trjáplantna til verkefnisins meðal einkaaðila. Ábyrgð Skógræktar- félagsins aukin Skógræktarfélagið tekur með samningnum að sér stjóm og fram- kvæmd Landgræðsluskóga fyrir land- búnaðarráðuneytið. í því felst undir- búningur og gerð samninga um friðun og vörslu, plöntukaup, skipulag dreif- ingar á plöntum, gróðursetning og umhirða svæða. Framlagið ársins 1999 er 10 milljónir króna og hækkar framlag- ið um tvær milljónir á ári uns samningurinn rennur út 31. desem- ber 2003, en hann verður endur- skoðaður eigi síðar en 30. desember 2002. Guðmundur Bjamason umhverfis- ráðhema sagði við samningsundiiTÍt- unina, að verið væri að auka ábyrgð Skógræktarfélags íslands á hlutdeild þess í Landgi’æðsluskógum. Hefði Skógræktarfélagið staðið sig afar vel í verkefninu á undanfömum ámm. Hann taldi að málum væri betur kom- ið með þeim hætti að Skógræktarfé- lagið sæi um plöntukaup hjá einkaað- ilum heldur en að Skógrækt ríkisins framleiddi plöntumai’. „Það er orðið fullt af framleiðend- um sem geta annast það verkefni og Skógrækt ríkisins hefur fengið það verkefni í meiri mæli að vera til leið- beiningar, fræðslu og eftirlits með skóglendum, en dregið úi’ fram- kvæmdum af þessu tagi enda geta aðrir annast það,“ sagði Guðmundur. Hulda Valtýsdóttir formaður Skóg- ræktarfélags Islands sagði að samn- ingurinn væri til merkis um mikil- væga traustsyfírlýsingu ríkisins á Skógræktarfélagið. „Verkefnið Landgræðsluskógar er langstærsta skógræktarverkefnið sem hefur verið ráðist í og hefur vakið mikla athygli á möguleikum okkai’ á því að gróðursetja í nýtt gróðurland,“ sagði Hulda. Borgarsjóður 24 milljónir til íþrótta- og æsku- lýðsfélaga RÚMUM 24 milljónum króna hefur verið úthlutað úr borg- arsjóði til íþrótta- og æsku- lýðsfélaga samkvæmt tiUögu Iþrótta- og tómstundaráðs sem staðfest hefur verið í borgarráði. Skátasamband Reykjavíkur fær hæsta styrkinn Skátasamband Reykjavíkur hlýtur hæsta styrkinn, 4,5 milljónir króna, KFUM og KFUK hljóta fjórar milljónir króna, Afreks- og styrktar- sjóður Reykjavíkur 2,5 millj- ónir, Taflfélag Reykjavíkur tvær milljónir, Taflfélagið Hellir einnig tvær miUjónir, Pallas Athena 1,8 milljónir, Bridgefélag Reykjavíkur og íþróttafélag Reykjavíkur hálfa milljón hvort félag, Fé- lag áhugafólks um íþróttir aldraðra fær fjögur hundruð þúsund krónur en önnur félög fá minna. | r L . Hjálparsjóður Rauða kross íslands Breski leikstjórinn Tony Kaye við tökur hérlendis 25 milljónir til fórnarlamba jarðsprengna RAUÐI kross íslands hefur sent 25 milljóna króna framlag til starfs Aljóðaráðs Rauða krossins fyrir fómarlömb jarðsprengna í írak og Bosníu. Er framlagið að mestu leyti komið frá styrktarfélögum Hjálparsjóðs Rauða krossins. Þrettán milljónum króna verður varið í verkefni á vegum Rauða krossins í Irak en fyrir þá upphæð er unnt að framleiða yfir eitt þús- und gervilimi þar í landi og veita fjölda fólks nauðsynlega endur- hæfingu. Um tíu milljónum króna verður varið í fræðslu og forvarnir gegn jarðsprengjum meðal al- mennings í Bosníu og tveimur milljónum króna verður varið í al- menn verkefni vegna jarð- sprengna, á vegum Alþjóðaráðs- ins. Hjálparsjóður Rauða kross ís- lands samanstendur af styrktarfé- lögum, sem eru bæði einstaklingar og fyrirtæki. Greiða þeir 2.500 króna árgjald sem notað er í ýmis verkefni. Framlög ársins 1997 voru notuð til að kaupa vetrarskó fyrir börn í Kasakstan og framlög þessa árs verða notuð til að auka lífslíkur barna og kvenna í suður- hluta Mósambík, með bólusetning- um og aukinni heilsugæslu. Verk- efnið er unnið í samvinnu við Þró- unarsamvinnustofnun Islands, en barnadauði í Mósambík er meðal þess mesta sem þekkist. Styrktarfélögum Hjálparsjóðs- ins fjölgaði verulega á síðasta ári og hefur framlag sjóðsins aldrei verið hærra en nú. Alþjóðaráð Rauða krossins styð- ur með margvíslegum hætti við fórnarlömb jarðsprengna. Ráðið rekur t.a.m. 25 gervilimaverkstæði og endurhæfingarstöðvar fyrir fórnarlömb jarðsprengna í 25 löndum víða um heim. UNDSFRÆGT U RVA J- SKOÐID ÚRVAIIP Á HFIíTlASÍÐU SKKAK, WWW.HFKI-A.IS Til sölu MMC Galloper, Tuírbo Diései, sjaitsKiptur, Dreynur, 33 tommu dekk, álfelgur, varadekkshlíf. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu í símum 569 5500 og 569 5660. opnunartími: mánud.- föstud. kl. 9-18, laugardagar kl. 12-16. duu og Dba DbbU. j BÍLAÞING HEKLU W O T A Ð I R .á-fii B I L A B LAUGAVEGI 174 • SlMI 669 5660 • FAX 569 5662 Morgunblaðið/Jón Svavarsson TONY Kaye vinnur að mynd um náttúru og umhverfi á Islandi. Islensk náttúra í alþjóð- legri auglýsingaherferð BRESKI leikstjórinn Tony Kaye er við tökur hérlendis á listrænni auglýsingamynd fyrir svissneska bankann UBS. f því skyni hefur hann ferðast um heiminn, m.a. til Ástralíu, Venesúela og Japans, og myndað náttúruperlur, framúr- stefnulegan arkitektúr og fleira. Kaye vinnur myndina hérlendis í samstarfi við kvikmyndafyrirtæk- ið PanArctica. Hann myndaði við Bláa lónið á sunnudag og við Geysi í Haukadal og í gær mynd- aði hann íshella í grennd við Jök- ulsárlón. Hann skýrði frá því í samtali við Morgunblaðið að myndin snerist um náttúruna og það umhverfí sem maðurinn hef- ur búið sér og að undir myndun- um yrði lesið upp úr textum bandariska nítjándu aldar skálds- ins Emersons. Kaye er almennt talinn einn þekktasti og áhrifamesti auglýs- ingaleikstjóri í heiminum. Hann komst nýverið í sviðsfjósið þegar hann leikstýrði myndinni Americ- an History X en vildi ekki láta kenna sér myndina eftir deilur við kvikmyndaverið New Line, sem framleiðir myndina, og aðal- leikarann, Edward Norton, sem tilnefndur er til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í mynd- inni. Kaye taldi sig ekki fá nógan tíma til að Ijúka við myndina og var ósáttur við afskipti fulltrúa kvikmyndaversins og Nortons af lokafrágangi hennar. Hann stóð fyrir auglýsingaherferð gegn New Line í dagblöðum og tíma- ritum en alit kom fyrir ekki. Hann stendur nú í málaferlum við New Line vegna málsins. Kaye vinnur einnig að því um þessar mundir að ljúka við heim- ildarmynd um fóstureyðingar, sem hann hefur unnið að í átta ár, og stefnir að gerð myndar eft- ir sögu Tennessee Williams með Marlon Brando í aðalhlutverki. „Fyrir okkur er auðvitað mikið mál að vinna fyrir Tony Kaye. Hann er þekktasti auglýsinga- leikstjóri í heiminum í dag auk þess sem hann er að leikstýra kvikmyndum," segir Pétur Bjarnason hjá Pan Arctica. „Við höfum verið í sambandi við Tony Kaye nánast frá stofnun fyrir- tækisins fyrir tæpum tveimur ár- um og höfum gert mörg tilboð í ýmis verkefni. Þessar tökur eru sérstakt samstarfsverkefni Pan Arctica og Tony Kaye.“ Hann vildi ekki nefna neinar kostnaðartölur vegna umfangs verkefnisins en skýrði frá því að á næstunni ynni fyrirtækið verk- efni fyrir aðila í Englandi og Þýskalandi og stórt verkefni fyrir aðila á Spáni. Óhætt er að segja að veðurguð- irnir hafi leikið við Kaye og fjall- konan skartað sínu fegursta þá daga sem hann hefur verið við tökur hérlendis en hann flýgur héðan í fyrramálið. Ef lánið hefúr leikið við hann hefur það líka leikið við íslenska ferðaþjónustu því myndin verður sýnd um allan heiin þegar hún verður tilbúin og verður það liður í alþjóðlegri auglýsingaherferð UBS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.